Þjóðviljinn - 10.07.1955, Side 8
, w
Var vatnsveltuneind Ihaldslns
sklpuð tll þess að sýnast?
Enn heíur neindin engu áliii skilað og
gmis bœjarhverfi þoia áirani vatnsskort
í fyrrahaust tók íhaldió rögg á sig og skipaöi vatns-
veitunefnd til þess að koma vatnsveitumálunum í lag. Þaö
hefur enn ekkert heyi'zt frá þeirri nefnd.
Á bæjarstjórnarfundinum s.l.
fimmtudag beindi Ingi R.
Helgason þeirri fyrirspurn til
borgarstjóra hvernig stæði á
því að ekkert hefði heyrzt frá
vatnsveitunefndinni og hvenær
mætti vænta árangurs af starfi
hennar.
Leiksýning borgarstjórans
Undanfarinn áratug hafa
verið meiri og minni kvartan-
ir um vatnsskort víðsvegar í
bænum. Talið er að í leiðslunni
sé nægilegt vatn til að full-
nægja þörf allra bæjarbúa, og
þótt þeir væru fleiri en þeir
eru nú.
Borgarstjórinn lék árum
ea.man þann leik að svara því
að „fjárhagsráð“ og jafnvel
fleiri stjórnarvöld sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur ráðið,
hafi neitað um fjárfestingar-
leyfi fyrir pípum. Ihaldið í bæj-
arstjórn gat ekkert framkvæmt
af því íhaldið í fjárhagsráði og
ríkisstjórn sagði nei!!
%
Ný sviðsetning
1 fyrrahaust ákvað borgar-
stjórinn að hætta þessum
skrípaleik — og byrja nýjan,
meö því að skella ábyrgðinni
af áralöngum vanrækslum bæj-
arstjórnarmeirihlutans á herð-
ar þáverandi vatnsveitustjóra-,
sem allir vissu að var yfir-
hlaðinn störfum.
Borgarstjórinn og Ihald hans
skipaði vatnsveitunefnd og fól
einum góðum íhaldsmanni að
ánnast störf vatnsveitustjóra
„fyrst um sinn“. Vatnsveitu-
nefndin átti að vera allra meina
bót. Og íhaldið söng sjálfu sér
lof og dýrð fyrir dugnað í
vatnsveitumálunum.
„lámsmiðurinn46
flytur á „Bring-
una“
Á fundi bæjarráðs í fyrra-
dag vár samþykkt sú tillaga
listaverkanefndar Reykjavikur
að listaverkið „'Jámsmiðurinn“
eftir Ásmund Sveinsson, sem
verið hefur um skeið við Iðn-
skólann á Skólavörðuholti,
verði endanlega staðsett á
„bringunni" (milli Snorra-
brautar og Þorfinnsgötu).
Nú krefjast menn
iramkvæmda
En það þarf annað og meira
til þess að vatnið komi í vatns-
lausu hverfin. Gunnar Thorodd-
sen svaraði fyrirspum Inga R.
Helgasonar með því að vatns-
veitunefndin hefði „ýmislegt
gert til lagfæringar", en hún
hefði enn ekki skilað áliti, þó
kvaðst hann „vonast til þess að
bráðlega heyrist frá nefnd-
inni“!!
Á meðan Gunnar „gerir fíg-
úrur" með skipun vatnsveitu-
nefndar verða íbúar í sumum
hverfum bæjarins að sætta sig
við það að vera vatnslausir
hálfa og heilu dagana, geta
hvorki fengið vatn til drykkj-
ar né skolunar niður úr sal-
ernum. — Og þessir Reykvík-
ingar em orðnir leiðir á kúnst-
um borgarstjórans, þeir krefj-
ast framkvæmda í vatnsveitu-
málunum.
Ávarp vísindamannanna
Framhald af 1. siðu.
löndum heims til að ræða á-
varpið og gera sameiginlegar
ráðstafanir til að draga úr
stríðshættunni með þvi að
leggja að öllum ríkisstjómum
að hætta styrjaldarundirbún-
ingi, en leysa deilumál við
samningaborðið. Ráðstefna
þessi ætti að skora á allar
ríkisstjórnir að lýsa því yfir,
að þær muni aldrei leitast við
að leysa milliríkjadeilur með
styrjöld.
