Þjóðviljinn - 21.08.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.08.1955, Blaðsíða 1
VILJINN Sunnudagur 21. ágúst 1955 — 20. ájrgangur — 187. tölublað Xý ylirlýsing í ntálgagni utanríkisráðherraiis: Hernámsliðið íær heimild til að gera höfn í Mjarðvík Auk />ess vill Bandarikjaher gera aSra höfn i HvalfirSi Tíminn játar í gær — tveimur dögum eftir yfirlýsingu utanríkisráðherra — að afráðið sé að Bandaríkjamenn fái að gera höfn í Njarðvík, sú fram- kvæmd hafi aðeins tafizt vegna ágreinings um smáatriði. Þessi höfn verður hins vegar ekki kölluð „flotahöfn" heldur „uppskipunarhöfn", og segir Tím- inn að kostnaður við hana verði 120 millj. ísl. kr. Það er þannig viðurkennt í blaði utanríkisráðherrans að ríkis- stjómin er að heimila Bandaríkjamönnum stórfellda aukningu á herstöðvakerfi þeirra hérlendis, á sama tíma og friðvænlegar horfir í heiminum en nokkru sinni síðan heimstyrjöldinni lauk og allar aðrar þjóðir tclja það skyldu sína að stuðla að bættri sam- búð og afvopnun í heiminum. Játning Tímans er á þessa leið: „Allt síðan að herverndar- samningnrinn var gerður hafa verið uppi ráðagerðir um hyggingu slíkrar hafnar, sem yrði uppskipunarhöfn fyrir Keflavikurflugvöll, svo að flutningar til hans þyrftu ekki að fara fram um Reykjavík. Slíkri höfn hefur hins vegar ekki verið ætlað að verða flota- höfn, enda aðstaða þar slík, að slíkt kemur ekki til greina. Frá þvj að þessar ráðagerðir hófust, hefur verið reiknað með því og ekki farið neitt dult með það, að bygging slíkrar hafnar yrði leyfð, ef samkomulag næð- ist um staðsetningu hennar og fyrirkomulag milli íslen/.kra stjórnarvalda og varnarhersins. fslenzk stjórnarvöld hafa lagt áherzlu á, að höfnin yrði gerð þannig, að hún samrýmdist vel íslenzkum hagsmunum og gæti komið íslendingum að fullum notum eða kæmi' m.ö.o. í stað þeirrar landshafnar, sem þarna hefur lengi verið ráðgert að gera(!!). Varnarherinn hefur hins vegar haft nokkur sér- sjónarmið og samkomulag strandað á því. Málið mun nú vera komið á það sfig, að hinn tæknilegi ágreiningur sé jafn- aður og mun liggja fyrir upp- dráttur að höfninni, sem byggð- ur er á tillögum íslenzkra aðila. Ráðgerðjir kostnaður \ið bygg- ingu þessarar hafnar er áæt.1- aður 7 millj. dollara eða tæp- ar 120 millj. íslenzkra króna. Vinnulaun munu ekki vera nema Iftill hluti þeirrar upp- hæðar“. Flotahöfn í Hvalfirði Fyrir utan þessa játningu ræðír Tíminn einnig um önnur áform Bandarikjahers hérlend- is. Játar hann a.ð í frásögn New York Times hafi verið „átt \ið flotastöð í Hvalfirði. Ymsir sérfræðingar hafa látið uppi þá skoðun, að flotastöð þar væri mikilvæg fyrir Atlanz- hafsbandalagið. Einnig mun hafa verið bent á_ að æskilegt væri að hafa þar miklar skot- færageymslur, sem til greina kæmi að væru sprengdar inn í fjall“. Bætir blaðið við að ummæli hins bandaríska blaðamanns. ,,byggist á einhverjum orð- rómi eða áætlunum sem íslend- ingar vita enn ekki mn, varð- andi flotastöð í Hvalfirði“. Nýir svardagar