Þjóðviljinn - 18.08.1955, Qupperneq 3
- Fítat*JS««&-*ur li! t ið55 '
ÞJÖpVltiJINN ~ (3
Tðfögur kitaveifttBeiiUta RcykjivBmr.
Hitaveita verði lögð í Hlxðohverfi og
framkvæmdir
snemma á næsta ári
Þessi aukning hitaveitunnar fari fram með lögn tvöfalds veitu-
kerfis — Tekin sé upp aukin aðstoð við veituna með eldsneytis-
hitun að vetrarlagi í varastöðinni við Elliðaár
Hitaveitunefndin sem bæjarstjórn Reykjavíkur kaus á fundi
sínum 19. ágúst-1954, hefur nú skilað fyrstu tillögum sínum um
aukningu Hitaveitunnar. Heildaráætlun sú sem nefndinni var
falið að gera um ,,fjarliitun“ húsa í bænum er hins vegar
ógerð eim og ýmis þau verkefni óunnin sem nefndinni voru fal-
in samkvæmt ályktun bæjarsfejómar.
Tillögur nefndarinnar em í stuttu máli á þá leið, að hafizt
verði handa um lagningu hitaveitu í Hlíðahverfi og verði
Hotað tvöfalt leiðslukerfi. Þá leggur nefndin til að aukin verði
aðstoð við Hitaveituna að vetrarlagi með eldsneytishitun í vara-
stöðinni við Elliðaár.
Samkvæmt áætlun nefndarinnar má vinna þetta verk frá
marz—nóv. 1956 og er kostneður áætlaður 12—14 millj kr.
Eldsneytisspamaður er áætlaður 5.000 lestir af olíu á ári, eða
að verðmæti um 4,5 millj. kr. En sé reiknað með aukinni olíu-
notkun í varastöð verður eldsneytisspamaðurinn 3,7 millj. kr.
á ári eða nær 25% af áætluðum byggingarverði veitunnar.
í hitaveitunefndinni eiga sæti,
auk rafmagnsstjóra og hitaveitu-
stjóra, þessir verkfræðingar:
Sigurður Thoroddsen, Ólafur
Pálsson, Gunnar Böðvarsson,
Ámi Snævarr og Valgeir Björns-
son.
í>egar nefndin var skipuð og
verkefni hennar ákveðið lögðu
bæjarfulltrúar Sósíalistaflokksr
ins til að strax yrði ákveðið að
hefjast handa um lagningy hita-
veitunnar í Hlíðahverfi. Sú til-
laga var hinsvegar felld þá af
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins,
m. a. Þorbimi Jóhannessyni,
formanni Framfarafélags Hlíða-
hverfis! Hitaveitunefndin hefur
nú komizt að þeirri niðurstöðu
að þetta verkefni sé sjálfsagðast
og nærtækast til aukningar hita-
veitunnar og ber að fagna þeim
málalokum, þrátt fyrir óþarfan
drátt. Má vænta þess að bæjar-
stjóm taki fljótlega afstöðu til
tillagna nefndarinnar, jafnvel
þegar á bæjarstjómarfundi í
dag.
Hér fer á eftir bréf hitaveitu-
nefndar til borgarstjóra, dags.
15. þ. m. varðandi þetta mál:
Bréí hiiaveitunefndar
Reykjavík, 15. ágúst 1955.
„í samræmi við óskir yðar,
herra borgarstjóri, hefur hita-
veitunefnd á fundum sínum í
vetur rætt ýmsa möguleika til
aukningar Hitaveitu Reykjavík-
ur og endurbóta á núverandi
kerfi, auk þess sem^ jarðhita-
rannsóknir og skipulögð leit að
heitu vatni í bæjarlandinu hefur
farið fram á vegum nefndar-
innar.
