Þjóðviljinn - 10.06.1955, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 10. júní 1955
AFUNDI bæjarstjórnar
Reykjavíkur 2. þm.
flútti Petrína Jakobsson
-bæjarfulltrúi Sósíalista-
flokksins, tillögu um
byggingu tveggja nýrra
barnaskóla, fyrir Hlíð-
arnar og Bústaðahverfi.
Bæj arfulltrúar Sj álfstæð-
isflokksins vísuðu til-
lögunni frá. Sömu af-
greiðslu hafa hliðstæðar
tillögur sósíalista í skóla-
byggingarmálum hlotið
fjórum sinnum á síðustu
þremur árum. Hér er þó
um að ræða framkv. á á-
ætlunum skólabyggingar
nefndar og fræðsluráðs,
gerðum á árinu 1953 og
rökstuddum með óyggj-
andi tölum sem staðfesta
hina brýnu þörf á fleiri
skólahúsum, enda blasir
nú við hreint öngþveitis-
ástand í þessum málum
vegna kyrrstöðunnar
sem bæjarstjórnarmeiri-
hlutinn ber ábyrgð á.
Þjóðviljinn birtir hér
framsöguræðu þá er Pet-
. rína flutti fyrir tillögu
sinni í bæjarstjórn'inni
2. þ.m. þar sem ítarlega
. er gerð grein fyrir nú-
verandi ástandi í skóla-
málum bæjarins og
nauðsyninni á að úr því
sé bætt með nýjum
skólabyggingum.
Brýn nauðsyn að hefja þeg-
ar smíði nýrra skéfahúsa .
Bæjarstjórnarmeirihlutinn hefur haft að engu tillög-
ur skólabygginganefndar og fræðsluráðst og stefnt
barnakennslunni í algjört öngþveiti
1
Ég sé ekki í þeim gögnum
og fundargerðum sem bæjar-
fulltrúar hafa í vor fengið
í hendur, minnst á eitt það
bæjarmála sem mér virðist
óhjákvæmilegt að framkvæmd
verði hf fin á í sumar, en það
er barnaskóíáhyggingar.
Á fjárhagsáætlun hvers
árs hefur fé vearið ráðstafað
tji skólabygginga. Á árinu
1952 var veitt 3.5 millj. kr.
til þess að ljúka byggingu
Mela- og Langholtsskóla. En
síðan hafa engir skólar verið
byggðir.
6 millj. eiga að vera
handbærar
Á fjárhagsáætlun 1953-1954
og 1955 hefur 2 millj. kr.
hvert ár verið ráðstafað í
þessu skyni og ættu því að
vera handbærar 6 milljónir
króna til að hefja skólahúsa-
byggingar nú. Auk þess legg-
ur ríkissjóður fram annað
«ins. Þegar hefur safnazt,
eins og borgarstjóri upplýsti
í vetur, skuld, 10 millj. kr.,
ógreitt framlag ríkisins til
ekólabygginga og skólamála.
Það vita allir að ekki fæst
þetta fé fyrr en einhverjar
framkvæmdir eru fyrir hendi.
I vetur þegar ég kom með
tiliögu um að framkvæmdir
yrðu hafnar í þessum málum,
bar borgarStjóri því við að
engin teikning væri til og
ekki tími til að gera slíka
teikningu hjá bænum.
Þá bárum við tveir bæjar-
fulltrúar, frú Guðríður Gísla-
dóttir og ég, fram tillögu um
að boðið yrði til samkeppni
um teikningar að bamaskól-
um. Slík samkeppni var hald-
in af fræðslumálastjóm rík-
isins 1948 með þeim ágæta
árangri að nú er búið að
reisa eitthvað af skólum eftir
þeim uppdráttum, sem hlut-
skarpastir urðu. Er þar nær-
tækast að minnast á skólann
að Vannalandi I Borgarfirði,
þ.e.a.s. barnaskólann þar.
Tillögu okkar Guðríðar var
vísað til bæjarráðs eins og
venja er með tillögur minni-
hlutans, en síðan hefur ekk-
ert heyrzt um skólabygginga-
mál bæjarins.
Ekki er svo að skilja að
þeir starfsmenn bæjarstjórn-
ar, sem um þessi mál eiga
að fjalla, viti ekki í hvaða
óefni komið er með þessari
ábyrgðarlausu stöðvun sem
meirihlutinn hefur leitt yfir
þessi mál. Það má með sanni
segja að þeir yita að þróunina
hafa þeir ekki getað stöðvað,
vaxandi þörfina fyrir skóla-
hús, en það endurtekur sig í
byggingamálum skólanna það
sama og gerðist á árunum
fyrir stríð, þegar farið var
að taka ýmiskonar bráða-
birgðahúsnæði á leigu fyrir
barnakennslu, en raunhæfum
úrræðum alltaf frestað og
vísað frá.
