Þjóðviljinn - 13.05.1955, Page 1

Þjóðviljinn - 13.05.1955, Page 1
Inni í blaðinu 7. síða: Ríeða Kinars OI- geirssonar í út- varpsumræðu num. 5. síða: Hundruð milijóna undirrita Vínar- ávarpið. Særður maður deyr í „sjúkra- herbergi" lögreglunnar Fannsf liggjandi á götu drukkinn - ekki vitaS hvernig hann hlaut höfuSsár sift Snemma í fyrramorgun andaðist í „svonefndu sjúkraherbergi“ lögreglustöðvarinnar særður maður er þangað hafði verið flutt- ur drukkinn þá um nóttina. Hafði læknir vitjað hans er hann kom á stöðina, en síðan var hann látinn liggja þar. Nánari atvik eru þessi: Laust fyrir kl. 3 aðfaranótt miðvikudags kom maður einn á lögreglustöðina og tilkynnti að ölvaður maður lægi á stéttinni framan við Herkastalann í Kirkjustræti 2. Mikill asi var á þessum manni, og var hann á bak og burt áður en lög- reglumönnum gæfist tími til að spyrja hann nafns eða inna hann nánar eftir tíðindum. Fóru lögreglumenn þegar á staðinn, og lá maðurinn þar enn. Hann virtist mjög ölvað- ur; og er honum var lyft upp kom í ljós að honum höfðu blætt nasir, þannig að húfa hans er lá undir vanga hans löðraði í blóði. Maðurinn var þó við meðvitund. Honum var ekið á lögreglustöðina, og var næturlæknir þegar kallaður til hans. Við athugun hans kom í Ijós fremur lítill skurður á höfði mannsins ofan við vinstra eyra, og virtist það ekki stór- vægilegt meiðsH. Var maðurinn síðan látinn liggja í „svonefndu sjúkraherbergi“ lögreglustöðv- arinnar, eins og Sveinn Sæ- mundsson komst að orði í við- tali við blaðamenn í gær. Þar lézt hann kl. rúmlega 6 um morguninn. Höfðu lögreglu- menn he-'/rt, hrvgla í honum og kölluðu þegar á lækni, en mað- urinn var látinn er læknir kom. Hann hét Sigurður Sigurðs- son. varð fimmtugur fvrir nokkmm dögum, var logsuðu- maðnr f Hamri, og hafði búið í Herkastalanum eitthvað á annnð ár. Við knifningn líksins hefur komið í ljós að brestur var í Sðmi6 um Vietnam í París Stjómir Frakklands og Banda- ríkjanna hafa komið sér saman um sameiginlega stefnu í málum Suðnr-Vietnems Varð þetta samkomulag á fundum utanrík- isráðherra þeirra, Pinay og DuHes, í París. Bandaríkin heita því að styðja Bao Dai keisara skjólstæðing Frakka, en Fra.kkar lofa hins vegar Diem forsætisráðherra, skjólstæðingi Bandaríkiamanna, stuðningi sínum. MIKIL FíXiÐ hafa orðið í fylk- inu Saskatchewan í Kanada og hafa akrar 40.000 bænda orðið fyrir þeim. í fylkinu eru mestu hveitakrar landsins. höfuðkúpunni þar sem skurður- inn var, hafði æð sprungið og siðan blætt inn á heilann. Tel- ur Níels Dungal prófessor, sem krufði líkið, að fyrst eftir að maðurinn fékk áverkann hafi hann verið allra ferða fær; þurfi hann því alls ekki að hafa fengið hann á þeim slóð- um þar sem hann fannst. Það er vitað að kl. 4 dag- inn áður hafði Sigurður heit- inn fengið 200 krónur að láni hjá manni einum. Var hann þá ódrukkinn. Kl. um 10 það kvöld sá samstarfsmaður hans hann í fylgd annars manns við bif- reiðastöðina Hreyfil, og taldi hann víst að þeir hefðu ætlað að leigja bíl þar á stöðinni. Síð- an er ekki vitað um ferðir Sig- urðar; eru það eindregin til- mæli rannsóknarlögreglunnar að maður sá er var með hon- um á bílstöðinni, svo og sá er kom á lögreglustöðina um nótt- ina, gefi sig fram þegar í stað — sömuleiðis þeir er kynnu að geta gefið einhverjar frekari upplýsingar um ferðir hans þá um nóttina. Vist hins særða manns í ,svonefndu sjúkraherbergi1 lög- reglunnar er mál sem þyrfti að ræða á víðara vettvangi. At- burðir svipaðir þessum hafa áð- ur gerzt — hverjir sem kunna að vilja bera ábyrgð á þeim. Oldmð kona yerður fynr bíl og bíður þegar bana TJm sex-leytið í gær ók vöru- j hún lenti undir vörubílnum og bifreið á aldraða konu á Skál- holtsstíg, og beið hún þegar bana. Bifreiðin A-791 var á leið upp Skálholtsstíg. Rétt neðan við gatnamót Skálholtsstígs og Grundarstígs stóð fólksbifreið- in R-432 við gangstéttarbrún og sneri í vestur. Vörubíllinn ók utan í fólksbifreiðina og kastaðist síðan upp á gang- stéttina aítan við hana. Þar var öldruð kona á ferli, og skipti það engum toguin að áfram í dag. lézt samstundis. Vörubíllinn rann síðan skáhallt inn á Gruntl arstíginn, upp á gangstétt og nain loks staðar á húsinu núin- er 7 við þá götu. Bílstjórintt meiddist nokkuð, og yar ekið með hann í Landsspítalann. Konan, er lézt með svo svip«, legum hætti, hét Kristjana Kristjánsdóttir, Smáragötu 8A, Rannsókn málsins varð að sjálfsögðu ekki lokið í gær- kvöldi, og verður henni haídið Vetrarhríð