Nefndin er sammála um að
Fá stuðning til
leikvallagerðar
Bæjarráð samþykkti í fyrra-
dag samkvæmt tillögu leikvalla-
nefndar að bærinn styrki Fram-
farafélag Seláss- og Árbæjar-
bletta til þess að koma upp
barnaleikvelli. Mun stuðningur
bæjarins fyrst og fremst verða
í því fólginn að lána án endur-
gjalds þær vinnuvélar sem nota
þarf við leikvallargerðina.
auka megi Hitaveituna veru-
lega og er nú unnið að því að
gera heildartillögur um aukn-
ingu hennar, bæði með auknu
laugarvatnsmagni og að öðmm
leiðum.
Enda þótt endanlegar heildar-
tillÖgur liggi ekki fyrir að sinni,
er nefndin þó sammála um það,
að eftirfarandi atriði beri að
greina frá heildartillögunum, og
þykir henni hlýða að skýra yður
frá eftirfarandi varðandi fyrstu
aukningu Hitaveitunnar.
Hitaveita i Hbðahverfi að siirni
lieppilegasta leiðin til
aukningar.
Nefndin hefur komizt að þeirri
niðurstöðu, að beinasta og nær-
tækasta leiðin til þessarar aukn-
ingar, og einnig til meiri nýt-
ingar núverandi laugarvatns-
rennslis, sé að taka upp aukna
aðstoð við veituna með eldsneyt-
ishitun að vetrarlagi í varastöð-
inni við Elliðaár og auka á þann
hátt ársnotkun vatnsins. Hve
langt ber að ganga í þessum efn-
um er atriði, sem ákvarða verð-
ur út frá fjárhagslegum for-
sendum og afli varastöðvarinn-
ar.
Á síðastliðnum vetri var tekin
upp að nýju aðstoðarhitun við
hitavéituna og má segja, að hún
hafi tekizt vel, þrátt fyrir erfitt
veðurfar og hafi gefið haldgóða
reynslu í þessum efnum.
Þegar litið er á hin ýmsu bæj-
arhverfi, utan hitaveitusvæðisins,
verður ljóst, að Hlíðahverfið er
Iþéttbýlast, hefur þéttustu varma-
notkun og hitaveita til þessa
hverfis yrði því að sinni heppi-
legasta leiðin til aukningar
veitunnar. Um takmörk og fyr-
irkomulag fyrstu viðbótar, má
segja eftirfarandi:
Minni varmatöp og stjórn
veitunnar öruggari með tvö-
földu viðaukakerfi.
Hið fyrirhugaða veitukerfi get-
ur verið einfalt, eins og núver-
andi hitaveitukerfi, eða taka má
upp þá nýbreytni að leggja tvö-
falt kerfi með hringrás.
Með einföldu viðaukakerfi
yrði að minnka vatnsskammtinn
til núverandi veitusvæðis í hlut-
falli við aukninguna, en auka
aðrennslisþita vatnsins að sama
skapi, þegar þess gerist þörf.
Þar sem dreifing laugarvatnsins
um núverandi veitukerfi er
nokkrum örðugleikum bundin
við hámarksálag, er minnkunin
varhugaverð, og getur rýrt nýt-
ingu vatnsins, og er vart rétt-
lætanleg, nema gerðar verði sér-
stakar ráðstafanir til þess að
jafna dreifinguna.
Með tvöföldu viðaukakerfi er
vatnsrennsli til núverandi veitu-
svæðis hins vegar óbreytt og
vannanotkun stjórnað með
breytilegum aðrennslishlta. Fyrir
neðan grunnálag fengi viðauka-
kerfið varma með kæiingu vatns-
ins tii núverandi kerfis, en með
auknu álagi er snerpt á vatninu
og viðaukakerfið fær þá varma
frá varastöðinni, allt eftir þörf-
um. Með þessu fyrirkomulagi er
öll stjórn veitunnar auðveldari
og öruggari.
