Þjóðviljinn - 06.11.1956, Page 5
Þriðjudagur 6. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (5
janos Kadar myndar ríkis-
stjórn í Ungverjaiandi
Birtir í 15 liðum yfirlýsingu um stefnu sína
Framkvæmdastjóri ungverska kommúnistaflokksins,
Janos Kadar, myndaði ríkisstjórn í Ungverjalandi að-
faranótt sunnudags, og sendi stjórnin frá sér eftirfar-
andi yfirlýsingu:
,,23. október hófst fjölda-
hreyfing í landi okkar með því
göfuga markmiði að leiðrétta
mistök sem voru andstæð
flokknum og alþýðu manna og
framin höfðu verið af Rakosi
og félögum hans og til þess að
krefjast þjóðlegs sjálfstæðis og
fullveldis. En veikleiki stjórn-
ar Imre Nagy og vaxandi áhrif
andbvltingarsinna sem höfðu
smeygt sér inn í þessa fjölda-
hreyfingu hafa stefnt í voða fé-
lagslegum landvinningum okk-
ar, alþýðuríkinu, stjórn verka-
manna og bænda og sjálfri til-
veru iands okkar.
Þetta hefur orðið okkur ung-
verskum föðurlandsvinum, hvöt
til þess að mynda byltingar-
sinnaða ungverska stjórn
verkamanna og bænda. Stjórn-
in er þannig skipuð:
Janos Kadar forsætisráð-
herra,
Ferenc Munnic varaforsætis-
ráðherra, hermálaráðherra og
öryggismálaráðherra,
'Gt;i : Marosan, ráðherra án
stjórnardeildar,
Imre Horwath, utanríkismála-
ráðherra,
Istvan Kotsa, fjármálaráð-
herra.
Antal Apró, iðnaðarmálaráð-
herra,
Imre Bekai, landbúnaðar-
málaráðherra,
Szandor Ronai, viðskipta-
móiaráðherra.
Önnur ráðherraembætti eru
öskipuð fyrst um sinn. Eftir að
endurreist hefur verið lögleg
stjórn í landinu, verður nauð-
synlegt að bjóða þau embætti
fulitrúum annarra flokka og
flokksleysingjum, sem verið
hafa tryggir alþýðuvöldum og
vilja ásamt okkur vernda hina
félagslegu ávinninga.
Hin nýmyndaða stjórn bein-
ir þessari áskorun til ungversku
'þjóoarinnar:
Ungversku bræður, verka-
menn, bændur, hermenn, fé-
lagar.
Þjóð vor á nú við geigvæn-
legar hörmungar að etja. Stjórn
verkamanna og bænda, hinum
heilaga málstað sósíalismans
hefur verið stefnt í voða. Mik-
il hætta vofir yfir árangri þeim
sem unnizt hefur síðustu 12 ár-
in, þeim árangri sem alþýða
Ungverjalands og umfram allt
íþið, verkamenn Ungverjalands,
hafið skapað með eigin hönd-
nm, með ósérhlífnu hetjustarfi.
Hinir gagnbyltingarsinnuðu
samsærismenn koma æ meir
upp um sig. Þeir ofsækja misk-
unnarlaust stuðningsmenn lýð-
ræðisins.
Vér vitum að enn eru mörg
Vandamál óleyst í landi voru,
að enn verður að berjast við
marga örðugleika. Líf alþýðu-
stéttanna er engan veginn eins
og það ætti að vera í landi, sem
er að koma á hjá sér sósíal-
isma. Jafnhliða þeim framför-
um sem.orðið hafa síðustu 12
árin hafa verið gerð mörg stór-
felld mistök, og framin hafa
verið hin alvarlegustu réttar-
brot meðan klíka Rakosís og
Gerös fór með forustuna, og
þetta olli réttmætri óánægju
meðal vinnandi fólks.
En afturhaldssinnarnir hugsa
aðeins um sérhagsmuni sína,
JANOS KADAR
varð framkvæmdastjóri Verka-
mannaflokksins eftir að Gerö fór
frá og hefur nú myndað stjórn í
Ungverjalandi.
Kadar er fæddur 1912 á sveita-
bæ skanunt frá júgóslavnesku
‘landamærunum. Hann lærði ung-
ur smíðar og tók þátt í verklýðs-
baráttunni; 19 ára gamall varð
hann. forustumaður í leynilegum
samtökum ungra kommúnista.
í heimsstyrjöldinni síðari starf-
aði Kadar í leynihreyfingu
kommúnista, BEKE PART, og
var handtekinn af Gestapó er
hann reyndi að ná sambandi við
skæruliða Títós. Honum tókst
þó að sleppa úr haldi skömmu
áður en Ungverjaland var frels-
ag undan oki nazista, og varð
eftir styrjöldina miðstjórnarmað-
ur í Verkamannaflokknum og
aðstoðarlögreglustjóri. Árið 1948
varð hann innanríkisráðherra.
