Þjóðviljinn - 10.09.1955, Page 9
Laugardagur tLO. jseptember <— 1. árgangur — 27. tölublað
4
JÁTNING
Hér birtist eitt
af þeim ljóðum,
sem lesendur
hafa óskað að
birt yrðu.
Ljóð eftir Tómas
Guðmundsson.
Lag eftir Sigfús
Halldórsson.
Hann birtist mér í draumi sem dýrlcgt ævintýr
hver dagur, sem ég lifði í návist þinni.
Svo morgunbjört og fögur í mínum huga býr
hver minning um vor sumarstuttu kynni.
Og ástarljóð til þín verður ævikveðjan mín,
er innan stundar lýkur göngu minni.
Þá birtist mér í draumi sem dýrlegt ævintýr
hver dagur, sem ég lifði í návist þinni.
Danslagavalið
Fjórir bréfritarar
sögðu í síðustu viku frá
þremur eftirlætislögun-
um sínum. Frestur til
l'. október. Þá verður
talið. Hvaða dans- og
dægurlög skyldu vera
vinsælust meðal lesenda
Óskastundarinnar?
Pósthólíið
Steinar J. Lúðviksson
Ytri-VölJum, Vestur-
Húnavatnssýslu óskar
eftir að komast í bréfa-
samband við unglinga á
aldrinum 13—16 ára.
Var stór, þegar
hann varð stór
María: Sá er nú orðinn
langur í loftinu og mikill
hann sonur hennar Hild-
ar.
Halla: Já, fyrr má nú
vera, og hann sem var
syo lítill, þegar hann var
lítill.
Ráðningar á heilabrotum
í síðasta blaði.
Gátan: Símastaur.
Talnaskrifíin: 12345 t=
svell; 2345 = vell, 345
= ell.
Heilabrot
Gáta: Hver fellur á
hverjum degi ævi sinn-
ar?
Hverjir erum við?
Við erum 13 bræður:
1 er í vatni, 2. í ám,
3. í eldi, 4. í vindi, 5. í
ís, 6. í mold, 7. í sjó,
8. í urð, 9. í búri, 10. í
lyngi, 11. í ýlustrái, 12.
í bæ, 13. í fjöllum.
Hverjir erum við?
Brúna káp&n
Framhald af 1. siðu.
hún hafði farið í ný-
lega með Birgittu.
Vesalings brúnu káp-
unni leiddist þetta af-
skaplega mikið, henni
þótti líka svo leiðin-
legt að vera ekki til
meira gagns, það var
sannarlega ekki gaman
að hanga þarna og gera
ekkert annað en hlusta
á hinar kápumar. Stund-
um þegar græna
kápan kom heim úr
skólanum og fór að
segja frá þvi, að hún
hefði séð litlar stelp-
ur, sem ekki áttu nema
rifnar, skjóllitlar kápur,
sökkti brúna kápan sér
niður í dagdrauma um
það, að ef til vill kæm-
ist hún einhverntíma til
telpu, sem mundi nota
hana á hverjum degi og
að þá gæti hún orðið
til jafnmikils gagns og
áður.
(Niðurlag í hæsta blaði)
ttgefandi: Þjóðviljinn - Ritstjóri: Gunnar M. Magnúss - Pósthólf 1063.
Brúna
kápan
Ævintýr eftir Huldu
í Holti (13 ára)
Stóri, guli fataskápur-
inn var troðfullur af
fötum. Það voru kjólar
og kápur og frakkar í
röðum. Á hillunni fyr-
ir ofan fötin lágu marg-
ir hattar, en fyrir neð-
an voru skór og skó-
hlífar í tugataii. Úti í
einu horninu á skápn-
um voru 3 kápur, sem
Birgitta litla átti. Ein
kápan Var rauð og var
skreytt með dökkbláu
flaueli og fínum gyllt-
um hnöppum, — þetta
var sparikápan hennar
Birgittu. Hún var af-
skaplega montin og
kunni ótal sögur um fín-
ar afmælisveizlur, jóla-
böll og fleira, sem hún
hafði farið í með Birg-
ittu. Önnur kápan var
græn með stórum loð-
kraga og brúnum hnöpp-
um. Það var skólakáp-
an. Þá sjaldan að hún
komst lað fyrir rauðu
kápunni, sagði hún
rnargar skemmtilegar
sögur úr skólanum, þar
voru margir krakkar og
þar átti hún oft tal við
aðrar skemmtilegar
skólakápur. En 3. káp-
an var gömul brún kápa
með samlitum hnöppum
og kraga, sem Birgitta
var eiginlega alveg hætt
að nota.
