Þjóðviljinn - 16.10.1955, Blaðsíða 3
Sunnudagur 16. októbor 1955 — ÞJÓÐVILJINN ■—* (3
Innismerki um Islendinga sem far-
izt hafa í flugslysum afkjúpað i gær
■ Einar Jónsson gerði minnismerkið sem
stendnr við Fossvogskirkju
Minnisvaröinn sem reistur hefur veri'ð austan við Foss-
vogskapellu til minningar um þá íslendinga er farizt
hafa í flugslysum var afhjúpaður í gærdag við hátíölega
athöfn að viðstöddum forsetahjónunum, fjölmörgum að-
standendum og forystumönnum íslenzkra flugmála.
.Wtm
Áður en minnisvarðinn var af-
hjúpaður fór fram stutt minn-
ingarathöfn í kapellunni. Þar
flutti séra Bjami Jónsson vígslu-
biskup ræðu en blandaður kór
söng á undan og eftir. Síðan var
gengið út að minnisvarðanum og
þar flutti Hákon Guðmundsson
hæstaréttarritari, sem sæti á í
stjóm Flugmálafélags íslands, á-
varp. Honum fórust .orð m. a. á
'þes&a leið:
I
„Islendingar hafa öðrum þjóð-
um fremur tekið tækni flugsins
í þjónustu sína og í dag eru loft-
för orðin samgöngutæki, sem
ungir og gamlir nota að kalla
má daglega. En áður en náð
væri því öryggi í flugsamgöng-
um, og áður en sú reynslu-
þekking var fengin, sem vér í
dag höfum öðlazt, varð ekki hjá
því komizt að brautryðjendur
flugs á íslandi, flugmenn og
farþegar, yrðu oft og einatt að
taka á sig nokkra áhættu, sem
stundum kostaði þá ekki minna
en lífið sjálft.
Flugmálafélag íslands hefur
fyrir sitt leyti viljað stuðla að
því að haldin væri í heiðri minn-
ing þessara karia og kvenna,
sem lögðu svo mikið í sölurnar
og hefur félagið þess vegna átt
þátt i því að hér verður í dag af-
hjúpað minnismerki sem helgað
er minningu þeirra íslendinga
sem látið hafa lifið í loftferðum
og í sambandi við loftferðir.
Minnisverki þetta er gert af
Einari Jónssyni myndhöggvara
og mun vera eitt af síðustu
listaverkum hens. Hafði lista-
maðurinn þegar hann gerði það
í huga sorgaratburð í íslenzkri
flugsögu. Minnismerkið sjálft er
steypt í eir, en fótstallur þess
og bakstuðlar úr grágrýti. Var
því valinn staður hér með sam-
þykki listamannsins, sem rætt
hafði um staðsetningu þess áð-
ur efi hann lézt. Steina í fótstalli
og bakstuðlum hefur Ársæll
Magnússon höggvjð og slípað,
en Maríeinn Gíslason verkstjóri
sá um uppsetningu minnismerk-
Er Hákon haíði lokið máli
sínu afhjúpaði Agnar Kofoed
Hansen flugmálastjóri minnis-
merkið og lagði blómsveig frá
flugmálastjóitninni að fótstalli
þess. Þá flutti séra Bjami Jóns-
son bæn og blessunarorð og kór-
inn söng sálm.
Talsvert á annað þúsund manns hafa nú skoöað sýningu Nínu Sœmundsson í bogasal
Þjóðminjasafnsbyggingarimiar og 16 myndir selzt. Sýningin verður opin þessa viku
daglega frá kl. 13 til 22. — Myndin er frá sýningu Nínu.
Þrip bindi af Þjóðsögum Jéns
Árnasonar kemur ut í næsta mánuii
Áður óprentuð handrit fylla 3 hindi og verða
Þjóðsögurnar allar því í fimm bindum
í næsta mánuði kemur út þriðja bindið af Þjóðsög-
um Jóns Árnasonar. Þegar útgáfan hófst 1 fyrra var gert
ráð fyrir að þau yrðu 4, en nú er fullvist að þau verða 5.
