Þjóðviljinn - 23.03.1956, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 23.03.1956, Qupperneq 12
Ríkisst jómiir þorir ekki að ræða swilsln í landhelfpsmáliim Aöur en fundur hófst í saineinuðu þingi í gær kvaddi £% Hannibal Valdimarsson sér hljóðs og deildi fast á forseta þingsins og ríkisstjórn fyrir þaö aö stööva afgreiöslu þings- ályktunartillagnanna um stækkun landhelginnar. Sá háttur væri venjulegastur til að svæfa mál að afgreiða þau ekki frá nefnd. Nú hefði hins- vcgar málið verið afgreitt úr arefnd 21. janúar, og kvöldfund- ui' boðaður bar sem tilkynnt var að málið yrði á dagskrá, en þeim íundi afiýst og málið ekki tek- ið fyrir til þessa dags. Væri þetta ófyrirgefanieg framkoma af forseta og ríkis- stjórn. Þingforseti, Jörundur Brynj- ólfsson, virtist ekki hafa neitt svar tiltækt og lét hefja umræð- ur um dagskrármálin. Bandaríkin andvíg tillögum Breta og Frakka um afvopnun Bandaríkjastjórn er aö mörgu leyti andvíg þeim til- lögum, sem fulltrúar Bretlands og Frakklands hafa lagt íram í undirnefnd afvopnunarnefndar SÞ, sem nú situr á fundum i London. Tillögur þessar voru lagðar fram í fyrradag og þótt þær hafi enn ekki verið birtar í einstökum atriðum, er vitað um meginefni þeirra. Þær eru byggð- ar á fyrri tillögum Breta og Frakka, og er höfuðatriði þeirra, að komið verði ó alþjóðastofn- un til að fylgjast með fram- kvæmd afvopnunar, en síðan verði afvopnunin framkvæmd í þrern áföngum. Öll stórveldin fimm eiga fulltrúa í tftirlits- stofnuninni, þ.á.m. kínverska al- þýðustjórnin, og auk þeirra 10 önnur ríki. Fyrst verði byrjað á að tak- marka tiiraunir með kjarnorku- vopn, bannað verði að fjölga í herjum og hækka hernaðarút- gjöld. EftirJiti verði komið á á landi og úr lofti og hafið verði að draga úr vígbúnaði og fækka í herjum. Að lokum komi til framkvæmda algert bann við framleiðslu kjarnorkuvopna og tilraunum með þau. Bandaríkjastjóm andvig Frétaritarar segja, að Banda- rikjastjóm sé ekki sammála til- lögum Breta og Frakka og telji ÍJTsr- Loftleiðir opna skrifstofui Chicag o Ferðum fjölgað í næsta mánuði Fyrir nokkru opnuðu Loftleið- ir nýja skrifstofu í Chicago og «r það þriðja skrifstofa félags- ins í Bandaríkjunum, en hinar eru í New York og San Franc- isco. Skrifstofan er við 37 South Wab- ash Street, sem er á næsta horni við Paimer House, en það er eitt víðfrægasta gistihús borgarinnar. í þessu hverfi eru skrifstofur flestra stóru fiugfélaganna, og heíur því vel tekizt til um val á húsnæði þessu. Um n.k. mánaðamót munu Loft- leiðir auka ferðir sínar til Banda- ríkjanna úr þrem upp i fjórar i viku hverri. Sumaráætlunin hefst 20. maí, og verða ferðirn- -ar þá a.m.k. 5 í viku hverri milli Bandaríkjanna og meginlands Bvrópu, nieð viðkomu í Reykja- vík. þær ganga of langt. Hún vilji fara hægara í sakirnar og leggja megináherzlu á tillögur Eisen- howers um eftiriit úr lofti og tillögúr Búlganíns um eftirlit með herstöðvum á landi. Stassen, fulltrúi Bandaríkjanna í nefndinni, sagði þó í gær, að Bandarikin væru fús til að minnka hérafla sinn niður í 2,5 millj. manna, svo fremi sem Sovétríkin gerðu slíkt hið sama. Fulltrúar Breta og Frakka, Nutting og Jules Moch, svöruðu á fundi nefndarinnar í gær ýms- um spumingum sem Gromiko, fulltrúi sovétstjórnarinnar, hafði lagt fyrir þá í fyrradag viðvíkj- andi hinum nýju tillögum þeirra. Saint Krispin