Þjóðviljinn - 08.07.1956, Síða 4

Þjóðviljinn - 08.07.1956, Síða 4
i) — l*jr<M>VÍtJrNN — Súiinudagur 8. }úlí 1956 ÞlÓÐVlLJINN Útgefandi: SameiningarfloJckur alpýðu — Sósialistaflokkurínn Tekst stjórnarmyndun? ■f/iðræður eru nú hafnar um ’ myndun vinstri stjómar, og alþýða manna um allt land væntir þess að þær beri skjót- an og góðan árangur. Því að- eins bera umræðurnar þó ár- angur að allir aðiljar gangi að þeim af einlægni og hafi vilja á því að samningar tak- ist. Að sjálfsögðu eru ýms vandkvæði á því að flokkar sem um langt skeið hafa deilt hatramlega hver við annan taki nú upp samstarf, það þarf að yfirstíga marga örðugleika, það þarf að hafna fordómum. Þetta tekst því að- eins að viljann skorti ekki; það er tilgangslaust að ganga til eamninga með semingi og áhugaleysi. Og víst er um það að fólk mun fylgjast vandlega með þvi sem gerist, og takist samningar ekki munu þeir sem þvi valda hreppa harðan dóm. f lokkar þeir sem nú eru að hefja samninga hafa oft áður staðið í hliðstæðum sporum. Þannig var t.d. I Hafnarfirði um síðustu bæj- arstjórnarkosningar. Alþýðu- flokkurinn og Sósíalistaflokk- urinn deildu þá óvægilega, börðust um fylgi kjósenda, og einn af forustumönnum Al- þýðufokksins í Hafnarfirði gekk þá svo langt að hann iýsti yfir því fyrir kosningar að samvinna við Sósíalista- flokkinn kæmi ekki til greina. Á kosningadaginn kváðu kjós- hins vegar upp þann dóm að þessir flokkar yrðu að vinna saman, ef vinstri menn ættu- að fara með stjóm bæjarins Og flokkarnir horfðust báðir í augu við veruleikann af raunsæi, þeir tóku upp sam starf, þrátt fyrir ágreinings- mál og harðar deilur. Þessi samvinna hefur gefizt mjög vel og orðið bæjarbúum til stórfelldra hagsbóta. Og í Al- þingiskosningunum um dag- inn kváðu kjósendur upp sinn dóm; þeir juku stórlega fylgi vinstri flokkanna beggja en íhaldið fékk mjög þungbæran skell. Þetta er dæmi sem vei't er að læra af, og mætti það ekki sízt vera hugstætt for- ustumönnum Alþýðuflokksins Enginn efast um að kjósend- ur vinstri fíokkanna allra ætlast til þess að þeir mýndi stjóm saman, enda er það í samræmi við stefnuyfirlýsing- ar þeirra og fyrirheit í kosn- ingabardaganum. Það verður því fylgzt með tilraunum þeim sem nú eru gerðar af vakandi gát. Það mun lítið stoða að ganga til viðræðna af leikara- skap og til þess eins að sýn- ast; fólki mun ekki dyljast hverjir bera ábyrgðina ef til- raunirnar mistakast. Mínar beztu þakkir fœri ég öllum peim, sem sóttu mig heim á 60 ára afmœlisdegi mínum og fœrðu ! mér margskonar gjafir og skeyti, og gerðu mér daginn ógleymanlegan, — Guð blessi ykkur öll. BJÖRN GUÐMUNDSSON, Einholti 11. TIL SÖLU ERU s> ■ - S s s 2 stór tjöld 4X7 metrar, hentug fyrir veitingasölu og fjölmenn- ar hópferð’ir. Upplýsingar gefur BJÖRN SVANBERGSSON, sími 7500 og 81614. ■■B*nMinH************Ha**********i**n*nn*n*BiMMM*MHi(iinui(*MtHfHninnHn Tilboð óskast í raflögn íbúðahúsa Reykjavíkurbæjar viS Gnoðavog (48 íbúðir). Útboðslýsinga og teikninga má vitja í teikni- stofu mína, Tómasarhaga 31, gegn 200 króna skila- tryggingu. GÍSLI HALLDÓRSSON arkitekt. Guðjón Sigurðsson járnsmiður Kveðjnorð