Þjóðviljinn - 09.11.1956, Blaðsíða 12
Eru BanUjamenn að flytja auk-
ið herlið til Keflaviurflugvallar?
hefur fengið þær fregnir frá Keflavík að
undanfarlð hafi farið fram flutningar á bandarísku her-
liði til Keflavíkurflugvallar og hafi í fyrrinótt lcomið
þangað allfjölmennt herlið. Ennfremur að meiri liðs-
flutningar þangað séu fyrirhugaðir og hafi verið undir-
búnir til notkunar hermannaskálar sem ekki hafa verið
í notkun um langt skeið.
Engin staðfesting hefur fengizt á fregnum þessum hjá
íslenzkum stjóraarvöldum.
Atburðirnir í Ungverjalandi
ræddir á allsherjarþinginu
Dómur sem vekja mun alþjóSarathygli
800 króna skaðabætur fyrir hvern lagflutning — 8 þús. í málskostnað
Ungverski fulltrúinn mótmælti því að
þingið hefði rétt til að skipta sér af þeim
Ungverski fulltrúinn hjá SÞ, Janos Szabo, bar fram
mótmæli þegar allsherjarþingið kom saman á fund í gær
gegn því aö það fjallaði um atburöi síðustu daga í Ung-
verjalandi.
Það hefur víðar verið ófriðvænlegt í heiminum að undanförnu en í Ungverjalandi og Egypta-
landi, enda þótt tíðindi af því hafi horfið í skugga atburðanna þar. Raunverulegt hernaðará-
stand ríkti í marga daga í Singapore, meðan lögregla bældi niður mótmælahreyfingu gegn
Bretmn og stjórninni í Singapore. Myndin sýnir brezka hermenn á verði á einni götu Singapore
Bardögum enn ekld lokið í
fJngverjalandi öllu
í Búdapest virðist þó friður vera kominn
á, en barizt er við Györ og Pecs
Stokkhólmsútvarpið skýrði frá því í gær, að svo virtist
sem skipulegri mótspyrnu hefði verið hætt í Búdapest í
fyrradag, og virtist sem öllum bardögum væri lokið í
borginni. Einstaka uppreisnarmenn munu þó hafa varizt
þar enn í gær.
Szabo sagði, að samkvæmt
sjðustu fréttum sem hann hefði
fengið að heiman hefði röð og
reglu verið komið á aftur að
mestu. Fólk væri að hefja
vinnu aftur, verzlanir væru
opnar, flutningatæki í gangi og
endurreisnin hafin.
Forseti allsherjarþingsins tók
mótmæli hans ekki til greina
og umræður héldu áfram.
Fulltrúi Kúbu sakaði ung-
verska fulltrúann um að veita
morðingjum Ianda sinna blessun
sina, og dró reyndar í efa, að
hann hefði nokkurn rétt til að
tala í nafni Ungverja.
Réttur hverrar þjóðar.
Pólski fulltrúinn lagði á-
herzlu á, að stjórn hans viður-
kenndi óskoraðan rétt hverrar
þjóðar til að ráða ein örlögum
sínum á grundvelli algerðs full-
veldis. Hann sagði, að ^rá upp-
hafi uppreisnarinnar hefðu Pól-
verjar veitt Ungverjum alla þá
aðstoð sem þeir máttu. Hins
vegar sagðist hann hafa greitt
atkvæði gegn bandarísku á-
lyktunartillögunni um Ung-
verjaland, þar sem stjórn hans
áliti að SÞ ættu ekki að hlut-
ast til um málefni Ungverja.
En hann kvaðst vera samþykk-
ur einstaka liðum tillögunnar,
svo sem þeim sem hvetur all-
ar þjóðir að veita Ungverjum
læknisaðstoð.
Fundarhlé var gert að ræðu
pólska fulltrúans lokinni, en 22
fulltrúar voru á mælendaskrá.
Hörmuleg íhlutun.
Zawadski, forseti Póllands,
flutti ávarp í Varsjárútvarpið í
gær og komst m.a. svo að orði:
„Það er liörmulegt að sovézk-
ir hennenn skuli taka þátt í
bardögum í Búdai>est. Atburð-
irnir í Ungi erjalandi hafa leitt
í ljós, að ekki er hægt að halda
áfram að stjórna á sama hátt
og áður“.