á Norðurlandi ► W‘ Yíir Norður- og Norðausturland gekk hríðarveður í fyrrinótt og gær. Var fannkoma sumstaðar töluvert mikil og veðurhæðin allt upp í 8 vindstig. Frétta- ritari Þjóðviljans á Ölafsfirði lýsti veðrinu þannig í gær: Hríð eins og gerist verst á þorra, haugasjór eins og um hávetur. Á Ólafsfirði hafði verið góð tíð, þar til kólnaði fyrir skömmu. Voru tún byrjuð að grænlca, en nú er snjór yfir allt. Lágheiðarvegurinn (til Skaga- fjarðar) hafði verið mokaður, en mun nú vera orðinn jafnófær og liann var áður en hann var ruddur. Á Siglufirði var einnig hríð- arveður og frost, og kominn tals verður snjór. Á Húsavík var norðan snjó- koma, komnir nokkrir skaflar. Fréttaritari Þjóðviljans kvað tíð Nýjis afvopnunartillögur Sovétrík janna leta markað tímamot í alþjöðamálum Pravda segir crð jbœr séu a&eins upphaf aB allsherjar tilraun til að lœgja deilur Fréttaxnönnum og blöðum um allan heim ber saman um, að hinar nýju tillögur Sovétríkjanna um afvopnun geti markaö tímamót í sögu alþjóöamála eftir styrjöldina ög oröiö grundvöllur að miklu víötækara samkomulagi inilli stórveldanna. Fréttaritari Reuters í París símar þaðan, að þar telji menn sem standa utanríkisráðherrum Vesturveldanna nærri, að frið- arsamningurinn við Austurríki, viðræður utanríkisráðherranna í Vín um fund æðstu manna og tillögur Sovétríkjanna um af- vopnun muni geta komið af stað samningaumleitúnum milli stórveldanna sem muni stinga í stúf við alla þróun alþjóða- Hásetahlutur 32 þús. hr. Neskaupstað. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Snæfuglinn er kominn heim af vertið. Afli 1300 skippund. Há- setahlutur 32 þúsund krónur. Snæfugl mun stunda línuveiðar héðan. mála frá því árið 1948. Þær samningaumleitanir muni fyrst og fremst snúast um alls- herjar afvopnun, lausn Taivan- deilunnar og sæti kínversku al- þýðustjórnarinnar hjá SÞ. Fréttaritari Reuters í Wash- ington hefur eftir áhrifa- mönnum þar, að vel geti svo farið að hinar nýju afvopn- unartillögur Sovétríkjanna verði fyrsta skrefið í átt til samkoinulags um að binda endi á kalda stríðið. Pravda, málgagn Kommún- istaflokks Sovétríkjanna, segir í gær, að hinar nýju afvopnun- artillögur sovétstjórnarinnar séu aðeins upphafið að allsherj- ar tilraun til að setja niður allar aðrar deilur á alþjóða- vettvangi og þá fyrst og fremst til að ná samkomulagi um al- gert og eilíft bann við kjam- orkuvopnum. Kom á óvart Blöð um allan heim ræddu hinar nýju afvopnunartillögur Sovétríkjanna og eru sammála um að þær séu stórt skref í samkomulagsátt, enda þótt blöð á vesturlöndum vari menn við of mikilli bjartsýni. Brezku blöðin segja að tillögurnar hafi komið algerlega á óvart og eiga vart orð til að lýsa undmn sinni. Þetta á við t. d. um Manchester Guardian og Daily Telegraph. Blöð í Atlanzríkjun- um benda á, að ef gengið yrði að tillögu Sovétríkjanna um að herstöðvar ríkja í öðram lönd- um yrðu lagðar niður þegar afvopnun væri komin í fram- kvæmd myndi það þýða enda- lok Atlanzbandalagsins. Afvopnunamefndin á fundi Undirnefnd afvopnunamefnd- ar SÞ kom saman á fund í London í gær og var bandariski Framhald á 12. síðu. hafa verið góða þar nyrðra., þar til fyrir skömmu að kólnaði. Hafi þá verið byrjað að gróa niðri við sjóinn. Afli hefur verið dágóður á Húsavík undanfarið og atvinna því með betra móti á þessum tíma, en Húsavíkurbátarnir eru nú allir heima, nema tveir sem hafa verið í verstöðvum syðra. „Kreint vetrar- veð«r“ Raufarhöfn. „Hér er stórhríð og frost, — hreint vetrarveður. Snjór fór að mestu í hlýviðriskaflanum' fyrir nokkru, en pnginn gróður var kominn. Nú er aftur orðið eins og á vetrardegi. Sæmilegur afli var s.l. viku, þegar gaf á sjó. Fólk er nú sem óðast að koma heim af Suður- landi. Hér var eins og dauður bær í vetur." ,Kuldarogógæftir‘ Neskaupstað. „Hér er nú mesta ótið, kuld- ar og ógæftir í nokkurn tíma. Nú snjóar talsvert og er orðið alhvítt niður í sjó“. Heitast 6 stig I gær var frost um allt Norð- urland, allt til Langaness, ea sunnan þess var ýmist frost- laust eða nokkur hiti. Mestur hiti á landinu í gær mun hafa verið á Loftsölum, 6 stig, og Fagurhólsmýri, 5 stig. Annar- staðar var hiti yfirleitt á svæð- inu frá Austfjörðum um Suður- land til Vestfjarða frá frost- marki til 3 stig. Reykjavíkurmótið: Fram vann 1:0 I gærkvöldi kepptu Valur og Fram á Iþróttavellinum. Fram vann með einu marlci gegn engu. — Var þetta táknrænn rok- leikur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.