Þjóðviljinn - 22.09.1956, Síða 7
Laugardagur 22. september 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Þeð hefur lengi verið ósk
íslenzkra leikgesta að hingað
kæmi fullskipaður ballettflokk-
ur erlendur og sýndi einhvern
hinna frægu sígildu leikdansa,
birti okkur hina tignu og ynd-
isfögru listgrein í allri sinni
dýrð. Sá draumur hefur enn
eigi rætzt, og er of miklum
kostnaði um kennt, en spá mín
er sú að sigrazt verði á þeim
erfiðleikum áður en varir. í
annan stað hafa margir ágætir
listamenn frá ýmsum þjóðum
gist landið á síðustu árum og
sýnt okkur stutta dansa eða
brot úr stærri verkum, öllum
sem séð hafa til mikillar gleði,
á meðal þeirra Irína Tikhóm-
írnóva, ein snjallasta og ást-
sælasta dansmær sjálfra Sovét-
ríkjanna. Sýningar hinna kær-
komnu gesta hafa mjög glætt
og eflt áhuga íslendinga á
Eindansandinn María Ma-
zún frá Malíleikhúsinu í
Leníngrad
leikdansi, opnað okkur nýja
töfraheima, en eru þó sjaldan
annað en brotasilfur eða snögg-
ir glampar hinnar voldugu list-
ar. Engir dansendur fá notið
sín til fullrar hlítar á auðu
sviði og án hljómsveitarleiks
og áðstoðar dansliðs — atriðin
eru rifin úr samhengi, dansend-
urnir sviptir réttu umhverfi og
reynist lítt gerlegt að birta á-
horfendum eðli eða skapgerð
persóna sinna og því síður að
fúlka nokkra sögu, list þeirra
er einangruð eins og eyja úti í
ha|i.
Um þessar mundir eru tíu
sovézkir listamenn gestir Þjóð-
leikhússins, og er koma þeirra
vissulega fagnaðarefni öllum
sem leikdönsum unna. Þeim
var ágætlega tekið á frumsýn-
ingunni á þriðjudaginn var og
allir miðar seldir á svipstundu;
listdansinn hefur þegar eignazt
niarga vini á landi hér. Hér
•er um valinn og glæsilegan hóp
^að ræða, ósamstæðan að vísu,
en búinn þeirri frábæru tækni,
sérstæðu þjálfun og öryggi,
sem einkennir dansfólk Sovét-
rikjanna, en Kússum er dans-
inn í blóð borinn að allra
dómi og eru enn sem fyrr
forustuþjóð leikdansins, bera
höfuð og herðar yfir aðra. List
þeirra hvílir á traustum grunni
sígildrar erfðavenju og er þó
síung; lífsfjöri og skaphita
hinna sovézku listamanna er
Við brugðið, glæsilegri leikni
ög klassískri fágun. Þess ber
að geta að þau leikhús rúss-
nesk sem hæst bera merki
ballettsins og hafa snjöllustum
ggjg- ^ Þjóðlelkhúsið |
$ové%U\ r
LEIKDANSAR
Stjómandi: Peter Abolimov
listamönnum á að skipa, Bols-
ojleikhúsið í Moskvu og Kirov-
leikhúsið í Leningrad, eiga
enga fulltrúa í þessum hópi,
og sýnir það eitt háan þroska
og mikla útbreiðslu leikdansins
austur þar, ©n listamenn þessir
eru frá fjórum stórborgum:
Leningrad, Moskvu, Kiev og
Tbilísi. Þeir sýn.a aðeins tví-
dansa og eindansa að hætti
fyrirrennara sinna, en efnis-
skráin er ærið fjölbreytt og í
sextán liðum alls — pas de
deux úr frægum sígildum verk-
um, þjóðdansar, örstuttar frá-
sagnir í hreyfingum og tónum,
skringimyndir og skopdansar.
Og margbreytilegur er líka
stíll dansendanna, útlit og
framgangur, en öll bjóða af sér
góðan þokka.
Sýningin hófst á adagio úr
„Svanavatninu", hinu undur-
fagra klassíska verki sem er
allra leikdansa ástsælast í Sov-
étríkjunum og raunar víðar;
það kom í hlut þeirra Elenu
Potapovu og Roberts Kljavin
frá Kiev að klæðast gervi
hinna frægu elskenda, Odette
og Sigfrieds. Bæði eru þrótt-
miklir og glæsilegir listamenn
og ráða yfir mikilli tækni, en
hæfileikar þeirra nutu sín enn
betur í hinum íburðarmikla
pas de deux meistarans Mari-
usar Petipa úr „Don Quixote“
eftir Mincus, en tvídans þessi
er eftirlæti dansmeyja um heim
allan. Túlkun hinna mikilhæfu
Listdansararnir Alla Dváli og Vakhtang Gunashvili frá
Grúsíu.
listamanna var stílhrein og stór
í sniðum, en þó er ekki unnt
'að gleyma þeim Tikhómímovu
og Lédjak sem dönsuðu þessi
sömu atriði í Þjóðleikhúsinu
fyrir tveim árum.
