Þjóðviljinn - 09.11.1956, Síða 3

Þjóðviljinn - 09.11.1956, Síða 3
Föstudagur 9. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Heildarafli landsmanna fyrstu 9 mánuii ársins nam 377 þúsund smálestum AflJ bátaflofans á þessu tlmabili nam 239 þús. lesta en togaranna 138 þús. lesta Heildarafli landsmanna fyrstu 9 mánuði þessa árs nam 377 þús. smál., þar af voru um 83 þús. lestir af síld. Er heildaraflinn 34 þús. smál. meiri en á sama tímabili í fyrra, en á því ári öfluðust samtals 407 þús. smálestir. Bátaflotinn hefur á fyrstu 9 mánuðum ársins aflað 239 þús. smálesta, en togaraflotinn 138 þús. smál. Framangreindar upplýsingar voru gefnar á aðalfundi Lands- sambands íslenzkra útvegs- manna sem hófst hér í Reykja- vík í gær. Formaður L.I.Ú., Sverrir Júlíusson, setti fund- inn. Minntist hann í upphafi máls síns 12 sjómanna sem drukknað hafa síðan síðasti aðalfundur L.Í.Ú. var haldinn og nokkurra látinna útgerðar- manna. Vottuðu fundarmenn hinum látnu virðingu sína og aðstendendum þeirra samúð með því að rísa úr sætum. Að lokinni setningarræðu kosinn fundarstjóri. Einnig voru nefndir kjörnar og minnzt síðustu atburða í Ungverja- landi. Þá flutti Sigurður Egils- son framkvæmdastjóri L.Í.Ú. skýrslu sambandsstjórnar, kjörnar voru fastanefndir o. fl. Aðalfundinum verður haldið á- fram í dag. Langmest til frystingar Svo vikið sé aftur að yfir- liti því um framleiðslu sjávar- afurða er flutt var á aðalfundi L.Í.Ú. og áður er getið, hefur afli fyrstu 9 mánuði þessa árs formanns var Jón Árnason verið verkaður sem hér segir: Bátafiskur Togarafiskur Saintals tsaður fiskur . • • • 73.505 4.889.892 4.963.397 Til frystingar . . . • 81.538.502 59.568.888 141.107.390 Til herzlu 16.722.558 28.529.700 45.252.258 Til niðursuðu . • • • 74.095 80.710 154.805 Til söltunar ... 54.666.391 37.574.499 92.240.890 Til mjölvinnslu 3.331.008 4.738.739 8.069.747 Annað 1.957.931 645.611 2.603.542 Síldin 80.311.310 2.236.085 82.847.395 i 238.675.300 138.264.124 376.939.424 byggingin stórkostleg og mjög fjárfrek. Á sl. ári nam heildarafli landsmanna að undanskilinni síld 255.000 smálestum, en af því fóru til frystingar 170.000 smálestir. Á sl. ári var stærsta við- skiptaland okkar í freðfiski Rússland, þar næst Bandaríkin og Tékkóslóvakía. Sala á frystum fiski í ár hefur yfirleitt gengið vel og afskipun einnig. Gert er ráð fyrir að fram- leiðslan á freðfiski í ár verði lík og á sl. ári. Þjóðfána Sovét- ríkjanna stolið Klukkan rúmlega hálf eitt í gærdag var þjóðfána Sovétríkj- anna stolið af fánastönginni við sovézka sendiráðsbústaðinn í Túngötu. Skömmu síðar sáust nokkrir unglingar með fánann í Garðastræti. Rannsóknarlög- reglan biður alla þá sem ein- hverjar frekari upplýsingar geta veitt að gefa sig fram. Saltfiskur Um síþustu mánaðamót nam fieildarframleiðslan á saltfiski 42.500 smál., en var á sama tíma í fyrra 43.400 smál. Heild- arframleiðslan á sl. ári nam hinsvegar 48.500 smál. Gera má ráð fyrir því, að heildarframleiðslan í ár verði nokkru minni en hún var á sl. óri. Sala og afskipun hefur geng- ið vel á þessu ári, og má búast við að aðeins lítill hluti af ársframleiðslunni verði ó seldur um áramót. Saltfiskurinn er aðallega seld- ur til Portúgal, Brasilíu, Grikk- lands, Italíu og Spánar. Skreið Um 10.500 smálestir voru