Þjóðviljinn - 10.07.1955, Side 4

Þjóðviljinn - 10.07.1955, Side 4
'é) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagnr 10. júlí 1955 þlÓÐVILIINN títgefandi: Sameiningarflokkur alþýðo — Sósíalistaflokkurinn 1 Lánleysi Ýmsir menn kannast við Framkvæmdabankann, en það er skilgetið afkvæmi banda- rískra húsbænda og auðsveipr- ar þjónustu, afturhaldsins í Sjálfstæðisflokknum og Fram- sókn. Var stofnun þessari þrengt upp á íslendinga með á- föstum sendimanni ,er bera skyldi bankastjóranafnbót. En bankastjóri þessi, ÍBenjamin Ei- láksson, fór að sögn annars að- alblaðs ríkisstjórnarinnar sex eða sjö ferðir til Vestur-Evrópu og Ameríku árið sem leið, í því skyni að afla lána fyrir íslenzka ríkið og til margvíslegra at- vinnuframkvæmda á Islandi. Hafa þetta efalaust verið hin þægilegustu ferðalög fyrír bankastjórann, því illa sæmir að svo háttsettur embættis- •maður ferðist öðru vísi en með ríkmannlegum hætti. Má því teljast nokkur ónærgætni, er einn starfsbróðir hans, Jón Árnason bankastjóri, segir í Tímanum að allar þessar við- hafnarferðir dr. Benjamíns bankastjóra hafi reynzt árang- arslausar. Þegar bandaríska frumvarp- Inu um Framkvæmdabankann var þröngvað gegnum Alþingi, Sýndu þingmenn Sósíalista- flokksins fram á hvað hér var sð gerast og tókst jafnvel að neyða afturhaldið til þess að breyta einstökum atriðum hins bandaríska frumvarps. Það var fulltrúi Sósíalistaflokksins í fjárhagsnefnd efri deildar, Brynjólfur Bjarnason, sem birti f nefndaráliti sínu álitsskjal Jóns Árnasonar bankastjóra, harðorð mótmæli hans og varn- aðarorð vegna þess sem var að gerast með stofnun Fram- kvæmdabankans. Með Framkvæmdabankanum Og hinum áfasta og meðfylgj- andi bankastjóra var verið að leiða í lög alræði bandarískra banka og stjórnarvalda yfir efnahagslífi^slendinga. Hefur reynslan sýnt, að ekk- ert gott hefur leitt af starfi bankans en margt illt. Jón Ámason víkur að því í lok greinar sinnar í fyrradag er fcann segir að „lánstraust þjóð- arinnar erlendis er of dýrmætt til að gera það að leiksoppi \ið- vaninga“. Það mun þegar hafa fundizt, að ekki muni hollt lánstrausti þjóðarinnar erlend- Is, a.m.k. ekki í Evrópu, að að- albanka landsins sé vikið til fcliðar í þeim málum, en í stað hennar sett stofnun eins og Framkvæmdabankinn, með á- föstum bankastjóra af banda- rískri náð. Til þess gætu bent hinar sex eða sjö lánleysisferð- ir dr. Benjamíns Eiríkssonar ár- ið sem leið. Fjármálum og efnahagslífi Is- lendinga mun þá bezt borgið, er þeir hafa losað sig við Fram- kvæmdabankann — tákn er- lendra yfirráða, og í stað hinn- ar bandarísku ófrelsisstefnu verður tekin upp frjásleg, al- fslenzk stefna, framkvæmd af Islenzkum aðilum. Þjóðinni er það brýn nauðsyn að þau um- Jfeskipti séu ekki fjarri. Guðberg Kristinsson, múrari — Minningarorð — Guðberg Kristinsson var fæddur á Sauðárkróki 7. júlí 1909. Hann var sonur hjónanna Kristins Erlendssonar kennara á Sauðárkróki og Sigurlínu Gísladóttur. Ungur að aldri fór Guðberg að vinna fyrir sér, og stundaði hann aðallega sveitastörf alls- konar. Hann hóf síðan nám í Kenn- araskólanum, en lauk því ekki, og fór þá til Siglufjarðar, þar sem hann vann algenga verka- mannavinnu, m.a. í síldarverk- smiðjunum. Árið 1941 fluttist Guðberg með fjölskyldu sína til Reykja- víkur. Starfaði hann þá um tveggja ára skeið hjá Kaupfé- lagi Reykjavíkur og nágrenn- is sem félagsmálafulltrúi. Nokkrum árum síðar hóf hann nám í múraraiðn og varð að prófi loknu meðlimur í Múr- arafélagi Reykjavíkur. Guðberg Kristinsson var einlægur og áhugasamur al- þýðusinni. Hann var einn af stofnendum Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins árið 1938. Guðberg var