Þjóðviljinn - 10.06.1955, Page 12
Gróði rikisins af áfengissölu var 68,5
á síðast liðnu ári
íslendingar drekka þó minnst
allra Norðurlandaþjóðanna
Áfengisneyzla íslendinga á s.l. ári var 1,56 lítrar af
hreinum vínanda á hvern mann í landinu fyrir upphæð
sem nemur 547 kr. á hvert mannsbam.
GróÖi ríkisins af áfengissölunni var 68,5 millj. kr. — og
drekka íslendingar þó minnst NorðurlandaþjóÖanna.
un ríkisins vín fyrir 84,2 millj.
kr.
Brynleifur Tobiasson, áfengis-
varnaráðunautur ríkisins skýrði
blaðamönnum frá þessu í gær.
Tölur þær sem hann skýrði frá
eru reiknaðar út af Hagstofu
íslands..
Áfengisneyzla landsmanna hef-
ur aukizt nokkuð fjögur síðustu
árin. Árið 1951 var neyzlan
1,40 lítrar á mann, næsta ár
1,33, í hittiðfyrra 1,45 og í
fyrra 1,56 lítrar á mann í
landinu.
fslendingar drekka þó minnst
Norðurlandaþjóðanna. Árið 1953
drukku Danir 3,20 lítra af hrein-
um vínanda á mann, Finnar 1,84,
Norðmenn 2,05 og Svíar 3,83.
Vínkaup á mann
Undanfarin 4 ár hafa vinkaup
á hvert mannsbarn á íslandi
verið sem hér segir: 1951: kr.
457,00, 1952: kr. 433,00, 1953:
kr. 507,00 og 1954: kr. 547,00.
/
Gróði ríkisins
Gróði rikisins af áfengissölu
þessi sömu ár hefur verið sem
hér segir: 1951: 54,6 millj. kr.,
1952: 52,3 millj., 1953: 62,8 millj.,
og 1954: 68,5 millj. kr. — Gróð-
inn af áfengissölunni var 13,2%
af heildartekjum ríkisins árið
1951, 12,5% árið eftir og 12,3%
árið 1953, en ekki er vitað enn
hvernig hlutfallið hefur verið
s.l. ár, en þá seldi Áfengisverzl-
Salan á þessu ári
Áfengissalan fyrstu 3 mánuði
þessa árs hefur verið sem hér
segir:
Selt í og frá
Reykjavík .... kr. 16.049.421,—
Selt i og frá
Seyðisfirði--------261.613,—
Selt i og frá
Siglufirði ....
1.035.387,-
Samtals kr. 17.346.421,-
Ökuleyfissvipting
Síðustu tvö ár hefur tala
þeirra er sviptir hafa verið öku-
leyfi vegna ölvunar við akstur
verið sem hér segir:
1953 1954
Reykjavík ............. 184 204
Akranes ................. 2 1
Akureyri ............... 16 12
ísafjörður .............. 3 1
Keílavík ................ 2 5
Gullbringusýsla
og Hafnarfjörður.... 23 23
þar af íslendingar 20 15
þar af Bandaríkjam. 3 8
Keflavíkurflugvöllur -68
Maireiðsluiólk í vinnuflokkum landsímans
fær 600 krónur í grunn á viku
Alþýðusamband íslands liefur gert sanuiinRa við póst- og shna-
málastjórnina um kaup og kjör matreiðslufólks í vinnuflokkum
landssímans; og eru það fyrstu samningar sem fyrir það liafa
verið gerðir.
Samkvæmt hinum nýgerðu
samningum er lágmarkskaup í
allt að 15 manna flokki 600
krónur í grunn á viku. Séu
fleiri en 15 menn í vinnuflokki
er skylt að ráða 2 matreiðslu-
menn (eða -konur) með sömu
kjörum.
Fyrir þetta kaup er skylt að
inna af hendi alla^natreiðslu og
hreinlætisstörf a vinnustað,
alla daga vikunnar, einnig á
helgum dögum. Þó er ekki
skylt að annast vatnssólcn né
heldur aðdrætti nauðsynja jTir-
leitt.
