Þjóðviljinn - 19.10.1956, Side 7
Föstudagur 19. október 1956 — ÞJÖÐVILJINN — (7
I umræðum þeim sem urðu
á Alþingi um kjörbréfamálið
flutti Finnbogi Rútur Valdi-
marsson mjög atbyglisverða
ræðu, þar sem hann sýndi
fram á það að tillaga íhaldsins
væri engin lausn á vandamál-
inu; hún yrði aðeins tryggð
með því að kosningafyrir-
komulaginu og kosningalögun-
um væri breytt. Fyrri hlutinn
af ræðu Finnboga birtist hér í
blaðinu í dag, en síðari hlutinn
kemur á morgun.
FINNBOGI RÚTUR VALDIMARSSON:
KTORBRÉFAMÁLTÐ
Það er ekkert lítið atriði í
þessu máli, hvaða þýðingu
ógilding kjörbréfanna, sem
hér ræðir um, á að hafa, ekki
einungis fyrir skipun þessa
nýkosna Alþingis, heldur fyr-
ir framtíðina. Telja nú þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, að
með ógildingu þessara kjör-
svik við kjósendur, og raunar
hafa þeir kveðið miklu harðar
að orði, sem ég sé ekki ástæðu
til að hafa eftir.
Það er rétt, að Alþýðu-
bandalagið fordæmdi fyrir
kosningar úrskurð landskjör-
stjórnar 28. maí sl. og táldi
hann rangan. En ábyrgð á
þeim úrskurði báru og bera
fulltrúar Sjálfstæðisfiokksins
í landskjörstjórn. Alþýðu-
bandalagið og þingmenn þess
fordæma enn þennan úrskurð
og telja hann rangan. Einar
Olgeirsson hefur í þessum um-
ræðum þegar gefið yfirlýsingu
og flutt greinargerð af hálfu
þingflokks Alþýðubandalags-
ins um afstöðu þingflokksins
til þessa máls og þeirrar til-
lögu, sem hér liggur fyrir. En
ef allir þingmenn Sjálfstæðis-
flokkisns fordæma sem einn
maður þá niðurstöðu, sem í
þessum úrskurði fólst, og það
liggur fyrir í greinargerð
þingmanna Alþýðubandalags-
ins, að þeir fordæma hana í
sjálfu sér einnig, þá liggur
Finnbogi Rútur Valdimarsson
Hér liggur fyrir tillaga frá
þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins í öllum kjördeildum
um að ógilda kjörbréf fjög-
urra þingmanna Alþýðuflokks-
ins. Umræður um þessa til-
lögu hafa nú staðið dögum
saman, að segja má, og þing-
setning stendur enn yfir og
virðist ætla að taka allt að
vikutíma að þessu sinni, en
fyrr en þingsetningarfundi,
þeim sem enn stendur yfir,
er lokið, getur þingið ekki
tekið til starfa.
Það má segja, að hér er að
vísu um óvenjulegt mál að
ræða. Alþingi hefur aldrei áð-
ur ógilt kjörbréf landskjör-
inna þingmanna, sem út hafa
verið gefin af landskjörstjórn,
til handa svonefndum uppbót-
arþingmönnum, en þeir hafa
átt sæti á Alþingi í meira en
20 ár, samkvæmt ákvæðum
stjórnarskrár og kosninga-
laga, en mér vitanlega hefur
heldur aldrei komið fram til-
laga á Alþingi um ógildingu
slíkra kjörbréfa. Úthlutun
uppbótarþingsæta samkvæmt
ákvæðum kosningalaga og
stjórnarskrár og eftir úrslit-
um Alþingiskosninga hverju
sinni, er í sjálfu sér mjög
einfalt reikningsdæmi, og það
er ólíklegt að svo glöggum
mönnum, sem alla jafna skipa
landskjörstjórn, geti fatazt
um þann útreikning, enda er
það svo, að ég er ekki viss
um að í ákvæðum kosninga-
laganna sé beinlínis gert ráð
fyrir þeim möguleika, að Al-
þingi ógildi kjörbréf lands-
kjörins þingmanns, eða upp-
' bótarþingmanns, sem lands-
I kjörstjórn hefur úthlutað
| þingsæti.
I 19. kafla kosningalag-
anna, 142. og 143. gr., eru
þau ákvæði, sem í kosninga-
lögunum felast yfirleitt um
úrskurð Alþingis um gildi
kosninga. I hópi ræðumanna
Sjálfstæðisflokksins um þetta
mál eru menn, sem eru vel
fróðir um þessi efni, en það
ber svo undarlega við, að
ég hef ekki orðið þess var að
neinn þessara löglærðu manna
hafi nefnt þær greinar eða
þau ákvæði kosningalaganna,
sem eigi við þetta tilfelli, að
Alþingi ógildi kjörbréf lands-
kjörins þingmanns eða þing-
manna. Ég verð að segja, að
mér hefði ekki þótt úr vegi,
þegar svo löglærðir menn tala,
sem hér hafa rætt þetta mál,
i að þeir hefðu bent á þau
| ékvæði 142. gr. kosningalag-
f anna, sem þeir telja að eigi
r við um þetta sérstaka tilfelli,
ó'-,Mtfrgu jUbíngis á kjör-
bréfi ]andsí:j"rin3 þingmanns.