Galína ísaéva og V. Zímín
frá Malíóperunni í Leningrad
sýndu klassískan tvídans, úr
„Víkingnum" eftir Adan, til-
komumiklum og litríkum leik-
dansi sem er að nokkru reist-
ur á „The Corsair", hinu mikla
kvæði Byrons lávarðar; dans-
inn hefur ísaéva sjálf samið.
Verk þetta sá ég í Malíóper-
unni í vor, og dansaði Zímín
þá einmitt hlutverk Konráðs,
hetjunnar í leiknum, og var í
öllu sannur víkingur, glæsileg-
ur og karlmannlegur; en um
ágæta leikgáfu hans og kosti
verksins verður ekkert dæmt
af þessu örlitla broti. Hinn
fjörugi og skoplegi brúðudans
þeirra ísaévu og Zímíns vakti
sýnilega ánægju leikgesta, og
svo ákaft var klappað fyrir fsa-
évu er hún dansaði „Káta
drenginn“ úr óperettu Strauss
að hún varð að endurtaka
dansinn. Dansmærin er lág og
þéttvaxin, en prýdd ótrúlegri
mýkt og hárfínni nákvæmni,
leikandi glettni og ríkri kímni-
káfu.
Við sama leikhús starfa ein-
dansendurnir Maríja Mazún og
Adol Hamzin, frábært listafólk,
gætt heillandi framkomu og
þokka. Dansmærin vann þegar
hylli áhorfenda með eindansi
sínum „Gavotte" eftir Lulli, en
ljóðrænn jnnileiki, fullkomið
látleysi og sérstæð fágun ein-
kenndi jafnan dans hennar.
Adol Hamzin er fríður maður
og íturyaxinn, mikið karl-
menni; „Perlan", stuttur, hug-
næmur dans saminn við ljúfa
tóna Rimskí-Korsakovs, bar
nafn sitt með réttu í meðferð
hinna ágætu listamanna.
Tamara Sokólova frá Óperu-
leikhúsinu í Moskvu er fagur-
sköpuð og mjög fríð sýnum en
list hennar í sumu af öðrum
toga. „Veiðimaðuriilh og fugl-
inn“ og „Þjófurinn frá Alman“,
örstuttir sögudansar, er hún
túlkaði ásamt Peter Pomazkov,
minna stundum fremur á fim-
leika en sígildam dans, en
undraverð er fimi og öryggi
beggja, hinar háskalegustu
sveiflur og loftstökk virtust
þeim leikur einn. — Síðast en
ekki sízt ber að geta gestanna
frá Tbílisi, hinnar tígulegu
dansmeyjar Alla Dvali og dans-
mannsins Vakhtangs Gúnas-
hvíli, er fluttu okkur fagra og
sérkennilega þjóðdansa ætt-
jarðar sinnar, hins frjósama
sólheita lands, klædd marglit-
um litofnum þjóðbúningum,
prýdd miklum yndisþokka,
hljóðlausri mýkt og fullkom-
inni tækni. Alla Dvali er í leik-
skránni nefnd „bezta dansmær
Georgíuríkis“, og þeirri stað-
hæfingu virðist óhætt að trúa.
Undirleik á flygil annaðist
þekkt listakona frá Leningrad,
Olga Krílova, og Þorvaldur
Steingrímsson lék á fiðlu undir
sumum dönsunum.
Leikskráin var í fátæklegasta
lagi, og smávægileg mistök
urðu í beitingu ljósa og for-
tjalds, og mun ónógri mála-
kunnáttu um að kenna. Sam-
skipti íslands og Sovétríkjanna
eru mikil og margvísleg orðin,
en rússneskukunnátta á landi
hér litil sem engin, og má vart
lengur við svo búið standa. —
Listamönnum öllum og Þjóð-
leikhúsinu færi ég þakkir fyr-
ir góða skemmtun og háa list.
Á. Hj.
Listdansararnir Tamara Sokolova og Peter Pomaskoff
frá öperettuleikhúsinu i Moskvu.
LANGARYÐUR
til að læra erlend tungumál? Ef svo er, ættuð þer að
kynna yður kennsluna í Málaskólanum MÍMI. Kennsl-
an er jafnt fyrir unga sem gamla og alltaf að kvöldinu
eftir vinnutíma. Þér lærið að TALA tungumálin um leið
þér lesið þau af bókinni og venjist því um leið að
blusta á þau í sinni réttu mynd. Jafnvel þótt þér hafið
tiltölulega lítinn tíma aflögu til náms, fer aldrei hjá því,
að þér hafið gagn af kennslu sem fer að mestu leyti
fram á því tungumáli, sem þér óskið að læra. Ef yður
langar t.d. að skreppa til Kaupmannahafnar að vori,
getið þér æft yður í dönsku með því að tala við danskan
úrvalskennara tvisvar í viku. Ef ferðinni er heitir eitt-
hvað annað gegnir sama máli um önnur tungumál, þér
getið talað við Spánverja á spönsku, Þjóðverja á þýzku
o.s.frv.
Hringið milli 5 og 8 ef þéi óskið eftir nánari
upplýsingum
Málaskélinn MÍMIR
í .......................
....'^fnarstræti 15 (Ellingsen). Sími 7149.