Þjóðviljinn - 09.11.1956, Blaðsíða 7
Föstudagur 9. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — XI
9. umferð 23. október
Stáhlberg — Sabo V2-V2
Gligoric — Sliwa 1-0
Botvinnik — Tajmanoff V2-V2.
Uhlmann — Unsicker V2.-V2'
Keres — Najdorf V2-V2
Golombek —- Padevsky V2-V2
Smysloff — Bronstein V2-V2
Ciocaltea — Pachmann 0-1
Vegna skákanna Botvinnik
— Tajmanoff og Smysloff —
Bronstein, er óvenjulega þétt-
skipað í salnum að þessu
sinni.'
Tajmanoff beitir kóngs-
indverjanum, og Botvinnik
teflir eftir nýjustu tízku á
móti. Heldur hann d-peðinu
bakstæðu og leikur fram c-
og e-peðunum. Við þetta veik-
ist að vísu reiturinn d4, en það
kom ekki að sök í skákinni
Tajmanoff — Najdorf. Taj-
manoff tekur sér nú fyrir
hendur að endurbæta tafl-
mennsku Najdorfs í þeirri
skák. Leggur hann snarlega í
langferðalag með annan ridd-
ara sinn> g8-f6—e8-c7-e6-d4 og
hefur að þessu loknu ágætt
tafl, þar sem riddarinn stend-
ur eins og bjarg í hvítu stöð-
unni, valdaður af kollega sín-
um á e6, peðinu á e5 og bisk-
upnum á g7.
Botvinnik tekst að vísu að
hrinda þessari riddaraliðsá-
rás, en við það hefur hann
beðið slíkt tjón á stöðu sinni,
að uggvænlega horfir um hríð.
Tíminn líður. Er heimsmeist-
arinn í vanda? Loks kemur
leikurinn. Upphaf djarflegrar
gagnsóknar á kóngsvæng. Er
nú allt tilbúið fyrir harða og
tvisýna baráttu. Þá kemur
reiðarslagið; eitt af þessum
leiðu fyrirbrigðum sem nefn-
ast stórmeistarajafntefli, og
keppendur eiga til að notfæra
sér þegar þeir vilja ekki eiga
neitt á: hættu.
Líkt fer um örlög skákar
þeirra Smysloffs og Bron-,
eteins.
Gligoric, sem fyrir mótið
var talinn einn skæðasti
keppinautur Rússanna, hefur
ekki brugðizt, þótt hann tap-
aði skák á móti Bronstein.
Að þessu sinni er það Pólverj-
inn, sem er fórnarlamb hans.
1 flækjum miðtaflsins tekst
Gligoric að vinna peð, og með
sinni víðkunnu skerpu fylgir
hann eftir til wnnings.
Pachmann teflir Caro-Kann
á móti Ciocaltea. Tékkinn,
sem ógjarna teflir á tvísýnu,
neyðist til að grafa einn af
mönnum sínum lifandi í peða-
keðju sinni. Maður þessi reyn-
ist þó hinn mesti fakír 0g
kemur tvíefldur úr prísund-
inni. Með hans tilstyrk og
annarra tekst síðar að snúa á
óvinaherinn, vinna peð, ginna
drottninguna út á hálan ís og
sigra.
10. ilmferð 24. október
Sabo — Pachmann V2-V2
Bronstein — Ciocaltea V2-V2
Padevsky — Smysloff 0-1
Najdorf — Golombek 1-0
Unsicker— Keres 1-0
Tajmanoff — Uhlmann V2-V2
Sliwa — Botvinnik 0-1
Stáhlberg— Gligoric V2-V2
Smysloff er maður hæglát-
ur, enginn sér honum bregða.
Kvörn hans malar stundum
hægt, en oftast örugglega. Þú
horfir á hann tefla. Leikirnir
eru flestir einfaldir. I raun-
inai finnst þér að þú hefðir
teflt alveg eins, eða betur.
Þetta er Cabablanka-stíllinn.
Fjórir tímar líða og þú spyrð
sjálfan þig: Eftir hverju er
máðurinn að bíða ? Liðið er
jafnt, staðan lík'og fátt orðið
eftir á borði. Þú áræðir ekki
að spyrja Smysloff, en senni-
lega væri svar hans eitthvað
á þessa leið: Ertu litblindur,
félagi? Sérðu ekki að peðin
mín standa á hvítum reitum,
Þú
borfír
h Bot-
vinnik tcflo
Botvinnik er nú efstur í
A1 jek h inmótin u
Freysteiim Þerbergsson skrifar um
Aljekbinmótið í Moskva
margur hefur nú tapað skák
með drottningu, riddara og
tvö peð á inóti drottningu og
sex peðum. En Botvinnik tap-
ar ekki, hann vinnur. Og
hversvegna ? Auðvitað hefur
hann alltaf haft betra tafl,
allt frá því að ándstæðingur-
inn fyrst lét glepjast af auð-
fengnum ávöxtum. Riddari
Botvinniks var sterkari held-
ur en biskup og tvö peð and-
stæðingsins.
