Þjóðviljinn - 16.10.1955, Síða 1

Þjóðviljinn - 16.10.1955, Síða 1
 Sunnudagnr 16. október 1955 — 20. árgangur — 2S4. tölublað Ötvarpsumræða á morgun klukkan 1 Útvarpsumræða um fjárlaga- frumvarpið fer fram á morg- un, (mánudag) og hefst kl. 1. — Lúðvík Jósefsson talar af hálfu Sósíalistaflokksins. Viðræður um vinstri samvinnu að heíjast Alþýðuflokkur9 Vramsóknarflokkur9 Sósíalistaflokkur og Pjóð~ | varnarfl. hafa tUnefnt nefndir til samninga rið Alþgðusam bandið 1 Viðræður eru nú að heíjast milli Alþýðusam- handsins og vinstri flokkanna í landinu, Alþýðu- flokksins, Framsóknarflokksins, Sósíalistaflokksins og Þjóðvarnarflokksins um möguleika á vinstri sam- vinnu í landinu, og hefur Alþýðusambandið gengið frá stefnuyfirlýsingu sem lögð verður til grundvall- ar í viðræðunum. Flokkamir hafa allir tilnefnt við- ræðunefndir og munu formenn vinstri flokkanna m.a. eiga sæti í þeim. Þjóðviljanum barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Alþýðusambandi Islands um þetta efni: rtA grundvelli samþykkta síð- asta Alþýðusambandsþings rit- aði miðstjórn sambandsins á s. t. vori bréf til Alþýðuflokks- in-S Framsóknarflokksins Sós- íalístaflokksins og Þjóðvarnar- flokksins með tilmælum um, að þessir flokkar tilnefndu fulitrúa til viðræðna við Al- þýðusambandið um möguleika á vinstri samvinnu í landinu. í svörum flokkanna var það tekið fram, að þeir vildu allir eiga slíkar viðræður við Al- þýðusambandið. A fundi sínum 5. okt. s. 1. samþykkti miðstjórn Alþýðu- sambandsins stefnuj'firlýsingu, er lögð skyldi til grundvallar í viðræðum við flokkana. Stefnujfirlýsing þessi er byggð á samþykktum Alþj'ðusam- bandsins og viðhorfum verka- lýðsihreyfingarinnar til þjóð- máianna í dag. Á þessum sama fundi lur samþykkt að leita eftir því við flokkana að við- ræður þessar hæfust nú og kaus miðstjórnin af sinni hálfu fulitrúa til viðræðna við flokk- ana. Með bréfi dagsettu 6. þ. m. ,var ofangreindum stjórn- máíaflokkum send stefnuyflr- iýsingin ásamt tilmælum Al- þýðusambandsins, en þeir hafa aliir tilnefnt fulltrúa til við- ræðna við Alþýðusambandið og eru viðræður nú að hefjast." í viðræðunefnd Alþýðusam- bandsins eiga sæti Hannibal Valdimarsson, Eðvarð Sigurðs- son og Sigríður Hannesdóttir. Sósíalistaflokkurinn skipaði viðræðunefnd sina þegar í vor, og eiga sæti í henni þessir menn: Einar Olgeirsson, Lúð vik Jósefsson og Guðmundur Vigfússon. Varamaður er Egg- ert Þorbjamarson. Eftir því sem Þjóðviljinn hefur komizt næst munu nefnd- ir hinna flokkanna vera skip- aðar þessum mönnum: Framsóknarflokkur: Her- mann Jónasson, ólafur Jó- hannesson, Þórarinn Þórarins- son og til vara Sigurvin Ein- arsson. Alþýðuflokkurinn: Haraldur Guðmundsson, Jón Sigurðsson, Óskar Hallgrímsson. Þjóðvamarflokkurinn: Valdi- mar Jóhannsson, Gils Guð- mundsson, Þórhallur Vilmund- arson. Þannig hafa togararnir leg- ið í Rejkjavíkurhöfn að und- anförau dögum saman hlaðn- ir af karfa, og beðið þess að frystihúsin gætu tekið við aflanum. Karfaaflinn er nú svo mikill á nýju miðunum, að hægt er að fylla togarana á 2-3 dögum með fyllstu af- köstum, en biðin í Reykjavík- urhöfn hefur stundum orðið allt að þvi sex dagar! Þetta sýnir glöggt hvilikt glapræði það er og fjársóun að hafa ekki fyrir löngu bætt við stóru frystihúsi í Reykjavík, eins og sósíalistar liafa lagt til ár eftir ár. Lausn aftur- haldsins á þessum vanda er sú að fækka togurunum á karfaveiðum, draga úr hag- nýtingu okkar á auðlindum og framleiðslutækjum! I þokkabót á svo að lækka karfaverðið — til þess að hægt sé að selja karfaflök í Bandaríkjunum. Verðið að undanförnu hefur verið miðað við samninga þá sem gerðir hafa verið við Sovétríkin, og vitað er að hægt hefði verið að tryggja sölu á stórum meira magni af freðfiski í Austurevrópu ef vilji og íjt- irhyggja hefði verið hjá stjórnarvöldunum. En heild- salarnir \1lja dollara og fram- leiðsluatvinnuvegunum er stjórnað í samræmi við gróða- hagsmuni