í fyrrahaust komu út tvö bindi
af Þjóðsögum Jóns Árnasonar.
Matvœla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóð-
anna tíu óra í dag
f dag er 10 ára starfs Matvæla- og landbúnaöarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna, sem í daglegu tali er nefnd
FAO-stofnunin, minnzt í öllum þeim löndum er að stofn-
uninni standa, en þau eru nú 71.
FAO-samtökin voru stofn-
uð í Quebec 16. okt. 1945, eii
Loftleiðir fluttu 11030 farþega
fyrstu 9 mánuði ársins
Vetraráætlun félagsins kom til fram-
kvæmda í gær
Vetraráætlun Loftleiða gekk í gildi í gær. Verður í
vetur flogið til sömu staða og í sumar nema hvaö Björgvin
bætist nú í hóp hinna lendingastaöanna.
Flogið verður nú til og frá 8
erlendum borgum: New York,
Stafangri, Bergen, Osló, Gauta-
borg, Kaupmannahöfn, Hamborg
og Lúxemborg. Á hinn bóginn
verða farnar færri ferðir viku-
lega til hinna ýmsu borga sam-
kvæmt vetraráætluninni en gert
var í sumar. í sumar veru reglu-
lega farnar 10 ferðir i viku til
Evrópu og Ameríku fram og aft-
ur, en nú verður þeim fækkað
niður í 6 ferðir fram og aftur
vikulega, 3 til Bandaríkjanna og
3 til meginlands Evrópu. Flogið
verður til Bandaríkjanna héðan
mánudaga, miðvikudaga og laug-
ardaga og komið aftur hingað
heim, þriðjudaga, fimmtudaga
og laugardaga. Til meginlands
Evrópu verður farið á þriðjudög-
um, fimmtudögum og laugardög-
um og frá meginlandinu mánu-
daga, miðvikudaga og Jaugar-
daga.
Þrátt fyrir miklar og stöðugar
hækkanir á reksturskostnaði
heima og erlendis verða fargjöld-
in þau sömu og áður, að öðru
leyti en því að stórkostlegur af-
sláttur verður veittur á fargjaldi
fjölskyldna sem ferðast til
Bandaríkjanna eftir 1. nóvember
eins og áður hefur verið skýrt
frá, og fargjöld einstaklJLnga
héðan fram og aftur til New
York lækka um 730 krónur frá
1. nóvember.
Vetraráætlunin gildir til 1.
apríl 1956.
Þá má geta þess, að frá árs-
byrjim 1955 til septemberloka
í ár, ferðuðust 11.030 með
flugvélum Loftleiða en á sama
tíma i fyrra 8.270, svo aukn-
ingin á þessum tíma nemur
2.310 ferþegum.
(Frá skrifstofu Loftleiða)
áður hafði verið haldinn undir-
búningsfundur í Hot Springs í
Bandaríkjunum í maí 1943.
Rooswelt forseti kvaddi til þess
fundar og mættu þar fulltrú-
ar frá 45 þjóðum. ísland átti
fulltrúa á undirbúningsfundin-
um og einnig á stofnfundinum
og hefur þannig verið aðili að
samtökunum frá upphafi.
Fyrstu árin voru aðalstöðvar
FAO í Washington, en 1951
voru þær fluttar til Rómaborg-
ar. FÁO hefir á umliðnum 10
árum unnið mikið og merki-
legt starf, sem hin öflugasta
leiðbeiningastofnun í heimi um
allt það er varðar landbúnað
og matvælaframleiðslu yfirleitt.
í öllum þátttökuríkjum eru
FAO-nefndir til að gefa aðal-
stofnuninni í Róm upplýsing-
ar og miðla fróðleik frá henni.