mikill afkasta- maður við öll þau störf, er Leikhús Heimdallar: „Öskabarn örlaganna eítir BERNARD SHAW Leikstjóri: Einar Pálsson 44 Sumarleikhús er skemmtileg nýjung í bæjarlífi Reykjavíkur, og hitt eigi síður minnisvert er Heimdallur hið fjömenna fél. ungra Sjálfstæðismanna, snýr við blaðinu eftir þrotlausa bar- áttu í nær þrjátiu ár tekur að helga krafta sína leiklist og öðru menningarstarfi, þau sinna- skipti hljóta að vera öllum fagn- aðarefni. Og leikhús Heimdaliar fer vel af stað — sýndur er skemmtilegur sjónleikur eftir stórskáldið og spekinginn Bern- ard Shaw, hinn ótrauða sósial- ista og óviðjafnanlega háðfugl sem jafnan barðist gegn aftur- haldi og þröngsýni og svifti öðr- um betur grímunni af borgara- legum hégiljum og hleypidóm- um; leikendur eru valdir með mikilli kostgæfni úr hópi hinna beztu iistamanna; og leikstjórn Einars Pálssonar, hins ötula forstöðumanns leikhússins nýja, smekkvís og vel hugsuð. Ljósa- breytingar eru ekki fullkomnar, en tjöld Magnúsar Pálssonar falleg og möguleikar hins dverg- smáa leiksviðs notaðir út í æs- ar; og búningar Lárusar Ingólfs- sonar smekklegir og gerðir af sögulegri nákvæmni. Loks hefur Árni Guðnason þýtt leikinn á góða íslenzku, einstaka orðatil- tæki hans, til að mynda „dam- an‘, kann ég reyndar ekki að meta. „Óskabarn örlaganna" er sögu- legur gamánleikur í einum þætti og fjallar um Napóleon mikla -- ekki hinn virðulega og feitlagná keisara síðari ára sem okkur er kunnastur af myndum og sög- um, heldur Bonaparte, hershöfð- ingjann unga sem vinnur sína fyrstu sigra og sér blasa við sér opna braut til frægðar og valda. Leikrit þetta verður á engan hátt talið til beztu verka meist- arans, sjálfur sagðist hann hafa samið það til að skapa tveimur snjöllum ieikendum girnileg við- fangsefni, og mun nærri sanni. En andríki og skarpskyggni Bernards Shaw eiga ekki sinn lika, einstæð fyndni hans og kaldhæðni birtast í hverju orð- svari að heita má; það er honum leikur einn að draga of- urmennið niður af fótstallinum, svifta 'af honum rómantískri skikkju hetjudýrkunar og sögu- Iegra blekkinga — beina að hon- um skæru kastljósi miskunnar- lauss raunsæis, unz hann stend- ur frammi fyrir heiminum í allri sinni mannlegu nekt .En skáldið afskræmir ekki hetjuna þrátt fyrir allt, að baki öllu háðinu og hversdagsleikanum felst aug- Ijós viðurkenning á frábærum herstjómargáfum Najíóleons og stórmennsku. Sjálft efni leiksins má vart minna vera; hinn sig- ursæli herstjóri er staddur í litlu veitingahúsi í Pódalnum, en þar verður á vegi hans frönsk hefðarkona, fögur sýnum og búinn miklum gáfum. Henni hefur tekizt að komast yfir einkabréf til Napójeons og beitt til þess hinum kænlegustu brögðum, en tilgangur hennar er sá einn að varna því að hers- höfðingjanum berist fregnir af hneykslanlegu framferði hinnar lauslátu konu sinnar Jósefínu. Þau heyja orðmargt og andríkt einvígi um bréfið, Napóleon og konan fagra, beita á víxl léttum vopnum og þungum og hafa ýmsir betur, unz bæði hrósa sigri að lokum. Sýningin er eigi sízt minnis- verð vegna þess að hún færir Framhald á 7. síðu. hann tók að sér, hvort sem þau voru félagslegs eðlis eða verk- leg, og unni sér þá oft engr- ar hvíldar. Hann var óvenju- lega hjálpsamur maður, vina- fastur og vildi hvers manns vanda leysa. Ósérhlífni hans mun lengi verða vinum hans og samverkamönnum minnis- stæð. Guðberg var kvæntur Andreu Helgadóttur og eignuðust þau fjögur mannvænleg börn. Hann var hinn ástríkasti heimilis- faðir og vann öllum stundum að velferð heimilis síns og fjölskyldu. 