2 unglingaflokkar KR fara til
Danmerkur é morgun
Þýzkir piltar úr 2. aldursflokki koma hing-
að í næstu viku í boði Vals
Á morgun fara tveir unglingafloklcar úr Knattspymufélagi
Reykjavíkur, 4. flokkur og 2. flokkur, í keppnisför til Danmerk-
ur. N.k. fimmtudag er þýz.kt unglingalið væntanlegt hingað til
lands í boði Vals.
Matreiðslufólkið nýtur allra
sömu réttinda og verkamenn í
vinnuflokkunum, eftir því sem
samræmist starfi þess. Það fær
6% orlof, og greiðslur í at-
vinnuleysissjóði fyrir þess hönd
hófust 1. þ.m.
Gestir á þingi
franska alþýðu-
sambandsins
Tveir fulltrúar frá Alþýðu-
sambandi fslands verða gestir
franska verkalýðssambandsins C.
G. T. á 30. þingi þess er hefst
i París 12. þ. m. og stendur
yfir til 17. júní. Til fararinnar
hefur sambandið valið þá Magn-
ús Bjarnason, ritara Alþýðu-
sambandsins og Björn Bjarna-
son, formann Iðju. Tóku þeir
sér far með flugvél Loftleiða
í gær til Hamborgar en halda
svo áfram í dag til Parísar.
þJÓÐVILJINN
Föstudagur 10. júni 1955 — 20. árgangur — 128. tölublað
íslenzka brúðuleikhúsið
svnir í Iðnó á sunnudag
Vw-'
Síðai í sumax verður farin sýningarför
til Vestur- og Norðurlandsins
íslenzka bruðuleikhúsið hefur sýningar að nýju nú um helgina.
Verða leikritin Grámann í Garðshorai, Hans og Gréta og Rauð-
hetta sýnd í Iðnó á sunnudaginn og er þs(ð síðasta tækifærið til
að sjá sýnlngar brúðuleikhússins hér í Reykjavík á þessu smnri.
Grámann í Garðshorni hefur
Stefán Jónsson rithöfundur fært
í leikritsform og er það nú
sýnt í fyrsta sinni. Hans og
Grétu og Rauðhettu hefur brúðu-
leikhúsið hinsvegar sýnt áður en
sýningar á þeim leikritum eru
nú teknar upp aftur vegna þess
hve margar óskir höfðu borizt
um að sýna þau. Sýningartími
þessara þriggja leikrita á sunnu-
daginn er rúmar tvær stundir.
—• Ævar Kvaran er leikstjóri.
Eins og áður er sagt er á
sunnudaginn síðasta tækifæri til
að sjá sýningu brúðuleikhússins
hér í Revkjavík á þessu sumri,
því að það mun bráðlega hefja
sýningarferð um nágrenni bæj-
arins; sýna t. d. í Hafnarfirði
17. júní á vegum hátíðarnefndar-
innar þar og í Keflavík þann 19.
í byrjun ágúst verður svo lagt
upp í sýningaríerð vestur og
norður um land.
Sú nýbreytni verður tekin upp
í þessum sýningarferðum, að
lokinni hverri leiksýningu verð-
ur haldin sýnikennsla í bast-
vinnu og handbrúðugerð. Þessi
sýnikennsla mun taka um þrjá
Engar sáttatil-
raunir í rafvirkja-
deilunni
Ekkert hefur gerst í vinnu-
deilu rafvirkja og rafvirkja-
meistara en verkfall hefur stað-
ið jTir síðan um síðustu mán-
aðamót. Enginn sáttafundur hef-
ur verið haldinn síðan s.l. laug-
ardag og fundur hafði ekki ver-
ið boðaður í gærkvöld.
stundarfjórðunga í hvert skipti
og er ókeypis fyrir þá sem verið
hafa á leiksýningunni á undan.
Teiknikennarar, sem séð hafa
þessa sýnikennslu, láta mjög vel
yfir henni.