verðiii* reynd Ákveðið liefur verið að reyna að ná brezka togaramim Saint Krispin út af sandinuin. Skip frá landhelgisgæ/.luimi munu reyna að ná honum út. Eigendur togarans, ásamt vátryggingafélaginu hafa á- kveðið að fá þessa tilraun gerða. Eru nokkrir skipverjar komnir austur til að undirbúa björgunartilraunina, en til þess þarf að fá góðviðrisdaga. Þarí að hreinsa net og víra úr skrúfu togarans. Ætlunin er að reyna að ná togaranum út á stórstraumsflóði mánaðamót. SSJÓÐyiLIINN Föstudagur 23. marz 1956 — 21. árgangur — 70. tölublað Ætlar Framsókn líka að lóga Skipaútgerð ríkisins og Ferðaskrifstofiuini? í gær laúk einni umræöu um „feimnismál Framsóknar- flokksins", grænmetisverzlunina, í neðri deild Alþingis. Reyndu fylgismenn frumvaipsins ekki aö svara hinni þungu gagnrýni sem fram hefur komiö á frumvarpið. Einar Olgeírsson talaði enn í málinu og minnti á hin almennu mótmæli sem fram hefðu kom- ið gegn frumvarpinu., Kvað hann rétt að fram kæmi hvort það væri ætlun Framsókn- undir næetu! arflokksins að halda áfram á sömu braut eftir kosningar, ef Sovétríkin skara fram úr í smíði þrýstiioftshreyfla Sovézk brýstiloítsílugvél vekur mikla athygli á flugvellinum í London Sovézk farþegaflugvél af þrýstiloftsgerð sem í gær kom til London vakti mikla atliygli og sögðu sérfræöingar hana vera eina þá fullkomnustu sem nú myndi til í heim- inum. hún þá gæti, og leggja niður Skipaútgerð ríkisins og Ferða- skrifstofu rikisins. Flutti hann rökstudda dagskrá, svo hljóð- andi: ,,l*ar seiu deildin litur svo á, að Skipaútgerð rikislns, Ferðaskrifstofa ríkisins og Græmuetisverzlun ríkisins eigi að vera eign ríkisins áfram og reknar af því, tcl- ur deildin ekki ástæðu til að samþykkja frujnvarpið og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá“. Umræðu var lokið en atkvæða greiðslu frestað. Flugmálasérfræðingur brezka útvarpsins sagði að þessi flug- vél væri öllu stærri en nýjasta gerðin af fullkomnustu þrýsti- loftsflugvél Breta, Comet III, myndi geta tekið um 60 far- þega. Það vakti sérstaka at- hygli sérfræðinga, að þessi sov-' ,UPPREIST' PÁLS OG HALL- DÓRS VARÐ ENDASLEPP Tveir Framsóknarþingmenn, Páll Þorsteinsson og Hall- dór Ásgrímsson, reyndu að gera dáiitla uppreisn gegn menntamálaráöherra Framsóknar, Bjarna Ben., og hót- uöu aö fella fyrir honmn frumvarp um aö greiða kenn- urum við einkaskóla kaþólskra og aðventista laun úr rík- issjóði. Hefur Bjarni ekki vogað að láta málið koma á dagskrá vik- um saman, fyrr en í gser, og var þá búið að „semja“ við Framsókn að vanda, nú flaug frumvarpið í gegn með 19:14 atkvæðum. Feiid var sú breytingartillaga Karls Guðjónssonar að heimild- in næði einungis til skóia að- ventista. Rökstuddi Karl þá til- lögu sína með því að aðventist- ar væru hinir einu er vegna trúar sinnar gætu ekki látið börn sín njóta almennrar skólagöngu, en þeir senda börn sín ekki í skóla á laugardögum. ézka flugvél, sem mun vera sniðin eftir sprengjuflugvél af miðlungsstærð, hafði aðeins tvc hreyfla, en jafnstórar brezkar og bandarískar þrýstiloftsflug- vélar hafa fjóra. Bendir allt til þess að sovézku þrýstilofts- hreyflarnir séu miklu aflmeiri en þeir sem nú eru smiðaðir í Bretlandi og Bandarikjunum, sögðu sérfræðingarnir. Til að undirbúa lieimsókn Búiganíns og Krústjoffs Með flugvélinni kom til Lond- on Seroff hershöfðingi, foi'mað- ur öryggismálanefndar