Gamla brúna kápan
kunni líka sögur frá þvi
að hún var alveg ný og
Birgitta fór með har.a
í skólann, í afmælis-
veizlur og á fleiri staði,
því að þá átti Birgitta
ekki nema eina kápu.
En hún komst aldrei &3
til iað segja frá þessunt
endurminningum sínum,
því að þegar hún byr;-
aði að segja frá fór
græna kápan alltaf a?
geispa og ræskja sig, cg
og rauða kápan þuriti
þá endilega að segj.a frá
einhverju ferðalagi, sert
Framhald á 4. síðe
Frá verðlaunasamkeppninni
Mioniiigar úr Dalasýslu
Eftir Ásdísi Egilsdóttur (8 ára) Reykjavik
Þegar ég var 6 ára ] minni vestur í Saurbs
var ég í sveit hjá ömmu I í
- Sr
tír Dalasýslu
Dalasýslu. Fór ég
ferðalag uin
sveitina og heim-
sóttum við konu,
sem kenndi 5
barnaskóla sveit-
arinnar. Hún átti
ofurlitla kett-
linga, sem voru
svo litlir, að þeir
gátu setið í lóf-
anum á mér. Þeg-
ar við fórum
þaðan, ætluðu ’
Framhald á 3. síða.
A ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI FRÍMANS HELGASON
Akranes vann
Laugardagur 10. september 1955 — ÞJÓÐVILJINN
(9
Það mátti sjá á fjölda áhorf-
enda sem kominn var kl. 7
á virkum degi í septémher að
áhugi var fyrir leik þessum. Á
þessum tíma munu aldrei jafn-
margir áhorfendur hafa verið á
vellinum. Munu þeir hafa verið
yfir 3000. Hefur þar mestu
um ráðið að sjá hina nýju
menn sem leika eiga í 1. deild
næsta ár, í keppni við það
liðið sem hefur sýnt bezta
leiki hér í sumar og nýtur
mikilla vinsælda, sem sé Akra-
nesliðið. Og svo hinsvegar vin-
sældir Friðriks Ölafssonar,
skáksnillings sem átti að fá á-
góðann af leiknum. Þegar leik-
menn komu inn á leikvanginn,
gengu iþeir fyrir stúku og skip-
uðu sér í röð. Gekk Friðrik
til þeirra með sínu kunna yfir-
lætisleysi og heilsaði leikmönn-
um með handabandi.
Því má skjóta hér inn í að
þar sem þessi ungi skákmeist-
ari var raunverulegur heiðurs-
gestur knattspymumanna,
hefði verið viðeigandi að ein-
hverjir af forustumönnum
knattspymunnar úr Reykja-
vík hefðu verið Friðrik til sam-
lætis í stúkunni. —
Það verður varla annað sagt
en að Akureyringar hafi stað-
ið sig vel í „generalprufunni“
í 1. deild. Til að byrja með
kenndi þó nokkurs taugaó-
styrks hjá liðinu, sérstaklega
vörninni og urðu nokkur mis-
tök af þeim sökum sem þó
komu ekki að sök þó litlu
munaði í nokkur skipti. Þó
vora það Akureyringar sem
skoruðu fyrsta markið á 7.
mín. Var það vinstri innherji
Hreinn Öskarsson, með föstu
liverjandi skoti. En varla er
liðin nema hálf mínúta þegar
Þórður Jónsson skorar eftir
góðan samleik Akraness.
Næstu 15—20 min. skeður
lítið. Ríkarður á þó 'gott skot
en Einar ver vel. Á 23. mín á
Hreinn Óskars gott skot en
Hilmar ver. Akureyringar virð
ast ekki ná samleik, ekki finna
hvern annan. Þó Akumesingum
tækist ekki að skora, höfðu
þeir leikinn í hendi sér, og
á næstu 10 mín. leika Skaga-
menn sér að norðanmönnum
og gera margt fallegt í eam-
leik og hvað leikni og stað-
setningar snertir og skora þrjú
mörk. Það fyrsta á 26. min.,
Halldór Sigurbj. spyrnir langt
fram til Þórðar sem er þar
og leyfir sér að stöðva knött-
inn við markteig og skjóta ó-
verjandi. Arngrímur Kristj.
var of framariega.
