Þjóðviljinn - 13.05.1955, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 13.05.1955, Qupperneq 7
Föstudagur 13. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Úr rœSu Einars Olgeirssonar v/ð útvarpsumrœSur frá Alþingi lslandi verður ekki stjórnað á móti verkalvðnnm Við skulum nú reyna að gera okkur nokkra mynd af þeim hildarleik, sem íslenzk alþýða með verkalýð Keykjavíkur í fararbroddi hefur háð síðustu árin og heyr nú við íslenzka og ameríska auðvaldið, til þess að hindra að ísland verði alræði braskaranna að bráð. Ameríska auðvaldið lagði á ráðin 1947. Það krafð- ist kauplækkunar og hvers konar banna og framar öllu heimtaði það, að verkalýðshreyfingin og Sósíal- istaflokkurinn væru sett í bánn, því a'ð þá aðila hugði amerískt auðvald mestan Þránd í Götu yfirráða sinna á íslandi. Bandarískt affurhald bannar kjarabætur Og bandamenn ameríska auðvaldsins hlýddu. Þeir hófu árásina á kjör alþýðunnar og eiginhagsmunir ameriska auðvaldsins komu þá brátt í ljós. Geigvæn- legasta árásin var gengislækkunin. Ameríska auð- valdið fyrirskipaði árið 1950 að dollarinn skyldi allt að því þrefaldaður í verði, hækkaður úr kr: 6 50 upp í kr. 16.32. Næsta ár hernam ameríska auðvaldið iand- ið og gerðist stærsti atvinnurekandi á íslandi með 3000 manns í þjónustu sinni. Það hafði þá látið þjóna sína lækka kaup íslenzks verkamanns úr $ 1.40, semp s það var 1947, niður í 69 cent, eða stolið helmingnum' af timakaupi hvers verkamanns. Á nokkrum árum græðir ameríska auðvaldið meira en 400 millj. kr., meira en Marshallgjafirnar allar, einungis á kaup- inismun þeim, sem það greiðir íslenzkum verkamönn- mn móts við, ef það hefði orðið að greiða þeim ame-t f, rískt kaup. Það er góður „business“ fyrir amerískaj auðvaldið að vernda lýðræðið á íslandi. Það var bannað í hinu upprunalega gengislækkun-V arfrv. ameríska Alþjóðabankans, eins og Sjálfstæðisfl.j lagði það fyrir 1950, að hækka laun íslenzkra verka-^ , manna nema lækka gangið um leið. Þar með átti aff^ lögfesta laun íslenzkra verkamanna um alla framtíð á því stigi, sem þau voru á við gengislækkunina, m.ö.o. láta þau vera helming þess, er þau voru 1947 og leyfa aldrei neina raunverulega liækkun á þeim eftir það. — Það bann brotnaði strax í meðferð Alþingis og- þrátt fyrir hótanir hefur það ekki verið framkvæmt gíðan. Ameríska auðvaldið bannaði því næst að veita ís-' lendingum frelsi til að byggja sér íbúðarhús; það heimtaði að íslenzkt vinnuafl byggði fyrst og fremst yfir ameríska liðsforingja en bannaði að það byggði yfir íslendinga nema mjög takmarkað; það lét ís- lenzk börn hýrast i bröggum áfram. Og því hefur tekizt að draga svo úr byggingum íbúðarhúsa, að ekkert ár hefur bygging nýrra íbúða í Reykjavk enn komizt í námunda við það, sem hún var 1946, þegar 634 búðir voru byggðar. Og þegar þetta bann fyrir þrotlausa baráttu Sósíalistaflokksins og verkalýðs- hreyíingarinnar var afnumið, þá gerir auðvaldið fátæku fólki illkleift að byggja með því að gera svo erfitt að fá lán og nú síðast að gera vextina svo háa og húsaleiguna svo dýra, að hún gleypir þriðjung til helming af kaupi verkamanns. Lög sefit með verkföllum En ameríska auðvaldið bannaði framar öllu öðru samstarfið við Sósíalistaflokkinn. Og stjórnarflokk- arnir hlýddu. Sömu flokkarnir sem 1942—1947 höfðu ýmist setið vikum saman eða mánuðum að samning- um við okkur sósíalista til þess að fá okkur í stjórn með sér og talið ófært að mynda stjórn í landinu nema við værum með og sumir síðan setið í ríkisstjórn með okkur árum saman; þessir sömu flokkar fóru nú, eftir erlendri fyrirskipun, að lýsa því yfir, að það mætti ekki mynda rikisstjórn með Sósíalistaflokknum. Og