þeirra, afurðaverð- ið lækkað svo að heildsaiarn- ir græði. Baldvin Jónsson „samdi um það" að lög- reglurannsóknin gegn sér félli niður! Jafnframt var samiS um greiSslu á okurvixlinum og borgar Ragnar Blöndal h.f. 60% Þau furðulegu tíðindi hafa nú gerzt að Baldvin Jóns- son, fulltrúi Alþýðuflokksins í bankaraði Landsbankans, hefur „saxnið um það“ að lögreglurannsóknin gegn sér fyrir hlutdeild í okurlánastarfsemi verði niður felld. Jafn- framt var samið mn greiðsluna á okurvíxli þeim að upj>- hæð 100.000 kr. sem Baldvin Jónsson hafði leyst til sín, og greiddi fyrirtækið Ragnar Blöndal h.f. aðeins 60% Pilnik tapaðí 7 Pilnik tefldi fjöltefli á 32 borðum. við stúdenta í gær. Hann vann 17 skákir, gerði 8 jafntefli, en tapaði fyrir 7. Þeir voru þessir: Árni Finnsson, Guðmundur Ingvi Sigurðsson, Jakob Hafstein, Hermann Jóns- son, Páll Hannesson, Gunnar Jónsson, Guðmundur Gunnars- son. Það var að heyra á PUnik að hahn hefði ekki öðru sinni teflt fjöl&kák við sterkara lið. af upphæðinni! Eins og Þjóðviljinn hefur áður rakið voru málavextir þeir að meðal skulda Ragnars Blöndals h.f. var víxill einn að upphæð 100.000 kr. Víxill þessi hafði að sögn forráðamanna Ragnars Blöndals h.f. verið veittur sem okurlán af Brandi Brynjólfssyni með 5% mánaðarvöxtum — 60% ársvöxtum,- Aðalábekingurinn var Baldvin Jónsson, fulltrúi Al- þýðuflokksins í bankaráði Lands- bankans, í ríkisskattanefnd, í Sogsvirkjunarstjórn, í Sjúkra- samlagi Reykjavíkur m. m. Eig- andi skuldarinnar var hinsvegar talinn Ragnar Ingólfsson. Þeg- ar Ragnar Blöndal h.f. komst í greiðsluþrot samdi Ragnar Ing- ólfsson um 40% eftirgjöf á þess- um víxli eins og öðrum skuldum, en þá gerðust þau tíðindi að Baldvin Jónsson leysti víxiiinn til sín og krafðist þess að hann yrði greiddur að fullu. Kvað undirréttur upp dóm honum í vil en síðan fór málið til haesta- réttar. Þegar hér var komið sögu sneri lögfræðingur Ragnars Blöndals h.f., Ólafur Þorgríms- son hæstaréttárlögmaður, sér til sakadómara og fór fram á að hafin væri lögreglurannsókn á hlutdeild Baldvins Jónssonar í okurlánastarfsemi Brands Brynj- ólfssonar og Ragnars Ingólfsson- ar. /' ★ Kynlegir samningar Þjóðviljinn skýrði frá þessum sögulegu atburðum og barst þá bréf frá Baldvini Jónssyni, þar sem hann kvaðst hafa skrifað upp á 100.000 kr. okurvíxilinn „í greiðaskyiý“ við Brand Brynj- ólfsson og „án nokkurrár þókn- unar“. En síðan gerðust hin furðulegustu tíðindi. Baldvin Jónsson var allt í einu reiðubú- inn til að semja um greiðslu á Framhald á 12. síðu. Vesturveldin vilja ekki ræða afvopnun Talin munu hafna kröfu Sovétríkjanna um að afvopnunamefnd SÞ komi saman Sovétríkin hafa farið þess á leit við Vesturveldin, að afvopnunarnefnd Sameinuðu þjóðanna verði kölluð sam- an til að fjalla um skýrslu undirnefndar sinnar, sem lauk störfum í fyrradag-. Un.dirnefndin, sem Sovétrík- in, Bandaríkin, Frakkland, Bretland og Kanada áttu full- trúa í, hefur setið á fundum að undanfömu í New York og haldið þar áfram umræðum sem hófust í London í vor. í undirnefndinni hefur full- trúi Sovétríkjanna fallizt á hin- ar npphaflegu tillögur Vestur- veldanna um afvopnun og hefuv hvað eftir annað spurt fulltrúa þeirra að þvi hvort þeir væru enn fylgjandi siniun eigin til- lögum. Þeim hefur orðið svara- fátt, en lagt megináherzlu á að engin leið væri að koma af- vopnun i framkvæmd og því þýðingarlaust að gera nokkra samþykkt í þá átt fyrr en kom- ið hefði verið á fullkomnu eftir- liti. Sovétríkin hafa jafnan lagt Framhald á 5. síðu HflPPDfifETTI PJÓDUIUHDS Til útsölumanna happ- drættisins úti á landi Vinsamlegast atliugið vel alla sölumöguleika og rejnið að fá sem flesta til að taka miða til sölu. Við höfuni nú þegar af- greitt viðbótarpantamr til all- margra útsölumanna og okkur væri mjög kært að mega senda sem flestum \1ðbót — helzt öll- um. Hafið samband \1ð okkur sem allra fyrst. — Sími 7500.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.