Þjóðviljinn - 04.10.1955, Qupperneq 11
Þriðjudagur 4. október 1955 — ÞJÓÐVTLJINN — (11
Hans Kirk:
Klitgaard
og Synir
<s>-
6. dagur.
niður á enni, jakkinn hans var rifinn. Hann andvarp-
aði þunglega og lét fallast niður í stól.
— Áttu ekkert hressandi, Þorsteinn? sagði hann
hásri röddu. Því aö þetta er hneyksli. Skríllinn er búinn
að taka völdin.
— Hvaö hefur komið fyrir þig? spurði Tómás meðan
Abildgaard sótti flösku og glös. Jóhannes Klitgaard urr-
aði eitthvað óskiljanlegt og hann fékk ekki röddina aft-
ur, fyrr en hann var búinn aö sporðrenna úr nokkrum
glösum.
— Þetta er skrílstjórn; þetta er verra en franska bylt-
1 ingin, sagði hairn. Ég sit í mestu makindum í minni
eigin stofu meöan Evelyn er á einhverju flakki, fjand-
inn má vita hvar. Svo er dyrabjöllunni hringt, vinnu-
konutruntan hefur sjálfsagt opnað og allt í einu standa
nokkrir náungar með bindi um handleggina og skot-
vopn inni í stofunni hjá mér.
— Hvað viljiö þið? spyr ég auðvitað, og þeir spyi'ja
' hvort ég sé Jóhannes Klitgaard forstjóri, því að þá
eigi þeir ýmislegt vantalaö við mig og þegar ég segi þeim
kurteislega að þaö sé raunar ég og ef þeir þurfi að tala
við mig um viðskiptamál geti þeir fundið mig á slcrif-
stofu minni á morgun eftir samkomulagi, en þá verða
dónamir bara ósvífnir, miöa á mig byssunum, skipa mér
að loka trantinum og koma meö .... Og hvaö er hægt
að gera þegar engin lögregla er til ....
— En þú slappst frá þeim, sagöi Abildgaard.
— Ég varð aö fara upp í bílinn og þar mátti ég standa
með.upprétta handleggi, meðan fólk hrópaði svikari og
landráöahundur á eftir mér. En auðvitað kunni blókin
við stýrið ekki einu sinni á bíl ellegar þá að hann hefur
verið fullur, því að hann rakst beint á sporvagn á gatna-
mótum og bílnum hvolfdi og sjálfsagt hafa nokkrir þeirra
hálsbrotnaö. Þaö varö fjandans uppistand, og ég labbaöi
mig burt meö hægö; þannig gekk þaö til ....
— Þetta er vandræðaástand, Jóhannes, sagði Abild-
gaa.rd. Þú hefur gengiö of langt með fyrirtæki þitt, Pro
Patria. Ég býst viö aö Tómas geti komizt klakklaust út
úr þessu, en þú hefur vanrækt að útvega þér baktrygg-
ingu. En undir öllum kringumstasðum mátt þú ekki
láta talca þig núna. Sennilega ræður tilviljun hverja
þeir sækja, og þú hefur lent á einhverjum lista. Þú
verður aö fara í felur um tíma, og svo getum við athug-
að málið.
— Og hvar á ég að fela mig? Héma?
— Þaö er sennilega ekki gott. Ef þið finnist hérna
báðir, Tómas og þú, gæti það litið illa út fyrir mig, og
það er ykkur fyrir beztu að ég standi utan við þetta.
Vegna fyrirtækisins. Nei, viö þurfum að koma því þann-
ig fyrir, aö þiö hverfiö um tíma ....
— Svona er þá komið, sagöi Tómas Klitgaard, að
velmetinn kaupsýslumaöur, sem gert hefur fööurlandi
sínu mikiö gagn og stjórnaö stóru fyrirtæki, verður að
skríða í felur.
— Fyrir skrílnum, sagöi Jóhannes Klitgaard illsku-
lega. Fyrir leigjendum mínum á Vesturbrú. Fyi'ir þess-
um þorpurum sem gera eintómar kröfur og vilja ekk-
ert borga í húsaleigu.
— Það ei" tilgangslaust aö æsa sig upp, sagöi Abild-
. gaard. Þetta eru aðstæður sem viö ráöum ekki viö. Nú
veröið þiö hérna í nótt. Og á morgun gerum viö þær
ráðstafanir sem þarf Ég legg til að þú farir á hvíldar-
heimili, Tómas. Ég þekki lækni, sem getur komiö því í
kring. Þú getur látizt vera matvörukaupmaður frá Aust-
urbrú. Það' blessast áreiöanlega. Þaö er erfiöara viöfangs Uafl
með þig, Jóhannes, útlit þitt er dálítið sérkennilegt...
En þaö blessast sj álfsagt líka ... það eru mörg taugahæli
til. . . .
Hann brosti glaölega, og eins og svo oft áður varð
Tómas Klitgaard gripinn sáni gremju í garö þessa ætt-
stóra mágs síns. Matvörukaupmaður á Austurbrú. Þann-
ig leit hann á hann í hjarta sínu, þessi bannsettur laga-
snápur og hrokagikkur.
— Og hvað um mín málefni? spurði Jóhannes Klit-
gaai'd. Ætlar þú aö annast þau, meöan ég er á tauga-
hæli?
— Nei, þaö get ég alls ekkert átt við, sagði Abild-
gaard mjög vinsamlega. Sjáðu til, viðskipti verða að vera
all umfangsmikil til þess aö þaö borgi sig aö verja þau.
Og þú veröur aö láta Seidelin, lögfræöing þinn, annast
litla hermangsfyrirtækiö þitt. Ég kem ekki nálægt því.