íslenzku FAO nefndina skipa
nú:
Árni G. Eylands, stjómarráðs-
fulltrúi, sem formaður, Stein-
grímur Steinþórsson, landbúnað-
arráðherra, Davíð Ólafsson
formaður Fiskifélags íslands,
Júlíus próf. Sigurjónsson og Sig-
urður Hafstað, fulltrúi í utan-
ríkisráðunesdinu, en flest varð-
andi störf nefndarinnar og við-
skipti við FAO fer auðvitað
fram um hendur utanríkisráðu-
nejdisins.
Starf það, sem FAO vinnur
er því miður óþrjótandi, því
að enn á það langt í land að
allar þjóðir búl við þolanlegt
Var í þeim allt er prentað var
í fyrstu úgáfu Þjóðsagnanna, er
komu út í Leipzig 1862—1864.
Útgáfuna í fyrra undirbjuggu
þeir Bjarni Vilhjálmsson magist-
er og Árni Böðvarsson. Fóru þeir
eftir handritunum að sögunum
og eru Þjóðsögurnar í útgáfu
þeirra því að ýmsu leyti nýjar —
þ. e. í sinu upprunalega formi,
þar sem ýmsu var breytt og
nöfnum sleppt í fyrstu úgáf-
unni er kom út í Leipzig.
Þeim Jóni Árnasyni og Magn-
úsi Grímssyni barst óhemju
magn af sögum og varð því að
sleppa miklu þegar fyrsta út-
gáfan fór í prentun, en auk
þess bárust margar sögur síðar.
Handritin að þessum sögum hafa
geymzt í Þjóðskjalasafninu. I
það safn hafa ýmsir gengið, sem
verið hafa að gefa út þjóðsögur
á undanförnum árum.
Þegar Þjóðsaga hóf hina nýju
útgáfu sína í fyrra var talið að
handritin sem eigi hafa verið
prentuð áður myndu fylla tvö
bindi. Nú hefur hinsvegar komið
í ljós að sögurnar er ekki hafa
verið prentaðar eru fleiri en svo
að það verði hægt og verða bind-
in því alls 5. Þeir Bjami Vil-
hjálmsson og Ámi Böðvarsson
hafa unnið áfram að þessari
útgáfu, og kemur næsta bindi
út seint í nóvember. Verður það
á allan hátt eins í formi og
bindin tvö er út komu í fyrra.
Þjóðsögur Jóns Árnasonar
hafa ætíð verið eitt vinsælasta
lesefni þjóðarinnar. Það varð
því almennt gleðiefni þegar liin
nýja vandaða útgáfa þeirra var
hafin. Þjóðsögurnar em mikið
lesefni — annað þeirra binda
sem út er komið er 590 en hitt
700 blaðsíður í stóru broti — út-
gáfan vönduð og bækumar því
óhjákvæmilega dýrar. Því var
horfið að því ráði í fyrra að
safna áskrifendum og selja Þjóð-
sögurnar með afborgunarfyrir-
komulagi. Verður sá háttur hafö-
ur á um alla útgáfuna. Tekið er
á móti áskrifendum í Prent-
smiðjunni Leiftri.
Nýi Laxfoss i
flotsettur
Eins og kunnugt er hefur skits
verið í smíðum i Marsdal í Don-
mörku í staðinn fyrir Laxfoss til
ferða milli Borgarness og
Reykjavíkur. Smíði er nú það
langt komið að skipið verður
sett á flot 28. okt. n.k. en búizt
er við að það komi hingað heim
fyrri hluta næsta árs.
NIDURSUÐU
VÖRUR
viðurværi, hvað þá gnægð mat-
ar, en hvert spor sem stigið er
til umbóta í því máli er spor
í áttina til friðar í heiminum.
fslenzka ríkisútvarpið minn-
ist starfsemi FAO í kvöld á þann
hátt, að landbúnaðarráðherra
flytur ávarp og formaður ís-
lenzku FAO-nefndarinnar erindi
um starfsemina.
Síðar
nærbuxur
Verö kr. 24.50
T0LED0
Fischersundi.
■inmmHimiiiiMiuimiHi
LIGGUR LEIÐIN