Þjóðviljinn - 16.09.1955, Qupperneq 2
2) — ÞJÓÐVIUINN — Föstudagur 16. september 1655 —
★ 1 dag er föstudagurinn 16.
september. Euphemis. — 259.
dagur ársins. — Nýtt tungl kl.
6.15; í hásuðri kl. 13.28. — Ár-
degisháflæði ltl. 6.15. Síðdegis-
háflæði kl. 18.32.
SLYSAVARÐSTOFA
REYKJAVÍKUR
og læknavörður Læknafélags
Reykjavíkur. I dag kl. 18 flýtja
slysavarðstofan og læknavörð-
ur L.R. úr Austurbæjarskól-
anum í nýju heilsuverndarstöð-
ina við Barónsstíg. Inngangur
á lóðina frá Barónsstíg, Sund-
hallarxnegin. — Slysavarðstof-
an verður opin allan sólar-
liringinn. Læknavörður L. R.
(fyrir vitjanir) verður eins og
áður frá klukkan 18 til 8. —
Sími 5030.
Kl. 8:00 Morg-
unútvarp. 10:10
Veðurfr. 12:00
Hádegisútvarp.
15:30 Miðdegis-
útvarp. 16:30 Veðurfr. 19:25
Veðurfr. 19:30 Tónleikar: Har-
monikulög. 19:40 Auglýsingar.
20:00- Fréttir. 20:30 Útvarps-
sagan. 21:00 Tónleikar: Prelú-
diur eftir Debussy (Walter Gie-
seking leikur). 21:20 Úr ýms-
um áttum. Ævar Kvaran leikari
velur efnið og flytur. 21:45
Tónleikar: Sinfóníuhl jómsveit-
in leikur, Ragnar Björnsson
stjórnar: a) Forleikur að óper-
unni Töfraskyttan eftir Weber.
b) Ungverskir dansar nr. 5 og
6 eftir Brahms. 22:00 Fréttir
og veðurfregnir. 22:10 Lífsgleði
njóttu. 22:25 Dans- og dægur-
lög: a) Nora Brockstedt og
The Monn-keys syngja. b) Joe
Loss og hljómsveit leika.
Hlutavelta Kvennadeildar
Siysávarnafélags fslands
verður haldin 2. október. Skor-
ar deildin á alla velunnara sína
að leggja henni til góða muni,
en þsim verður veitt móttaka á
skrifstofunm, Grófin 1. Enn-
fremur munu deildarkonur
heimsækja ýmsar stofnanir,
sem beðnar eru að sýna velvild
eins og jafnan áður.
Gen"isskráning;
Eaupgrengi
sterlingspund .....
1 bandarískur dollar ....
Kanada-dollar .....
100 svissneskir frankar ..
100 gyllini ............
100 danskar krónur .....
100 sænskar krónur .....
100 norskar krónur .....
100 beigískir frankar ....
100 tékkneskar krónur ....
100 vesturþýzk mörk ......
1000 franskir frankar...
Bazar
Ilúsmæðrafélags Reykjavíkur
verður haldinn n.k. sunnudag.
Eru félagskonur og velunnar
beðnir að koma munum í Borg-
artún 7.
Orðsending frá Bræðrafélagi
Öháða fríkirkjusafnaðarins
Félagsmenn — vinsamlegast
safnið góðum munum á hluta-
veltuna sem haldin verður í
þessum mánuði.
Næturvarzla
er í lyfjabúðinni Iðunni, sími
7911.
45.55
16.26
16.50
37330
429.70
235.50
314.45
227.75
32.65
225.72
387.40
46.48
Ég fer að halda að
unginn, sem gaf
ur vísbendinguna
þennan banka,
ekki verið sérlega
mælskur.
Millilandaflug
Edda millilanda-
flugvél Loftleiða
h.f. er væntanieg
kl. 18.45 í kvöld
frá Hamborg —
Kaupmannahöfn — Gautaborg.
— Flugvélin fer til N.Y. kl.
20.30.
Gullfaxi fór til Ósló og Stokk-
hólms í morgun. Flugvélin er
væntanleg til Rvíkur kl. 17.00
á morgun. Sólfaxi fer til Glas-
gow og Kaupmannahafnar kl.
8.30 í fyrramálið.
Innanlandsflug
I dag er ráðgert að fljúga til
Akureyrar 3, Egilsstaða, Fag-
urhólsmýrar, Flateyrar, Hólma-
víkur, Hornafjarðar, ísafjarð-
ar, Kirkjubæjarklausturs, Pat-
reksfjarðar, Vestmannaeyja 2
og Þingeyrar. — Á morgun er
ráðgert að fljúga til Akureyrar
3, Blönduóss, Egilsstaða, Isa-
fjarðar, Sauðárkróks, Siglu-
fjarðar, Skógasands, Vest-
mannaeyja 2 og Þórshafnar.