1 okkar þjóðskipulagi hefur vinnandi mönnum jafnan verið gert of eða van í vinnu. Ann- aðhvort hefur hlutskipti þeirra margra verið atvinnuleysi, sem Guðberg þekkti vel af eigin raun, eða þá þess á milli tak- markalaus vinna, sem hefur of- boðið heilsu manna og lífsþreki. Guðberg hneig í valinn á löngum og erfiðum vinnudegi við það starf, er hann hafði kosið sér að atvinnu. Vinir hans og félagar munu minnast hans sem ágæts drengs og samferðamanns og óska þess af heilum hug, að hin bjarta minning um hann megi milda sorg fjölskyldu hans og ættmenna. Vinur og félagi Ónotalega brá mér, er ég sá auglýsta í blöðum útför Guð- bergs Kristinssonar. Ekki hafði ég grun um, að þessi samferða- maður minn væri horfinn af þeirri leið, sém við gengum. Milli okkar hefur stundum upp á síðkastið verið nokkurt bil, Guðberg Kristinsson. en aldrei meira en kallfæri. Fundum hefur því oft borið saman. Mér féll næstum að öllu leyti alveg framurskarandi vel við þennan mann. Ég kynntist Guðbergi ung- um og hann ha.fði svo aðlað- andi framkomu og frjálslegt við mót, að mér fannst sem honum fyrirgæfist allt og ef til vill fyrirgæfist honum of mikið. Síðan urðum við litlir vinir um skeið. Frá því stutta tímabili er mér ríkt í minni eitt atvik, sem sýndi mér alveg ótvírætt prúðmennsku hans, drenglyndi hans og nærfærni. Eftir það hefði ég verið fús á fyrirgefn- ingu á hugsanlegum mótgerð- um af hans hálfu, en þær urðu reyndar óhugsanlegar. Aftur á móti varð ég var sömu eigin- leika hjá Guðbergi Kristins- syni oft og mörgum sinnum síð- ar. Því er það, að lesi einhver sem kallast ef til vill óviðkom- andi, þessi orð mín, vil ég að þau beri þau boð, að þetta. snertir alla. Öll höfum við orð- ið einum ágætismanni fátækari við fráfall Guðbergs Kristins- sonar. Stefán Jónsson Ritstjóri: Guðmundur Arnl&ugsson SKÁKIX i:\SKI IE LEIKIIR Skákmótið í Prag (og Mari- áhske Lázhe) 17.' júní 1954. „ ENSKUR LEIKUR Szabo Fáchmann 1. c2—c4 —e5 2. Rbl—c3 Rb8—c6 3. Rgl—f3 g7—g6 4. d2—d4 e5xd4 5. Rc3—d5!--------- Snjöll nýjung, svartur á nú örðugt með að koma mönn- um sínum fram í eðlilegar stöður. 6. Bcl—g5 7. Bg5—f4 8. Rf3xd4 Þrír peðsleikir Bf8—g7 f7—f6 d7—d6 a7—a6 í röð, nauðvörn, og tveir af þeim stöðunni til óþurftar að öðru leyti — það bendir til þess að eitthvað hafi verið bogið við upphafsleikina. Hvítur hótaði einfaldlega Rb5 og erfiðleik- ana sem svartur á við að stríða má meðal annars marka af 8. — Rxd4 9. Dxd4 Dd7 10. c5! f5 ll.De3f Re7 12. cxd og 13. Hcl. 9. h2—h4! h7—h6 Enn einn peðsleikur! Hvíta h-peðið gerði sig að vísu lík- legt til að renna alla leið upp á h6, en það er engu að síð- ur vafasamt hvort lækningin er ekki hættulegri en sjúk- dómurinn. 10. g2—g3 f6—f5 11. Rd4xc6 b7xc6 12. Rd5—c3 Ha8—1>8 Til greina kom sterklega að leika Bxc3f og þvi næst Df6, Re7 og Ke8—f7—g7. 13. Ddl—d2 c6—c5 Enn einn vafasamur peðs- leikur. 14. Bfl—g2 Bc8—b7 15. Bg2xb7 Hb8xb7 16. 0—0 Rg8—46 17. e2—e4! f5xe4 18. Rc3xe4! --------- Sóknarlínurnar eru opnaðar miskunnarlaust, og svarti kóngurinn er berskjaldaður og finnur hvergi skjól. 18. ---------- Rf6xe4 19. Dd2—d5 Hb7xb2 20. Hal—el! Bg7—f6 Býr sig undir að skríða í skjóli á g7. 21. Helxe4 Ke8—f8 Ekki er skjólbetra á d7 (21. — Kd7 22. He6 He8? 23. Hxd6f cxd6 24. Dxd6t Kc8 25. Dc6f og mátar). 22. h4—h5! g6—g5 23. Bf4—cl Hb2—b8 24. Dd5—f5 Hh8—g8 25. He4—e6 Kf8—f7 26. Hfl—el c7—e6 ABCDEFGH N HH ÉHl wm. íMíWzm m mfwmm'i « » ggp 27. Bcl—d2 og Pachmann gafst upp. Gegn hótuninni Bc3 á hann að vísu vörnina d6—d5—d4, sem dug- ar í bili, en hvítur hótar Ba5! og gegn því er engin vöm. Szabo átti kost á fullt eins skemmtilegri vinningsleið x siðasta leik, hann gat leikið 28. Bb2! Framhaldið gæti þá orðið: 28. — Hxb2 29. Hxf6f! Dxf6 30. Dd7f Kf8 31. He8 mát.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.