Tveir menn tefla undir
styrkleika í móti þessu. Það
eru þeir Sabo og Keres. Keres,
sem nýlega hefur sigrað
Unsiker í einvígi með 6:2, án
taps, leikur nokkuð hratt og
þar kemur að honum sést
yfir millileik hjá Unsiker.
Keres bjargar sér þó í þetta
sinn, en hvað er þetta? Gef-
ur hann Unsiker kost á því
að fórna drottningu fyrir
hrók, biskup, valdað frípeð og
tempo? Margur hefði þegið
minna. Unsiker er fljótur að
þiggja boðið. Frípeð hans er
stórhættulegt. Margsinnis get-
ur hann leyft sér að láta
menn sína standa i uppnámi,
vegna ýmissa hótana. Loks
drepur hann mann, og Keres
má ekki hefna. Keres leikur
enn einum leik og Unsiker
leppar drottningu hans. Hvað
er að Keres? Þessari skák
tapar hann líkt og ég eða
þú hefðum tapað á móti hon-
um sjálfum.
hans á svörtum og biskupam-
ir era svartir? Já, auðvitað-
Litarhátturinn. Rauður eða
ekki rauður, hvítur eða svart-
ur. Andstæðingurinn gefst
upp.
Þú horfir á Botvinnik tefla
við einn af lægstu mönnum
mótsins. Nú kémur auðvitað
stórsókn, hugsar þú. Ó, nei.
Allt er rólegt fýrst í stað.
Svo vinnur Sliwa peð og
kóngur heimsmeistarans lend-
ir á flækingi. Þú spyrð: nær
hann jafntefli á þetta? Svar-
ið: andstæðingurinn vinnur
annað peð. Þú hugsar: Jú,
það getur verið að hann nái
þráskák að lokum. Botvinnik
hugsar: Hvað ætlar hann að
éta mikið af þessum eitruðu
ávöxtum; Sliwa tekur þriðja
peðið og hið fjórða, en nú
tapar hann manni. O jæja,
Staða efstu manna: 1.—2.
Botvinnik og Smysloff 7Vz v.
3. Tajmanoff 7 v. 4.—5. Bron-
stein og Gligoric 6% v.
11. umferð 26. október
Gligoric —. Sabo V2 V2
Botvinnik -—Stáhlberg 1 -0
Uhlmann — Sliwa V2-V2
Keres — Tajmanoff V2-V2
Golombek — Unsiker 0 -1
Imysloff — Najdorf V2-V2
Ciocaltea — Padevsky V2-V2
Pachmann — Bronsfein V2-V2
Botvinnik fær snemma sterkt
miðborð í skák sinni við Stáhl-
berg, sem virðist tefla þessa
skák meira af frumleik en
styrk. Botvinnik bætir stöðu
manna sinna i rólegheitum,
en Stáhlberg gerir hliðar-
árásir sem fá litlu áorkað og
veikja hans eigin stöðu. Einn-
ig hafnar hann uppskjptum
sem hefðu getað létt stöðu
hans. Loks nær Botvinnik
færi á að veikja kóngsstöðu.
Stáhlbergs enn meir og er þá
ekki að sökum að spyrja.
Með þessum sigri tekur Bot-
vinnik forustuna í mótinu. Er
það ánægjulegt að heims-
meistarinn skuli standa í
stöðu sinni. Virðist hann nú
vera kominn í betri æfingu,
heldur en hann var í á
olympíumótinu og tefldi hann
þó vel þar. Verður gaman að
frétta af einvígi hans við
Smysloff síðar í vetur, því
Smysloff hefur borið af á
ýmsum þeirra. móta, sem
Botviiinik hefur ekki tekið
þátt í á undanförnum árum,
eins og kunnugt er.
12. umferð 27. október
Sabo — Bronstein 0-1
Padevsky — Pachmann V2-V2
Najdorf — Ciocaltea 1-0
Unsiker — Smysloff V2-V2
Tajmanoff — Golombek 1-0
Sliwa — Keres 0-1
Stáhlberg — Uhlmann 1-0
Gligorie — Botvinnik V2-V2
Staðan eftir 12. umferð:
1. Botvinnik 9 v. 2.—3.Smysl-
off og Tajmanoff 8V2 4- Bron-
stein 8 5.—6. Najdorf og
Gligoric IV2 7. Pachmann 7
8.—9. Keres og Stáhlberg 6V2
10. Unsiker 6 11.—12. Sabo
og Uhlmann 5 13. Padevsky 4
14.—15 Sliwa og Ciocaltea IV2
16. Golombek 2 v.
Aðvörun
Þessi greinarstúfur er skrifað-
ur til þess að minna lesendur
á það, að innan skamms hefj-
ast þýðingarmiklar viðræður ís-
lenzkra stjórnarvalda og full-
trúa Bandarikjanna um brott-
för erlends hers og full umráð
íslendinga yfir öllu sínu landi.
