Þjóðviljinn - 13.05.1955, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 13.05.1955, Qupperneq 10
20) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 13. maí 1955 ♦ Ræða Einars Olgerissonar í HtvarpsHmræðnnum Framhald af 7. síðu. menn stóðu saman,' Dagsbrúnarmenn, Iðjufólk, iðn- aðarmenn, Alþýðuflokksmenn og Sósíalistaflokks- menn. Engir peningar, mútur, ógnanir né grýlur gátu klofið fylkingu þeirra. Samt svarf að mörgum heimil- um, en aldrei heyrðist æðruorð. Og utan af landi bárust hvarvetna samúðarkveðj ur í orði og verki, frá verkakonum á Siglufirði, sjómönnum í Eyjum, bændum á Barðaströnd. Það var samhjálp hinna fá- tæku. Það var bræðralag hins vinnandi lýðs. Það var stálvilji verkfallsmannanna, sem vann sigur á auðstétt Reykjavíkur. Máttur bræðralagsins, æðri öllu valdi peninganna, sigraði í þessu verkfalli. Og það er þessi siðgæðismáttur alþýðunnar sem mun endurnýja íslenzkt mannfélag, forða manngildis- hugsjón íslendinga frá þeirri eyðileggingu, sem auð- Stéttin með peningagildið fyrir eina mælikvarða býr henni, vísar þjóðinni leið til fegurra og gæfuríkara lífs. Eining verkalýðsins, sköpuð á Alþýðusambandsþingi í haust, hlaut sina eldskírn í þessu verkfalli og sigraði. Og vei hverjum þeim, sem héðan af reynir að rjúfa þá einingu. Dýrmætt var það, sem verkamenn Reykjavíkur unnu í þessu verkfalli, 10—11% grunnkaupshækkun, þriggja vikna -orlof, 4% atvinnuleysistryggingar 12 árum eftir að Sósíalistaflokkurinn flutti þær fyrst og á fyrsta árinu sem Sósíalistaflokkurinn og Alþýðu- ilokkurinn fluttu frumvarp um þær i sameiningu. En dýrmætast af öllu var þó meðvitund verkalýðsins um mátt hans til að sigra. Um ósigrandi mátt liins góða málstaðar. Sfjórnmálaeining alþýðunnar óhjákvæmileg Alþýðan um land allt, verkamenn, starfsmenn hins opinbera og bændur, þið munið nú á næstunni upp- skera ávextina af þeim sigri er verkalýður Reykja- víkur vann fyrir ykkur öll. Þið munuð njóta þeirra kjarabóta er unnust í þessu harða stéttastríði. „En nú er eftir yðvar hlutur". Stjórn Alþýðusambands íslands sá fyrir hættuna á því að auðvaldið notaði ríkisvaldið til þess að ræna alþýðuna ávöxtum sigranna. Þess vegna sneri hún sér til allra andstöðuflokka Sjálfstæðisflokksins með til- mælum, um að ræða við sig möguleikana á myndun stjórnar er ynni í þágu alþýðunnar. Það er ykkar, alþýðunnar um allt land, að sjá um að gera þá hugmynd að veruleika. Auðvaldið tygjar sig nú þegar til ránsins. Olíuhringar þess hafa þegar riðið á vaðið. Ríkisvaldið er enn í höndum auðstétt- arinnar. Munið að það er ekki minni vandi að gæta fengins fjár en afla. Það sem vannst með órofa ein- ingu Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins, alls verkalýðsins á vettvangi verkfallsins það verður að varðveita með órofa einingu flokkanna, alls verkalýðs- ins, á vettvangi stjórnmálanna. Hver sá gerist vargur í véum, sem reynir að eyðileggja þá einingu. Þrátt fyrir allan skoðanamismun, sem er á milli vor, þá vcrður lífsnauðsyn alþýðunnar á einingu vorri að yfir- gnæfa það allt. Ella glatast það sem vannst og meira til. Tilvera þjéðarinnar í hæffu Því það er meira í húfi en réttlátt kaupgjald, trygg- ingar og lýðréttindi handa verkalýðnum. Meira en réttlátt fiskverð og meira öryggi handa sjómönnum. Meira en lágir vextir, betri lán og öruggir markaðir handa bændum og fiskimönnum. Meira