frá nohUrum starfsféiögum Æfi sinni hefur hann í heiðri og starfsemd eytt. Hann horflr djarft á hvern sem er hjá honum á enginn neitt. (Longfellow) Gamall, góður vinur er sviplega horfinn sjónum mín- um. Ég staldra við og renni augum til baka yfir rúma tvo áratugi sem leiðir okkar lágu saman. Ég var ungur byrjandi í starfinu. Hann var þroskaður, reyndur maður á miðri starfsbraut sinni. Hann vakti þegar við fyrstu kynn- ingu hlýhug minn og virð- ingu. Þau áhrif urðu því meiri sem ég kynntist honum betur. Hann var hvers manns hug- Ijúfi í allri framkomu og lagði það gott til hvarvetna sem hann mátti, en þó fastur fyrir og einarður vel. I starfi sínu var hann manna færastur. Fór þar sam- an hugvit og listfengi, sam- vizkusemi og vinnugleði sein af bar. Á mannkosti hans og stakan heiðarleik í öllu bar engan skugga í þeirri minn- ingu sem ég geymi um hann. Starfsdagur hans var orð- inn langur, miklu afkastað og unnið af trúmennsku til hinztu stundar. Það er þungt í svip þegar góður vinur hverfur skyndi- lega af starfssviði lífsins. En raunabót nokkur finnst mér þegar menn sem alla æfi hafa verið sístarfandi þurfa ekki að búa við langvarandi veik- indi áður en þeir hverfa héð- an. Ég votta konu hans og syni mína einlægustu hlut- fekoiQgð, Ásg. Guðmundsson. A Þegar mér barst andláts- fregn Guðjóns Sigurðssonar var ég staddur í eldsmiðju Landssmiðjunnar, þar sem Guðjón hefur unnið um þriggja áratuga skeið, fyrst sem starfsmaður vegagerð- anna og síðan hjá Lands- smiðjunni frá stofnun hennar í rúm 26 ár. Mér varð litið á steðjann sem hann hafði stað- ið við öll þessi ár; á honum lá hamarinn, allt var í röð og reglu eins og hann hafði skil- ið við það fyrir tveimur dög- um. Ég kynntist Guðjóni fyrst 1930 sem samverkamaður hans í Landssmiðjunni, en þá aðeins lítillega; á þeim árum var Guðjón alltaf á sumrin við brúarsmíði úti um land en vann í smiðjunni yfir vetrar- mánuðina. Aftur á móti urðu kynni okkar nánari hin síð- ari ár, þar sem við hittumst og ræddumst við daglega, og stundum unnum við að sömu verkefnunum. Guðjón var mjög góður smiður, allt sem hann smíðaði var sérstaklega snyrtilegt og bar það með sér að þar hafði hög hönd að verki verið. Hann Var oftast einn við eldinn, þó að nú á dögum sé það algeng- ast að hafa hjálparmann, en Guðjón var sérstaklega út- sjónarsamur við vinnuna og smíðaði sér ýms hjálpartæki sem gerðu honum kleift að framkvæma smíði sem annars hefði þurft tvo til. Ég hef aldrei kynnzt yfir- lætislausari manni en Guðjón var; hann var fáskiptinn og blandaði sér aldrei í umræður manria nema hans álits væri leitað, og ef maður lét í ljós aðdáun á einhverju sem hann hafði smíðað brosti hann til Guðjón Sigurðsson manns og næstum afsakaði hvað þetta væri ófullkomið. Ég held að ekki sé hægt að finna samvizkusamari og trú- verðugri starfsmann en Guð- jón var. Leiðir okkar Guðjóns lágu einnig saman í Félagi járniðn- aðarmanna; hann sótti vel fundi félagsins en tók ekki þátt í umræðum á fundum og kom þar enn fram hlédrægni hans; einnig háði það honum að hann hafði ekki góða heym, en Guðjón var virtur af félögum sínum, enda