Það væri fróðlegt að heyra
skoðun þessara þingmanna á
þessu atriði. Mér virðist að
það gæti ef til vill varpað
ljósi yfir það, hvernig með
þetta mál skuli fara, að dómi
tillögumanna í framhaldi af
ógildingu kjörbréfanna, ef
hún yrði ofan á hér á Alþingi.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins hafa heldur enga tillögu
flutt um það, hvernig með
skuli fara, eftir að hin um-
deildu fjögur kjörbréf hafa
verið ó'gilt. Ég vil því leyfa
mér að beina til hinna lög-
lærðu þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins, sem mest ræða
þetta mál, einni eða tveimur
spurningum um formhlið
málsins. I fyrsta lagi vil ég
spyrja: Samkvæmt hvaða
ákvæðum 142. gr. kosninga-
laganna ber Alþingi að ógilda
hin umdeildu kjörbréf? í þess-
ari grein laganna eru eins og
þingmönnum er vafalaust
kunnugt, beinlínis talin upp
þau atriði kosninga og þær
misfellur á kosningum, sem
getavarðað ógildingu af hálfu
Alþingis, og hvaða atriði í
kosningum skuli beinlínis
varða ógildingu Alþingis. Mér
virðist nú liggja nærri að
ætla, eftir orðalagi þessarar
greinar, að löggjafinn hafi
ætlazt svo til, að þessi upp-
talning væri tæmandi. Og ég
er ekki alveg viss um með
sjálfum mér, að neitt af á-
kvæðum þessarar greinar eigi
beinlínis við það tilfelli, sem
hér liggur fyrir, að Alþingi
ógildi kjörbréf landskjörins
þingmanns. Ég veit að vísu
vel af 146. gr. stjórnarskrár-
innar, þar sem segir, að Al-
þingi úrskurði um kosningu
þingmanna. En það má líka
benda á, að öll ákvæði stjórn-
arskrárinnar um kosningu til
Alþingis vísa til kosningalag-
anna og nánari ákvæða kosn-
ingalaga um þau.
í öðru lagi vil ég spyrja,
og það skiptir raunar meira
máli: Hvaða afleiðingu ætlast
þeir þingmenn, sem standa að
þeirri tilltígu, sem hér liggur
fyrir um ógildingu kjörbréfa,
til að hún hafi? Hvað ætlast
Jæir til að gerist eftir að Al-
þingi hafi ógilt kjörbréfin?
Mér virðist að svar við þess-
ari spurningu snerti beinlínis
kjarna þessa máls, en ég held
að ræðumenn Sjálfstæðis-
flokksins hafi nokkuð sneitt
hjá því í sínum mörgu og
löngu ræðiun að gefa svar
við þessari spurningu. Og um
þetta, hvað eigi að gerast eft-
ir að Alþingi hefur ógilt kjör-
bréfin, haía þe'r enga till?gu
flutt. Það ér víst.
bréfa sé öllu réttlæti full-
nægt? Bjarni Benediktsson
lét orð falla í ^íðustu ræðu
sinni hér áðan á þá leið, að
svo virtist sem hann teldi, að
aðeins ef þessi umdeildu kjör-
bréf væru ógilt, þá væri öllu
réttlæti fullnægt í þessum
málum. En ég efast um, að
með ógildingu þessara um-
deildu kjörbréfa verði sett af
Alþingis hálfu það fordæmi,
sem tryggi réttari meðferð
slíkra mála í framtíðinni, en
það virðist mér aðalatriði
þessa máls.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins hafa í ræðum sínum um
þetta mál mjög deilt á okkur
þingmenn Alþýðubandalagsins
fyrir það, að við munum ekki
fylgja tillögum þeirra um ó-
gildingu hinna umdeildu kjör-
bréfa.. Um þessa afstöðu þing-
manna Alþýðubandalagsins
hafa Sjálfstæðismenn farið
hinum hörðustu orðum, talið
hana svik við afstöðu flokks-
•ins í kosningunum í sumar,
það fyrir, að meiri hliiti Al-
þingis er andvígur þeim
skilningi, sem kom fram í úr-
skurði landskjö'rstjórnar. Það
liggur því fyrir, að þessi úr-
skurður verður í sjálfu sér
ekkert fordæmi eða fyrir-
mynd, jafnvel þótt þeir fjórir
þingmenn, sem hafa hlotið
kjörbréf samkvæmt honum,
taki nú sæti á Alþingi. Það
verður ekki vitnað til þess, að
meiri hluti Alþingis hafi fall-
izt á úrskurð landskjörstjórn-
ar, jafnvel þó að þessi kjör-
bréf verði tekin gild að svo
stöddu. I þeirri afstöðu er
því engin réttlæting á niður-
stöðu þessa úrskurðar, sem
vitnað verði til síðar sem for-
dæmis. En ógilding hinna um-
deildu kjörbréfa ein út af fyr-
ir sig er engin lausn á því
deilumáli, og því stjórnskipu-
| lega vandamáli, sem kom upp
I með kosningabandalagi Al-
þýðuflokksins og Eramsóknar-
í flokksins fyrir kosningarnar í
j sumar og næð úrskurði lands-
kjöTstjórnar um það hinn 28.