það var lagt blátt bann við að samþykkja þá endur- bótalöggjöf, er flokkurinn hefur barizt fyrir þing eftir þing, endurbæturnar á alþýðutryggingunum, stór- felldar umbætur húsnæðislöggjafarinnar, hækkun or- lofsins upp í 6%, lenging hvíldartímans á togurum upp í 12 stundir, atvinnuleysistryggingar, en öll þessi frv. hefur flokkurinn flutt í 6—10 ár, og hið síðast- nefnda atvinnuleysistryggingarnar nú í 12 ár. Þau Voru öll svæfð eða drepin af stjórnarflokkum þings- ins.. Það mátti ekki hafa samstarf við sósíalista. En þá var það sterkari aðilinn, sem tók í taumana. , Verkalýðurinn tók málið í sínar hendur. Togara- sjómennirnir gerðu 12 tíma hvíldina að staðreynd með mánaðar verkfalli. Verkamenn gerðu fjöiskyldubætur og mæðralaun að lögum með 3 vikna verkfalli. Og nú í vor tóku verkalýðssamtökin til sömu ráða, at- vinnuleysistryggingar og 3 vikna orlof urðu lög með 6 vikna verkfalli. En það er dýrt fyrir þjóðina alla, að verkalýðurinn skuli þurfa að setja réttlætið í lög með fórnfrekum verkföllum, þegar hægt var að leiða þau réttlætismál í lög á Alþingi með samstarfi við Sósíalistaflokkinn. Það er dýrt fyrir þjóðina, að auðvaldið íslenzka og fylgifiskar þess skuli vera að stritast við að stjórna landinu á móti voldugasta aðilanum, verkalýðnum, sem ber þjóðfélagsbygginguna á herðum sér, vitandi að þeir geta það ekki, enda eru nú loksins allar fyrir ætlanir ameríska auðvaldsins um einangrun Sósíal- istaflokksins að brotna í rúst. Sósíalistaflokkurinn stjórnar ekki aðeins ýmsum bæjum landsins með samstarfi við aðra vinstri flokka, heldur voru nú í fyrsta sinn, síðan amerískra áhrifa tók að gæta á Alþingi íslendinga, samþykktar veigamiklar tillögur frá Sósíalistaflokknum einum, svo sem ákvörðunin um að skipa þingnefnd til þess að rannsaka orkrið, enda lýsti nú annað stjórnarblaðið, Tíminn, þvi yfir í vetur, að einangrun kommúnista, eins og þeir orða það, væri nú rofin; ameríska banninu á samstarfi ís- lendinga hefur verið hnekkt. Öll þessi bönn hins ameríska auðvalds og nýríkrar auðstéttar Reykjavíkur hafa brotnað á þeirri bjarg- föstu staðreynd, að alþýða íslands er of sterk til þess að verða brotin á bak aftur, að alþýða íslands er of skynsöm til þess að láta Rússagrýlur hræða sig, að alþýða íslands er of heiðarleg til þess að láta stinga samvizku simii svefnþorn, að alþýða íslands er of hugrökk til þess að láta áróðurinn skelfa sig. Eining alþýðunnar eflist Umskiptin, sem marka straumhvörf í íslenzkri sögu, beina þróuninni burt frá því alræði braskaranna, sem hún stefndi að, og að lýðstjórn og samstarfi vinnandi stéttanna, þau umskipti hafa gerzt í vetur. Þegar þetta Alþingi hefur setið, lengst af verklaust við að bíða eft- ir lélegum frumvörpum úrræðalausrar rkisstjórnar, á meðan nákrumla einokunarauðvaldsins í Reykjavík dæmdi Alþingi íslendinga til aðgerðaleysis, tók al- þýða íslands gang málanna í sínar hendur. í nóvem- ber í vetur myndaði þing Alþýðusambands íslands, fulltrúar 27 þúsund verkamanna, verkakvenna, sjó- manna, iðnaðarmanna og sveitafólks einingarstjórn undir forsæti Hannibals Valdimarssonar og samþykkti einróma að leggja til atlögu, allsherjarkauphækkunar til að endurheimta til alþýðunnar nokkuð af því, sem auðstéttin hafði rænt á undanfömum 7 árum. Og í hörðustu stéttaátökum íslenzkrar sögu, 6 vikna verk- fallinu í vor, hefur nú þetta Alþýðusamband, þessi - einhuga verkalýðshreyfing, sýnt sig að vera sterkasta valdið á íslandi, af því að það vald berst fyrir réttlæt- inu, af því að það réttir hlut þeirra vinnandi manna, sem afskiptir voru. Kaupkröfum verkamanna í Reykjavík, sem settar voru fram í samræmi við hina einróma ákvörðun