Þjóðviljinn - 21.08.1955, Qupperneq 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 21. ágúst 1955
■ ■ ■
■ ■
■ ■
•3
■ -■
■ ■
■ «
■ ■
S \ ! s
SumarauM HeyhvíMnga
■ ■
■ ■
■ i
: :
: :
■ ■
heMur áfram á mánudag
* Kjélar frá kr. 7S.oo ——»Hattar frá 29.oo
!
: !
Enn em
til nGkku? stykki
af
drögtum
®g
kápum
Notið
þetta
einstæða
tækifæri
S:
i
H
■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■
-^■■■■■■■■aa
Kðppleikur landsliðs eg pressuliðs
Framhald af 8. síðu.
landsliði, en hann sýndi það
ótvírætt á föstudagskvöldið að
hann er sterkur knattspyrnu-
maður og góður styrkur fyrir
liðið. Samt virðist það nú svo,
að Sveinn Teitsson sé meiri stoð
fyrir þá Rikka og Halldór, en
þeir þrír hafa leikið saman í
mörg undanfarin ár, bæði í
landsliði og sínu félagi. Það er
óneitanlega glæsilegt fyrir
Skagamenn að eiga 9 af 22
beztu knattspyrnumönnum okk-
ar. Sá andi sem ríkir á Akra-
nesi, ekki aðeins meðal leik-
manna heldur og á meðal fólks-
ins, er mjög til fyrirmyndar.
Það er ekki lítill styrkur fyrir
liðið að hafa hug alls fólksins
með sér, þegar farið er hingað
til Reykjavíkur í keppni.
Svona þyrfti það að vera a1
staðar, því að þessi íþrótt á
það sannarlega skilið, svo holl
og skemmtileg er hún.
Fyrri hálfleikur
Pressuliðið kaus að leika und-
an veðrinu. Leikurinn varð í
upphafi mjög harður og hélzt
það út allan leikinn. Lands-
liðið var öllu ágengara og sótti
fast að marki andstæðinganna.
Á 9. mínútu átti Rikki góðan
einleik upp að marki andstæð-
inganna og gaf knöttinn til
Þórðar Þ., sem spyrnti rétt
framhjá úr góðu færi. ,,Pressu-
liðsmenn“ sóttu sig nú nokkuð
og fékk Gunnar gott tækifæri
en það misnotaðist og má veðr-
inu um kenna. Fram undir
miðjan hálfleikixm lá heldur á
landsliðinu, en ekki tókst að
skora. Rétt um miðjan hálf-
leikinn brauzt Þórður upp
hægri kant og gaf knöttinn til
Rikka, sem var óvaldaður inni
á vellinum. Rikki tók nú einn af
sínum glæsilegu sprettum og
hljóp alla af sér og skoraði
mjög glæsilegt mark. „Pressu-
liðið“ reyndi að rétta hlut sinn,
en ekkert skeði fyrr en rúm-
lega 30 mín. voru liðnar af
leik en þá var dæmd víta-
spyrna á Hörð Felixson. Gunn-
ar Guðmannsson skoraði með
mjög glæsilegu skoti. Stuttu
seinna var dæmd aukaspyrna á
landsliðið, sem Gunnar tók, en
Pétur Georgsson náði til að
skalla og skoraði glæsilegt
mark. I lok hálfleiksins átti
landsliðið tækifæri til að skora,
en Ólafur varði prýðilega.
Seinni hálfleikur
Nú var taflinu snúið við.;
Landsliðið sótti mjög að marki
„pressuliðsins“ og skoraði
Rikki annað mark sitt úr mjög
glæsilegri sendingu frá Þórði
Þ. Albert hafði nú dregið sig
aftur í vömina og hélt þar
uppi stjórn á liði sínu. Það
mætti deila um þessa leikað-
ferð, en sterkara held ég að
það hefði verið, ef Albert hefði
reynt að halda leiknum fjær
marki sínu. Albert og lið hans
allt varðist vel, en lítið var
um sóknaraðgerðir af hálfu
þess, svo „pressa“ var nær all-
an hálfleikinn út við mark
„pressuliðsins".
Á 16. mínútu var tekin horn-1
spyrna á mark landsliðsins og
munaði þá minnstu, að Sig.
Bergs. skoraði úr skalla,. en
Helga tókst á seinustu stundu
að ná knettinum.
Stuttu seinna var skorað 3ja
mark landsliðsins en það kom
úr þvögu og hrökk af höfði
Alberts í markið. Þarna hefði
Ólafur átt að kalla og láta vita
af sér.
Um miðjan hálfleikinn meidd-
ist Hreiðar lítilsháttar og varð
að yfirgefa völlinn, en Árni
Njálsson kom inn í hans stað.
Leikurinn hélzt óbreyttur þar
til 10 mínútur voru eftir en
þá skoraði landsliðið 4. maxk
sitt. Þetta mark var mjög
glæsilegt og átti öll framlína
liðsins sinn þátt í undirbúningi
þess, en Halldór skoraði óverj-
andi með föstu skoti. Leiknum
lauk því eins og fyrr segir með
4:2 og mega báðir vel við una
eftir gangi leiksins.
Lýsing liðanna og frammi-
stöðu einstakra leikmanna
verður að bíða næsta blaðs
sökum rúmleysis. B.
Blöð
Tímarit
Frímerki
Filmur
SÖLUTURNINN
við Arnarhól
■
i
í kvöld. kl. 7.30 keppa
.Þréttisr
Mótanefndin
* * ÞJÓDVILJANN ' > * * ÚTBREIÐIÐ 1**1
* * ÚTBREIÐIÐ '* * * * ÞJÓDVILJANN "* *\
Múrhúðunarnet
Þakpappi
IDIIIII
Almenna byggingafélagið h.f.
Borgartúni 7 — Sími 7490