Vísindamöimum um allan
lieim verður gefinn kostur á
að undirrita ávarp þessara níu
starfsbræðra sinna, en enn-
fremur er ætlunin að hafin
verði söfnun undirskrifta að
því meðal almennings í öllum
löndum heims.
Bertrand Russell átti
írumkvæðið
Bertrand Russell. sem átti
frumkvæðið að þessu ávarpi
vísindamannanna, ræddi við
blaðamenn í London i gær,
eftir að hann hafði gert það
heyrinkunnugt. Hann sagðist
hafa lagt áherzlu á, að vísinda-
menn í ríkjum beggja hinna
miklu deiluaðilja á alþjóða-
vettvangi stæðu að ávarpinu
í sameiningu. Sovéskur vísinda-
maður hefði svarað umleitan
sinni með vinsamlegu bréfi, en
ekki talið sér fært að undir-
rita ávarpið að svo stöddu.
Svar hefði enn ekki borizt frá
Vinnan og verkalýðurinn
Þriðja hefti tímaritsins Vinn-
an og verkalýðurinn er komið
út með nýju kaupskýrslunum
o. fl, Áskriftarsímar 81077 og
7500.
Gunnari neiíað utn afbrigði!
Á bæjarstj.fundi s.l. fimmtud.
hefði að réttu lagi átt að fara
fram síðari umræða um reikn-
inga Reykjavíkurbæjar fyrir s.
1. ár. Borgarstjóri boðaði fund-
inn án þess að setja reikn-
ingana á dagskrá. Síðar sendi
hann út leiðréttingu um að
reikningarnir hefðu átt að vera
á dagskrá fundarins. —- Á
bæjarstjómarfundinum óskaði
íhaldið afbrigða frá fundar-
eköpum til að taka reikninga
inn á dagskrá. Fundurinn synj-
aði Um afbrigði. Reiddist Gunn-
ar þá mjög og kvaðst myndu
boða aukafund um reikningana.
Til þess þyrfti hann engan fyr-
irvara. Bæjarfulltrúar skyldu
vera viðbúnir að mæta skjótt.
Spratt þá upp Þórður Björns-
son og krafðist að fundurinn
yrði boðaður löglega, — með
ábyrgðarbréfi eða símskeyti,
en ekki skiláboðum í símtali.
kínverskum vísindamanni. Hins
vegar minnti hann á, að í hópi
þessara níu væri Leopold In-
feld, prófessor í eðlisfræði við
háskólann í Varsjá.
Sjö nóbelsverðlaunahafar
Framhald af 1. síðu.
asti eðlisfræðingur Bandaríkj-
anna, prófessor við Harvardhá-
skóla. Brautryðjandi í þeirri
grein eðlisfræðinnar sem nefn-
ist thermódýnamik. Fékk eðl-
isfræðiverðlaunum Nobels árið
1946.
H. J. Muller, einn mesti
erfðafræðingur heims, prófess-
or við Indianaháskóla í Banda-
ríkjunum. Var sæmdur lífeðl-
isfræðiverðlaunum Nóbels ário
1946 fyrir rannsóknir sínar á
áhrifum x-geisla á erfðir.
Leopold Infeld, prófessor í
eðlisfræði við háskólann í Var-
sjá. Var nánasti samverkamað
ur Einsteins um langt skeið og
gaf út ásamt honum vísinda-
rit, m. a. um þróun eðlisfræð-
innar. Dvaldist við háskólann i
Princeton í Bandaríkjunum fyr-
ir stríð, en var prófessor við
Torontoháskóla frá 1939 til
1950, þegar hann hvarf heim
til Póllands.
O. F. Poweli, brezkur eðlis-
fræðmgur, próféssör við Brist-
olháskóla. Fékk eðlisfræðiverð-
laun Nobels árið 1950. Er vara
formaður brezku friðamefndar-
innar.
Frederic Joliot-Curie, fremsti
kjameðlisfræðingur Fraklands,
hlaut efnafræðiverðlaun Nobels
ásamt konu sinni, Irene Joliot-
Curie, árið 1935 og friðarverð-
laun Stalíns árið 1951. Hefur
verið forseti Heimsfriðarráðs-
ins frá upphafi.
Hideke Yukawa, japanskur
eðlisfræðingur, próféssor við
Kyotoháskóla. Fékk eðlis-
fræðiverðlaun Nobels árið 1949.
Rothblat, brezkur eðlisfræð-
ingur, prófessor við Lundúna-
háskóla.
