Þjóðviljinn - 10.06.1955, Side 11

Þjóðviljinn - 10.06.1955, Side 11
Föstudagnr 10. júni 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (11 Hans Kirk: 16. dagur — Herra ráðherra, sagði Abildgaard með áherzlu. Ef það er nokkur sem við berum traust til, þá eruð það einmitt þér. Allir vita hve þýðingarmikil orö yðar eru. En í þessu sérstaka tilfelli þurfum við einnig á yfh*- lýsingu stjórnmálamannanna aö halda, því að þér vitið Hann settist við skrifborðið, tók sjálfblekunginn og skrifaði rólegri og styrkri hendi ....' manna mest hve lítið er á stjórnmálamönnunum aö byggja. Á morgun eigum við að gefa Þjóöverjunum svar og viö viljum hafa tryggingu stjórnmálamannanna fyi*ir því að við breytum rétt frá þjóðfélagslegu sjónai’miði, annars veröum við að svara neitandi. Þaö veröur aö slá því ómótmælanlega föstu að við séum að þjóna landi voru. Gerið þér yöur ánægðan með yfirlýsingu frá alfööurn- um? spurði ráðherrann. — Skriflega? spuröi hæstaréttarlögmaðurinn. í bréf- formi. Annars eigum við á hættu aö hún gleymist. Mágur minn er fööurlandsvinur, sem undir engum kringum- stæðum aöhefst neitt sem hefur ekki samþykki ábyrgra aðíla. Hér er um já eða nei að ræöa. Þaö er um þaö aö ræða að þjóna landi okkar .... — Gott, svaraði ráðherrann. Við spyrjum gamla mann- inn. Hann hefur ævinlega svar á reiöum höndum og ætíð rétta svarið. Hann hefur þjóðina í vasanum og þess ber að minnast. Ég ber reyndar lítið skynbragð á mál sem liggja utan við minn verkahring, hæstaréttai*lög- maður, en ég skil afstööu yöar. Viö hringjum. Hann tók símann og talaði nokkur orð við einhvern fulltrúa. Svo reis hann á fætur og gekk á undan út úr herberginu. Sendisveinninn hjálpaði honum lotningar- fullur í frakkann. Göturnar voru mannauðar, skær vor- sólin úthellti geislum sínum yfir framhliðar húsanna og steinlagt strætið. Það var glaöa sólskin í hernumdri borg. Alfaöirinn tók viröulega á móti þeim og talaöi meö hljómmikilli bassarödd. — Aödáanlegt, hugsaði Tómas. Hann veit þetta, hann hugsar þaö sama og ég. — þeir manu sigra, sagöi forsætisraöherrann. Viö þurfmn bara aö beygja okkur og sætta okkur við þau kjör sem okkur eru ætluö. Og hvað yöur snertir, Klitgaard verkfræðing- ur, er ekki um neitt að velja. Þér getiö kallað eftir vinnu- afli og framkvæmt verkiö sjálfur. Mikilvæg stjórnmála- leg og þjóöfélagsleg rök hníga aö því aö þér takiö að yður þau verk sem ætlazt er til af yður. — Ætlazt til, forsætisráðlieri*a, en á þann hátt aö þaö minnir á hótun, skaut Abildgaard inn í. — Þaö gefur aö skilja, sagöi forsætisráöherrann og strauk skeggið. En þér veröiö að gera þaö sem krafizt er af yður. Hverju haldiö þér aö ég verði að fórna? Miklar hugsjónir eru í deiglunni í dag; við verðum að laga okk- ur eftir hinum nýju aöstæöum. ÁÖur töluðum við um verkamenn og kapítalista — nú erum við allir á sömu skútunni. — En við höfum énn sama virta og reyftda stýri- manninn, sagði Abildgaard. Gamli stjómmálamaðurinn brosti vingjamlega. — Það gleður mig að maður úr yðar stétt skuli einnig skilja það. Ég vil ekki standa í vegi fjrrir réttmætum hagsmunum neinnar stéttar. Og látum okkur nú skrifa bréfið sem þiö farið fram á. Það er mjög sanngjörn krafa. Hann settist við skrifboröið, tók sjálfblekunginn og skrifaði rólegri og styrkri hendi. Þegar hann hafði lokið bréfinu rétti hann Tómasi Klitgaard þaö og hann las: Fyrirtækið Klitgaard & Synir Hr. verkfræðingur Tómas Klitgaard. f tilefni af fyrirspurn yðar og að loknu viðtali að beiðni yöar, vil ég leyfa mér aö ítreka, aö þaö er sam- kvæmt skýlausri ósk ríkisstjórnarinnar aö þér verðiö við kröfu um aö vinna ákveöin störf fyrir hernámsliðiö. Þaö er sannfæring mín aö neitun yöar hefði í för meö sér hættulegar afleiðingar og samrýmist ekki velferö föðurlandsins. Ég bið yður því af heilum hug að reyna aö stuðla aö því að þetta fari fram á sléttan og felldan hátt. Og þess ber aö minnast að land okkar hefur ekki veriö hernumið af fjandsamlegu stórveldi, heldur af þjóö sem er í sjálfsvörn hefur oröið aö grípa til aðgeröa, sem væm óhugsandi á friöartímum. Tómas Klitgaard rétti mági sínum bréfiö og hann las þaö, hneigði sig kurteislega og sagði: — Slík yfirlýsing frá mesta stjórnmálaleiðtoga lands okkar ríður auðvitaö baggamuninn. Nú á fyrirtækiö ekki annars kost en hlýöa. Þökk fyrir, forsætisráðherra! Þeir kvöddu og Tómas átti erfitt meö að leyna ánægju sinni. Sem hann var lifandi maöur, þá biöu hans þarna stórkostleg tækifæri. Fyrirtækið sem hann stjórnaöi haföi faöir hans að vísu byggt upp, en nú skyldi Grejs gamli fá aö sjá! Nú opnuðust honum geysilegir möguleikar og hann var maöur til að koma auga á þá og nota þá. Grejs var leiguliöi í atvinnulífinu, en Tómas sonur hans ætlaöi sér aö verða þar óöalsbóndi. — Mér finnst satt að segja að viö eigum skiliö góðan, heiöarlegan whiskysjúss, sagöi Abildgaard meöan þeir sátu í bílnum. Æ, kæri Tómas, lífið er erfitt. Maöur verö- ur aö geta sveigt sig. 11------—*--------------------- tmijöi6eú0 siauKmoKrausoa Minningar- kortin eru til sölu í skrifstofu Sós- íalistaflokksins, Þórsgötu 1; afgr. Þjóðviljans; Bókabúð Kron; Bókabúð Máls og menningar, Skólavörðustig 21 og í Bókaverzlun Þor- valdar Bjamasonar í Hafn- arfirði Bæjarpóstorinn Framhaid af 4. síðu. séu að taka sig fram um að gera númer úr vissum mönn- um, kannski þvert ofan í vilja þeirra. Að því tilskildu að hugur þessa snjalla skák- manns og aðlaðandi unga pilts standi fyrst og fremst til skáklistarinnar, styð ég þessa framtakssemi, og hef í hyggju að leggja mitt af mörkum til þess að hún nái tilætluðum árangri“. Stuttjakkar Tweedkápur Sumarkápur Heilsárskápur Aðskomar tweeddragtir Víðar tweeddragtir Sumarliattar Laugaveg 100

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.