Um þessar ráðagerðir Banda- ríkjamanna segir Tíminn svo að lokum • „Um slika ráðagerð er það hins vegar að segja, að hún verður áreiðanlega ekki sam- þykkt af íslenzkum stjórnar- völdum. FlotastÖð hér kemur ekki til greina. . . . Ef friðar- horfurnar halda áfram að glæð- ast, \-erður stefna Islendinga að sjálfsögðu sú að draga heldur úr þessurn framkvæmdum en auka þær“. Þarna eru þannig nýir svar- dagar sem sjálfsagt er að þjóð- in festi í minni. En röksemdir þær sem þar koma fram eiga einnig fullkomlega við um „uppskipunarhöfnina“ í Njarð- vík; það er alvarlegt tilræði við friðsamlega þróun í heiminum að heimila Bandaríkjamönnum nú stórfellda. aukningu á her- stöðvakerfi þeirra. Öhagstæður vöruskipta- jöínuður 206 millj. kr. Um síðustu mánaðamót vaa? vöruskiptajöfnuðurinn óhag- stæður um rúmlega 206 millj- ónir króna, og er sá halli una 40 milljónum meiri en á saiua tíma í fyrra. , Útílutningurina er 14 milljónum króna minni en á sama tíma í fyrra og inn» flutningurinn 25 milljónuna mein. VopnaUé í Saar? Formaður nefndarinnar, sem annast á eftirlit með þjóðarat- kvæðagreiðslunni í Saar 23. október um Saarsamningims. hefur rætt við leiðtoga stjórn- arflokkanna og farið fram á aði þeir fresti fundahöldum fyrst um sinn. Slegið hefur í harti milli fylgismanna Hoffmanna forsætisráðherra og þýzku flokk- anna í héraðinu á fundunura undanfarna daga. Leiðtogar flokkanna lofuðu að athuga málið og svara tillögunni á mánudag. Koma í fyrra- málið Milli klukkan átta og níu á mánudagsmorguninn koma Varsjárfararnir heim með Drottningunni. Á þriðju- dagskvöldið verður skemmti- fundur í Oddfellow fyrir Varsjárfarana, en þar eru einnig allir aðrir velkomnir. 1 w, Flóð í austurfylkjum Bandaríkjaxtna Tugir manna hafa farizt og þúsundir misst heimili sín síðustu daga Mestu flóð í mannarninnum hafa orðið undanfarna daga í austurfylkjum Bandaríkjanna, frá Vii'gínu til Rhode Island. Vitað er, að um 100 manns haf a faxizt- í - flóðunum, en ótt- áSSpi’að^'ú-.- tala sé þegar orðin míjau hærri. Fullkunnugt verður ekki'Yirn^manntjó'n fyrr en eftir margít'ji'aga. , 1 • t>ú$pndir manna, hafa orðið að yfii^eía heimili sín vegna flóð- anna óg'hundruð manna er sakn- ~að. I^iörgúnarsveitir nota kopta og^véifcíáta til að bjarga nguð- stöddum’ ' og bæði flugher ‘ og j' ■* . > fíóti vinha að björgunarstarf- iuu. , Hin ^jófijiiu flóð- stafa af- gíf- _^ijrlegri=?®rifemú sem fylgdi í ^sjjkjölfar þyirfilbylj4nna tveggja sem nýíega gengu yfir austur- strönd Bandaríkjanna og hefur víða þar aldrei mælzt jafnmikil úrkoma. Á einum stað varð rigningarmagnið 30 sm á 12 klst. í Pennsylvaníu, New Jersey og New York hefur fi.iótið Dela- ware flætt yfir bakka sína og valdið gífurlegu tjóni. Eigna- tjónið í flóðunum er metið á þúsundir milljóna dollara. Borgin Scranton í Pennsyl- vaníu hefur orðið einna verst úti, en tjónið er alls staðar mikið. Brýr og stíflugarðar hafa brotnað, símalínur og raftaug- ar slitnað, végir og járnbrauta- teinar skolazt