Þjóðviljinn - 16.12.1955, Side 6

Þjóðviljinn - 16.12.1955, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 16. desember 1955 IJtgefandi: Sameiningarflckkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn — ■-------------------------------/ Sögulegur atburður Það eru mikil tíðindi og góð að allir andstöðuflokkar íhalds- ins í Reykjavík báru í gær fram sameiginlega, í allsherjarsam- vinnu, breytingartillögur sínar við fjárhagsáætlun Sjálfstæðis- flokksins á aðalfundi bæjar- stjórnarinnar. Slík samvinna hefur ekki tekizt fyrr og hún mun vekja ánægju allra íhalds- andstæðinga; þakkar Sósíalista- flokkurinn fulltrúum sínum í bæjarstjórn sérstaklega þann góða þátt sem þeir áttu í því að samvinna tókst. Samvinnan er þó ekki alger; fulltrúi hægriklíkunnar í Al- þýðuflokknum, Magnús Ást- marsson, viidi ekki taka þátt í að flytja einnig ályktunartillög- urnar sameiginlega; hann sagðist verða að hafa einhverja sér- stöðu!! Afleiðingin varð sú að hann stóð uppi einn og einangr- aður og áhrifalaus, á sama hátt cg Þórður hreppstjóri í kosning- Unum í Kópavogi. Það hefur löngum verið skæð- asta áróðursvopn íhaldsins í bæjarstjórnarkosningum að lýsa yfir því að ef það missti meiri- hluta sinn tæki við alger glund- roði. Andstöðuflokkar íhaldsins hafa löngum sjálfir yddað þetta vopn með því að leyía valdhöf- unum að deila og drottna, koma fram hver í sínu lagi og- hafa jafnvel ekki samvinnu um sjálf- sögðustu atriði. Hefur íhaldið sérstaklega beitt kommúnfsta- grýlunni í þessu skjmi og oft rneð fullum árangri. Og síðan hefur það bent á andstæðinga sina og sagt: Þama sjáið þið, þeir geta ekki unnið saman, það er tilgangslaust að kjósa þá. Sú samvinna sem nú hefur tekizt í bæjarstjórninni er þess- vegna sögulegur viðburður, og eí haldið verður áfram á sömu braut á ráðsmennsku íhaldsins í höfuðborginni að vera lokið. I- haldið er í minnihluta meðal kjósenda í Reykjavík og hefur verið það um alllangt skeið; þess vegna eru tillögur and- siöðuflokkanna jafnframt vilji meirihluta bæjarbúa, og ef fylgt væri lýðræðisreglum væri ekki unnt að standa gegn þeim. En auÖvitað skiptir íhaldið sér ekki aí neinu slíku, það mun halda áfram að drottna með eiriræðis- valdi meðan það á þess nokkurn kost — og þann kost verður að laka af því með sameiginlegu átaki. Samvinna sú sem nú hefur tekizt í bæjarstjórn Reykjavíkur er fordæmi fyrir íhaldsandstæð- inga um land ailt; hún er í sam- ræmi við hagsmuni og vilja vinnandi fólks, hún vísar leið- ina til sigurs. Einmitt á þenn- an hátt ber vinstri flokkunum að starfa á Alþingi íslendinga, og þar hafa þeir meira að segja liðstyrk til að mynda vinstri Stjóm, ef viljinn væri í sam- í&semi við fylgið. Dœmasafsi með úrlausnum effir Lárus Bjarnason Nýlega er komin út nýstár- leg bók eftir hinn þjóðkunna skólamann Lárus Bjarnason fyrrv. skólastjóra. Þótt Lárus sé kominn hátt á áttræðisald- ur, ber áhugi hans á stærð- fræðikennslu og stærðfræði- iðkunum ekki á sér nein ellimörk, enda hygg ég, að lengi mætti leita að hans líka að því leyti. Það er líkt um tröllatryggð hans við þessi fræði og umhyggju hans fyrir velfarnaði nem- enda sinna. Hvort tveggja hefur jafnan verið með ein- dæmum. Það ástfóstur, sem Lárus tók við þessa fræðigrein, á sér dálítið sérstæðan uppruna, sem ég hygg, að mætti að ó- sekju verða æskumönnum til eftirbreytni. Hann segir svo frá sjálfur, að