Aimað markið kom á 27.
mín. Halldór einleikur fram,
Þórður Þ. skiptir við Halldór
og fær knöt.tinn frá Halldóri
sem tekur stöðu Þórðar. Þórð-
ur gefur Halldóri knöttum og
knötturinn situr í neti norðan-
manna eftir hörkuskot. Á
33. mín. eru það þeir Sveinn
Teits., Ríkarður og Þórður Þ.
sem leika gegnum vörn Akur-
eyringa og Þórður Þ. skorar.
Höfðu Skagamenn milda yfir-
burði það sem eftir var hálf-
leiksins án þess þó að þeim
tækist að skora fleiri mörk.
Akureyringar ná tökiun á
síðari hálfleik.
Við áhorfendur gerðum ráð
fyrir að Akranes mundi halda
áfram í sama ,,dúr“ og í fyrri
hálfleik. En svo brá við að
nú voru það Akureyringar sem
smátt og smátt tóku forustu
um gang leiksins, og það voru
þeir sem skoraðu þetta eina
mark sem gert var í hálfleikn-
um. Var það Tryggvi Georgs-
son sem skoraði á 12. mín.
Tóku norðanmenn nú að finna
hvem annan og leika meir
saman en áður og það með
töluvert miklum hraða og ým-
ist löngum sendingum út á
jaðar vallarins eða stuttum
samleik fram miðju. Að sama
skapi losnaði leikur Akraness
úr böndum. Menn tóku að ein-
leika og var Ríkarður þar
fremstur í flokki og missti
fjöldamarga knetti. Halldór
lej’fði sér líka sýningar, „sen-
ur“ sem höfðu miður heppileg
áhrif á samherjana. Var á-
stæðulaust fyrir Halldór að
„punta“ upp á leik sinn með
þessum aðferðum eftir jafn-
góðan fyrri hálfleik og hann
átti. Fyrir það hvað þeir
Skagamenn héldu knettinum
lengi fengu þeir ekki þennan
fljótandi hraða samleik sem
hefur veitt þeim stærstu sigr-
ana hingað til, eða eins og
þeir léku síðari hluta fyrri
hálfleiks.
Aftasta vöm Akraness átti
raunar lengi í vök að yerjast
og fékk þó oft góða aðstoð
frá Guðjóni og Sveini Teits.
Mæddi þar mjög á Kristni
Gunnlaugssyni, er hann sterkur
en ekki að sama skapi laginn,
og spyrnur hans of háar. Er
honum nauðsyn að laga þann
ágalla.
Jón Leós hefur ekki tekið
þeim framföram í sumar sem
gera hefði mátt ráð fyrir effc«
ir fyrsta leikinn, en hann vae
bezti leikurinn hans í sumar,
Lið Akureyringa.
Sem heild lofar lið þetfca.
góðu. Það vantar sýnilega lei
reynslu. Þeir eru yfirleifct
fljótir og nokkuð leiknir. Þelff
hafa gott auga fyrir samleiíc
og opnum í leik. Þeir léka
með innherjana frammi en m:5-
herjinn lék fyrir aftan þi,
Þetta skipulag útfærðu þe:f
allan tímann með töluverð :i
nákvæmni og gefur það t:l
kynna að skipulag í liði þeirra.
hafi náð töluverðum þrosk.
Það verður ekki sagt að „gafc'
sé til í liðinu. Það er yfirleifct
jafnt. Markmaðurinn Einar
Helgason varði vel og sýnfct
góð tilþrif í marki og átti g fcí
útspörk. Hægri bakvörður, Sig.
uróli, var skynsamur í leiœ
sinum, valdi alltaf samleikir.ti
fyrst. Arngrímur Kristjánss .ti
lék vel sem miðframvörður og
var Þórði Þórðarsyni ekkeru
lamb að leika sér við, sr’i
hreyfanlegur sem hann var og
fljótur. Vinstri framvörð.r
Haukur Jakobsson var líka 1*
gætur og gerði Ríkarði erf: fcíi
fyrir. Ragnar Sigtryggsson ve*
mjög hreyfanlegur í hinum a::«
urliggjandi leik sínum. Hann
líka mjög leikinn. Innherjar:>
ir Hreinn og Tryggvi áttu líka
ágætan leik. Því skal spáð h :t'
að þessir ungu menn láti ek'kt
hrekja sig úr 1. deild á næsfc j
árum, ef marka má þes i
keppni þeirra.
Framhald á 10. síðu.