Þjóðviljinn - 10.09.1955, Side 11

Þjóðviljinn - 10.09.1955, Side 11
Laugardagur 10. september 1955 — ÞJÓÐVTLJINN — (11 Hans Kirk: Þeir sátu í makindum og drukku whiský og Tómas Klitgaard hafði óljóst hugboð um að hann hefði sneytt hjá mikilli hættu. Æjá, þessar gömlu menningarættir, þær höfðu margt sér til ágætis, þær kunnu að laga sig eftir aðstæöum. 91. dagur ustu neyð, smjöttuðu á tilhugsuninni um hinn stórkost- lega ránsfeng. Þeirra biðu geysileg auðæfi ef þeir voru nógu kænir. Verksmiðjur sem byggðar höfðu verið með miklum fórnum, stórkostleg fyiirtæki sem hugrakkasta þjóð heimsins hafði varið áratugum í að reisa, yrðu nú verkfæri í höndum verksmiðja þeirra og fyrirtækja. Með ráðherrann í fararbroddi voru þeir reiðubúnir að ganga yfir valkesti til að ræna hin sigruðu Ráðstjómarríki með fullu samþykki sigui* *vegarans. — Herrar mínir, sagði Abildgaard ogreis á fætur. Mér finnst þetta fyrst og fremst vera dýrafræðilegt vanda- mál. Að hve miklu leyti er ljónið reiðubúiö að gefa sjakal- anum hlutdeild í i'ánsfeng síhum? Ég bið ykkur að í- huga þetta mál vandlega áöur en þið takið nokkra ákvörðun. — En, hæstaréttarlögmaður, ber að skilja þetta svo að hið mikilsvirta fyiii'tæki, Klitgaard og Synir, neiti fyrir- fram að taka þátt í nýtingu auðlindanna 1 austri? spurði ráðherrann. — Nei, engan veginn, kæri herra ráðherra, sagði Abildgaard. Ég á aðeins við það, að ráðlegast sé að bíða þar til málið liggur fyrir á traustari grundvelli. — En við verðum að taka ákvörðun núna, sagði barón- inn í utanríkisþjónustunni. Tilboöið liggur fyrir í dag, en ef til vill ekki á morgun. — Afsakið, herra barón, en með allri virðingu fyrir utanríkisþjónustunni, þá varðar svona mál fyrst og fremst viðskiptalegar staðreyndir, sagði Abildgaard með dæmafáu yfirlæti. Ég er kunnugur í danska utanríkis- ráðuneytinu og met það mikils fyrir háleitar og skáld- legar hugsjónir. En kaldur raunvemleikinn er allt ann- aö. Þökk fyrir þennan fróðlega og athyglisverða fund, herra ráðherra. Hann fór, og Tómas Klitgaard reis á fætur og fylgdi honum, þótt hann væri honum mjög ósamþykkur hið innra. En þessi bannsettur lagasnápiu* hann Þorsteinn mágur var mjög kænn. Hann hafði sjálfsagt séð ein- hverja annmarka á þessum ráðagerðum og dró sig í hlé með friöi og spekt. Þeir gengu niður eftir götunni, og Abildgaard virtist í mjög lcristilegu skapi og kvaö sálm við raust: Sólin ljóma sínum skrýdd sem um himinbogann líður .... — Viltu ekki vera svo góður að gefa skýringu á fram- ferði þínu, sagði Tómas Klitgaard reiðilega. Þama er okkur boðin gullnáma og þú segir nei. — Viö skulum fá okkur whiskýdropa á skrifstofunni minni, sagði Abildgaard. Hæstaréttarlögmaðurinn hélt áfram að raula milt og kristilega og þeir komu að skrif- stofunni, Abildgaard læsti dyninum að einkaskrifstofu sinni og tók fram whiský og glös. — Jæja þá? spurði Tómas gramur. — Kæri mágur, þarna er aðeins um rökfræðilegt atriði aö ræða. Ef þeir væru búnir að taka Moskvu, þá hefði svarið verið já! En þeir eru ekki búnir aö taka Moskvu og því er svarið nei! Ef Rússland hefði verið rið- andi bákn, væri Moskva fallin. Rússland er því ekki riö- andi bákn. Það er ekki búið aö skjóta björninn og því er heimskuiegt að skipta upp feldinum. Og fyrst hún féll ekki þá mun hún ekki falla! Viö skulum halda okkui’ að staðreyndum. Hinn ágæti ráðheiTa er framtakssamur og fyrr eða síðar mun þaö koma honum í koll. Heimur- inn lítur á hið illa, eins og minn ágæti vinur, Stæresang bi&kup segir, og undir vissum kringumstæðum væri hægt að misskilja viðleitni hans. — Heldurðu þá að rauðliðarnir sigri? — Það vona ég aö guð gefi að ekki veröi, sagði Abild- gaard og kveikti sér í góðum, mildum vindli. En þarna er mikið í húfi og loftkastalar eru einskis virði. Enga áhættu, Tómas, þaö er lífsregla hins vitra. Hafðu ævin- lega baktryggingu, kæri Tómas, ef þú vilt að þér vegni vel og ver'ðir langlífur í landinu. 