var hann gerður að heiðursfélaga fyrir nokkrum árum og var það verðskuldaður heiður fyr- ir hans sérstöku skyldurækni og trúmennsku. Einnig var Guðjón einn þeirra sem voru heiðraðir í tilefni af 25 ára afmæli Landssmiðjunnar. Guðjón var giftur Guðnýju Guðnadóttur, og eignuðust þau tvo sonu, tvíbura, Sigurð verzlunarmann og Guðna, sem var náttúrufræðingur og lézt nokkru eftir að liann hafði lokið námi. Ég hygg að son- armissirinn hafi orðið Guð- jóni ofraun, þótt hann bæri harm sinn í hljóði. Ég vil að lokum þakka Guðjóni fyrir mjög góða við- kynningu á liðnum árum og fyrir margvíslegar leiðbein- ingar sem hann gaf mér í starfi mínu. Ég sendi eftir- lifandi konu hans, syni og öðru venzlafólki mínar sam- úðarfyllstu kveðjur. Kristinn Ág. Eiríksson. *** Við unnum saman aldarfjórðungs skeið og alltaf naut ég gæsku og ráða þinna. Nú ert þú horfinn, enduð ævileið. Einum færra í hópi vina minna. Fyrir vinnunni þú virðing barst og vannst af trúmennsku að liinzta degi. Þú dáðir ljóð, þú listunnandi varsfc og ljóðelskari rnann ég þekkti eigi. Þú girntist ekki auðlegð eða völtj, en upp þú lyftir starfsins göfga merki. Og gott er þegar kemur hinzta kvöld að kveðja og hafa lokið sínu verki. Nú er hljóðnað steðjans stuðlamát er stóðsfc þú við og lúðir járnið heita. Til Ijóssíns heima svifin er þín sál þar sæluvist þér drottinn guð mun veita. Ásgeir Jónsson. *** „Hann vissi’ ekki að biði við banarúm hang nein bræði’ eða hatur eins einasta manns, og því gat hann farið í friði". Þessar Ijóðlínur Þorsteins Erlingssonar komu mér ó- sjálfrátt í hug, er ég frétti lát Guðjóns Sigurðssonar, járnsmiðs. Með Guðjóni Sigurðssyni er horfinn af sjónarsviðinu mað- ur, sem um margt var ein- stakur í sinni röð, þótt lítið bæri á, því maðurinn var hlé- drægur og hafði sig að jafn- aði lítt í frammi. Ég sem þessar línur rita átti því láni að fagna að starfa undir sama þaki og hann í nærfellt 14 ár og hafði því af honum náin kynni. Margs er að minnast frá þessúm árum, sem ekki verð- ur rakið hér, en á þá eigin- leika, sem mest bar á I fari hans, vildi ég minnast í fá- einum orðum og mætti þá fyrst og fremst nefna frábæra trúmennsku hans, iðjusemi og stundvisi, sem mörgum mann- inum mætti vera til fyrir- myndar. Guðjón var hversdagslega gæfur og einstaklega greið- vikinn maður, jafnan boðinn og búinn til að leysa hvers manns vanda. Svarið sem hann var vanur að gefa þeg- ar til hans var leitað um greiða: „já góði, ég skal gera það alveg undireins" er senni- lega óvíða á takteinum nú & tímum. Aldrei heyrði ég hann neita manni um greiða öll þaw ár ,er við störfuðum saman og þótti mér þó oft úr hófi ganga hvað menn gátu beðið hann. um: „Hann vantar þetta, ég er enga stund að því“, tilsvar sem þetta lýsir glöggt þeim eiginleikum Guðjóns, sem nú var að vikið. Annar eiginleiki var ábei> andi í fari Guðjóns, en það var samúð hans með öllu því, sem umhverfis hann var. Aldrei var hægt að heyra á tali hans að hann bæri kala til eins eða neins og aldrei bar það við að hann hallmælti nokkrum manni. Jafnvel þoldi Framh. á 7. síðut

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.