Er baráttan gegn „títóistum"
hófst var Kadar handtekinn og
varð að þola mikið harðrétti í
fangabúðum, m. a. voru rifnar
af lionum allar neglurnar. Hann
dvaldist í 22 fangelsum á þessu
tímabili, vegna þess að hann var
frægur fyrir snilld sína við að
sleppa úr haldi. Honum var
sleppt lausum fyrir skönunu.
þeir eru þess albúnir að ráðast
gegn sjálfum alþýðuvöldunum.
í því felst að þeir vilja af-
henda auðmönnum verksmiðjur
og fyrirtæki og gósseigendum
landið. Þeir vilja á nýjan leik
drottna yfir okkur með her og
lögreglu, hefja að nýju stjórn-
arfar kúgunar og arðráns. Ef
þeir yrðu ofan á myndu þeir
ekki færa yður frelsi, hagsæld
og lýðræði, heldur þrældóm, ör-
birgð og miskunnarlausa yfir-
stéttarkúgun.
Afturhaldsöflin hafa hagnýtt
mistök sem framin voru við
uppbyggingu alþýðuríkisins og
hafa leitt margt heiðarlegt
verkafólk inn á villigötur og
einkanlega mikinn hluta æsku-
lýðsins, sem hefur gengið í lið
með þeim af heiðarlegum hvöt-
um og ættjarðarást,
Þetta fólk ber fram kröfur
um aukið lýðræði í öllu lífi
okkar, í félagsmálum, efnahags-
málum og stjórnmálum, með
því að efld verði undirstaða
sósíalismans í landi voru. Það
hefur tekið til máls til stuðn-
ings Ungverjalandi, sem þróað-
ist og blómgaðist sem frjálst
og fullvalda ríki í vináttu við
önnur sósíalistísk ríki. Því væri
það rangt og glæpsamlegt að
ásaka þetta fólk fyrir að taka
þátt í baráttunni.
Gagnbyltingarmenn liafa
hagnýtt sér hversu veik stjórn
Nagys var og fara hamförum.
Þeir myrða og ræna, og það er
hæfta á því að þessi öfl nái
undirtökunum.
Með djúpum harmi og hryggð
í hjarta sjáum við hversu
skelfilegar raunir hafa verið
f | leiddar yfir hjartfólgna ætt-
jörð okkar af gagnbyltingar-
öflum og einnig af heiðarlegu
og réttsýnu fólki sem vitandi
eða óafvitandi hefur hagnýtt
ranglega kjörorð lýðræðis og
frelsis og þannig opnað aftur-
haldinu gáttirnar.
Ungverjar, bræður, föður-
landsvinir, hermenn, samborg-
arar.
Við verðum að binda endi á
ofbeldisverk andbyltingarafl-
anna. Það er komið að úrslita-
stund. Vér skulum verja stjórn
verkamanna og bænda, ávinn-
inga alþýðuríkisins, vér skulum
koma á reglu, öryggi og friði
í landinu. Hagsmunir fólksins,
hagsmunir ættjarðarinnar
krefjast þess að stofnuð verði
sterk, traust stjórn, stjórn sem
sé þess megnug að hefja land-
ið úr hörmungum þeim sem jrf-
ir það hafa dunið. Þess vegna
höfum vér myndað byltingar-
sinnaða stjórn ungverskra
verkamanna og bænda. Stefna
stjórnarinnar er sem hér segir:
1. Að tryggja þjóðlegt sjálf-
stæði og fullveldi landsins.
2. Að verja kerfi hins sósíal-
istíska alþýðuríkis fyrir öllum
árásum, verja félagslega á-
vinninga vora og halda áfram
á þeirri braut að byggja sósíal-
isma.
3. Að binda endi á innan-
landsátök og koma aftur á
reglu og friði landinu. Stjórn-
in mun ekki heimila að fólk
verði fyrir neinum ofsóknum
vegna þátttöku í atburðunum
að undanförnu.
4. Að koma á náinni, bróður-
legri og vinsamlegri sambúð
við önnur sósíalistísk ríki á
grundvelli fullkomins jafnrétt-
is; ekkert ríki skipti sér af
innanríkismálum annars og
efnahagstengslin séu byggð á
gagnkvæmum hagsmunum og
gagnkvæmri aðstoð.
5. Að tryggja friðsamlega
sambúð við öll riki, óháð því
hvert stjórnarkerfi þau búa við
og hvaða ríkisstjórn er við völd.
6. Að tryggja skjóta og veru-
lega endurbót á lífskjörum al-
mennings, einkum verkamanna,
reisa fleiri íbúðir handa al-
menningi, tryggja verksmiðjum
aðstöðu til þess að byggja í-
búðir handa verkamönnum sín-
um og öðru starfsliði.