Þá má geta þess, að með tvö-
földu viðaukakerfi, eru varma-
töp frá dreifikerfi og með af-
rennslisvatni minni en með ein-
földu veitukerfi og er hér um
að ræða aliverulegan mun. Hið
tvöfalda kerfi hefur einnig betri
endingarmöguleika og gildir það
að sjálfsögðu einnlg um innan-
húskerfin, sem tengd verða ídð
kerftð.
Hins vegar er byggingarkostn-
aður tvöfalds keafis talsvert
hærri en einfalds og verður að
vega þennan lið á móti kost-
unum, og hafa jafnframt í huga
heildarmöguleika hitaveitunnar
til aukningar laugarvatnsrennsl-
isins. Miðað við heildaraðstæður
í dag, virðist eðlllegt að gera
ráð fyrir því að svo lengi, sem
laugarvatnsmagn er óbreytt, fari
aukning veitunnar fram með
lögn tvöfaldra kerfa um þéttari
hverfi bæjarins, fram að þeim
mörkum, sem vatnsmagn, þétt-
leiki og afl kyndistöðvar leyfa,
en einföld viðaukakerfi verði
síðan lögð um hin strjálli hverfi,
Ný dægurlaga-
söngkona
Birna Ólafsdóttir
er meðal hinna mörgu dægur-
lagasöngvara er kynntir verða
á hljómleikum í Ausfeurbæjar-
bíói annað kvöld.
þegar tekizt hefur að auka laug- ■
arvatnsmagnið.
Þéttleikamörkin, sem ákvarði
notkun einfalds eða tvöfalds
kerfis, eru á þessu stigi málsins
ekki fyllilega ákvörðuð, og er
einmitt mjög heppilegt að geta
við séinni áætlanir byggt á
reynslu við lögn tvöfalds kerfis
um þann hluta bæjarins, sem ó-
tvirætt kemur fyrst til greina
við lögn slíks kerfis.
Nefndin hefur því komizt að
þeirri niðurstöðu, að heppiiegast
sé að hefja aukninguna með
lögn tvöfalds veitukerfis um
hluta Hlíðahverfis, sem nánar
verður ákveðinn í áætlun um
veituna.
Kostnaður áætlaður 12 til 14
millj. kr.
Gera má ráð fyrir, að kostn-
aður við þessar framkvæmdir
verði alls um 12—14 milljón kr.,
ef gert er ráð fyrir, að aðstoðar-
hitun fáist fyrst um sinn frá
varastöðinni við Elliðaár.
Þá skal þess einnig getið, að
hámarksálag umræddrar byggð-
ar er, samkvæmt spjaldskrá
hitaveitunnar, um 16% af há-
marksálagi núverandi veitusvæð-
is, og má því gera ráð fyrir því,
að eldsneytisspamaður í húsum,
vegna umræddrar veitu, verði
liðlega 5.000 lestir af olíu á ári,
en verðmæti þessa magns er
um 4,5 millj. kr,
Frá þessu ber að draga aukna
eldsneytisnotkun í varastöð.
Gera verður ráð fyrir, að nú-
verandi hitaveita þurfi í meðal-
ári aðstoð er svari eldsneytis-
notkun í varastöð, um 1200 lest-
ir af ketilolíu á ári. Með fram-
angreindri viðaukaveitu um
Hliðahverfið þarf að hækka
grunnhitann um 2° C, og heild-
areldsneytisnotkun verður þá um
2.800 lestir af ketilolíu á ári.
Aukin notkun vegna viðauka-
veitunnar er því um 1.600 lest-
ir á ári, en verðmæti þessa
magns er um 0,8 milljón kr. og
heildareldsneytisspamaður vegna
viðaukaveitunnar nemur því
um 3,7 milljón kr. á ári, eða
nálega 25% af áætluðu bygging-
arverði veitunnar.
Með þessari hækkun grunnhit-
ans aukast möguleikar til nýt-
ingar ársrennslis laugarvatnsins
í meðalári úr um 61% upp í
um 66%.
