Þjóðviljinn - 10.02.1956, Side 12

Þjóðviljinn - 10.02.1956, Side 12
Þjóðleikhúsið hefur hátiðarsýningu á islandsklukkunni inæstu viku HIÓÐVIUINN Föstudagur 10, febrúar 1956 — 21. árgangur — 34. tölublað Sýningin haldin til heiðurs höfundinum, nóhels verðlaunaskáldinu Halldóri Kiljan Laxness N.k. föstudag, 17. febrúar, verður liátíóarsýning 1 Þjóð- leikhúsinu á hinu vinsæla leikriti Halldórs Kiljans Lax- ness, íslandsklukkunni. Með sýningu þessari vill leikhús- iö heiðra skáldiö í tilefni veitingar nóbelsverölaunanna. Þjóðleikhússtjóri skýrði blaða- mönnum frá þessu í gser. Sagði hann að ákvörðun um sýningu á einhverju leikrita Laxness hefði verið tekin strax eftir að hann hefði hlotið nóbelsverð- launin og íslandsklukkan síðan orðið fyrir vaiinu af ýmsum ástæðum. Hún var sem kunnugt er eitt af þrem leikritum, sem sýnd voru við vígslu Þjóðleik- hússins vorið 1950 óg eina nýja leikritið. Alls hefur leikhúsið sýnt ísiandsklukkuna 56 sinnum eða oftar en nokkuð annað leik- rit, og 32 þúsund hafa séð það, einnig fleiri en nokkuð annað viðfangsefni. Ætlunin var að sýna leikritið fyrr í vetur, en sýningum varð að fresta vegna veikinda ieikstjórans Lárusar Pálssonar, sem jafnframt fer með eitt af aðalhlutverkunum. Hátíðarsýning verður sem fyrr segir á föstudaginn í næstu viku en síðan verður leikritið sýnt enn nokkrum sinnum. Skáldið mun verða viðstatt hátíðarsýn- inguna. Halldór Kiljan Laxness Aðalhlutverkin leika sömu leikarar og á fyrstu sýningum íslandsklukkunnar: Brynjólfur Jóhannesson leikur Jón Hregg- viðsson, Herdís Þorvaldsdóttir Snæfríði íslandssól, Þorsteinn Ö. Stephensen Arnas Arnæus, Gest- ur Pálsson junkæran í Bræðra- tungu, Regína Þórðardóttir konu Arnæi, Lárus Pálsson Jón Grind- víking, Haraldur Björnsson Jón Marteinsson, Valur Gíslason Ey- dalín, Jón Aðils Sigurð dóm- kirkjuprest. Egyptar fá lán í Alþjóðabankanum Tilkynnt var í Kairó í gær að samkomulag hefði tekizt milli egypzku stjórnarinnar og Black, forseta Alþjóðabankans í Washington, um að hann veiti Egyptum 200 milljón doll- ara lán til byrjunarfram- Framhald á 5. síðu. Laxness haldið samsæti 20. febr. Nóbelsverðlaunaskáldinu Hall- dóri Kiljan Laxness verður hald- ið samsæti í ieikhúskjallaranum mánudaginn 20. febr. Sérstök nefnd annast um undirbúning samsætisins og eiga sæti í henni Jón Leifs formaður Bandalags íslenzkra listamanna, Helgi Hjörvar formaður Rithöfundafé- legs íslands, Ragnar Jónsson forstjóri, dr. Páll ísólfsson og Guðlaugur Rósinkranz þjóðleik- hússtjóri, Öllum er heimil þátttaka í hófi þessu meðan húsrúm leyfir og liggur áskriftarli^ti frammi í skrifstofu Þjóðleikhússins. Hólmaborg Sænsk stjórnarvöld mót- mæla líka loftbelgjum Alþýðuríkin senda SÞ kæru( sovétstjórnin segir belgina notaða til njósna Tékkóslóvakía, Búlgaría og Ungverjaland hafa sent SÞ kæru vegna loftbelgja Bandaríkjamanna og flugmála- stjóm SvíþjóÖar hefur mótmælt því