7. Að endurskoða efnahags-
áætlanir okkar og efnahags-
stjórn og taka þá réttmætt
tillit til þjóðlegra einkenna
landsins til þess að bæta lífs-
kjörin eins ört og kostur er.
8. Að afnema skriffinnsku og
tryggja víðtæka lýðræðisþróun
á öllum sviðum í þágu alþýðu
manna.
9. Að koma á verkamanna-
stjórn í öllum verksmiðjum,
fyrirtækjum og öðrum stofn-
unum á grundvelli almenns lýð-
ræðis.
10. Að efla landbúnaðar-
framleiðsluna, binda endi á
nauðungarafhendingu á afurð-
um, styðja vinnandi og óháða
bændur; ríkisstjórnin mun af
fullri einbeittni binda endi á
að þróast innan samvinnu-
hreyfingar og samyrkju.
11. Að tryggja lýðræðislegar
kosningar héraðastjórna og
byltingarráðs.
12. Að styrkja smáiðnað og
smáverzlun einstaklinga í bæj-
um og sveitum.
13. Að vernda staðfastlega
þjóðmenningu Ungverja í sam-
ræmi við hina jákvæðu arf-
leifð.
14. Byltingarstjórn verka-
manna og bænda í Ungverja-
landi hefur í samræmi við hags-
muni þjóðarinnar, verkalýðs-
stéttarinnar og ættjarðarinnar
beðið yfirstjórn Sovétherjanna
að aðstoða þjóð okkar við að
brjóta á bak aftur hin myrku
öfl afturhalds og gagnbylting-
ar, koma á sósíalistískum al-
þýðuvöldum, tryggja aftur lög
og reglu í landinu.
15. Þegar komið hefur verið
á lögum og reglu í landinu mun
ungverska stjórnin hefja samn-
inga við stjórn Sovétríkjanna
og aðra aðila Varsjársáttmál-
ans um brottflutning sovézka
hersins af ungversku landi.
Verkamenn, vinnandi bænd-
ur, menntamenn, ungverskir
hermenn og liðsforingjar!
Styðjið hina ungversku
byltingarstjórn verkamanna og
bænda, verndið hina réttlátu
baráttu alþýðunnar, verndið al-
þýðulýðveldið, afvopnið flokka
gagnbyltingarmanna, hvar sena
þeir finnast.
Skipulagsbundnir verkamenn!
Fylkið yður um byltingarstjórn
ungverskra verkamanna og
bænda. Takið þegar upp störf í
öllum fyrirtækjum landsins.
Vinnandi bændur! Verjið land
yðar, berjizt við hlið bræðra
ykkar, verkamannanna, fyrir
sameiginlegum málstað, fyrir
lýðræðisvöldum alþýðunnar.
Ungverskir æskumenn! Látið
engan leiða yður á villigötur.
Lýðræðisvöld alþýðunnar ein
munu megna að tryggja yður
betri og frjálsari framtíð. Verj-
allar lögleysur sem fengið hafa ið þau“.
Fjáreigendafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund miðvikudaginn 7. nóvember í Breið-
firðingabúð, uppi, kl. 8.
Áríðandi mál á dagskrá.
Inntaka nýrra fjáreigenda í félagið. Stjórnin.
Dægiirlagakeppni S.KT.
Al-íslenzk skemmtun, sem enginn ætti að missa af í Auturbæjarbíéi í kvöld
kl. 11.15 — Atkvæðagreiðsla um úrslitalögin
Sigurður Ólafsson
syngur:
Nóttin og þú.
Akranes-skórnir.
Sonarkveðja.
Þú gafst mér allt.
Á gömlu dönsunum.
Svava Þorbjarnard,
syngur:
Heim vil ég.
Adda Örnólfsdóttir
syngur:
Hvítir svanir.
1 maí.
Við gluggann.
Svavaog Sigurður syngja: „Greikkum spor“.
Haukur og Adda syngja: „Þú ertvagga mín haf.“
6 manna hljómsveit Karls Billich aðstoðar.
Haukur Morthens
syngur:
Bláu augun.
Kveðja förusveins.
Viltu koma?
Gunnar Kristinn Guðmundsson, 20 ára, einhentur, leikur með vinstri hendi og hægri hand-
leggsstubb, á harmoniku, á undraverðan hátt.
Lárus Ingólfsson og Karl Guðmundsson, leikarar, fara með svo gráthlægilegan gamanþátt,
eftir Guðmund Sigurðsson, að hláturmildu fólki er ráðlagt að hafa með sér hláðurstillandi
pillur ,til vonar og vara.
Sigríður Hannesdóttir og Hjálmar Gíslason syngja nýjar, óbærilegar gainanvísur.
Kynnir: SVAVAR GESTS.
Aðgöngumiðar í Fálkanum.hjá Sigríði Helgadóttur, í Vestui-veri og Austurbæjarbíói. —