Þjóðviljinn - 12.08.1955, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.08.1955, Blaðsíða 5
Hinir löggHtu menningarvinir Þeir tímar eru nú löngu liðnir að skáld og aðrir lista- memi búi við sult og seyru hér á landi, eða deyi jafnvel úr hungri eins og dæmin hafa því miður sannað; menningin hef- ur allt í einu eignazt volduga og f jáða vini. Einn góðan veð- urdag birtist yfirlætislaus auglýsing í Lögbirtingablað- jnu, þar sem tilkynnt er að ýmsir helztu fjármálamenn bæjarins — menn sem talið var að aldrei hefðu opnað aðra bók en bankabók — séu í raun réttri einiægir og sannir vinir menningarinnar. Ásókn þeirra í peninga á undanförn- um árum og áratugum hefur þá aðeins stafað af því að þeir vildu hafa undir höndum fjár- muni til að ,,styðja og efla bókaútgáfu og menningar- starfsemi í landinu“. I þessu skyni hafa þeir stofnað með sér félag, þegar lagt fram sem svarai’ verði á heilum lúxus- bíl og ætla áður en lýkur að hafa bílverðin fimm. Þetta eru mikil og ánægju- leg tiðindi, og þarf nú sizt að efa að bókaútgáfa ogmenning muni blómgast hér á landi svo sem aldrei fyrr; þurfa þeir sem menningarmálum sinna væntanlega ekki annað en snúa sér til vinanna til að fá fjárstyrk ef þeir e<ru í krögg- um. Sneru margir áhugamenn í þessuná efnum sér til Þjóð- viljans í gær og báðu um að listinn yrði birtur í heild og er blaðinu ljúft að verða við þeim óskum; það hefur ekki gerzt áður að jafn álitlegur hópur hafi fengið löggildingu sem vinir menningarinnar með auglýsingu í Lögbirtingablað- inu og má ekki minna vera en að almenningur kynnist þess IVm fnmfllíJll vnnrivmw. ~ 1___ um fómfúsu mönnum og læri að meta þá að verðleikum. Þess skal fyrst getið til skýringar að fróðir menn telja að í hópnum séu 68 Sjálf- etæðismenn, 2 Framsóknar- og 2 Alþýðuflokksmenn. Þá leiðir lausleg athugun í ljós að 28 eru úr hópi framkvæmda- stjóra, forstjóra, ski-ifstofu- stjóra og annarra stjóra. 26 eru lögfræðingar, lögfræði- nemar, fulltrúar og aðrir emb- ættismenn. 8 eru heildsalar, hagfræðingar, kaupmenn og aðrir fésýslumenn. 4 eru al- þingismenn. 3 eru skáld. 1 er sóknarprestur. Eru þetta mjög fróðlegar tölur og sýna glöggt meðal hvaða stétta menningin blómgast hér á landi og hverjar eiga þar eng- an hlut að, hvar þá menn er að finna sem eru fúsir til að leggja allt í sölurnar fyrir bókmenntir og fagrar listir þjóðar sinnar. Hér fer þá á eftir skrá yfir hina löggiltu vini menningar- innar: Alexander Jóhannesson, prófessor, Hringbraut 57, Kvík, Árni Bjömsson, lögfr., Hávallagötu 13, Rvík, Ámi Jónsson, stórkpm., Víðiv. við Sundlaugaveg, Rvík, Ásgeir Pétursson, lögfr. Hringbraut j 81, Rvik, Asmundur Einara- son, fuUtrúi, Hverfisgötu 42, Rvik, Birgir Kjaran, hagfr., Ásvallag. 4, Rvik, Bjarni Benediktsson, ráðherra, Háu- hlíð, R\úk, Davíð Ólafsson, fiskimálastj., Mararg. 