Al- þýðusambandsþings, var vel tekið af almenningi. Allt vinnandi fólk taldi sanngjarnt að verkamenn fengju nú sem mestan hluta þess, er rænt hafði verið af þeirn síðan 1947, að kaupið nálgaðist nú það að vera það sem það þá var. Bændur og opinberir starfsmenn höfðu samúð með verkamönnum, enda áttu báðir ■sörnu hagsmuna að gæta og þeir. Gekk nú svo langt, að Tíminn, málgagn Framsóknarflokksins, sem oft hefur verið íhaldssamur í launamálum, tók undir um að það yrði að hækka launin. Fjölmargir atvinnurekendur vildu semja, einkum hinir smærri, sem sjálfir vita hvað það er að vinna og að ekki er hægt fyrir fjölskyldumann að iifa af 3 þús. kr. á mán. Verkalýðsfélögin frestuðu verkfallinu í 3 vikur til þess að hægt yrði að semja án verkfalls. Þjóðin bjóst við samningum í síðasta lagi fyrsta sunnu- dag verkfallsins. En þá greip önnur hönd í taumana, Árás úr „innsfa hringnum" í innsta hring Sjálfstæðisflokksins, sem einnig ræð- ur Vinnuveitendafélagi íslands, var tekin örlagarík ákvörðun varðandi kaupdeiluna, og það er ekki í fyrsta skipti, sem slík ákvörðun er tekin þar. Við sem barizt höfum með reykvískri alþýðu s 1. aldarfjórð- ung vitum hvað slíkar ákvarðanir boða. í nóv. 1932 var tekin sú ákvörðun í miðstjórn Sjálfstæðisflokks- ins að hefja almenna kauplækkunarherferð með því að lækka kaup þeirra verkamanna er unnu í atvinnu- bótavinnu úr 1.36 kr. niður í 1 kr. Það átti að níðast á þeim allra fátækustu. Þeim sem aðeins höfðu vinnu 1 viku í mánuði og sultu hálfu hungri. Þessari hung- urárás Sjálfstæðisflokksins var hrundið af reykvískum verkalýð hinn sögufræga dag, 9. nóv. 1932. Það varð ekkert úr kaupkúguninni þá. Nú um miðjan marz var aftur tekin ákvörðun í innsta hring Sjálfstæðisflokksins um að Iáta skríða til skarar, eins og það var orðað þar. Verkalýðshreyfing- in skyldi brotin á bak aftur. Verkamenn Reykjavíkur skyldu sveltir til uppgjafar. Verkfallið var af auff- stéttinni og flokki hennar gert aff aflraun milli ein- okunarauffvaldsins og verkalýffshreyfingar Rvíkur. í sex vikur stóðu 7 þús. verkamenn og verkakonur í Reykjavík og Hafnai’firði með 25 þús. manns á fram- færi sínu í verkfalli. 1944 þótti okkur sósialistum og hæstvirtum foi’sætis- ráðhei-ra, Ólafi Thoi’s, það gæfa að geta afstýrt verk- falli, firrt þjóðina því grandi. En nú þótti auðstétt Reykjavíkur sjálfsagt að leggja út í lengsta fjöldaverkfall íslandssögunnar til þess að reyna að brjóta vei’kalýðinn á bak aftur. Ekkert var til sparað sem auður og vald gat veitt til þess að reyna að kúga verkamenn. Auðstéttin hirti ekkert um þótt þjóðinni glataðist tugir milljóna jafnvel hundruð milljóna kr. í verðmætum, ef aðeins væri hægt að kúga alþýðuna. Olíuhringarnir gripu til opinskárra lögbrota við kúgunartilraunir sínar. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, sem sósíalistar og Alþýðuflokksmenn stjórna í sameiningu hafði samið við verkamenn. Olíuhringarnir lýstu banni á hana. Þeir neituðu að selja togui’unum olíu, olíu sem ríkisstjórn íslands kaupir til landsins fyrir fiskinn sem togararnir fram- leiða. Einokunarauðvaldið sveifst einskis, ef verða mætti að verkalýðurjnn yrði sveltur til undanhalds. AEþýðan slóðsf raunina En allt kom fyrir ekki. Auður og vald reyndist ekki almáttugt. Á móti stóð afl, sem þeim var æðra. Eining verkalýðsins stóðst alla raun. Þrotlaust stóð verkfallsvörðurinn, brauti-yðjandalið slenzkrar alþýðu, og samninganefnd verkalýðsfélaganna undir forsæti Eðvarðs Sigurðssonar, sinn vörð um rétt hins vinn- andi manns. Verkfallsmenn hjálpuðu hver öðrum. Báru hver annai’s byrðar, einn fyi’ir alla, allir fyrir einn. Verka- Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.