Þjóðviljinn - 16.10.1955, Síða 7

Þjóðviljinn - 16.10.1955, Síða 7
■ "! • v'T'rT1'" Sunnudagur 16. október 1955 — ÞJÓÐVTLJINN 7 HH) unga kínverska al- þýðulýðveldi á harla annríkt. Þjóðarvakn- ingin fer ljósum logum um allt hið víðáttumikla riki, þau öfl er áður sváfu eða voru sundruð stefna til sí- vaxandi einingar, einbeiting fólksins að óþrjótandi við- fangsefnum gegnir hreinni furðu. Menningarlegar andstæður hins gamla þjóðfélags voru af- ar djúptækar: annarsvegar fom og rótgróin hámenning, hinsvegar ólæs og örsnauður milljónamúgur. Enda þótt undirokun og niðurlæging al- þýðunnar væri með fádæmum, virðist þekkingarþorsti henn- ar, hugkvæmni og eðlisbund- in listhneigð eiga sér lítil tak- mörk, þegar hún loksins er vöknuð til fullrar sjálfsvit- uhdar. Meginhluti hinnar kúguðu alþýðu var bændalýður. Nú er það sígild reynsla að varla er unnt að þjarma svo að fólki er samlífs á kost við sjálfa náttúruna að það glati með öllu fegurðarskyni sínu, enda hefur sú raunin á orðið í kínverskum sveitum. Eins og víða annarstaðar hefur list- þráin leitað sér þar útrásar í söngstef jum einum eða dansi þegar einskis annars var völ. Og varla sést þar svo aumur leirkofi eða stráa að eigi beri svip hins þokkafulla hand- bragðs sem er svo eiginlegt þessari iðjusömu þjóð. í borgunum og umhverfum aðalssðtranna gegndi nokkuð öðru máli gn í sveitunum. Þar hl.aut. ýeruíegur hluti al- þýðunnar að komast í nán- ari snertingu við menninguna og verða jafnvel i mörgum tilfellum beinn gerandi henn- ar. Það voru sem sé ekki keisaramir né lénsherramir sjálfir sem mótuðu þau meist- araverk í húsagerð og handið- um sem enn í dag prýða set- ur þeirra og garða, heldur oftast umkomulitlir eða jafn- vel ánauðugir handverksmenn. Hver kynslóð öreigalýðsins af annarri kunni þannig að smiða hina fegurstu gripi úr eðal- steinum, góðmálmum, postu- lini, fílabeini, lakki, kjörviði, silki og öðrum dýrindis efn- um — að vísu til yndis og þjónkunar kúgumm sínum, en þó sjálfum sér til óhjákvæmi- legs menningarauka um leið. Allar tegundir alþýðulistar er nú verið að vekja til nýs lífs austur þar, jafnframt því Jóhannes úr Kötlum: MeonÍDAArskil í Híntt sem hinar fomu listir há- stéttanna, eins og leiklist, ljóðlist og málaralist, em teknar til nákvæmrar yfirveg- unar og endurskoðunar. Hin fræga kínverska ópera, sem á uppmna sinn að rekja allt aftur til sjöundu aldar, er að vísu harla ólík hinum sígilda söngleik vestrænna þjóða, en felur eigi að síður í sér mjög háþróaða tækni, ekki sízt í ákveðnum tegund- um raddbeitingar og lát- bragðs. En Pekingóperan stirðnaði brátt í einangmn keisarahallarinnar og hug- myndakerfi lénsvaldsins og varð að lokum steinmnnið form, firrt öllu raunverulegu mannlífi. Stórum meiri tengsl- um við fólkið hélt hin svo- kallaða „sveitaópera" sem iðk- uð var utan höfuðborgarinn- ar, enda hefur einlcum verið til hennar leitað um fordæmi að þeim nýju söngleikjum er samdir hafa verið eftir lýð- frelsunina, eins og t.d. Grá- hærðu stúlkunni. En fjöldi fólks vinnur nú að endurfæð- ingu óperannar 1 samræmi við anda og nauðsyn hins nýja þjóðfélags, allt ofan frá heimsþekktum