Opinberað hafa
trúlofun sína ung
frú Kirstin 01-
sen, frá Þórs-
höfn í Færeyj-
um, og Skarphéðinn Pálmason,
kand. mag., Skúlagötu 58.
Söínin eru opin
Þjóðminjasafnia
í þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum.
Þjóðskjalasafnlð
í virkum dögum kl. 10-12 og
14-19.
Landsbókasafnlð
kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka
iaga nema laugardaga kl. 10-12 og
13-19
Náttúrugripasafnlð
kl. 13.30-15 á sunnudögum, 14-15 6
þriðjudögum og fimmtudögum.
Bæjarbókasafnið
Lesstofan opin alla virka daga k)
ki. 10-12 og 13-22, nema laugardaga
k). 10-12 og 13-16. — Útlánadeildin
xpin alla virka daga kl. 14-22,
nema laugardaga kl. 13-16. Lokað
á sunnudögum yfir sumarmánuð
ína.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið sunnudaga og miðviku-
daga kl. 1.30 til 3.30 frá 16.
september til 1. desember, síðan
verður safnið lokað vetrarmán-
uðina.
ílokkunnn
GREIÐIÐ FLOKKSGJÖLD
YKKAR SKILVlSLEGA.
Þriðji ársfjórðungur féll í
gjalddaga 1. júlí. Skrifstofan
Tjarnargötu 20 er opin dag-
lega kl. 10-12 og 1-7.
IJEIÐRÉTTING
í grein í blaðinu í gær um
búlgarska skáldið Vaptsaroff
hefur orðið leiðindaprentvilla á
einum stað. Þar segir: „Hið
erfiða líf alþýðunnar er grun-
urinn i kvæðum Vaptsaroffs."
Hér átti að standa grunnurinn
— ef einhver vildi hyggja að
því.
G Á T A N
Tvö eru höfuð,
tveir handleggir,
tær eru tíu,
tvisvar þrír fáetur,
þó eru ei fleiri
en fjórir á gangi.
Hvernig á að skilja
heimuleik þennan?
Ráðning síðustu gátu: —
Smiðjubelgir.
Morgunblaðið í
leiðara í gær: —
„Kommúnistar
reyna nú eins og
fyrri daginn, að
breiða yfir nafn og númer eins
og veiðiþjófur í landhelgi.“
Það er sterkur leikur hjá mál-
gagni Sjálfstæðisflokksins að
nota þessa mynd af veiðiþjófn-
um — það er hver sínum hnút-
um kunnugastur.
=á5SS==>
Einar hét maður og var And-
résson. Hann tók augnaverk,
og honum var krankt í fæti.
Getnaðarlimimir þrútnuðu,
svo að hann varð að hafa
klæði neðan undir til léttis,
því að honum þótti sem slitna
mundi ella. Og einn dag, sem
hann var úti hjá sleða sínum,
þá vatzt fóturinn undir hon-|
um, svo að hann gat ekki við
spyrnt. Þá tók hann rim úr
sleðanum og studdist við inn
í bæinn. Þá þykir Einari
þyngjast, hefur kranldeika í
augunum, svo að hann mátti
eigi sjá, en í fótunum, svo
að hann mátti eigi ganga, sár-
leik af þrútnan getnaðarlim-
anna og um nóttina fékk hann
ekki sofið. Þá kallar hann á
Guðmund biskup Arason og
hét að láta syngja þrjár sálu-
messur fyrir sálum föður og
móður Guðmundar biskups og
þess, að guð gæfi honum ald-
urs heilsu, og eftir heitið
sofnar hann. Og um morgun-
inn mátti hann vinna og fékk
alla heilsu sinna meina, og til
marks hér um, að það eistað,
er honum var sárara og meir
niður sigið, var komið upp í
kviðinn, en tómt skinnið eftir,
og svo hefur jafnan verið síð-
an.
(Jarteinabók Guðmund-
ar biskups Arasonar).
Æ.F.R.
Félagar eru vinsamlega minntir
á að greiða ársgjald sitt á
skrifstofunni Tjamargötu 20.
Markið er að allir félagar verði
skuldlausir þegar ársþing ÆF
verður haldið um næstu mánaða
naót'. Skrifstofan er opin sem
hérsegir: alla virka daga nema
laugardaga kl. 5.00—7.00, en
laugardaga kl. 3—5. Og látið
nú hendur standa fram úr erm-
um um greiðslumar!