5, Rvík, Davið Sch. Thorsteinsson, frkvstj., Snorrabraut 85, Rvik, Eyjólfur Konráð Jónsson, lögfr., Blönduhlíð 2, Rvik, Geir Hallgrímsson, lögfr., Djmgjuvegi 6, Rvík, Geir Zoega, yngri, fulltrúi, Öldu- götu 14, Guðmundur Bene- diktsson, lögfr., Reynistað, Guðmundur H. Garðarsson, skrifstofustj., Bakkakoti við Breiðholtsveg, Guðmundur G. Hagalín, skáld, Kópavogi, Gunnar Gunnarsson, skáld, Dyngjuvegi 8, Rvík, Gunnar G. Schram, stud. jur., Akur- eyri, Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, Oddagötu 8, Rvík, Guttormur Erlendsson, hrl., Vífilsgötu 1, Rvík, Haf- steinn Baldvinsson, lögfr. Barónsstíg 43,. Rvík, Halldór S. Gröndal, forstjóri, Baróns- stíg 43, Rvík, Halldór H. Jónsson, arkitekt, Ægissíðu 88 Rvik, Hallgrímur Fr. Hall- grímsson, forstj., Vesturbrún, Haraldur Björnsson, frkvstj. Heiðargerði 120, Rvík, Haukur Gröndal, frkvstj., Miklubraut 18, Rvík, Haukur Thors, for- stj., Smáragötu 16, Rvík, Helgi Eiríksson, bankafulltrúi, Laugarásv. 57, Rvík, Ingimar Einarsson, lögfr., Miðtúni 13, Rvík, Jóhann Friðriksson, frkvstj., Bergstaðastr. 28A, Rvík, Jóhann Hafstein, banka- stjóri, Háuhlíð, Rvík, Jóhann- es Nordal, hagfr., Hallveigar- stig 6A, Rvík, Jóhannes Zoega forstj., Laugarásvegi 49, Rvík, Jón Árnason, skrifstm., Barmahlíð 7, Rvík, Jón Isberg, lögfr., Blönduósi, Jón Axel Pétursson, frkvstj., Hring- braut 53, Rvík, Jónas Gisla- son,, sóknarprestur, Vík í Mýr- dal, Jónas G. Rafnar, alþm., Þómnnarstræti 119, Akureyri, Karl Kristjánsson, alþm., Húsavík, Katrín Thors, Smára götu 16, Rvík, Knútur Jóns- son, Rauðarárstíg 20, Rvík, Kristján Friðriksson, forstjóri Vesturbrún 12, Rvik, Kristján L. Gestsson, verzlstj., Smára- götu 4, Rvík, Lárus Jóhannes- son, alþm., Suðurgötu 4, Rvik, Loftur Bjamason, forstj., Álfaskeiði 38, Hafnarf., Magn- ús Jónsson, alþm., Langholtsv. 41, Rvík, Magnús Kjaran, stkpm., Hólatorgi 4, Rvik, Magnús Víglundsson, ræðism., Garðastræti 37, Rvík, Matt- hías Johannessen, cand mag., Nökkvavogi 41, Rvík, Matthí- as A. Mathiesen, stud. jur., Bólstaðahlíð, Rvík, Ólafur H. Jónsson, forstj., Flókagötu 33, Rvík, Óttar Möller, fulltrúi, Mávahlíð 36, Rvík, Páll As- geir Tryggvason, lögfr. Kvist- haga 5, Rvík, Páll S. Pálsson, frkvstj., Kvisthaga, Rvík, Pétur Sæmundsen, viðskiptafr Bólstaðarhlíð 11, Rvik, Ragn- ar Jónsson, forstj., Sigfús Bjamason, forstjóri, Víðimel 66, Rvík, Sigurður Kristins- eon, stud. jur., EinholU 7, Föstudagur 12. ágúst 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Albert Daudistel Nokkur minningarorð Geir Hallgrímsson er formað- ur lilutafélags löggiltra menn- ingarvina. t tómstundum sín um frá menningarstörfum sinnir liann m.a. fyrirtækjun- um H. Ben. & Co, Shell, Ræsi Eimskipafélaginu, Morgun blaðinu, Heimdalli og bæjar stjóm Reykjavikur. Hjá Sam- einuðum verktökiun þáði hann einu sinni 132.000 krónur á hálfu ári. Rvík, Sigurjón Sigurðsson, lögreglustj., Ægissíðu 58, Rvík, Sveinn Benediktsson, forstj., Miklubr. 