meistumm leik- sviðsins, slíkum sem Mei Lan- fang, niður í áhugasama al- þýðuleikhópa hér og þar úti um byggðir landsins. Svipaða sögu er að segja af þeim tveim öðrum listgrein- um er hæst bar í fomkín- verskri hámenningu og vom alla tíð nátengdar hvor ann- arri, nefnilega ljóðlistinni og málaralistinni. Á sínu hæsta stigi var fegurð hins klass- iska smáljóðs slík að senni- lega hefur . lýrísk tjáning sjaldan náð meiri fullkomnun. Þessi fínu, unaðsriku blæ- brigði ná þó eðlilega betur til framandi skynjunar í hinum náskylda förunaut kínverska ljóðsins, málverkinu eða teikningunni. í rauninni er myndin hér ekkert annað en ljóð í litum eða formi og svo rík vom tengslin mOli þess- ——........................... FLUTT A FCNDÍ I KIM Teikningar eftir Bidstrup ara systurlista að vart getur þá mynd að eigi sé á • hana ritað 1 jóð með hfrru yndislega táknletri Kínverja sem jafn- an hefur verið talið til fag- urra lista þar í landi. Hæst blómguðust þessar listir á dögum keisaraættanna Tang og Súng, eða um svipað lejhi og óperan, og örlög þeirra urðu hin sömu. Þegar kom fram á þrettándu öld tóku þær að glata frjómagni sínu í hinu afturhaldssama andrúmslofti hástéttanna, unz allur blær þeirra tók að minna á einskonar blóðlaust vofulíf sem að visu gat verið gætt heillandi fölva, en án allrar snertingar yið þjáningar og þrár hins stríðandi lýðs. En í þessum fornu brann- um leita nú hinir ungu lista- menn sér uppörvunar og fyr- irmynda með þvi að reyna að laða formsnilli þeirra til samstillingar við hin nýju al- þýðlegu viðhorf. Hinar sígildu bókmenntir Kínverja á keisaratímunum vom, auk ljóðanna, einkum ýmis uppbyggileg rit siðræns og trúarlegs eðlis, svo sem Helgiritin níu sem kennd eru við Kúng-tse, Bókin um veg- inn sem kennd er við Laó-tse og fjölmörg önnur svipaðs eðlis. Aftur á móti varð skáld- sagnagerð i rauninni aldrei viðurkennd sem listgrein á tímum lénsvaldsins, enda þótt ýmsir iðkuðu hana, í dular- gervi, jafnvel menn af aðals- ættum, og þá venjulega af meira raunsæi en hinum vísu feðmm þótti góðu hófi gegna. Vestrænt skáldsagnasnið náði engri fótfestu þar eystra fyrr en á þessari öld og þá einkum eftir borgarabyltinguna 1911. Strax í lok annars áratugs aldarinnar tók svo október- byltingin rússrieska að setja svip sinn á kínverskar bók- menntir. Hinn 4. maí 1919 var haldinn mikill stúdentafund- ur í Peking sem markaði al- ger tímamót með þeirri stór- brotnu baráttustefnuskrá gegn lénsdrottnum og heimsvalda- stefnu sem þar var mótuð og samþykkt. Með þeim fundi var hafin af fullum krafti byltingasinnuð bókmennta- stefna. í íandinu. Einn af aðalmönnum Fjórða- maíhreyfingarinnar og höfuð- spámaður hinnar nýju stefnu var rithöfundurinn Lú Shún. Er hann talinn svipaður leið- togi kínverskra nýbókmennta og Maxim Gorkí var hinum rússnesku. Auk fjölda fmm- samdra sagna og ritgerða um hin margvíslegustu efni, þýddi hann fjölda erlendra skáld- rita og gaf út ýmis innlend sagnarit og þjóðfræða. Brýnasta viðfangsefni þess- arar bókmenntabyltingar, sem í rauninni var bein hliðstæða við tilkomu og þróun kín- verska kommúnistaflpkksins, var að leysa