Þjóðviljinn - 10.06.1955, Page 10
10) — ÞJÓÐVILJIÍNN — Föstudagur 10. júní 1055
Hvað veldur þeirri leynd?
Framhald af 7. síðu.
við tjöldin, sjá um bygginga-
framkvæmdir. Svo komu þessi
félög upp allra laglegustu
þinghúsum, en þau bókuðu
alla vinnu og efni við þau
helmingi hærra en þau knst,-
uðu í raun og veru!
Þannig fór stundum ein og
hálf milljón af fjárveitingunni
í vasa valdhafanna, á móti
hverri milljón er rann til
raunverulegra byggingafram-
kvæmda! Auðvitað sáu endur-
skoðendurnir ekkert athuga-
vert við þetta falska bókhald,
þeim var borgað fyrir að loka
augunum fyrir öllu athuga-
verðu. Svona svikamyllur
eru oftlega reknar í sambandi
við skrúðgarðaviðhald, sorp-
hreinsun og hvaðeina.
Samkvæmt því er amerísk-
ar hqimildir herma, hefur
þessi sérstaka tegund fjár-
dráttar stjórnmálamanna og
verktakafélaga átt sér stað í
stórum stíl í sambandi við
ýmiskonar sements- og mal-
bikunarvinnu svo sem vega-
gerðir, flugvallagerðir og ann-
að því um líkt. Aðferðin sem
notuð er er einatt sú sama,
sem sé sú, að smyrja hundr-
að prósent og stundum meira
á allt það' sem gert er — svo
skipta verktakar og valdhafar
herfanginu með sér, að vísu
ekki í bróðerni, því að vana-
lega fá valdhafarnir bróður-
hlutann. Stundum hafa verk-
takafélögin það þannig að'
fyrst vinna þau verkið illa,
falsa allt bókhald viðkomandi
því, svo eru þau látin sjá um
viðgerðir á hinu illa unna
verki fyrir of fjár! Stundum
þykjast þau hafa framkvæmt
viðgerðir sem þau ekki gerðu
og aldrei var þörf fyrir. Stund-
um láta þau höggva upp
vega- og flugvallakafla sem
ekkert var að, til að geta not-
að það sem afsökun [fyrir
því að bóka sér laglegan
skilding. Án þess að valdhaf-
ar og embættismenn sem fal-
ið er að sjá um og hafa eftir-
lit með framkvæmdunum
væru í vitorði með þeim tækist
þetta auðvitað ekki.
Svona lagað er ein versta
plágan í opinberu lífi Banda-
ríkjanna. Það er einskonar
króniskt þjóðfélagsmein, sem
stundum hefur verið kveðið
niður um lengri eða skemmri
tíma (t.d. í stjórnartíð Roose-
velts og La Guardia í New
York) en því hættir mjög til
að taka sig upp á ný eins og
stjórnmálasaga Bandaríkjanna
ber með sér. Bezta leiðin til að
fyrirbyggja að fjárdráttur af
þessu tagi eigí sér stað, er sú,
sem Roosevelt notaði manna
mest og bezt á meðan heilsa
hans -leyfði honum að bera
ægishjálm yfir spillingaröflin
í hans eigin flokki, sem sé sú
að forðast að fara í óþarfan
feluleik með fjárreiður hins
opinbera. Af því mættuð þér
margt læra, ráðherra, því þótt
allt kunni að vera með felldu
um fjárreiður verktakafélags-
anna á Keflavíkurflugvelli, (en
um það er ómögulegt að vita
fyrir aðra en yður), þá hafa ó-
neitanlega verið helzt til mikil
brögð að því áð hula hvíldi
yfir öllu er lýtur að fjárhags-
hlið varnarmála. Hún, og þeir
leynisamningar er þér hafið
gert að tjaldabaki við amerísk
hernaðaryfirvöld og viljið ó-
mögulega leyfa þingmönnum
að sjá, eru afar illa séðir af
öllum þorra fólks. Enda eru
slík vinnubrögð ráðherra ó-
algeng, ef ekki óþekkt í lýð-
ræðislöndum, undir þessum
kringumstæðum, f>ér ættuð
því að taka það til athugunar
hvort ekki væru tök á því að
birta leynisamninga þessa eins
og íslenzk lög gera ráð fyrir
og svipta öllum leyndardóms-
blæjum af fjárhagshliðum
varnarmála og öðru þeim við-
komandi.