Á þessari stundu ríður á, að
þjóðin standi þétt að baki full-
trúum sínum og láti ekki mold-
viðri stjórnmálabaráttunnar
villa sér sýn eða hindra sig að
fylgja fram óskoruðum rétti
sínum í þessum samningum.
Formælendur hersetu á ís-
landi þykjast nú hafa fengið
hvalreka nokkum á fjörur sín-
ar. Válegir atburðir í útlönd-
um gefa þeim tækifæri að
reyna að æsa íslendinga til
stríðsótta, svo að þeir miSsi
sjónar á sinni eigin frelsisbar-
áttu, en láti fallast i fahg stór-
veldis, á sama tíma og aðrar
smáþjóðir sveitast blóðinu til
að fá full umráð yfir löndum
sínum. Eg vík nú stuttlega að
þessum heimsviðburðum.
1 Ungverjalandi hafa þau
hörmulegu tiðindi gerzt, að er-
lend þjóð, sem hefur lýst sig
fylgjandi friðar- og mannúðar-
stefnu sósialismans, hefur beitt
smáþjóð voprtavaldi til að
beygja hana undir vilja sinn.
Slíkur atburður er auðvitað
sorglegastur fyrir álla þá, sem
haft gert sér falslausan sósíal-
sinni fyrir friði og bættum
kjörum alþýðunnar í öllum
löndum. Þessi afstaða íslenzkra
sósíalista hefur skýrt komið
fram í yfirlýsingum þeim, sem
Aiþýðubandalagið og Alþýðu-
flokkurinn hafa gert um þetta
mál, og í hliðstæðri yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar, sem báðir
þessir flokkar standa að ásamt
Framsóknarflokknum.
f Egyptalandi gerist um svip-
að leyti áþekkur viðburður. Að
því er virðist fyrir samantekin
ráð þriggja ríkja er hafin vopn-
uð árás á iandið í trássi við
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Eru þetta mikil vonbrigði þeim,
sem höfðu treyst friðartaii og
lýðræðisást þessara ríkja, þó
að ekki hafi þeirra vonbrigða
gætt mikið í málgögnum Sjálf-
stæðisflokksins eða yfirlýsing-
um þeim, sem hann hefur haft
forgöngu um undanfarið.
Hvað koma þessir atburðir
okkur við? Um það eru skipt-
ar skoðanir. Stuðningsmenn
hersetu á íslandi segja: Þetta
sýnir, hve ófriðlegt er í heim-
inum og hvílík nauðsjm það er
að treysta öi-yggi landsins með
„varnarliði".
En þjóðhollir íslendingar
segja: Þessir atburðir sýna
okkur, hve alvarleg og brýn
nauðsyn það er, að allar smá-
þjóðir reki réttar síns gegn í-
hlutun stórveldanna, standi
saman sem einn maður um
friðarstefnu sína, láti einskis
sínar erlendis. Það er síður en
svo, að þeita sé vonlaus stefna,
því að smáþjóðirnar eiga mikil
ítök í Sameinuðu þjóðunum.
Og þetta er hin eina stefna,
sem er íslendingum sæmandi,
þjóð, sem vopnlaus hefur háð
hetjubaráttu í margar aldir við
erlenda áþján og haft sigur.
Andstæðingar ríkisstjórnar-
innar reyna nú að stofna til
múgæsinga og skrílæðis til þess
að valda upplausn og geta bet-
ur lætt inn í fólkið eitri haturs
og ótta, sljóvgað frelsisást þess
og heilbrigt þjóðarstolt gagn-
vart erlendu herliði. Þetta mun
þó ekki takast, ef menn virða
fyrir sér alla málavexti með
rólegri yfirvegun. Þá mun
samninganefnd íslendinga um
brottför hersins geta gengið að
verki örugg um fulltingi þjóð-
ar sinnar til góðra og heiðar-
legra málaloka.
Látum því ekki sundra okk-
ur eða villa með málæði og
krókódílstárum þeirra, sem í
rauninni eru að vinna að fram-
haldi á hernámi íslands. Við
skulum sýna innilega samúð
með frelsisbaráttu annarra
smáþjóða, en jafnframt láta
hana verða okkur hvöt til að
vinna íslandi gagn og sóma.
Geymum í minni hin brennandi
eggjunarorð:
„Hver mun geyma arfinn okkar,
ef við gleymum sjálf?“
Páll Bergþórsson.
Grein þessi er send stuðnings-
blöðum ríkisstjórnarinnar með
beiðni um birtingu.
isma að leiðarljósi í baráttu ófreistað að knýja stórþjóðim-
ar til að yfirgefa herstöðvar
Sósíalistafélag Reykjavíkur
Aðalfundur
félagsins verður haldinn n.k. mánudagskvöld, 12.
nóvember, i Tjarnargötu 20 og hefst kl. 8.30.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mal.
Þess er vænzt aö félagar mæti vel og stundvíslega.
STJÓRNIN.