framleiddar á sl. ári og gekk sala hennar nokkru ver en á árinu 1954. Verðlag lækkaði einnig á sl. ári og hefur það ekki hækkað aftur á þessu ári. Skreiðarframleiðsla á fyrstu 10 mán. þessa árs nemur um 7.900 smál. og hefur verkun hennar gengið mun betur en á sl. ári. Afskipanir hófust í lok sept- ember og verður vart lokið fyrr én um mitt næsta ár. Skreiðin fer aðallega til Níg- eríu, Finnlands, Sviþjóðar og Italíu eins og áður og nú nokkuð til franska Kameron og U.S.A. Freðfiskur Frysting fisks til útflutnings hefst hér á landi upp úr 1935. í dag er um helmingur alls þess afla, sem lagður er á land í landinu frystur. | Þróunin í þessum iðnaði hef- ur því verið geisilega ör, upp-, Þjóðviljann vantar ungling eða roskinn mann til að bera blaðið út við HI í ð a r v e g Bazar til ágóða fyrir Barnaspítala- sjóð Hringsins n.k. sunnudag Safnazt hafa nú tæpar 4 millj. kr. í sjóðinn Bazar verður haldinn næst- komandi sunnudag 11. nóvem- ber í húsakynnum klæðaverzl- unar Andrésar Andréssonar, Laugaveg 3, til ágóða fyrir Barnaspítala Hringsins. Verða þar að mestu á boðstólum munir unnir af Hringkonum sjálfum, svo sem allskonar prjónuð, liekluð og saumuð barnaföt handbroderuð vöggu- sett, svuntur o. fl. og er hand- bragð þeirra Hringkvenna al- kunnugt frá því, er þær hafa haldið bazara áður. Allur ágóði af bazarnum rennur sem fyrr til Barna- spítalasjóðs Hringsins, en hann hafa hingað til safnazt tæpar fjórar milljónir króna. Barnaspítalinn verður til húsa í vestur álmu á 2. og 3. hæð hins nýja húss Landsspítalans, og er verið að ljúka við að steypa þær upp þessa dagana. Þess má einnig geta, að nú þegar um áramótin standa vonir til, að hægt verði til bráðabirgða að opna næsta myndarlega barnadeild á e-'stu hæð gamla spítalans, og verð- ur hún starfrækt þar til nýi spítalinn tekur til starfa. Legg- ur Barnaspítalasjóður Hrings- ins til rúm, sængurfatnað og annan fatnað í þá deild, og er það allt með sama sniði og verður í hinum nýja barna- spítala. 1 sambandi við bazarinn efn- ir Kvenfélagið Hringurinn til skyndihappdrættis, einkum fyr- ir foreldra, sem eiga ung börn. Verða vinningarnir við barna hæfi, leikföng og fatnaður. Stærsti vinningurinn er brúða, mjög fullkomin (gengur og tal- ar), og fylgir henni vandað brúðurúm með ísaumuðum sængurfötum. Annar góður vinningur er sjálfstýrður bíll. Happdrættismunirnir, 10 tals- ins, verða til sýnis í glugga Andrésar fram að helgi. Mið- arnir kosta 5 kr. hver. Dregið verður á sunnudagskvöld. Hjálpumst «11 að því að bóa upp litlu hvitu rúinin í Barna- spítala Hringsins. Ópera flutt í heild á tónleik- um Sinfóníuhljómsveitarmnar II Tiovatore eftir Verdi flutt undir stjórn brezks hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveit íslands fitjar í næstu viku upp á algerri nýjung í íslenzku tónlistarlífi: konsertuppfærslu á óperu, þ.e.a.s. óperan II Trovatore eftir Verdi veröur flutt í heild á tónleikum, en án leiktjalda og búninga. Jón Þórarinsson framkvæmda- stjóri hljómsveitarinnar skýrði blaðamönnum frá þessu í gær. Sagði hann að þessi háttur á flutningi ópera hefði rutt sér Warwick Braithwaite mjög til rúms á síðustu árum víða um heim. 11 Trovatore er ein af allra vinsælustu óperum Verdis, enda telja margir fróðir menn að þar njöti hugmyndaflug ;og laga- auðgi