burt. Margir smá- bæir og þorp eru einangruð. Verknkonur í Keflawík elnhuga Fara aSeins fram á 80% af karlmanns- kaupi — SamúSaraSgerSir aSra nótt Verkfall verkakvenna í Keflavík hefur nú staðiö í hálfa viku og- verið algert. Ofríki valdakiíkunnar í Vinnuveit- endasambandinu er slíkt að atvinnurekendum sem vilja semja við verkakonurnar er bannaö að semja. Vinnuveit- cndasambandið hefur gert árangurslausar tilraunir til þess að véfengja verkfallsboöunina. Fyrir því vakir það' eitt aö brjóta kvennasamtökin á bak aftur, en verkakon- urnar fylkja sér einhuga að baki réttlætiskröfum sínum. Verkfall verkakvenna í Kefla- kaup, þar sem það er það kaup vík hófst, eins og boðað hafði sem þær hafa haft í sumar. verið kl. 12 á miðnætti að- faranótt 18. þm. Gekk fram- kvæmdanefnd verkfallsins þá á vinnustöðvarnar og lögðu allar konur þegar niður vinnu. Einn- ig hafa unglingar sem unnu fyrir kvennakaup, svo og börn lagt niður vinnu. Verkfallið er því algert og voru karlmenn þvi einir á vinnustöðvunum í Keflavik síð- ustu daga vikunnar. Kunnu þeir slíkri nýhreytni illa og leggja sjálfir niður vinnu á morgun, ef ekki verður þá bú- ið að semja við konurnar. Aukavmna Moggans Verkakonum í Keflavík finnst Morgunblaðinu ' fara illa og aulalega undrunarsvipurinn. yf- ir því að þær skuli ekki vilja sætta sig við kr. 7.70 í grunn- Rangt er það hjá Morgun- blaðinu að konurnar í Kefla- vík og á Akranesi fari fram á 40 aurum hærra kaup en nokkurstaðar sé greitt á land- inu. Krafan sem nú er borin fram er 18 aurum hærri en verkakonur hafa haft á Siglu- firði i allt sumar. Vjimuveitendasambandið bannar þeiin að semja Þá er það líka sannleikur málsrns að atvinnurekendur áttu þess kost að semja friðsamlega heima í héraði um sama kaup og greitt er á Siglufirði, kr. 7,92 í almennri dag\lnnu, en þeir höfnuðu því og misstu þannig af strætisvagninum. — Hafa þeir nú falið sætabrauðsdrengjum Vinnuveitendasambandsins for- sjá mála sinna og fá ekki að semja þótt þeir fegnir vildu. En verkakonur í Keflavík og Njarðvik halda sér fyllilega til jafns við verkakonur hvar sem er á Iandinu og hafa þann metn- að til ai bera, að þær sætta sig ekki við að vinnuafl þeii-ra og verk séu lægra metin en t.d, á Siglufirði. Nú búast bær við að verða að færa meiri eða minni verkfalls* fórnir 1 i 1 að fá réttmætt kaupi viðurkennt og því bera þæp fram kröfu um 8,10 kr. í al>> mennri dagvinnu. — Af þeirri kröfu verður því minna slegið sem Vinnuveitendasambandið lætur verkfallið standa lengur. Hlálegt frumhlaup Á sáttaíundunum þremur, serra búið er að haldá, hefur fátt gerzt stórra tíðinda. Verkakon- ur hafa boðið lítilsháttar lækk- un (5 aura) frá kröfu sinni, en atvinnurekendur hafa ekkert boðið á inóti til að minnka bilið. Þeir hafa því enga sáttfýsi sýnt til þessa. Á öðrum sáttafundinum reyndS Björgvin Sigurðsson, framkvstj. Vinnuveitendasambandsins að> halda þvi fram, að verkfallið> Framhald á 8. &í8u»

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.