Væntanlega mætti ganga frá
áætlunum og efnisútboði vegna
viðaukaveitunnar á næstu 3
til 4 mánuðum, og virðist kleift
að hefja byggingarframkvæmdir
í byrjun næsta árs, væntanlega
í marzmánuði, ef veður leyfir.
Vinna yrði að því að fullgera
veituna á tímabilinu frá marz
1956 til nóvember 1956, en vinna
jafnframt að viðaukaáætlunum.
Nefndin óskar þess að mega
leggja mál þetta fyrir yður,
herra borgarstjóri, til þess að
bæjaryfirvöldin geti tekið af-
stöðu tíl framangreindra til-
lagna“.
Tilnefning í Sogs-
virkjunarstjóm
Ríkisstjórnin hefur nýlegs
.1«
skipað svo fulltrúa af simri
hálfu og tvo til vára í stjóra
Sogsvirkjunarinnar. Aðalmena
eru: Sigtryggur Klemenzsson,
skrifstofustjóri og Baldvin Jóns-
son, hæstaréttarlögmaður. Vara-
'menn: Þorsteinn Sigurðsson,
bóndi á Vatnsleysu og Jón Axef
Pétursson, framkvæmdastjóri
Skipunin gildir til 3ja ára. Kosn-
ir verða þrír fulltrúar Reykja-
vikurbæjar í stjórnina á funái
bæjarstjórnar í dag.
Stlfurmunasýniiigin:
Sýningu lýkur á
föstudag — Sala á
laugardag og
sunnudag
Síðari liluta dags í gær höfðu
komið 3350 gestir á silfurmuna-
sýningu Péturs Hoffmanns í
Listamannaskálanum. Hefur nú
verið ákveðið að sýninguimi
ljúki á föstudagskvöld.
Enn er nokkuð óútgengið af
merktum munum. Að sýning-
unni lokinni fer fram sala á ó-
merktum munum og verður hún
í Listamannaskálanum á laugar-
dag og sunnudag. Þeir sera
hafa pantað muni geta vitjacS
þeirra þá og þeir sem eiga þaraa
merkta muni mega vitja þeirrá
sömu daga.
Þórsmerkurför '
Ferðaskrifstofu ríkisins 1
Um næstu helgi efnir Ferða<
skrifstofa ríkisin'S til IV2 dagá
Þórsmerkurferðar. Lagt verðujfl
af stað kl. 13.30 á laugardag*
Gist verður í tjöldum í Húsadaíj
Fyrri hluta sunnudagsins verðu^
Mörkin skoðuð og um eftirmið*
daginn verður lagt af stað á<
leiðis til Reykjavíkur, og ekifj
um Fljótshlíð.
Á sunnudag kl. 9 f. h. hefsfi
ferð að Gullfossi og Geysi. Ek-
ið verður um Hreppa og Þing*
velli. >
fíáshólabíó |
við fíagatorg 1
Bæjarráð samþykkti á funítj
sínum í fyrradag, samkvæmt til-
lögu skipulagsmanna bæjarinS^
að ætla væntanlegu kvikmynda-
húsi Háskóla íslands lóð við
Hagatorg, austan Dunhaga. VifS
Hagatorg verða ýmsar fleiri
stórbyggingar, svo sem hús Bún-
aðarfélags íslands og fyrirhuguð)
frímúrarahöll, ,auk Neskirkju o.
fl. bygginga.
Austfirzkir sjómenn og
faxabarónarnir
Framhald af 12. síðu.
arinnar. Og það sýnir enn einoi
sinni umhyggju ríkisstjórnar-
fyrir hinu margrædda ,jafnvægi
í byggð landsins" að nú er ver-
i ðað neyða útgerðarmenn ut-
an af landi til að færa báta
sína í Faxaflóann. Og allt ger-
ist þetta undir stjórn EysteiaS
Jónssonar sem er ráðherra afl
sérstakri náð Austfirðinga! i