ritniálið úr hin- um klassísku viðjum fornbók- menntanna ogendurskapa það við alþýðuhæfi, jafnt að formi sem innihaldi. Ritmál þetta, sem að vísu hafði verið bók- fest af vömm lifandi fólks fyrir tuttiigu öldum, var löngu orðið dauð tunga — nokkurskonar einkatæki fá- mennrar klíku skriftlærðra og æðstupresta hinna „hreinu“ mennta og lista. Lú Shún og samherjar hans gerðu allt er þeir máttu til að útbreiða hið nýja alþýð- lega ritmál sitt, pæhúa, en lögðu jafnframt mikla stund á að sía það úr fornmálinu er auðskildast var og lífvæn- legast og gefa þannig þessum nýja hugsanamiðli fólksins lit uppmna síns og arfleifðar. Hefur siðan sú verið megin- stefna allra alþýðubókmennta kínverskra. Fjórðamaíhreyf- ingin hóf nýjan áfanga með stofnun Félags byltingasinn- aðra rithöfunda í Sjanghæ árið 1930. Segja má þó að hinn fræðilegi gmndvöllur að samstarfi listamanna og al- þýðu hafi fj-rst verið lagður á rithöfundaþinginu í Jenan árið 1942, en þar hélt Maó Tse-túng tvær ákvarðandi ræður um það efni. Hitt má svo öllum vera ljóst að hiftiT jákvæði tilgangur Lú Shúft og bókmenntabyltingarinm^' gat ekki notið sín að fullu og öliu fyrr en eftir lýðfrelsun- ina árið 1949. Á ferðalagi okkar um hið” nýja Kína á haustdögum 1952-.. áttum við Þórbergur Þórðar- son tal við marga kínverslía höfunda og skáld og bar þar hvarvetna að sama brunni: hlutverk þeirra er ekki stétt- bundin blekkingalist eða. mark- lítið föndur fagurkerans, það- ( an af- síður háspekilegt böl-n: ' sýnisþmgl, heldur lifandi sam- starf við alþýðuna, hinn vinn- andi fjölda — jákvæð hlut- deild í þekkingarleit hans og menningarsmíð. Það er ekki nóg með að viðurkenndir lista- , menn taki beinan þátt í dag- legu lífi fólksins, jafnt bænda sem verkamanna og her- manna, heldur hvetja þeir þessa aðila til sjálfstæðra til- rauna í listsköpun og hjálpa þeim til við þær eftir beztu getu. Af þessu hefur sprottið svo öflug hreyfing um gervallt. kínverska alþýðulýðveldið að segja má að sumt fólk'^ stökkvi þar beint úr ólæs- ;. inu yfir í listina. ’-nT I dag lifum vér á tímurft alþýðunnar, segir Kvo Mó-jó." einn af fremstu nútimahöf- undum og menningarfrömuð-: >; um Kínverja. Þær bókmenntir og listir sem vér njótum hljóta af sjálfu sér að vera- bókmenntir og listir fóiksins. Þær hljóta að gmndvallast á áhuga fólksins og vera alþýð- legar og raunhæfar, þjóðlegar og alþjóðlegar í senn. Inntak hinnar nýju listar vorrar er raunsæi, segir Maó Tún, annar frægur rithöfunö- ur. Vér erum andvígir flökti og hleypidómum. Vér erum andvígir því að ýkja smá- munina og ganga framlijá kjarna málsins. Vér erum andvígir skrumi og fja.rstæð- um. Vér erum andvígir þeirri skammsýni sem miðar allt við líðandi stund og kann ekki að áætla fyrir morgun- daginn. Vér erum andvígir hlutlausri kaldhyggju. Vér á- stundum gagnrýni í nafni fólksins, fyrir fólkið — af hálfu fólksins. 3 Skilin milli fornmenningar og nýmenningar í Kína eru víða svo skörp að ýmist er maður staddur í fjömtíu alda gömlum aðstæðum eða á fremsta hlunni nútímatækni. Fimm hundruð milljóna þjóð Framhald á 10. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.