Sovét- ríkjanna. Hann fór til Bretlands til að ræða um öryggisráðstaf- anir sem gerðar verða í sam- bandi við komu þeirra Búlgan- íns og Krústjoffs þangað í næsta mánuði. Einu af yfir- mönnum Scotland Yards tók á móti honum á flugvellinum. Það var tilkynnt í gær, að reynt yrði að koma því við að þeir Krústjoff og Búlganín héldu fund með blaðamönnum í Lond- on 25. apríl, tveim dögum áður en þeir halda heimleiðis aftur. Spilakvöld SVÍR Söngfélag verkalýðssamtak- anna heldur spilakvöld í Tjarn- arcafé kl. 8.30 i kvöld. Til skemmtunar verður auk spilanna söngur kórsins og að lokum dans. Slik skemmtikvöld hafa ver- ið vinsæll liður í starfsemi söng- félagsins og er það rómur allra, sem þau hafa sótt, að þetta séu hinar ágætustu skemmtanir. Vll jn þeir gengislækkun? A fundi fulltrúáráðs verka- lýðsfélaganna sem haldinn var fyrir skemmstu var hægri mönnunum; í Alþýðuflokknum bent á það hver tilgangur Framsóknar væri með því að efna til kosninga í sumar: Framsóknarfiokkurinn hefði staðið að skattaálögunum miklu með íhaldsflokknum. Framsókn- arfiokkurinn neitaði algerlega að mynda vinstri stjórn fyrir kosningar. Framsóknarflokkur- inn neitaði algerlega að gera nokkrar ráðstafanir í samráði við alþýðusamtökin fyrir kosn- ingar. Framsóknarflokkurinn birti ekkert opinberlega um fyrirætlanir sínar í efnahags- málum eítir kosningar. For- sprakkar Framsóknarflokksins hefðu ekkert farið duit mcð það í viðtölum sínum við alþýðu- samtökin að tilgangurinn með kosningum í sumar væri að fá „vinnufrið“ til þess að geta lækkað gengið og bundið kaup- ið að kosningum loknum. Og hægri mennirnir voru spurðir að því hvort verkalýðshreyf- ingin ætti að láta slíka þró- un afskiptalausa eða stuðla að henni, eins og Gylfi og Har- aidur virðast vilja. Hægri mennirnir gátu með engu móti véfengt að þessar væru fyrirætjanir Framsóknar. og' þeir gei ðu ekki neina tilraun til að mótmæla þvi að þegar að kosningum loknum mynði Framsókn leggja til að gengið yrði fellt stórlega. Engu að síður snerust þeir gegn bví að Alþýðusambandið gcrði óhjákýsemilegustu varúð- arráðstafanir. En hvcr er skýr- iiígin á þessari afstöðu þcirra. Er hlýðnin við hægri klíkuna i Alþýðuflokknum stcrkari en hagsmunir verkalýðshreyfingai'- innar? Eða eru þeir ef til vill þrðnir á sama máli og Gylfi, að gengislækkun sé sjálfsögð ráðstöfún? 19 þingitienn santþykkja Yantraust ó Búnaðarfélag fslands Tillaga sein biinaðarinálastjóri lýsti yfir að jafngilti vantrausti Búnaðarfélag íslands og störf þess, var samþykkt á Alþingi í gær með 19 atkvæðum gegn 14. Var þetta þingsáiyktunartil- laga er Gísli Guðmundsson, Karl Kristjánsson, Andrés Eyjólfsson og Skúli Guðmundsson fluttu „um eyðingu refa og minka“. Þingmennirnir sem þannig lýstu „vantrausti á Búnaðarfélag íslands" voru: Steingrímur Steinþórsson Vilhjálmur Hjálmarsson Andrés E.vjólfsson Ásgeir Bjarnason BernharcJ Stefánsson Eiríkur Þorsteinsson Gisli Guðmundsson >' Gylíi Þ. Gíslason Helgi Jónasson Hermann .Jónasson Jóhann Þ. Jósefsson Jón Pálmason | Karl Kristjánsson j Páll Þorsteinsson t Sigurður Ágústsson i Skúli Guðmundsson Jörundur Brynjólfsson Ólafur Thórs Eysteinn Jónsson Páll Zóphóníasson búnaðar- inálastjóri lýsti yfir í greinar- gerð fyrir atkvæði sínu að hann teldi tillöguna vantraust á Bún- aðarfélag íslands og störf þess.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.