Frestað um viku
Ferð Sósíalistafél. Reykja-
víkur og Æskulýðsfylkingar-
innar í Þjórsárdal hefur ver-
ið frestað til næstu helgar
vegna óhagstæðs veðurs.
möÐinUINM
Sunnudagur 10. júlí 1955 — 20. árgangur — 152. tölublað
| Er dr. Krístní ókunnugt nm Hamil-
Iton-framkvæmdirnar í Gríndavi?
Dr. Kristinn Guðmundsson, utanríkisráðherra og mál-
gagn hans, Tíminn hafa margsinnis lýst því yfir að hið
illræmda bandaríska verktakafélag Hamilton sé hætt hér
„allri útivinnu“ en hafi aðeins leyfi til að ljúka inniverk-
um sem ekki séu fullunnin. Hefur Tíminn talið þetta
eitt mesta ,,afrek“ dr. Kristins og sjaldan átt nógu sterk
orð til að prisa röggsemi ráðherrans í skiptunum við
Hamilton.
Sannleiksgildi þessara vfirlýsinga utanríkisráðherrans
og Timans sést svo bezt á því að enn viimur Hamilton að
því að reisa mikla loftskejfastöð við Grindavík og hefur
þar fjölmenna vinnuflokka Islendinga, bæði verkamenn
og fagmemi að útistörfum.
Þessi vinnukraftur er tekínn á leigu frá Sameinuðum
verktökum og sjá milliliðirnir hag sínum sæmilega borg-
ið. Hefur Þjóðviljinn fregnað að Hamilton greiði a.m.k.
3 bandaríska dollara á klst. fyrir fagmanninn en greiðsl-
an til hans sjálfs nemur sem svarar 1 dollar!
Ekki verður um deilt að hér er unnin „útivinna" af
hinu bandaríska verktakafélagi. En þá er spurningin:
Veit „vamarmálaráðherrann" dr. Kristinn Guðmundsson
ekki um þessar framkvæmdir Hamiltonfélagsins og eru
þær gerðar án hans vitundar? Eða hefur ráðheirann og
Tíminn sagt þjóðinni vísvitandi ósatt?
10 ára millilandaflug
Á morgun eru iiðin 10 ár siðan íslenzk flugvél flaug í fyrsta
sldpti milli fslands og útlanda með farþega og póst. Flugvélin
var Katalínaflugbátur frá Flugfélagi fslands, áhöfnin var 6
manns og farþegar fjórir. Flogið var frá Reykjavflt til Largs í
Skotlandi á 6 klukkustundum og 4 mínútum. — Þjóðviljinn mun
segja nánar síðar frá þessum merku tímamótum í sögu islenzkra
flugmála og samgangna. — Myndin sýnir flugbátinn, er hann
var raýlentur á Largsflóa í Skotlandi.
in áœtlun um gatnagerð
Framhald af 1. síðu.
vinna af skipulagsdeildinni.
Þau störf hafa htns vegar ekki
verið framkvæmd, enda skipu-
lagsdeildin lítt starfshæf og
stjórnlaus með öllu síðan for-
stöðumaður hennar, Þór Sand-
holt, var ráðiim skólastjóri
Iðnskólang s.l. haust.
Meirililutinn ber ábyrgðina
Þannig er allt á sömu bók-
ina lært hjá íhaldsmeirihlutan-
um. Veigamiklar deildir á sviði
skipulagsmála og verklegra
framkvæmda eru hafðar stjóm-
lausar mánuðum saman og
slíkt látið stöðva þýðingarmikl-
ar verklegar framkvæmdir.
Engar áætlanir eru gerðar eða
ákvarðanir teknar umaðhvaða
verkefnum skuii geilgið yfir
bezta starfstíma ársins. Það er
þung ábyrgð sem borgarstjór-
inn og íhaldsmeirihlutinn tek-
ur á sig með slíkum vinnu-
brögðum og dýrt spaug fyrir
Reykvikinga að búa við slíka
stjórnarhætti.
Dvalarheimilið fær
10 þús. króna gjöf
Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna barst nýlega 10 þús.
króna gjöf til minningar um
Björn heitinn Jónsson skip-
stjóra frá Ánanaustmn. Er
gjöfin frá eftirlifandi konu
hans Önnu Pálsdóttur og skal
eitt herbergi í dvalarheimilinu
bera nafn (Bjöms. Byggingar-
nefnd DAS þakkar hina veg-
legu gjöf.