aö þeir séu sendir yfir sænskt land. Nýr bátur til Keflavíkur Skipasmíöastöö Njarðvíkm’ hefur nýlokiö smíöi 58 lesta báts úr eik og byrjar hann veiöar einhvern næstu daga, gerðm’ út frá Keflavík. Sama skipasmíðastöð er byi’juð að leggja kjöl áö öörum jafnstórum báti fyrir h.f. Hrönn í Sandgeröi. Hinn nýi bátur heitir Ólafur Magnússon og er eigandi hans Albert Ólafsson o. fl. i Kefla- vík. Skipstjóri er Óskar Ingi- bergsson. í bátnum er 280 ha Maiinheim dísilvél. 1 honum eru öll nútíma siglingartæki, m. a. Simraad-dýptarmælir með asdic- útfærslu. Rétt mun að geta þess að salerni eru í bátnum, en þeir munu færri fiskibátarnir sem búnir eru jafnsjálfsögðum hlut. Yfirsmiður við bátinn var Bjarni Einarssón skipasmiður. Vélaniðursetningu annaðist Framhald af 3. síðu. Adenauer er að missa óskoraðan meirihluta sinn á þingi Frjálsi lýðræðisflokkurinn og sósíaldemó- kratar hefja viðræður um stjórnarmyndun í Norðurrín-Vestfalen Þaö þykir nú sýnt, að flokkur Adenauers, forsætisi’áö- herra V-Þýzkalands, Kristilegi lýöræðisflokkmlnn, muni missa þami óskoraða meirihluta, sem haim hefur haft á þingi síðan í þingkosningunum haustið 1953. Sænska flugTná.lastjórnin sendi gær flugmálastórn Noregs orð- sendingu þar sem kvartað var yfir veðurathuganabelgjum sem Bandarikjamenn liafa sent frá Gardermoen-flugvelli við Osló í samráði við norsku veðurstof- una og borizt hafa yfir Sviþjóð. Tekið er fraan, að loftbelgir þessir, sem eru um 40 metrar að þvermáli geti verið hættu- iegir flugvélum og er farið fram á að gerðar verði ráðstafauir til að tryggja það, að þeir her- ist ekki í framtiðinni yfir sænskt land. Alþýðuríkin mótmæla Tékkneska stjórnin sendi Sameinuðu þjóðunum í gær kæru vegna áróðursbelgjanna sem Bandaríkjamenn senda frá Múnchen í Vestur-Þýzkaiandi til Tékkóslóvakíu, en Tékkar hafa vegna þeirra neyðzt til að banna næturflug yfir landi sínu. SÞ hafa áður horizt mót- mæli gegn áróðursbelgjunum frá stjórnum Ungverjalands, Rúmeniu og Albaniu. f njósnaskynl? Ilitséff, hlaðafulltrúi sovézka utanríkisráðuneytisins, kallaði erlenda fréttamenn í Moskva á sinn fund í gær og sýndi þeim nokkra bandaríska loftbelgi sem borizt höfðu yfir sovézkt land. Sagði hann að sovétstjórnin hefði ástæðu til að ætla að belg- ir þessir væru sendir yfir Sovét- Framhald á 5. síðu. Nýr bátur til Neskaupstaðar Neskaupstað. Frá fréttaritara Þjóðviljans. í gærmorgun kom hingaö nýr fiskibátur byggöur í Gilleleje í Danmörku. Báturinn heitir Huginn og eru einkennisstafir lians NK 110. Hann er 65 tonn að stærð með 240 ha Völundvél. Meðal- gangliraði á heimleið var 9 sjó- mílur á klst. Huginn er traust- byggður bátur, búinn ölíum þeim siglinga- og öryggistækj- um er nú tíðkast í bátum af þessari stærð, þvá.m. eru asdic- tæki. Kojur eru í bátnum fyrir 13 menn. 