Þjóðviljinn - 12.08.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 12.08.1955, Blaðsíða 1
ÆF Föstudagur 12. ágúst 1955 — 20. árgaogur — 179. tölublað ÆF 1 Fundur verður haldinn í sam-*s bandsstjórn Æskulýðsfylking- arinnar nk. sunnudag kl. 2 síð- degis í Tjarnargötu 20. Framkvæmdanefnd^ Stjórn S-Kóreu heimtar að eftirlitsnefndin fari strax Gefur Bandarik]amönnum sökina á óeirSun- um, krefst oð jbe/r hœtti oð vernda nefndina Stjóm Suður-Kóreu hefur krafizt þess skilyrðislaust, að hiutlausa eftirlitsnefndin^neö framkvæmd vopnahlés- samning'sins verði á brott úr landinu þegar í staö og ekki síðar en á miðnætti á morgun. Yfirmaður herafla Bandaríkj- anna í Austur-Asíu, Lemnitzer hershöfðingi, yfirmaður 8. hers- ins í Kóreu, Wide hershöfðingi og Briggs, sendiherra í Seúl, gengu í gær á fund Syngmans Rhees og ræddu við hann í tvær klukkustundir um árásirn- ar á eftirlitsnefndina undan- farna daga og endurteknar hót- anir stjómar Suður-Kóreu í hennar garð. Reyndu þeir að telja hann á að taka aftur kröfuna um að eftirlitsnefndin fari úr landinu fyrír miðnætti annað kvöld. f gærkvöld hafði enn ekki frétzt hvort fortölur þeirra höfðu borið árangur, en það var talið heldur ólíklegt. Gefa Bandaríkjamönnum sökina Það bendir ekki til þess að stjórn Suður-Kóreu ætli að brejda um stefnu, að einn tals- rnaður hennar krafðist þess í gær, að Bandaríkjamenn hættu að halda verndarhendi yfir eft- átt hafa sér stað undanfarna daga í borgum þeim sem eft- irlitsnefndin hefur bækistöðv- ar í. Þetta mál myndi fljótlega leysast ef Bandaríkjamenn leyfðu Kóreumönnum að tala Engln veiði nyrðra - skipin halda heim Raufarhöfn í gærkvöld. Frá fréttaritara. Engin sildveiði hefur verið hér í dag, og lítil undan— fama daga. Eru mörg skip þegar farin heimleiðis, en önn- ur bíða ákvörðunar um heimferö. Seinnipartinn í dag sá síld- arleitarflugvélin 4 síldartorfur út af Hraunhafnartanga. Engin skip voru þá á þeim slóðum, en er fregnin barst hingað brugðu nokkur skip við og við fulltrúana í nefndinni, hún héldu af stað á miðin; ekki myndi þá ekki verða lengi að hafa enn borizt hingað fregnir hypja sig úr landinu, sagði ^ hvort þau hafi fengið einhverja veiði. Allhvasst hefur verið hér þó en nu er Syngman Rhem irlitsnefndinni. Hann gekk meira að segja svo langt að hann gaf Bandaríkjamönnum alla sök á þeim óeirðum sem Sovétríkin birta atómleyndarmál 30 vísindamönnum irá Ausiur-Evrópu boðið að skoða kjarnorkustöð Breta Sovézkir vísindamenn á kjarnorkuráðstefnumii í Genf hafa birt niöurstöð’ur rannsókna, sem hingað til hefur verið haldið stranglega leyndum. Einn af fulltrúunum í sov- ézku nefndinni í Genf birti í gær niðurstöður mælinga á kjarnaklofnunum, en þær hafa hingað til verið hernaðarleynd- armál. Kom birting þessara mælinga því á óvart, en er einnig nefnd sem dæmi um, hve frjálsar og opinskáar umræð- urnar á ráðstefnunni eru. — Fréttamenn segja að brezkir •og bandarískir vísindamenn hafi sagt að mælingaaðferðir og niðurstöður þeirra séu mjög áþekkar þeim sovézku. Annar sovézkur vísindamað- ur, Kosanoff, skýrði ráðstefn- unni frá því, að í Sovétríkjun- um væri nú svo til búið að ráða leyndarmál blaðgrænunn- ar: hvernig hún fer að því með aðstoð sólarljóssins að breyta ólífrænum efnum í líf- ræn. Fyrr á árinu barst frétt um að bandarískum vísinda- mönnum hefði tekizt þetta. 70 kjarnorkuvísindamönnum frá mörgum löndum hefur ver- ið boðið að skoða kjarnorku- rannsóknarstöð Breta í Har- weil. Af þeim verða 15 frá Sovétríkjunum, 5 frá Tékkó- slóvakíu, 5 frá Póllandi og 5 frá Rúmeniu. hann. Herstjórn Bandaríkjanna Kóreu hefur sent liðsauka til lægði um hádegið, allra þeirra fimm hafnarborga, hann að bræla upp aftur, þann- þar sem óeirðir síðustu daga ig að útlitið er ekki gott. hafa átt sér stað. i Um 30 skip liggja nú hér Fundur utanríkisráðherra storveldanna 27. október Munu halda áiram að ræða þau mál sem voru á dagskrá stjórnarleiðtoganna Það hefur nú verið ákveðið að fundur utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, Sovétríkjanna, Bretlands og Frakk- lands hefjist 27. október