maí sl. Ógilding kjörbréfanna
ein út af fyrir sig hefur enga
teljandi pólitíska þýðingu fyr-
ir skipun þessa nýkosna AI-
þingis. Og í þeirri aðgerð Al-
þingis einni saman að ógilda
kjörbréfin felst engin trygg-
ing fyrir réttlátari skipun Al-
þángis í framtíðinni.
Ég hygg að það, sem ég hef
nú sagt, verði. ljósast yrir
mönnum, ef þeir svara eða
leitast við að svara þeirri
spurningu, sem þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa i
þessum umræðum íorðazt að
svara og meira að segja forð-
azt að víkja að, þessari spurn-
ingu: Hvað gerist, ef Aiþingi
ógildir kjörbréfin? Hvað á þá
að fylgja á eftis? Mér virðist
augljóst, að ef hinir fjórir
landskjörnu þingmenn Alþýðu-
flokksins víkja af Alþingi
vegna þess, að kjörbréf þeirra
verði metin ógild, þá eigi aðr-
ir fjórir uppbótarþingmenn að
taka sæti þeirra samkvæmfc
ákvæðum stjórnarskrár og
kosningalaga. I stjórnar-
skránni, 31. gr., D-lið 31.
greinar, segir að vísu: ,,A
Alþingi skulu e'ga sæti allt
að 52 þingmenn“. En þar seg-
ir einnig, að á Alþingi skuli
eiga sæti allt að ellefu þing-
menn til jöfnunar milli þing-
flokka, svo að hver þeirra
hafi þingsæti í sem fyllstu
samræmi við atkvæðatölu sina.
við almennar kosningar. Og
ennfremur segir þar, að skip-
un jöfnunarþingsæta fari að
öðru leyti eftir kosningalög-
um. En í kosningalögunum
eru nákvæmar reglur um það,
hve mörgum uppbótarþingsæt-
um skuli úthluta og hvernig,
en það fer eftir úrslitatölum
afstaðinna alþingiskosninga.
Nú er það því augljóst sr.m-
kvæmt eðli málsins, ákvæðum
125.—128. gr. kosningalag-
anna og þeim úrslitatölum al-
þingiskosninganna í sumar,
sem fyrir liggja, að það ber
samkvæmt kosningalögutvum
að úthluta fullkomlega 11
uppbótarþingsætum, "Ilum
þeim 11 uppbótarþingsætum,
sem um getur verið að ræða,
eftir því sem í kosninga’ögun-
um segir. En nú hefur lands-
kjörstjórn þegar útb’utað
þessum 11 u ppbótarþing.ætum
eftir reglum laganna e’ns og
hún skilur þær, í sammemi
við og rökréttu framh'>,di af
þeim úrskurði, sem landskjör-
stjórnin felldi fyrir kosníngar,
en þeim iirslitum um þann úr-
skurð réði, eins og kunnugt
er, Jón Ásbjörnsson Ij-nsta-
réttardómari, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins. Hæstaréttar-
dómarinn tók það skýrt fram
í greinargerð sinni fyrir úr-
skurðinum, að honum væri
ljóst, að kosningabandalag Al-
þýðuflokksins og Framsókn-
arflokksins væri til þess lag-
að, eins og hann komst að
orði, orðrétt, að raska f'okk-
um þessum í hag þeirri þing-
mannatölu, sem þeir mundu
fá, ef þeir byðu fram til Al-
þingis með venjulegum hætti.
En þrátt fyrir það komst
hann að þeirri niðurstöðu, að
landskjörstjórn hlyti að líta
á hvorn þessara flokka um
sig sem sjálfstæðan þingflokk
og úthluta uppbótarþingsæt-
unum samkvæmt því, þ.e. vit-
anlega til Albvðuflok^síns
Framhald á. 10. síðu