á fyrstu náms- árunum hafi honum fundizt fæmi sín í stærðfræði ekki standast samanburð við frammistöðuna í öðrum grein- um. Ekki skal það sannast, að ég hafi svo merka fræði- grein að neinu olnbogabarni, hugsar hann. Hér er einmitt sá rétti vettvangur mikilla átaka. Og hann náði réttu tökunum og sleppti þeim aldrei síðan. Bók sú, er Lárus sendir nú frá sér, ber svo skýran svip höfundar síns, að enginn, sem til þekkir, gæti um villzt. Margir munu eflaust hyggja, að stærðfræðibækur beri öðr- um bókum síður svip höfund- ar síns, og má vera, að svo sé stundum, en þá er þessi bók undantekning. Þarna hefur höfundur safn- að saman fyrst og fremst úr- vali úr þeim mörgu hnittnu dæmum, sem hann hefur lagt fyrir nemendur sína, og munu margir þeirra því geta fund- ið þar gamla kunningja frá námsárunum og ef til vill með leiðsögu þeirra geta rakið sum þau spor um lönd minn- inganna, sem þeir liugðu löngu fennt í. Höfundur birtir hér auk þess allmörg önnur dæmi, einkum prófdæmi. Ef ungu skólafólki er forvitni á að sjá, hvaða verkefni hafa ver- ið lögð fyrir foreldra þeirra í æsku, mun oft vera hægt að finna það í bók Lárusar. Hún getur því haft minning- argildi fyrir yngri sem eldri. Það, sem gerir bókina þó fyrst og fremst nýstárlega, eru lausnirnar, en þær fylgja hverju dæmi og eru valdar Lárus sextugur og settar fram af þeirri alúð og vandvirkni, sem höfundur er kunnur að. Flestar eru úr- lausnirnar eftir höfund sjálf- an, en sumar eftir aðra nafn- greinda menn. Seinast í bók- inni eru ljósprentuð allmörg dæmi með úrlausnum, skrifuð af höfundi sjálfum. Hverjum mundi til hugar koma, sem sér allan frágang á þessum dæmum, að þau séu skrifuð af manni, sem er kominn hátt á áttræðisaldur, blindur á öðru auga og ekki með fulla sjón á hinu. Hvað mundi þá um skrift og frá- gang höfundar, meðan hann hafði fulla sjón? Oft er frágangi nemenda á skriflegum úrlausnum ábóta- vant. Hér getur ao líta for- dæmi, sem vert er að taka til eftirbreytni. Ekki tel ég neinum vafa bundið, að þessi bók getur orðið mörgum nemanda miltil- væg stoð við nám, jafnt skólanám sem sjálfsnám, og vegna hinna persónulegu tengsla við hina mörgu nem- endur höfundar og hinna smekklegu handskrifuðu kafla verður hún áreiðanlega mörg- um kærkomin jólagjöf. Við nemendur þínir þökkum þér fyrir bókina, Lárus. Sigurkarl Stefánsson. NÝIUNG! Uppleysir fyrir þrykkimyndir svo liægt er að skipta um myndir, skemmir ekki málninguna. SKILTA6EBÐIN Skólavörðustíg 8 HúsmœSraféleg I Reykiovskur ! ■ Jólafundur félagsins verður haldinn föstudag- I inn 16. þ.m. kl. 8 í Borgartúni 7. Frk. Vilborg Bjömsdóttir, húsmaeörakennari, : sýnir húsmæörum ýmis konar nýjungar í mat, ! bakstri og jólasælgæti. — Allt ókeypis. — Allar | kontu’ velkomnar. Þegar þeir mæta og þegar þeir mæta ekki Við stofnun lýðveldis á ís- landi 1944 lýstum við yfir ævarandi hlutleysi í hemaði. Fáum árum síðar telur meirihluti alþingis sjálfsagt að ganga í hernaðarbandalag og ljá eiganda atomsprengjunnar flugvöll og flotastöð til af- nota fyrir her sinn. Vopnavaidið var nú orðið lielzta haldreipi hins unga lýð- veldis — erlent vopnavald. Þegar háttsettir herforingj- ar eru hér á ferð, eða tylla sér aðeins á íslenzka grund, er hvert tækifæri notað til þess að votta þeim virðingu og trúa þjónustu, þá er rik- isstjóm íslands ávallt reiðu- búin að hylla tákn hins er- lenda