tónskáldsins sín bezt. Óper- an þykir hinsvegar ekki vel fall- in til flutnings á sviði, atburða- rásin er óljós og textinn slæmur. Er því konsertuppfærsla óper- unnar tilvalin. Kuiuiur brezkur stjórnandi Unnið hefur verið af miklu kappi að undirbúningi óperu- flutningsins um nokkurra vikna skeið. Hefur Ragnar Bjömsson annazt þann undirbúning. Einsöngvarar verða fimm: Þur- íður Pálsdóttir, Guðmunda Elías- Heita á öll friðar öfl og S.K að stöðva ófrið „Fundur haldinn í Menningar- og friðarsamtökum ísl. kvenna 6. nóv. 1956 harmar þá atburði sem gerzt hafa í Ungverj.alandi síð- ustu dagana, vegna vopnaðrar í- hlutunar Rússa um málefni Ung- verja. Fundurinn telur að með innrás Rússa í Ungverjaland og sömu- leiðis með árás Breta og Frakka í Egyptalandi séu stórveldin að fótumtroða frelsi og mannrétt- indi smærri þjóða og að þessi stórveldi séu að brjóta í bága við yfirlýsta stefnuskrá sína. Menningar- og friðarsamtök ísl. kvenna heita á öll friðaröfl í heiminum og sérílagi Samein- uðu þjóðirnar að gera sitt ýtr- asta til að knýja stórveldin, sem árásir hafa gert, til að slíðra sverð sín og beita öllu áhrifa- valdi sínu til þess að ófriður breiðist ekki út.“ dóttir, Magnús Jónsson, Guð- mundur Jónsson og Kristinn Hallsson. Guðmunda er nú búsett í Bandaríkjunum en ráðin hing- að sérstaklega til þátttöku i flutningi óperunnar. Kór er skip- aður söngmönnum úr Karlakórn- um Fóstbræðrum og síðast en ekki sízt: stjórnandi verður vel þekktur brezkur hljómsveitar- stjóri Warwick Braithwaite að nafni. Braithwaite er mjög kunnur hljómsveitarstjóri í Bretlandi og víðar. Hann hefur um árabil stjórnað óperuflutningi við Co- vent Garden og Sadlers Wells, — munu þær óperusýningar sem hann hefur stjórnað hjá þessum félögum vera á fimmta hundrað talsins. Þá hefur hann verið fast- ur stjórnandi hljómsveitar brezka útvarpsins og skozku hljómsveitarinnar í Glasgow og komið fram við ýms tækifæri með öllum kunnustu hljómsveit- um Bretlands. Braithwaite hefur stjórnað sem gestur mörgum hljómsveitum á meginlandinu, einnig i Ástralíu, Nýja Sjálandf þar sem hann er fæddur og Suð- ur-Afríku. Fyrsti flutningur óperunnar II Trovatore verður í Austurbæjar- bíói á þriðjudagskvöld og sá næsti á fimmtudag. Samúð Ólafs Péturssonar 1 gær var víða dreginn fáni í hálfa stöng í Reykjavík til að votta Egyptum og Ungverjum samúð. Meðal þeirra sem drð fána í hálfa stöng var Sjálf- stæðisflokksmaðurinn Ölafur Pétursson, sem var dæmdur í 20 ára fangelsi í Noregi fyrir að bera ábyrgð á dauða fjöl- margra ættjarðarvina, er hann njógnaði um og framseldi síð- an þýzku nazistunum. Var Ól- afi bjargað úr fangelsi af Bjarna Benediktssyni fyrrver- andi dómsmálaráðherra. Hef- ur „samúð“ Ólafs Péturssonar að sjálfsögðu einvörðungu ver- ið bundin Ungverjum, í sam- ræmi við stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Minntust Egypta og Ungverja með vinnustöðvun f gærmorgun bað Jón Lofts- son verkamenn hjá Vikurfélag- inu iað leggja niður vinnu í 5 mínútur til að votta Ungverjum samúð sína. Fóru verkamennirn- ir þá fram á að fá einnig að votta Egyptum samúð sína vegna árása Breta og Frakka íreð vinnustöðvun í aðrar fimm rnin- útur. Voru þau tilmæli samþykkt og vinna stöðvuð við fyrirte:kið í 10 mínútur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.