Þjóðviljinn - 06.11.1955, Side 4

Þjóðviljinn - 06.11.1955, Side 4
ÍHiÍklÍífellkllÍHMiiliUtaitlttll 4) — ÞJÓÐVILJINN — Siuxnudagur 6. nóvember 1955 - iærri sIys Márgir spottar á þjóðvega- aeti okkar eru nú orðnir svo fjölíarnir (t. d. spottinn frá Reykjavík suður á nes), að íull ástæða er til að athuga hvort ekki séu tök á að lýsa þá þegar myrkur er. Það er enginn vafi á að með því mætti koma í veg fyrir mörg slys. Og náttúrlega nær það ekki nokkurri átt að í sjálfri höfuðborginni skuli götulýsing víða vera engin eða svo til engin og eru ekki nema nokkr- ir dagar síðan slys varð af þeim sökum. Það er náttúrlega nauðsyn- legt að halda áfram að brýna fyrir ökumönnum að fára var- lega, athuga betur sinn gang, aka hægar og kunna að beita Ijósunum, en slíkar áminningar, jafn’vel þótt þær beri árangur, geta komið fyrir ekki á vegum sem- ekki eru upplýstir. Hvað oft kemur það fýrir að öku- menn fá ófbirtu í augun af ljósum bíla sem á móti komá og afleiðingin er þá oft að þeir missa alla stjórn bilnum og það getur orðið bæði þeim og öðrum að fjör- tjóni. Slíkt á ekki að þurfa að koma fyrir þar sem 'götulýs- ingin er og hún er í fullkorhnu lagi. — Akið mér á fæðingardeild- ina, sagði lagleg ung stúlka við - leigubílstjórann, og bætti við: En þér þurfið ekki að flýta yð- ur, ég vinn þar. „Sá maður sem getur kýsst fallega stúlku þegar hann sfýr- ir bíl sýnir stúlkunni ekki þann áhuga sem hún á skilið".. (Um- ferðarskilti í Alaska í Banda- ríkjunum). | Þar sem ekki er hœgt að koma við lysingu og pað á við | um mestallt þjóðvegakerfið hér á landi er nauðsynlegt að j hafja endurkastandi vegamerki eins og pau sem hér sjást ] á myndinni. Þau geta forðað mörgum slysum. Engum er hœttara á illa lýstum eða ólýstum vegum en fótgangandi mönnum eins og dœmin sanna. Öku- mdðurinn kemur ekki auga á þá fyrr en á síðustu stundu og pá er það stund- um um seinan. Þýzkir bílafram- leiðendur draga saman seglin Hin sívaxandi framleiðsla á bílum í Vestur-Evrópu virðist ný vera að staðna. Brezki bíla- iðnaðurinn á í miklum erfið- leikum, ekki sízt vegna þess að hann hefur orðið fyrir barð- inu á samkeppni vesturþýzkra bílaframleiðenda, en nú virðist sem röðin sé komin að þeim. Borgward-verksmiðjurnar og Goliath-verksmiðjurnar í Brem- en hafa minnkað framleiðslu sína, Borgvvard um 12% og Goliath um 20%. Borgward verksmiðjurnar hafa sagt upp 2Í0001 af 8.500 verkamönnum sínum og Goliath 485 af 3.000. Betri vegalýsing Rússneskar bifreiðar til aigreiðslu með næstu skipsfezð: Föntunum veitt móttaka Bifreiðar & landbúnaðarvéiar h/f M0SKVITCH P0BEDA ZIM Ægisgötu 10 — Símar 82868 og 1744 I r j Breyfingar gerðar á hinni frœgu Monte Carlo keppni Monte Cario áksturskepphin er sú frægasta sem háð er .þ>essi keppni er háð einu sinni á ári og taka þátt í henni hundruð ökumanna frá ýmsum löndurn. Keppendurnir leggja af stað frá mörgum stöðum, en allir hafa þeir Monte Carlo að marki. Gefin eru ákveðin stig eftir frammistöðunni á hverri vega- lengd og þau lögð saman og borin saman eftir vissum regl- um til að finna þann sem bezt hefur unnið til verðlaunanna. Ekið er í fólksbifreiðum af öll- um hugsanlegum gerðum og eru tveir ökumenn í hverjum bíl. Næsta Monte Carlo keppni hefst 15. janúar n.k. og verður hún með nokkuð öðrum hætti en áður. T. d er vegalengdin sem keppendur verða að fara aukin um 1.000 km. og verða því lagðir niður margir þeir staðir 'sem keppendur hafa hingað til lagt upp í keppnina frá. þannig munu norskir keppendur nú t. d. leggja af stað frá Stafangri í stað Oslóar. Meðal annarra staða sem keppnin hefst í má nefna Stokkhólm, Aþenu, Glasgow, Lissabon og Múnchen og hafa þeira allir verið notaðir áður. Að lokinni hinni eiginlegu keppni er venjan að hafa aðra sem sker úr um verðleika þeirra sem jafnbeztir eru. Sú keppni hefur hingað til verið haldin í Monaeo og grennd en verður nú á þjóðveginum milli Parísar og Monaco. Bílunum verður í framtíðinni skipt í fjóra flokka: undir 750 rúmsm. undir 1.350 rúmsm., undir 2 lítrum og yfir 2 lítrum. Alþjóðakeppni í bifhjólaakstri Á ári hverju er haldin alpjóðalceppni í þolakstri á bifhjól- um. Keppnin stendur i sex daga og er mikil polraun bœði fyrir vélar og menn. í haust var hún haldin í Tékkóslóv- akíu og tóku þátt 242 keppendur frá mörgum löndum. Hér sjást prír keppendur: (talið að framan) Vladimir Sedina, Tékkóslóvákíu, á Jawa 250, Westphal, Vestur- Þýzkálandi, á NSU 247 og den Haan, Hollandi, á Puch 250. Önnur mynd úr sömu keppni; Brien Arthur Nash, Eng■ landi, á Royal Enfield 692 með hliðarvagni á leið upp bratta brekku.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.