Tillöqur skólabygginga-
neíndar 1953
Á árinu 1950 mun borg-
arstjóri hafa slcipað nefnd
til brss að gera tillögur um
hveraskiptingu og slíólastaði
í Reykjavík. Ennfremur lagði
sú nefnd fram ákveðnar til-
lögur um framkvæmdir í á-
fönguin, byggðum á nákvæm-
um rannsóknum og raunveru-
legri þörf skóla næstu 6 ár
frá þeim tíma sem nefndin
starfaði. í janúar 1953 skil-
aði nefndin all ítarlegu áliti
og tillögum. Með leyfi forseta
langar mig að lesa fyrir hátt-
virta bæjarstj. fyrsta kaflann
úr „Greinargerð með tillögum
um byggingu skólahúsa í
Reykjavík" frá þessari nefnd,
en í henni áttu sæti þeir
Helgi H. Eiríksson, banka-
stjóri, Þór Sandholt, skóla-
stjóri, og Jónas B. Jónsson,
fræðslufulltrúi:
„I. Barnaskólar. Á næstu
árum er fyrirsjáanleg mikil
fjölgun skólabarna í Reykja-
vík. Víst er að sá aldurs-
flokkur sem byrjar skóla-
göngu næsta haust (þe. 1953)
verður 500 fjölmennari en sá
sem lýkur barnaprófi næsta
vor. Nú eru í barnaskólunum
í Reykjavík 5677 börn, en
haustið 1954 mun fjöldi þeirra
verða eigi minni en 6600,
haustið 1956 7600 og haustið
1958 8500, eða um 2800 fleiri
en í vetur.
Tölur þessar styðjast við
manntals- og hagskýrslur og
má fullyrða að ekki er of
mikið í lagt.
Eru tölur þessar næg sönn-
un þess, hve mjög þarf að
hraða byggingu nýrra skóla-
húsa. Lagt er til að í fyrsta
áfanga verði byggðir tveir
barnaskólar i Hlíða- og Bú-
staðahverfí og séu þeir til-
búnir haustið 1954. Böm úr
Hlíðahverfi sækja nú Aust-
urbæjarskólann, sem þegar er
ofsetinn. Fjölgun barna í því
skólahverfi má bezt sjá á því
að 12 ára börn eru þar nú
258 á skrá, en 7 ára börn
375.
Nefndin telur því óhjá-
kvæmilegt að hefja byggingu
barnaskóla á næsta ári í
Hlíðum — 7. skólahverfi (þe.
á árinu 1954).
í Bústaða- og smafbúða-
hverfi (11. og 12. hv.) eykst
byggðin langörast. Böm úr
þeim hverfum eiga nú skóla-
legt að bæta þar við.
Er ekki fyrirsjáanlegt
hvernig hægt verður að Ieysa
skólaþörf þessara hverfa
næsta vetur, hvað þá lengur.
Skólahús í þessum hverf-
um þyrfti því í raun réttri
að vera til næsta haust, en
þar eð litlar horfur eru á að
slíkt sé framkvæmanlegt,
leggur nefndin til að skólahús
í Bústaðaliverfi (11. skóla-
liverfi) verði tilbúið haust-
ið 1954.
Hér fer á eftir áætlun um
hvernig hagnýta megi það
skólahúsnæði sem þá yrði fyr-
ir hendi“ (þe. sl. haiist, ’54).
Tveir leikskólar teknir í
notkun en engir barna-
skólar byggðir!
Þá telur nefndin upp skól-
ana og ætla ég hér til sam-
anburðar að sýna um leið
hvernig skólarnir voru í raun-
inni hagnýttir þetta skólaár,
sem nú er rétt liðið.
í Miöbæjarskóla áætlað af nefndinni 870 nem., voru 900
- Austurbæjarskóla — - — 1620 — — 1750
- Lauganesskóla — - — 840 — — 1300
- Melaskóla — - — 1200 — — 1500
- Langholtsskóla — - — 720 — — 840
- HlíÖaskóla — - (leikskóli) — 720 — — 200
- Bústaöaskóla — - (leikskóli) 540 — — 200
Petrína Jakobsson
sókn i Laugarnesskóla, sem
þegar er að miklu leyti þrí-
settur og því nærri óhugsan-
Þannig gerði nefndin ráð
fyrir að 6510 nemendur yrðu í
barnaskólunum samtals skóla-
árið sem var að líða, þegar
búið væri að byggja þá tvo
skóla sem ráðgert var. En
börnin voru 6890 og í stað
þessara tveggja skóla voru út
af neyð teknir tveir nýir
leikskólar, sem byggðir voru
1954 og rúmuðu rösklega 200
börn hvor, með því að vera
tvísettir og þrísettir.