heldur en sómasamlegt húsnæði handa öllum þeim sem nú búa við óviðunandi kjör í því efni, og er þó allt þetta nóg tilefni til þess að mynda stjórn, sem alþýðustéttirnar á íslandi geti stutt. Auðvald Ameríku heimtar ekki aðeins af auðstétt Reykjavíkur, að hún í bandalagi við sig arðrændi alþýðu íslands. Höfuð boðorð anteríska auðvaldsins var: „Þú skalt gefa mér land þitt. Þú skalt fóma mér þjóð þinni, og þú skalt færa mér dætur þínar til munaðar og syni þína til að reisa mér hús og bursta mér skó“. Og einnig það var gert, og gröðanum skipt til helm- inga í stjórnarherbúðunum. Gegn þessari niðurlægingu hernámsins hefur þjóðin nú risið. ísköld fyrirlitning alþýðunnar umlykur inn- rásarherinn á Keflavíkurflugvelli svo „veslingarnir" klaga nú til stóru mömmu í Washington yfir íslend- ingum. Stjórnarliðið hefur orðið að hopa undan ár frá ári — nú loks orðið að lofa að geyma verndarana í gripheldum girðingum svo íslendingar sjái þá sem minnst fyrir augum sér. En allt þetta er ekki nóg. Aðeins uppsögn hernáms- samningsins, eins og Sósíalistaflokkurinn hefur borið fram frumvarp um á hverju þingi síðan 1951 og nú loks í fyrsta skipti verið samþykkt til nefndar, að- eins brottför ameríska hersins af íslandi getur bjargað í þessu efni. Yfirráð okkar íslendinga yfir landi voru og sú þjóð- menning, sem við með réttu erum svo stoltir af, er í veði, ef við þolum smán hernámsins í landi voru, ef við þolum það hervald, sem er að eitra þjóðlífið, og yfirráð þeirrar auðmannaklíku, sem hefur kallað það inn í landið og gert það að bandamanni sínum gegn íslenzkri alþýðu. Líf þjóðar vorrar liggur við ef heimsstyrjöld hefst. Sú vítisvél, sem Keflavíkurflugvöllur er i þéttbýlasta svæði landsins, mundi draga til dauða % hluta íslend- inga ef við ekki hefjumst handa til að firra þjóðina þessu grandi með öllum þeim ráðum, sem við getum fundið. Ríkissfjórn alþýðunnar lífsnauðsyn Oft var íslandi þörf á róttækri stjóm, en nú er lífs- nauðsyn að mynduð sé þjóðleg framsækin ríkisstjórn, sem alþýða landsins getur stutt og stjómar með hag vinnandi stéttanna fyrir augum og heill þjóðarheild- arinnar að leiðarljósi. Slík ríkisstjórn mundi stórefla sjávarútveginn, landbúnaðinn og iðnaðinn um allt land. Koma upp tugum nýrra togara, vélbáta, koma upp fiskiðjuverum um landið, hraða vélvæðingu land- búnaðarins og ræktun landsins og ræfvæðingu þess og útvega jafnt landb. sem sjúvarútvegi næga markaði er- lendis. Slík ríkisstjórn, mundi þannig setja aleflingu islenzks atvinnulífs í stað þess ameriska hermangs, sem er niðurdrep íslenzkra atvinnuvega, eyðing ís- lenzkra byggða og svívirðing íslenzkrar menningar. Slik stjórn mundi ekki aðeins rétta hlut allrar al- þýðu. Hún mundi og hafa góða samvinnu við alla ís- lenzka atvinnurekendur, sem efla vilja atvinnulíf vort eftir sínum einkaframtaksleiðum. En það hringa- og hermangaraauðvald, sem sýnir sig að kúga og niður- lægja þjóðina, verður að víkja fyrir samvinnu og sameign þjóðarinnar sjálfrar. Slík stjórn getur tryggt vinnufriðinn í landinu. Því hann verður aðeins tryggður með réttlæti í garð hinna vinnandi stétta. Slík stjóm getur hindrað að hér verði komið á því alræði braskaranna, því nýlenduástandi eftir suður- amerískri fyrirmynd, sem ameríska auðvaldið stefnir að hvað ísland snertir. Slík stjórn ein er fær um að varðveita „lögin og