Ég hef nóg aö gera í sambandi viö Klitgaard og Syni,
þar er mikiö í húfi....
3. KAFLI
Abildgaard hœstaréttarlögmaöur rœöir í trúnaöi við ó-
nefndan lögfrœðing, sem gefur honum góöar vonir um
framtíöina. Hann hittir tvo trausta og metnaöar-
gjanva ritstjóra.
Aö jafnaði var frú Margrét stillt og róleg, en hún
var föl og æst þegar hún kom inn á skrifstofu hæsta-
réttarlögmannsins þennan morgun. Hún haföi ekkert
frétt um afdrif Gregers hann hafði ekki komið til Sví-
þjóðar með hinum föngunum og hún hafði hlustaö á
slétta og fellda danska rödd í sænska útvarpinu, sem
tilkynnti að helmingur dönsku fanganna frá Stutthof
heföi fengiö frelsi, en um hina sem eftir væru, væri
sennilega lítil von. Var Greges meöal þeirra sem rödd-
in í útvarpinu taldi enga' von um eöa hafði hann dáið
í fangaklefa, hafði hann verið myrtur í fangabúðunum?
— Hefur nokkuö gerzt? spuröi Abildgaard þegar hann
var búinn aö loka dyrunum. Hafa þeir komið?
— Já, snemma í morgun, sagöi frú Margrét. Ég
skýröi þeim frá því aö Tómas væri á viöskiptaferöalagi
á Jótlandi, sennilega í Álaborg eöa Kai'up, aö ég hefði
ekkert heyi’t frá honum í nokkra daga og vissi ekkert
hvenær væri von á honum. Þeir voru mjög kurteisir
og báöu leyfis aö gera húsrannsókn. Þeir fengu það, og
Ljós yfir Norðurslóð
Fraxnhald af 4. síðu.
það fyrir vagn ofbeldis og arð-
ráns í þágu íhaldsins.
Nú neitar það að draga vagn-
inn lengra og þá verða foringj-
arnir annað hvort að leggjast
sjálfir í aktaugarnar eða snúast
til stefnu við fólkið.
Fylgjum nú sigrinum eftir til
yztu nesja. Vinnandi fólk á að-
eins eina tegund af pólitík og
hún er sú að standa saman um
sín mál. Sú stefna ein getur fært
okkur þá hamingju, sem við ósk-
um og vonum að þessi þjóð verði
aðnjótandi í bráð og lengd.
Halldór Pétursson.
Tíia km t©!pnir
Framhald af 5. síðu.
mikil og mun meiri en yfir-
völdin höfðu búizt við. Talið
hafði verið að um helmingur
40 milljóna kjósenda mvndi
greiða atkvæði, en sýnt þykir
að þátttakan í kosningunum
hafi reynzt töluvert meiri.
Hattur og hárgreiðsla
Enskur hárgreiðslusérfræð-
ingur, Steiner, hefur tekið að
sér að sýna hve mikilvægt sé
að hattur og liárgreiðsla séu
í samræmi hvort við annað. Hér
eru nokkur dæmi frá honum
— og hann hefur óneitanlega
nokkuð til síns máls.
Kétt Rangt
kvæma yfirvegun: 1) Mjúlcar
brjóstfellingar sem snúa inn að
hálsmálinu og haldið er í skorð-
um af tveim hnöppum hvorum
megin. 2) Langa skálínan frá
hálsi og niður í mittið endar í
odda. 3) saumarnir sem beitið
er fest í ná niður í pilsið og
draga úr víddinni að ofan. 4)
Saumur framan á piisinu. 5)
Staða vasanna, þar sem einnig
eru hafðir tveir hnappar hvor-
um megin til að halda hliðar-
fellingunni í skorðum. 6i Bak-
svipurinn og lokufellingin að
aftan.
maður stökkar neglur er
gott að hella feitri oliu í litla
skál og hita hana í vatnsbaði,
halda fingurgómunum stundar-
fjórðung niðri í volgri olíunni
og núa síðan neglur og nagla-
bönd.
Stóm stærðirnar
Ef maður notar stærð 48—56
af kjólum, verður maður að
gæta þess að velja snið og gerð
sem hæfa vaxtarlaginu. Hhm
rólegi svipur á kjólnum á mynd-
inni hefur fengizt eftir ná-
Heimatilbúinn
handáhurður
Til þess að hirða og snyrta
hendurnar þarf ýmiss konar
smyrsl sem eru dýr, séu þau
keypt tilbúin, en það er hægt
að búa þau til sjálfur án mik-
ils tilkostnaðar. Hér eru nokkr-
ar uppskriftir:
Mýkjandi og nærandi hand-
áburð má búa til á þann hátt
að blanda saman 30 g af glyc-
eríni, 40 g af kölnarvatni 96%,
og 30 grömmum af vatni.
Naglavatn tU að nota eftir
liandþvott og burstun má búa
til úr 5 g bórax, 10 g glycerín,
85 g soðið vatn. Hægt er að
gera það ilmandi með nokkr-
um dropum af rósaolíu.
Naglakrem til að nota á þurr-
ar og stökkar neglur, má búa
til úr 45 g lanolíni, 20 g hvítu
vaselíni og 35 g vatni. Þetta er
brætt saman og hrært í krem
sem gera má ilmandi með lav-
endelolíu. Svona krem er t.d.
gott að nota eftir að maður
hefur f jarlægt naglalakk en við
það þorna neglurnar mjög mik-
ið.
(nðeviuiNN
Úlgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjóiar: Magnús Kjartansson (áb), Sigurður Guðmundsson — Fréttarit
stióri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benedíktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torö.
Óiafsson. — Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími: 7500 (3
línur). — Áskriftarverð kr 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsm. Þjóðviljar>« tul