'Eigendur Hugins eru hf. Hrafnkell, en áðaleigendur þess eru Jón S. Sigurðsson og Ármann Magnússon. Huginn mun fara í dag áleiðis til Sandgerðis, en þar verður hann gerður út í vetur. Skipstjóri verður Jóhann Sigurðsson, en skipstjóri á leiðinni heim frá Danmörk var Þórður Björns- son. Framhald af 1. síðu. verið innan 100 mílna svæðis frá Mugganesi, norðvestasta hluta Færeyja. Flugvél fi’á strandgæzlunnni íslenzku, en hún getur verið 12 stundir á lofti, mun leita í dag, en óvíst er um hve þátttaka björgunarflugvéla af Keflavík- urflugvelli verður mikil, því þær eru uppteknar af leit að bandarískri flugvél sem bvarf á leið vestur frá íslandi í fyrra- dag. Leiðtogar Frjálsa lýðræðis- flokksins, stærsta samstarfs- flokks Adenauers i vesturþýzku stjórninni, og sósíaldemókratar í fylkinu Norðurrín-Vestfalen hófu í gær viðræður í Dússel- dórf um myndun stjórnar í fylk- iiiu. Síðan sumarið 1954 þegar kösningar fóru síðast fram til fylkisþingsins hefur þar setið samsteypustjórn sömu flokka og standa að Bonnstjórninni, en það var eitt af skilyrðum Adenauers fyrir stjómarsam- starfinu að flokkamir stæðu saman að öllum fylkisstjóraum þar sem þeir. hefðu meirihluta til þess. Takist samstarfið milli sósíal- demókrata og Frjálsa lýðræðis- flokksins um fylkisstjóm í Norð- urrín-Vestfalen mun það leiða til þess að Bonnstjórnin missi % meirihluta sinn í efri deild vesturþýzka þingsins, en, á því sitja fulltrúar kosnir af hin- um einstöku fylkisþingum. Jafn- framt má telja líklegt að slíkt samstarf muni komast á i fleiri fylkjum. og jafnvel leiða til þess að flokkur Adenauers verði í minnihluta í efri deildinni. Stofnun iðnsveinasambands áformuð Tuttugasta þhigi Sveinasambands byggingamanna í Reykjavík lauk s.l. laugardag 28. janúar. Ýmsar samþykktir voru gerð-' J *" ar og mikið rætt um framtíð sambandsins. Kosin var nefnd til að vinna að stofnun sam- bands allra iðnsveina í Reykja- vík og jafnvel landssambands iðnsveina. Þingfundi lauk með kosningu í stjórn Sveinasambands bygg- ingamanna fyrir yfirstandandi starfstímabil. Forseti var kosinn Þorsteinn Löve múrari, varaforseti Magn- ús Tómasson pípulagningamað- ur, ritari Mattliías Ólafsson málari, gjaldkeri Jón Guðna- son múrari, aðstoðarritari Magnús Þórhallsson pípulagn- ingamaður og meðstjórnandi r ,, . T, ‘ Þorsteinu Löve Astþor Jonsson. Vegita nýrra kosningalaga Þessar viðræður í Diisseldorf eru taldar afleiðing þeirrar mndurþykkju sem risið hefur nilli stærstu stjórnarflokkanna it af fyrirhugúðum breytingum i ko'sningalögunum, sem miða ið því að gera þau hagstæðari Cristiiega iýðræðisflokknum, en rau mundu um leið draga úr úngfylgi minni stjórnarflokk- anna. Fréttamenn í Bonn telja ekki ósennilegt að viðræðurnar í Dússeldorf kunni að draga enn stærri dilk á eftir sér, að þær muni ieiða til þess að algerlega slitni upp úr samstarfi þessara tveggja stærstu borgaraflokka Vestur-Þýzkalands, og þá jafn- vel til nýrrar stjórnarstefnu i landinu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.