52, Rvík, Sveinn Guðmundsson, forstj., Hagamel 2, Rvík, Sverrir Júli- usson, frkvstj., Skeggjagötu 2, Rvík, Thor Ó. Thors, frkv- stj., Hólavallagötu 13, Rvík, Thor R. Thors, frkvstj., Miklubraut 18, Rvík, Tómas Guðmundsson, skáld, Berg- staðastr. 48, Rvík, Tómas Vig- fússon, húsasmíðam., Viðimel 57, Rvík, Valtýr Stefánsson, ritstj., Laufásvegi 69, Rvík, Vilhjálmur Árnason, skipstj., Flókagötu 53, Rvik, Þórarinn Björnsson, skólam., Akureyri, Þorbjörn Jóhannesson, kaupm Flókag. 59, Rvík, Þorkell Jó- hannesson, háskólarektor, Oddagötu 2, Rvík, Þorsteinn Bemharðsson, frkvstj., Rán- argötu 1A, Þorsteinn M. Jóns- son, skólastjóri, Hafnarstræti 96, Akureyri og Þorvaldur Gai’ðar Kristjánsson, lögfr., Víðimel 61, Rvík. Stjórn fé- lagsins skipa: Geir Hallgríms- son, hdl., Dyngjuvegi 6, for- maður. Meðstjórnendur: Magnús Víglundsson, ræðis- maður, Garðastr. 37, Rvík, Framhald á 6. síðu. Nýlátinn er hér í Lands- spítalanum þýzki rithÖfundurr inn Albert Daudistej, eftir þunga legu. Daudistel hafði dvalizt hér á landi undanfarin 17 ár, landflótta undan of- sóknum nazistaveldisins. Albert Daudistel fæddist i Frankfurt am Main í Vestur- Þýzkalandi 2. desember 1890 og yar því 64 ára, er hann lézt. Snemma hneigðist hugur hans til ritstarfa. Ungur að aldri hverfur hami líka af heimaslóðum og tekur að kanna ókunna-stigu, og mun sú útþrá hans hafa verið ná- tengd þeirri hneigð til rit- starfa, sem áður er nefnd. En eðlilegur þróunarferill hins unga manns er skyndilega rof- inn er heimsstyrjöldin fyrri skellur á og hann er kallaður í sjóherinn, aðeins tæpra 24 ára að aldri. En Daudistel gerði sér ljóst, þótt ungur væri, hver höfuðglæpur við mannkynið styrjöld er, og hann lét ekki blekkjast af víg- orðum þeim, sem uppi vom til réttlætingar þeim glæp. Hann gerist hluttakandi í uppreisn sem gerð var í þýzka flotan- um snemma á stríðsárunum, og hlaut fyrir það fangelsis- dóm. Eftir styrjöldina gefst Daudistel tóm til að sinna rit- störfum. Hann gerist nú kunn- ur rithöfundur, og liggja eftir hann skáldsögur, smásagna- söfn og ritgerðir, sem hlotið hafa viðurkenningu bók- menntamanna. Hann var um skeið starfsmaður við „Ber- liner Tageblatt“, sem var þá eitt helzta dagblað Þýzka- lands. Á þessum árum batzt hann vináttuböndum við ýmsa helztu rithöfunda Þýzkalands, svo sem Ernst Toller, Kurt Tuhcolsky og Stefan Zweig, og hélt uppi bréfaskiptum við þá, meðan aldur entist, þeim og honum. Öðru sinni var eðlilegur þróunarferill Daudistels rof- inn með valdatöku nazista í Þýzkalandi árið 1933. Fyrir hann sem aðra róttæka rithöf- unda var það sama og að vera eltur og ofsóttur og eiga yf- ir höfði sér hverja stund að vera heimsóttur af lögreglu- spæjurum Hitlersvaldsins með þeim afleiðingum, sem slikt hlaut að hafa. Tilraun hans að komast