n.k. í Genf. inni. Mörg skip hafa haldið heimleiðis síðastliðns daga. Þetta var tilkynnt samtímis í gær í höfuðborgum stórveld- anna fjöguiTa. Dagskrá utanríkisráðherra- fundarins var ákveðin á Genf- arfundi stjómarleiðtoganna í síðasta mánuði og er hún á þessa leið: Ráðherramir eiga að reyna að finna lausn á deil- unni um sameiningu Þýzka- lands, koma upp öryggiskerfi í Evrópu og semja öryggissátt- mála fyrir öll ríki álfunnar eða einhvern hluta þeirra. Enn- fremur eiga þeir að ræða af- vopnunarmálin og aukin sam- skipti þjóða á milli. Öll þessi mál voru til umræðu á fundi stjómarleiðtoganna, en engin ákvörðun var tekin um þau þar, sem kunnugt er. Fangelsisdómar í Argentínu Flotaforingi og sex aðrir yf- irmenn úr argentínska flotan- um voru i gær dæmdir í ævi- langt fangelsi i Buenos Aires fyrir hlutdeild í uppreisninni gegn stjórn Perons í sumar. Bardagar blossa upp í N-Afriku Bardagar hafa aftur blossað upp í Alsír milli skæruliða og franskra hersveita. Frakkar misstu 21 mann í orustu í eyði- mörkinni í suðausturhluta landsins í fyrradag og 10 skæruliðar lágu eftir í valnum. f Constantinehéraði féllu 5 Frakkar og 15 skæruliðar í annarri orustu. Grandval, landsstjóri Frakka í Marokkó, lagði hinar nýju til- lögur sínar um stjórnskipan í Marokkó fyrir Norður-Afríku- nefnd frönsku stjórnarinnar í gær. Ekki er vitað hváð gerð- ist á þeim fundi, en fullvrt er, að mikill ágreiningur sé í ríkis- stjórninni um tillögurnar og geti vel farið svo að hún klofni. Fyrlrspurnir til ufanríkisráðherra Frásögn Þjóðviljans um það að Bandaríkjamenn hafi nú í hyggju að stórauka hernám sitt hérlendis, koma upp stórri flotastöð í viðbót við Keflavíkurflugvöll og radar- stöðvar á öllum landshornum, hefur að vonum vakið mikla athygli. Allir sæmilegir menn hafa gert sér vonir um að með þeirri þróun sem nú er að verða í alþjóðamálum sæi senn fyrir endann á hernám- inu, enda er það í samræmi við allar yfirlýsingar stjórn- arvaldanna; hernámið átti að vera „vörn“ gegn einhverri hættu, „ill nauðsyn“, og því hefur verið lofað hátíðlega og margsinnis að hernáminu skyldi aflétt þegar er friðvæn- legar horfði í heiminum. En nú er svo að sjá sem Banda- ríkin ætli að margfalda her- námslið sitt hér og alla að- stöðu, þrátt fyrir þróunina í alþjóðamálum; þau telja auð- sjáanlega að þegar sé búið ,að innlima ísland í bandaríska herveldið um langa framtíð. Af þessu tilefni þykir Þjóð- viljanum ærin ástæða til að bera upp við dr. Kristin Guð- mundsson eftirfarandi spurn- ingar: 1. Er það rétt hermt að Bandaríldn hafi í'arið fram á að fá að byggja hér flotastöð fyrir 3-4 milljarða króna? 2. Ef svo er, liversO langt er þá samningum kornfð? Hvaða höfn liafa Bandaríkin augastað á? Er það gamla á- ætlunin um Njarðvík sem nú á að fara að framkvæma, á Hvalfjörður að verða stór flotastöð eða er rætt um ein- hvern nýjan stað? 3. Hver er afstaða utanrík- isráðherrans og ríkisstjórnar- innar til slíkrar málaleitunar? Ollenhauer fer : ekki til Moskva ' Fréttastofa sósíaldemókrata í V-Þýzkalandi tilkynnti í gær, að ekkert væri hæft í fréttum um, að Ollenhauer, foringi sós- íaldemókrata, hefði í hyggju að fara með Adenauer, þegar hann fer til Moskva til viðræðna við sovétstjórnina í haust. Blúcher, varaforsætisráðherra V-Þýzkalands, sagði við blaða- menn í gær, að vesturþýzka stjórnin ínyndi enga sérsamn- inga gera við sovétstjórnina. Hún vildi ekki eiga á hættu að glata vináttu Vesturveldanna, enda þótt henni kynnu að vera gerð góð boð í Moskva. Við- ræðurnar þar myndu aðeins geta lagt grundvöll að frekari diplómatískum viðræðum milli ríkjanna. Lík 10 n«»rskra kvenna fintt heim Lík þeirra tíu norsku kvenna, sem fórust í fiugslysi í Sovét- ríkjunum á dögunum, komu með 2 sovézkum flugvélum til Óslóar í gær. Með flugvélunum komu einnig tveir fulltrúar frá kvennasamtökum Sovét- ríkjanna, sem liöfðu boðið hin- um norsku konum þangað. — Gerhardsen forsætisráðherra og Lange utanríkisráðherra voru meðal þeirra sem tóku á móti flugvélunum á Fornebu-> i flugveili.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.