Þjóðviljinn - 10.02.1956, Page 4

Þjóðviljinn - 10.02.1956, Page 4
 4) _ ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 10. febrúar 1956 Þáttur um reíina og réíinn — Að þekkja refinn írá hjörðinni — Refur í búri og refur utan búrs EVIPALL SKRIFAR: Ég hef víst verið mjög ungur, þegar ég heyrði fyrst talað um refi. — Og var það kannski ekkert undarlegt í þá daga, þótt menn töluðu um rebba, því hann var þá mikill vágest- ur í sauðahjörð margra manna, þar um slóðir. — Og varla mun sá maður hafa fundizt, sem kominn var til vits og ára, að hann þekkti ekki refinn frá hjörðinni. — En nú virðist þetta eitthvað orðið breytt, eins og fleira á þessum véla- og hraða-tímum, sem við lifum á. — Þó virðast refirnir lifa góðu lífi enn þá, þrátt- fyi'ir tækni mannanna, og gott ef þeir hafa ekki færzt í aukana.----Og eðli þeirra og innræti er eitt- hvað svipað því sem áður var. — En nú bregður svo kynlega við, á þessum skóla- og bóka- tímum, að mönnunum hefur farið svo aftur, að nú eru þeir hættir að þekkja refinn frá hjörðinni. Og þá fer nú að fara í verra, eins og maðurinn sagði, því aldrei hefur rebbi tekið annan eins skatt af bústofni manna og nú. Og virðist fara ört vaxandi. —- Og er því öll- um augljóst að refurinn, dýr- ið, hefur leikið á manninn. Og þá er varla von á góðu. — Svo er refurinn siunginn, að þeir sem bezt vita segja, að hann íklæðist alls konar dular- gervum og gangi jafnvel prúð- búinn meðal mannanna. Og' ein- hverjir hafa látið þau orð falla, sem hafa óskerta sjón, að hann hafi sézt í hópi verkamanna og iitið þar út nákvæmlega eins og þeir, að öðru leyti en því, að ef vel var að gáð, þá sást á skottið niður undan verka- mannastakknum. Og stundum þegar veiðin gekk vel hjá rebba, þá dillaði skottið und- ir gervinu. — Það gerast marg- ir undarlegir hlutir nú á tím- um. Áður veiddu menn refi, nú veiða refir menn.--------En þessir nýju refir kallast einu nafni silfurrefir og eru mjög eftii-sóttir. Svo segja sumir, að gullrefir séu líka til, en ég trúi því svona niátuiega. — En fátt er það sem fortaka má — eins og máltækið segir. — Þetta var þátturinn um ref- ina og refitin. Svipall. VIÐ ÞENNAN þátt um refina vill Bæjarpósturinn bæta eftir- farandi: Þegar refurinn hafði tekið toll af sauðahjörð bænd- anna í nokkrar aldir, skaut þeirri hugmynd upp í kolli vit- urra manna að fara að rækta refi. Ný atvinnugrein reis upp, og hét sú refarækt, eða Loð- dýrarækt. En mönnunum .gekk enn sem fyrr illa að sjá við klókindum refsins, hann slapp öðru hvoru út úr þeim búrum, sem hann var geymdur í. Þó kastaði fyrst tólfunum, þegar minkurinn kom til landsins. Hann slapp -svo unnvörpum úr búrum sínum, að eftir nokk- ur ár var villiminkur orðinn hin versta plága, enda lét al- þingi þá málið til sín taka. Sumir munu vilja halda því fram, að það sé rétt undan- tekning, að refur sleppi út úr búri sínu, og er mikið til í því. Sömuleiðis er það rétt undantekning, ef refur, í hinni yfirfærðu merkingu, er settur í búr, enda gengur mönnum, eins, og Svipall réttilega segir, ákaf- lega illa að koma auga á hann. Tilkynning frá Sjómannaíélagi Reykjavíkur Atkvæðagreiðsla fer fram um kjarasamninga bátasjómanna og fiskverðssamning, á skrifstofu félagsins föstudaginn 10. þ.m. og Iaugardaginn 11. þ.m. frá kl. 3—10 báða dagana, Atkvæði greiði aðeins bátasjómenn, sem eni í | sjómannafélaginu. Stjórnin UT$AL3 Ný sending aí kvenkápum kemur á útsöluna í dag MIKIÐ ÚRVAL — VERÐ FRA KR. 295 .«ol Verziunln ERO Halnarsi. flokksskóli jSósíolistAflokksins Kennsla í Flokksskóla Sósíalistajlokksins hefst kl. 8.30 í kvöld. Kennt verður í Tjamargötu 20, á hverju föstudagskvöldi. f r ■------------------- 1. Sósíalistaílokkurínn — steína og í NÁMSGREINAR: siaifshættir. 2. Politísk hagfræði. I k___;__________________________________J Félagar í Sósíalistaflokknum og Æskulýðsfylkingunni geta innritað sig á skrifstofu Sósíalistafélags Reykjavíkur, Tjamargötu 20. s •: ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■>■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■ Höfum flutt skrifstofu okkar að Laugavegi 31 Eirí'kur Sæmundsson & €0. hi. Laugmeg 81. Feldur h.f. LAUGAVEGI 116 AuglýsiS í ÞjóBvíljanum C0N-TACT K0STAR AÐEINS KR. 15.00 METRINN Einasta verkfærið, sem notað er við Con-Tact eru skæri. Enginn hamar, engh* naglax, ekkert lím, ekkert vatn — aöeins venjuleg skæri. — Á baki Con-Tacts er sterkt lím, hulið pappír. Þegar papp- írinn liefur verið rifinn af, er plastdúkurinn tilbu- inn til notkunar. Límið pornar aldrei., svo hægt er að losa plastiö af og hagræða eða, flytja á aðra fleti hvenær sem er. Con-Tact er jafn hentugt til aö skreyta. með barna- herbergið sem eldhúsið, stofuna sem baöherbergið, þar sem þaö fæst með viöar og marmaraáferð; ein- litt eða með myndamynztri. — Með Ccn-Tact er á lítilli stund hægt að Iáta gamalt box*ð eöa fomfá- legan skáp fá útlit eins og ný væru og úr dýruni viöi. Jafnvel gamalli ruslafötu má breyta. svo hún fái léttan og nýtízkulegan svip. hefur fariö sigurför! 25.000.000 — Tuttugu og fimm milljón metrar hafa selzt af þessu undraefni. — CON-TACT er vatnsheldur plastdúkm*, sem kemur í stað veggfóðurs, málningar og annari’a efna, er skreyta og skýla veggjum og húsgögnum heimilisins. — CON-TACT má þvo á venjulegan hátt. - liimimiMisigmiiiEamiHS mmmiuiiiiiiiimimmimiiuimmgiuimgmmmmíaimiGasmmamaaamiimHimiimHHimim

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.