úr landi misheppn- aðist, og varð hann um skeió að fara huldu höfði. Að lok- um tókst honum að sleppa yf- ir tékknesku landamærin, á jóladag 1935, eftir margs kon- ar hrakninga, kominn í þá ömurlegu aðstöðu, sem varð hlutskipti ótal annarra flótta- manna frá Þýzkalandi á þeiia árum. Kona hans hafði hins vegar komizt til Danmerkur,, og þangað leggur hann níá leið sina, til fundar við hana™ Atvikin haga því hins vegar svo, að tveim árum síðar er’Jt þau hjón komin hingað tO ís- lands, skömmu áður en síðari heimsstyrjöldin dynur yfir. Hér var Daudistel vitanlega slitinn úr tengslum við heima- land sitt öll styrjaldarárin, e« eigi að síður vann hann hér að ýmsum ritverkum á móður* máli sínu, eftir því sem heilsa og kraftar entust, meðal ann- ars miklu riti um ísland, þjóó þess og sögu, sem hann lagðú mikla stund á að kynna sér, einkum af þeim ritum á móð- urmáli hans, sem hér val> kostur á um þau efni. Þegaí Framhald á 7. 6Íðu. (■■EShE&L <• Ami’. Ofsaleg barátta um olíu- ^ gróðann á Keflavíkurvellt Hafa B.P. og Shell kœrf OllufélagiS fyrir bandariskum sf]órnarvöldum? Fyrir skömmu bauð her- námsliðið út benzín- og olíu- sölu á Keflavíkurflugvelli til næstu þriggja ára, og hófst þá þegar ofsaleg keppni milli olíu- kónganna — Shell og BP ann- arsvegar og Olíufélagsins hins vegar — um að hreppa hnoss- ið og milljónagróðann. Hefur Olíufélagið haft þessi viðskipti allt frá því að landið var her- numið, haft þar óhemjulegar tekjur og notað aðstöðu sína til gjaldeyrissvindls, eins og sann- aðist í olíumálinu fræga. Fannst olíufélögum íhaldsins nú. tími til kominn að þau kæmust að jötunni, samkvæmt helmingaskiptareglunni . frægu og fengju nú ,um skeið græða á hermanginu og braska með gjaldeyri. En Olíufélagið vildi ekki sleppa bitanum, held- ur varðist ásókn ihaldsins með kjafti og klóm. Niðurstöður á- takanna urðu þær að Olíufé- lagið hélt hnossinu, og er skýr- ingin eflaust m. a. su að það er umboðsfélag bandaríska olíuhringsins Standard Oil sem hefur mjög sterka aðstöðu innan hersins. En olíufélög íhaldsins hafa ekki látið sér þessi málalok lynda. Málgagn þeirra, Morg- unblaðið, bætir þessari at- hugsasemd aftan við frásögn sína af niðurstöðum keppninn- • ar . um olíugróðann: „Væntanleg er til landsitvs tíu manna sendinefnd frá, Bandarikjunum, sem á að at- huga starfsenú bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli og hafa hönd í bagga með út- gjöldum vamarliðsins.“ Verður þessi athugasemd ekki skilin á annan veg en þann að olíufélög íhaldsins hafi kært málalokin hér fyrir æðstu stjórnarvöldum vestanhafs og fært slík rök fyrir máli sinu að heil rannsóknarnefnd er send á vettvang. Átökunum miklu um olíugróðann er þann- ig ólokið enn, og ætti ýmis* legt sögulegt að geta borið til tíðinda á þessu sviði á næst* unnL

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.