Kvenfélag Óháða
fríldrkjusafnaðarins
Félagskonur og aðrir, sem hafa
hugsað sér að gefa kökur með
kaffinu á kirkjudaginn, em vin-
samlega beðnir að koma þeim
niður í Góðtemplarahús milli
kl. 10-12 á sunnudagsmorgun.
Tímaritið
Morgunn er ný
komið út. Efni
er meðal ann-
ars: Úr ýms-
um áttum. —
Minningarorð um Pál Einars-
son. Vegfarendur í ódáinsheim-
um. Þagnamaál tveggja brota
úr gömlum leirkerum. Við dyr
ókunnra heima. Úr Vísnakveri
Haralds Níelssonar. Þegar gröf
ábótans fannst eftir tilvísun í
draumi. Dulrænar skynjanir.
Efni skyggnigáfunnar — og
sitthvað fleira er í heftinu. —
Útgefandi er Sálarrannsókna-
félag íslands, en ritstjóri séra
Jón Auðuns.
Krossgáta nr. 685
Lárétt: 2 yfirhöfn 7 hnoðri 9
fiskar 10 stafir 12 skst 13
móðurföður 11 þrír eins 16
borgin eilífa 18 gefa frá sér
hljóð 20 tónn 21 norskt nafn.
Lóðrétt: 1 svartur 3 á fæti 4
hvem einasta 5 ílát 6 sýður 8
fæddi 11 skeiðgenga 15 stía 17
band 19 verkfæri.
Lausn á nr. 684
Lárétt: 1 stekkur 7 an 8 arga
9 ttt 11 ÁGU 12 ós 14 in 15
sker 17 tá 18 lof 20 froskar.
Lóðrétt: 1 satt 2 TNT 3 KA 4
krá 5 uggi 6 rauna 10 tók 13
sels 16 rok 17 TF 19 fa.
Tr«i hóffsinni*
Eimsldp
Brúarfoss kom til Reykjavíkur-
snemma í morgun frá Hull.
Dettifoss fór frá Hull í gær-
kvöld til Rvíkur. Fjallfoss fór-
frá Akureyri í gær til Akra-
ness og Reykjavíkur. .Goðafoss
fór frá ísafirði í gær til Aust-
fjarða, og þaðan til Hamborg-
ar, Gdynia og Ventspils. Gull-
foss fór frá Rvík í fyrradag til
Leith og Kaupmannahafnar.
Lagarfoss kom til Rvíkur í
fyrradag frá Hamborg. Reykja-
foss er í Hamborg. Selfoss kom.
til Gautaborgar í gær; fer það-
an til Flekkef jord og Faxaflóa-
hafna. Tröllafoss fór frá N. Y.
8. þm til Rvíkur. Tungufoss.
fer væntanlega frá Stokkhólmi.
á morgun til Hamborgar.
Sldpaútgerð ríldsins
Iiekla fer frá Rvík á morgun.
austur um land í hringferð.
Esja fór frá Akureyri síðdegis
í gær á austurleið. Herðu'breið
fór frá Rvík um hádegi í gær
til Austfjarða. Skjaldbreið kom.
til Rvikur í gærkvöldi frá.
Breiðafirði. Þyrill er í Reykja-
vík. Skaftfellingur fer frá R-
vík síðdegis í dag til Vestm,-
eyja.
Sldpadeild SÍS
Hvassafell væntanlegt til Abo á.
morgun. Arnarfell fór 12. þm
frá Siglufirði áleiðis til Hels-
ingfors og Ábo. Jökulfell er í
N.Y. Dísarfell er í Hamborg.
Litlafell er í Rvík. Helgafell er
í Rvík. Seatramper er í Kefla-
vík. Valborg lestar kol í Stett-
in. Orkanger er í Rvík. Portia
kom í gær til Rvíkur. John
August Essberger kemur til R-
víkur á laugardaginn.
. Æ.F.II.
Félagsfundur verður haldinn í
Tjarnarkaffi n.k. mánudags-
kvöld kl. 9.00. — Á fundinum
verða kosnir fulltrúar á 14.
sambandsþing Æ.F. Ennfremur
segja þeir Hannes Vigfússon
og Gunnar Guttormsson frá
heimsmótinu í Varsjá. — Þá
verður sýndur kafli úr kvik-
mynd . mótsins, en bráðlega
verður sýnd heil kvikmynd
þaðan á skemmtun er Varsjár-
farar efna til. — Að lokum tal-
ar Jón Grímsson um KRON.
Félagar fjölmenníð.
LYFJABÚÐIR
Holts Apötek | Kvöldvarzla tl)
!EW* | kl. 8 alla daga
Apótek Austur- | nema laugar-
bæjar j daga til kl. 4