Leynimakk um slíka hluti
sæmir ekki ráðherra og vam-
armálasiðbótarmanni, um hvers
höfuð hið ágæta blað Tíminn
hefur smíðað jafn fagran
geislabaug og prýðir yðar æru-
verðuga koll.
Ef þér gerið þetta er ekki að
efa að dýrðarljómi sá er sum-
ir Framsóknarmenn hafa um-
vafið nafn yðar og persónu
muni einnig ná til hinna er-
lendu verktaka, og vissulega
ætti þetta að vera óhætt, því
að heiðarlega starfsemi á ekki
að þurfa að fela, og hér er alls
ekki neinum hernaðarleynd-
armálum til að dreifa.
Auglýsingar
sem eiga að koma í sunnudagsblaði
Þjóðviljans, þuría að vera komnar
til skrifstofu blaðsins fyrir
kl. 6 í kvöld.
þlÓÐVILIINN
Sími7500
NAUÐUNGARUPPBOÐ
verður haldið að Þverholti 15, hér í bænum, laugardag-
inn 11 . júní n.k. kl. 10 f.h. eftir kröfu bæjargjaldkerans
í Reykjavík og tollstjórans í Reykjavík, og verða seldar
eftirtaldar vélar tilheyrandi Málmiðjunni h.f.: 2 renni-
bekkir, snittvél, 4 borvélar, 2 slípivélar, 3 smerglar og
höggmeitill. Ennfremur peningaskápur.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógefinn í Beykjavík
K.R.R. K.S.Í.
Knattspyrnulielmsókn N.S.F.V.
SÍÐASTI LEIKUR
Orvalsíið KRR
gegn Neðra Saxlandi
verður á íþróttavellinum í kvöld klukkan 8.
Dómari: Hannes Sigurðsson.
Aðgöngumiðasala hefst á Iþróttavellinum
kl. 4. — Verð: stúkusæti kr. 30,00, stæði
kr. 15,00 og kr. 3,00 fyrir börn.
Forðizt biðraðir — kaupið
miða tímanlega
MóttöJcunefndin
!
■
%
í
■
Dönsku
STRAUBRETTIN
með „bláa bandinu“, j
■
■
«
eru komin.
■
■
■
■
■
■
Þau er hægt að hækka E
■
■
og lækka að vild, eftir {
m
m
m
því sem þægilegast er i
■
■
fyrir yður.
■
■
2 stærðir i
Minni gerð, verð með ermabretti kr. 339,00.
Stærri gerð, verð með ermabretti kr. 581,00
Véla- og raftækjaverzlunin h.f.
1 Bankastræti 10, sími 2852.
Úfrboð
■
■
■
■
■
Þeir, sem gera vilja tilboð um pípulagnir fyrir :
rafmagn, síma og fleira í kjallara og 1. hæö Bæj- :
arsjúkrahússins í Fossvogi, vitji uppdrátta og út-
■
boðslýsinga í skrifstofu Rafmagnsveitu Reykja- {
■
víkur, Tjamargötu 4, efstu hæö, gegn 200 króna |
■
skilatiyggingu.
■
■
■
Byggingantefnd Bæjarsjúkrahússins.
Laxveiði Úlfarsá |
■
■
Stangarveiöi í Úlfarsá er til leigu í sumar. Lax- 5
veiöi tímabilinu lýkur 31. ágúst en silungsveiöi á {
svæöinu fyrir neöan stíflu Áburðarverksmiöjunna r
er leyfö til 15. sepember. Veiða má aöeins á flugu i
og maök. Tvær stengur verða leigöar á dag í ánni, {
Leigt verður fyrir allt tímabiliö í einu, minnst 1 {
stöng í hálfan dag vikulega allt tímabilið.
Veiðitímabil dagsins er frá kl. 6—13.30 og kl. jj
13.30—21.00. LeigugjaldiÖ er sem hér segir:
■
1 stöng y2 dag vifeulega................ kr. 1.755,00 {
1 stöng 1 dag vikulega.................. kr. 3.510,00 í
2 stengur 1 dag vikulega ............... kr. 7.020,00 É
m
Tekið skal fram í umsóknum hvaöa degi vikunn- {
ar helzt er óskað efth’. Skriflegar umsóknir sendist
Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi.
■
■
Áburðarverksmiðjan h.f.
Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna. Í
■
■
* * *
■
■
■
■
■
■
■
■
Myndasýning frá
UZBEKISTAN I
■
í MÍR-salnum, Þingholtsstræti 27. {
■
. . B
■
■
■
!. v- vV • : - ■ ; . y*. ; - .• :• m
Aðgangur er ókeypis.