26. KAFLI Hér greinir frá pví að danska lögreglan lætur vissulega ekki sitt eftir liggja, ásamt ýmislegu um Gregers og Grejs gamla. Dag nokkum um vorið, þegar Gregers Klitgaard var á leið heim af verkfræðistofunni, þar sem hann vann, kom Karen þjótandi á móti honum. Hún var náföl og greip með ákefð um handlegg hans. — Komdu, sagði hún. Ég verð að tala við þig. En við verðum að gæta okkar, ég veit ekki nema mér sé veitt eftirför. Hann dró hana með sér inn í port og þau skyggndust um í allar áttir til að aðgæta, hvort nokkur elti hana. — Öllu er óhætt, sagði Gregers loks. Það er lítið veit- ingahús hinum megin við homið. Við skulum koma þangað. Þau fóm inn í veitingahúsið og báðu um.kaffi. — Hvað er á seyði? spurði Gregers. Hafa þeir komið? — Já, hvíslaði Karen. Það komu tveir menn fyrir klukkutíma. — Danskir? — Já. — Það var ég sem fór til dyra. Og ég sá strax að þetta var öryggislögreglan. Það er enginn vandi að þekkja þessa gestapómenn. Jæja, ég varð ægilegt kvenskass, brýndi raustina, bannaði þeim að koma inn, spurði hvort þeir væm nasistar og allt hvað eina og Haraldur skildi hvað á spýtunni hékk. Hann laumaðist hljóðlaust út um bakdymar r— Þýzkalandsmál Framhald af 6. síðu. ! • Taka verður tillit til þess, að þessi ríki þróuðust á geró- líkum efnhagslegum og þjóð- félagslegum grundvelli. I Þýzka alþýðulýðveldinu er verkalýðsstéttin og banda- menn hennar, vinnandi bændur og menntamenn, við völd, fólk sem hefur þegar hafið hina sósíalistísku uppbyggingu og er fullt sannfæringar um, að það hafi valið rétta leið. Það er því fyllilega skiljanlegt, þegar austurþýzk alþýða lýsir því yfir, að hún vilji ekki eiga það á hættu að glata því, sem henni hefur áunnizt á ofan- greindu tímabili. Við lausn Þýzkalandsvanda- málsins er óhjákvæmilegt að taka fylsta tillít til afstöðu þæði Þýzka alþýðulýðveldisins og Þýzka sambandslýðveldis- ins, með öðrum orðum: Þétta mál verður ekki leyst án aðild- ■ ar Þjóðverja sjálfra. -ii Allt þetta hefur það í för með sér, að fyrir sakir þeirra innri og ytri kringumstæðna, sem skapazt hafa í Þýzkalandi er ógerlegt að sameina land- ið á einhvern vélrænan hátt, og að allar slíkar tilraunir og áætlanir hljóta að reynast ár- angurslausar, þar eð þær taka ekki tillit til hins raun- verulega ástands. Við núver- andi kringumstæður er aoeins hægt að leysa Þýzkala.ndsmál- ið smám saman á grundvelli samstarfs milli Þýzka alþýðu- lýðveldisins og Þýzka sam- bandslýðveldisins, og þeirrar samræmingar er jákvæð geti talizt fjrrir frið og framfarir.“ <Sk- mest notaðir Stuttu samkvæmiskjólamir virðast nú aiveg vera að taka við af síðu kjólunum. Að vísu eru enn búnir til hælasíðir glEBsikjólar, en stuttu og hentugri kjólamir ná æ meiri vinsældum. Og er það nokkuð tundarlegt ? Maður notar síða •kjólinn í örfá skipti á ævinni, a stuttu samkvæmiskjólana etur maður notað furðu oft. Hér em sýndir þrír ítalskir amkvæmiskjólar, allir em þeir iaumaðir úr siikiefnum, og em því hentugir samkvæmiskjólar allt árið. Allir þrír eru mjög flegnir og ljómandi snotrir. Svarti taftkjóllinn er með bogadregnu háismáli sem nær út á axlir. Efnið rykldst kring- um allt hálsmálið en breiða mittisstykkið er þröngt og fell- ur aiveg að. Hvíti bróknðekjóll- inn er með svipuðu mittissniði. Sniðið er afarlátlaust, enda er efnið svo skrautlegt, og þetta snið má einnig nota á önruir og ódýrari efni, svo sem sOldéfni eða blúnduefni. Þriðji kjóllinn er dökkblár með hrituni dreifð- um blómum. Þetta er faliegur og skemmtilegur kjóil, en blómamynstrið gerir það að verkum að þetta verður fyrst og fremst vor- og sumarkjóll. Úlgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu —Sósíalistaflokkurinn, — Ritstjór&r: Magnús.Kjartansson (áb), Sigurður Guðmundsson — Fréttarit- Bjamason. — Blaðoaaena: Ásmtindur Sigurjónsson, Bjami Benedtktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfl • - - Olafsson. — Auglýsinggstáónr .-Js^tg^n* .H^gldssoo. —- Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja:.SkQlavörðustíg :19. —■ SHW..7,5pO (3 Liniir). — Áskriftarverð. kr 30 á atókiuSi í Roi’fciavik og nágrenni; kr. 17 annars staðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsm. Þjóðviljar'° H.f,

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.