Á, öðrum stað í greinar-
gerðinni gerir nefndin ráð
fyrir 2. áfanga, er yrði lokið
haustið ’56, tveir skólar í
Gerðunum fyrir 540 börn og
Kaplaskjóli 540. Þó gera herr-
arnir þá ennþá ráð fyrir að
um 250 börn yrðu skólahúsa-
laus.
Frásögn aí utidyratröppum sem ekki ná til jarð'ar
— Lofsverð framtakssemi, að því tilskildu ....
SENDILL Bæjarpóstsins var
á ferð inni í Vogum um dag-
inn. Þegar hann kom aftur
hafði hann skrítna sögu að
segja húsbónda sínum. Hann
hafði komið að húsi sem
var í smíðum, en því var þó
svo langt komið að fólkið
var flutt í það. En hið ein-
kennilega við húsið var það
að útidyratröppumar náðu
ekki niður að jörð, heldur
héngu í lausu lofti; og gizk-
aði sendill Bæjarpóstsins á að
ein 3 þrep hefði vantað á að
tröppurnar næðu niður. Send-
illinn, sem er piltur fróðleiks-
fús, vék sér að manni sem
var að vinna þama í nágrenn-
inu — ef ekki við húsið
sjálft — og spurði hann
hvernig á þessu stæði. Mað-
urinn var eitthvað afundinn
og svaraði þvi til að hér
hefðu kommúnistar ætlað að
vinna eitt af hinum alkunnu
skemmdarverkum sínum gegn
íslenzkri menningu og ís-
lenzku framtaki. En þeir sem
önnuðust smíði hússins sáu
við bruggi þeirra, og þess
vegna vom tröppurnar í lausu
lofti. Og varð sendill vor að
láta sér lynda þessa einkenni-
legu skýringu.
★ ★
EN VIÐ hér á Bæjarpósthús-
inu era þrákelkið fóllc og vilj-
um alltaf hafa það er sann-
ara kann að reynast. Og þess-
vegna fómm við á hnotskóg
eftir sannleikanum í þessu
máli, og kom á daginn að
hann var allt annar en mað-
urinn vildi vera láta. Nátt-
úrlega áttu tröppurnar upp-
haflega að ná til jarðar, og
var til teikning upp á það.
En þegar farið var að byggja
kom í ljós að ekki varð hjá
því komizt að breyta hæðar-
púnkti hússins, eins og það
er orðað á fagmáli; og þá
hefði þurft að lengja úti-
dyratröppumar um leið. En
það hefði verið breyting á
teikningunni, og sú breyting
fékkst ekki fram. Byggingar-
nefnd sjálf var kvödd á stað-
inn alveg sérstaklega, en það
Nú hefur ekkert af þessu
ráðgerða verið framkvæmt.
Það er gott og nauðsyn-
legt að málin séu ýtariega
undirbúin og horft lengra en
á líðandi stundar þörf. en
foreldrum sem eiga börn á
skólaaldri eða undir honum,
nægir ekki slíkt, ef látið er
standa við orðin tóm eins og
hér er gert.
Hvers vegna hefur ekki
verið fa.rið eftir þessari áætl-
un? Hversvegna var ekki haf-
in bygging þessara skóla og
hvað lengi á að halda að sér
höndum.
Alltaf sígur rueira á ógæfu-
hliðina.
Eftir sömu áætlun er gert
ráð fyrir að skólabörn verði:
Framhald á 9. síðu
mátti eklti breyta teikning-
unni. Svona er nú þetta í
pottinn búiðf og mun mörgum
þykja skrítið. En fólkið sem
gengur um tröppumar má þó
hugga sig við að hér hafi ver-
ið komið í veg fyrír kommún-
istískt samsæri gegn menn-
ingu þjóðarinnar og velferð
þess sjálfs.
★ ★
SKÁKVINUR hefur ,sent
þennan bréfstúf: „Nú er hinn
snjalli skákmaður okkar,
hann Friðrik Ólafsson, í þann
veginn að ljúka stúdentsprófi,
og líklega er það af því til-
efni að stúdentar hafa tekið
sig fram um að reyna að
styrkja hann eitthvað í fram-
tíðinni, þannig að hann geti
helgað skáklistinni orku sína
— eins og ég held að einhver-
staðar hafi verið komizt að
orði. Framtakssemi af þessu
tagi hefur jafnan verið sjald-
gæf hér á landi, og ber því
fremur að lofa hana þegar
hennar verður vart. Aðeins
eitt ber að athuga í þessu
sambandi: vil ja Friðriks
sjálfs. Hafa þessir framtaks-
sömu stúdentar gengið úr
skugga um að honum leiki
mestur hugur á að helga sig
skáklistinni einni í framtíð-
inni — vita þeir nokkuð nema
hann ætli í tónlistarskóla eða
læra verkfræði? Eg er á móti
því að „óviðkomandi" aðilar
Framhald á 11. síðu.