KR-ingarnir fara utan í boði
Bagsvd Idrætsforening. Þeir
niunu keppa á knattspyrnumóti
í Bagsved þann 18. og 19. þ.m.
og verða viðstaddir landsleik
Dana og Finna i Kaupmanna-
höfn síðari daginn. Síðan halda
þeir út á Sjáland og leika þar
á ýmsum stöðum, skreppa þó
til Málmeyjar og leggja af stað
heimleiðis með Gullfossi þann
25. þ. m. Með sömu ferð hingað
kemur 3. flokks lið danska fé-
lagsins sem áður getur. Koma
dönsku piltarnir hingað i boði
KR og munu lið frá Reykja-
víkurfélögunum, Keflavík og
Akranesi keppa við þá.
Piltarnir úr KR, sem utan
fara, eru 24 og með þeim þrír
fararstjórar: Sigurgeir Guð-
mannsson, Baldur Jónsson og
Baldur Maríusson, Dönsku pilt-
■arnir sem koma eru 24 og 6
fararstjórar.
Þýzku piltarnir sem koma á
fimmtudaginn í boði Vals
eru úr 2. aldursflokki, flestir
Framhald á 3. síðu.
Þjóðverjarnir leika við úrvalslið í kvöld
HÉII81
Fjórði og síðasti leikur þýzku
knattspyrnumannanna frá Neðra
Saxlandi hefst á íþróttavellinum
í kvöld kl. 8. Leika Þjóðverj-
arnir nú við úrvalslið KRR og er
það þannig skipað:
Helgi Daníelsson Val, Hreiðar
Ársælsson KR, Árni Njálsson
Val, Haílöór Halldórsson Vál,
Einar Helgason Val, Hörður Fel-
ixson KR, Óskar Sigurbergsson
Fram, Hörður Felixson Val, J>or-
björn Friðriksson KR, Gunnar
Guðmannsson KR, Ólafur Hann-
esson KR.
Eftir leikinn í kvöld verður
Þjóðverjunum haldið skilnaðar-
hóf i Sjálfstæðishúsinu en þeir
fljúga heimleiðis í fyrramálið.
Myndina hér fyrir ofan tók
Bjarnleifur Bjarnleifsson í leikn-
um í fyrrakvöld, er þýzki mark-
vörðurinn varði snilldarlega
skot frá Þórði (þórðarsyni í síð-
ari hálfleik. — Sjá nánari frá-
sögn um leikinn á 9. síðu.
Ur leikritinu Grámann í Garðs-
liorni: Kóngur og drottning
að spila.
Kaupdeilur ó
Snœfellsnesi
Verkalýðsfélögin á Snæfells-
nesi boðuðu til fundar að Vega-
mótum í fyrradag, og var at-
vinnurekendum boðið til fund-
arins. Að undanförnu hafa flest
félögin á þessu svæði sagt upp
samningum sinum, og var til-
gangur fundarins sá að ræða
nýja kaupgjaldssamninga fyrir
Snæfellsnesfélögin í því skjmi
að koma á heildarsamningum
fyrir allt svæðið.
Verkalýðsfélögin vildu fá fram
Reykjavíkurkjör, en atvinnu-
rekendur höfnuðu. Verður því
hvert félag að semja fyrir sig;
verkfall er nú yfirvofandi I
Grundarfirði, en síðar kemur
röðin að öðrum félögum.
Hannibal Valdimarsson, for-
seti ASÍ, mætti á fundinum að
ósk verklýðsfélaganna.
Dagsbrúnarkjör í
Nesjahreppi
Alþýðusamband íslands hefur
fyrir hönd Verkalýðs- og bíi-
stjórafélags Nesjahrepps samið
við Sameinaða verktaka um kaup
og kjör v*ið alla vinnu að
byggingu radarstöðvarinnar á
Stokksnesi við Hornafjörð. í að-
alatriðum er byggt á kjörunum
sem félögin í Reykjavík náðu
fram í verkfallinu.
Áður hafði ASÍ samið fyrir
hönd verklýðsfélagsins á Þórs-
höfn við Sameinaða verktaka
um kaup og kjör verkamanna
við smíði radarstöðvarinnar á
Heiðarfjalli á Langanesi, og urðu
niðurstöður samninga þar hinar
sömu.