friðinn“, sjá um að íslendingar sliti hvorugt. Slík stjórn ein getur skapað og varðveitt þá samheldni þjóðarinnar, sem of rík og of voldug yfirstétt nú grandar. Það er á valdi alþýðunnar að skapa slíka stjórn. Sú alþýða, sem hefur máttinn til að rísa gegn auð- stéttinni og sigra hana, eins og verkalýður Reykja- víkur nú hefur gert, sú alþýða býr líka yfir mættinum til þess að frelsa ísland. Tökum því höndum saman, vinnandi stéttir íslands og þjóðhollir íslendingar hvar í flokki sem þið standið. Allir þið, sem hafið ábyrgðartilfinningu fyrir þjóð vorri, tölcum höndum saman um að skapa slíka stjórn. Við verðum að rísa og stækka. Þora að vera þeir menn að taka örlög þjóðarinnar í vorar hendur á úr- slitastund og hindra að það svefnþorn, sem Morgun- blaðið og Sjálfstæðisflokkurinn hefur stungið sam- vizku þjóðarinnar, verði lengur til að láta þjóð vora sofa a meðan mesti voðinn vofir yfir henni, sem nokkurn tíma hefur vofað yfir henni í allri hennar sögu. Sú veröld vetnissprengjunnar, sem við lifum í þarf á því að halda að sannað sé að mennirnir geti lifað saman í friði og eindrægni, þrátt fyrir ólíkar skoðanir. Og við íslentíingar höfum þau fordæmi úr okkar sögu að okkur ætti ekki að vera vorkunn nú á tímum, þegar meira liggur við heldur en var árið 1000, að finna leiöir til að bjarga okkar þjóð út úr ógöngum. ÍSLESfZK ríkissfjórn óhugsandi án verkalýðsins ísland þarfnast þess að verkalýðshreyfingin sé látin skipa þann forustusess í þjóðlífinu, sem henni ber. Eg segi ykkur það, þingmenn og hæstvirtir ráð- herrar stjómarflokkanna, að það er ekki aðeins ILLT verk að vera að strita við að stjóma þessu landi á móti verkalýðnum, það er líka VONLAUST verk. Það þýðir að gera ísland að vettvangi eilífra hjaðningavíga. Það þýðir að verkalýðurinn verður með eins til tveggja ára millibili að leggja út í dýr verkföll til þess að ná aftur því, sem þið rænið af honum og setja lög með verkföllum, lög, sem þið árum saman þx-józkizt við að setja hér á Alþingi, en látið síðan undan að hætti Þorkels háks, þegur Rimmugýgur alþýðusamtakanna er reidd að höfði auðvaldsins, sem þið þjónið Þjóð vor er of óspillt þjóð, til þess að henni verði til lengdar stjórnað í þágu harðsvíraðs peningavalds. íslenzk þjóð er of stolt þjóð, til þess að hún þoli til lengdar niðurlægingu erlendrar hersetu. Eldúr minn- inganna úr þúsund ára sögu hennar brennur of heitt í blóði hennar til þess að una svo auðvirðlegu hlut- skipti. íslandi verður ekki stjórnað á móti verkalýðnum. Án þeirrar samhjálpar hinna fátæku, án þess bræðra- lagsanda hinna vinnandi stétta, sem í sex vikna verk- falli sigraði ískalda viðurstyggð peningavaldsins er ekkert gróandi þjóðlíf fram undan, aðeins andleg eyði- mörk auðvaldsins. Án þess siðgæðismáttar, sem gerði alla íslenzka alþýðu eina þjóðarsál í afstöðnum átök- um, án þess máttuga valds, sem 27 þús. meðlimir Al- þýðusambands íslands eru, án þess stórhugs og þeirra framtíðarhugsjóna, sem Sósíalistaflokkurinn mótar sögu þjóðarinnar með á úrslitastundum hennar, án vei-kalýðshreyfingarinnar — verður ríkisstjórn á ís- landi þegar bezt lætur hrossamarkaður, þegar ver lætur ræningjabæli og þegar dýpst er sokkið lepp- stjórn erlends hervalds á Fróni. ÍSLENZK ríkisstjórn er óhugsandi án vei'kaíýðsins. Þetta sannar ekki aðeins dýrkeypt reynsla þjóðarinn- ar. Mikilhæfustu leiðtogar sjálfra stjórnarflokkanna viðui'kenna einnig að íslandi verði ekki stjórnað gegn vilja verkalýðsins. Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, háttvirtur þingmaður Sti'anda- manna, játar það í orði í ræðum sínum og nýárshug- leiðingum og Ólafur Thors formaður Sjálfstæðisflokks- ins, hæstvirtur forsætisráðherra, viðurkennir það í verki hvenær sem íslenzkt raunsæi þess stjóx'nmála- manns fær að njóta sín fyrir gráðugri ásókn auðvalds- ins, utan lands og innan. * Mikilvægasla hlufverkið Það er ekki eftir neinu að bíða, með að skapa þá stjóm alþýðunnar í þessu landi, sem réttir hlut al- þýðunnar eftir 7 ára ránsherferð auðvaldsins, stjóra, sem réttir hlut þjóðarinnar eftir sjö ár erlends yfir- gangs. Myndun ríkisstjómar sem styðst við samtök verkamanna, bænda, fiskimanna, menntamanna og millistétta, alls hins vinnandi lýðs, er mikilvægasta hlutverkið, sem nú þarf að vinna í íslenzkum stjóm- málum. Það er á valdi ykkar, sem orð mín heyrið, alþýðunnar um allt land, að vinna það verk. Ef þið takið höndum saman og hefjið upp ykkar raust, þá verður ykkar einingarorð boðorð hér í sölum Alþing- is. Iþióttir Framhald af 9. síðu. gott að laga það sem lagað verð- ur með góðu móti. Hinsvegar getur það alveg eyðilagt fram- farirnar ef rótgrónum stíl manna er breytt of mikið. Svo er annað, ég tel að yfir iðkun íþrótta eigi að hvíla feg- urð og því beri að fá hana fram, þó við getum í vissum tilfellum náð jafngóðum árangri með ó- fögrum sundtökum. — Því má þó bæta hér við í sambandi við umsögn Kyputs um stílinn, að ekki mátti hann sjá mann synda illa svo að hann hefði ekki Orð á því. Hvaða sund telur þú að komi að mestu gagni í sjávarliáska? Tvímælalaust bringusund, og þar næst baksund. Það væri mikil hætta fyrir sundmennt okkar ef við tækjum upp á því að kenna unglingum okkar ekk- ert annað en hraðsund, því hrað- sundin eru mjög lítilsvirði í sjávarháska, vegna þess að menn geta ekki synt þau nema naktir.. Æfa ekki margir sund sér til skemmtunar? Miklu færri en skyldi, sam- anborið' við fólksfjöldann. Bæði er það að skemmtanalífið er margfalt meira en var, og svo er hitt að bærinn er nú orðinn það stór að úr vissum bæjar- hlutum telur fólk sig ekki geta stundað sundiðkanir vegna hins mikla tima sem í það fer að ná til sundstaðar. Sundlaug Vesturbæjar ætti að bæta þetta nokkuð. Þessi vöntun sundstaða kemur líka hart niður á sund- skyldunni. Hvað viltu svo segja að lok- um? Ég álít að Reykjavík sé í aft- urför í sundinum. Til þess að varna því að svo verði þurf- um við að fjölga sundstöðunum og laugum. Það þarf ennfremur að auka kennaraliðið, í því sam- bandi má geta þess að í þessum 60 þúsund manna bæ eiga að- eins 6 menn að kenna sund. Svo ég komi aftur að heim- sókn Kyputs, þá tel ég að við höfum haft mjög gott af heim- sókn hans, sérstaklega vegna þess að hann hefur sýnt okkur að við erum á réttri leið í sund- inu. Hingað til hafa íslendingar alltaf verið smeykir við það að það sem kennt er hér sé alltaf dálítið lakara eða verra en það sem útlent er. Þó það sé miklls virði fyrir í- þróttamenn þjóðannna að skipt- ast á heimsóknum, þá eru ekki síður gagnkvæmar heimsóknir kennara þýðingarmiklar, segir Jón að lokum. Otbreiðið Þjóðviljann Kvenbuxur VeiS iiá ki. 13.50 Toledo Fischersundi. m innincfarápfol

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.