valds. Þegar Halldór Kiljan Lax- ness kemur heim með Gull- fossi, eftir að sænska aka- demían hafði kjörið hann verðugasta viðtakanda bók- menntaverðlauna Nóbels þessa árs, var honum fagnað innilega af alþýðufólki og listamönnum, fyrir að hafa varpað lióma á bókmenntir þjóðarinnar að fornu og nýju, fyrir að hafa bmgðið björtu ljósi yfir menningu þjóðar okkar og stækkað hana í aug- run umheimsins. Þá mætti enginn opinher fulltrúi frá alþingi né ríkis- stjórn, til að fagna honum og þakka. Hér var heldur enginn fulltrúi hervalds á ferð held- ur vinur og bróðir alþýðunn- ar, andlegur afreksmaður, að koma heim. Þegar íslendingi eru afhent bókmenntaverðlaun Nóbele í fyrsta sinni í sögu þjóðarinn- ar er forseta alþingis og menntamálaráðherra boðið að vera viðstaddir hina hátíð- legu athöfn. Ekki gátu þeir verið við- staddir þá athöfn. Þegar boðað er til funda í hinum ýmsu ráðum er snerta hernaðarmál, þar sem Islend- ingar eiga rétt til setu, þá virðast ástæður vera hag- stæðari til að mæta. Hve lengi ætlar þú, íslenzk alþýða og bændastétt, að líða hinum íslenzku leppum hins erlenda vopnavalds að fara með menningar- og atvinnu- mál þín? ' K. G. MinningarorS Guðrún Jónsdóttir frá Þor- rnóðsdal i Mosfellssveit, er andaðist að elliheimilinu Sól- vangi í Hafnarfirði 12. þ. m. var fædd að Búrfelli í Gríms- nesi 6. desember 1874. For- eldrar: Ingveldur Gísladóttir, hreppstjóra á Kröggólfsstöð- um í Ölfusi og Jón Bjarna- son frá Auðsholti í sömu sveit. Guðrún ólst upp í foreldra- húsum ásamt systkinum sín- um þeim Bjama, Gísla, Ing- veldi, Guðjóni og Ágústínu. Um tvítugsaldur fór Guð- rún í Kvennaskólann í Rvík, sem Þóra Melsted veitti þá forstöðu. Var hún ein með þeim fyrstu, sem útskrifaðist úr þeim skóla. Um aldamótin reistu þau Guðrún og Ölafur Þorsteins- son bú að Þormóðsdal. Þau eignuðust þrjú börn, sem öll dóu í æsku. Þegar ég sem barn fluttist austan yfir Fjall til Guðrún- ar föðursystur minnar að Þormóðsdal, sá ég glöggt, að þar var allt með hinum mesta myndarbrag, húsakynni ó- venju glæsileg á þeim tíma, matargerð framúrskarandi og með nokkuð nýstárlegum hætti. Dagfar húsmóðurinnar var mjög alúðlegt og viðfeldið og fyrirskipanir hennar séttar fram af kurteisi og góðvild. Guðrún var rösklega meðal- kona að hæð, fríð sýnum og glæsileg í framgöngu. Guð- rún átti ávallt góða reiðhesta og hafði mikla ánægju af þeim, og er mér það í barns- minni er ég eitt sinn horfði á eftir henni á hestbaki, ásamt nágrannakonu hennar, Val- gerði frá Miðdal, að mér fannst að þær mundu vera með glæsilegustu konum sveit- arinnar. Guðrún fluttist til Reykja- víkur um 1918 og nokkru síð- ar hóf hún að reka greiða- sölu að Laugavegi 19, og mun hafa stundað það á ann- an tug ára. Þegar móðir hennar var komin á efri ár, tók Guðrún hana til sín, enda var mjög kært með þeim mæðgum. Þær bjuggu saman í Þing- holtsstræti 28 í húsi Hólmfríð- ar Gísladóttur, sem rak Hús- stjórnarskóla Reykjavíkur, og mun Guðrún þar hafa notið góðs af fyrri kynnum sínum við Hólmfriði, þegar þær voru skólasystur í Kvennaskóla R- víkur. I hárri elli fór Guðrún á elliheimilið Sólvang í Hafnar- firði og dvaldi þar til æviloka, eða um tveggja ára bil. Með þessum fáu orðum vil ég kveðja föðursystur mina og votta henni þakkir fyrir hlýhug hennar og prúð- mennsku. Sigurður BjarnaB»».

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.