Zawadski var einn þeirra
leiðtoga pólska Verkamanna-
flokksins, sem í lengstu lög
beitti sér gegn því, að Gomulka
yrði aftur hafinn til virðinga í
flokknum, og sá fulltrúi í hinni
nýju framkvæmdastjórn flokks-
ins, sem fæst atkvæði hlaut á
áttunda fundi miðstjórnarinnar
í síðasta mánuði.
f gær kl. 11 var gerð 5 mín.
þögn í öllum skólum hér í bæ.
Nokkrir atvinnurekendur mælt-
Búdapestútvarpið sagði í
gær, að enn væri skipzt á skot-
um á nokkrum stöðum í borg-
inni, en bardagar væru nú að
fjara út. Útvarpið sagði, að
mikill skortur væri á matvæl-
um í borginni. Skorað var á
alla 'verkamenn i matvælaiðn-
ust til að starfsfólk sitt hætti
vinnu í 5 mínútur. Viða voru
fánar dregnir í hálfa stöng.
aði og flutningaverkamenn að
hefja vinnu aftur til að koma
í veg fyrir hungursneyð.
Útvarpið skýrði einnig frá
því, að hin nýja stjórn lands-
ins, undir forystu Janos Kad-
ars, hefði nú svarið embættis-
éiða sína og bætti við:
„Sennilega hefur engin
stjórn í landi voru tekið til
starfa við erfiðari kringum-
stæður. Vinna er stöðvuð í
verksmiðjum og öll umferð í
og umhverfis Búdapest er í
lamasessi.“
Síðar um daginn tilkynnti
Búdapestútvarpið að nú hefði
aftur verið komið á röð og
reglu í höfuðborginni og öðr-
um héruðum landsins, en bætti
við, að líða myndi á löngu
þar til allt kæmist í samt lag.
Útvarpið hvatti öll lýðræðisöfl
í landinu til að taka höndum
saman og vinna algeran sigur
á uppreisnarmönnum.
Marosan flytur ávarp
György Marosan, ráðherra
án stjórnardeildar í stjóra
Kadars, flutti ávarp í Búda-j
pestútvarpið í gær og hvatti:
ungversku þjóðina til að vinna
fullan sigur á þeim flokkuni j
uppreisnarmanna, sem héldu á-;
fram vonlausum bardöguum.
Marosan var einn af flokks-
leiðtogum sósialdemókrata I
Ungverjalandi fyrst eftir stríð- 1
ið og einn af þeim sem beittu
sér mest fyrir sameiningu
verkalýðsflokkanna. Hann var
einn af þeim leiðtogum Verka-
mannaflokksins, sem dæmdur
var á fölskum forsendum árið
1949. Hann var upphaflega
dæmdur til iífláts en þeim dómi
var aldrei fullnægt. Hann var
látinn laus fj'rir skömmu, og
hafði þá setið 6 ár í fangelsi.
Barizt \ ið Györ og Pees
Þó að allar fréttir frá Ung-
verjalandi séu óljósar, er tal-
ið víst að enn séu allharðir
bardagar milli uppreisnar-
manna og hersveita sovézka
hersins í héraðinu umhverfis
borgina Györ í norðvestur-
Framhald á 5. síðu
Prestar biiji fyrir Hngverjsim og um
frið með öllum þjóðum
Biskup íslands, Ásmundur Guðmundsson, hefur beöið
presta landsins að biðja fyrir Ungverjum og um frið með
öllum þjóðum, við messugerð næsta sunnudag.
7. þ.m. var í bæjarþingi Reykjavíkur kveðinn upp
dómur í máli STEFs vegna óleyfilegs flutnings tónverka
í útvarpi Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Féll dóm-
ur á þann veg að greiðsluskyldan var viðurkennd og að
dæmdar voru í skaðabætur 800 krónur fyrir hvern flutn-
ing hvers lags og 8000 krónur í málskosnað. Eitt lagið
var ekki dæmt gjaldskylt.
lögfræðingur STEFs, að sér að
undirbúa og flytja málið.
Höfundar allra landa eiga
hagsmuna að gæta í máli þessu,
og teljast rétthafar, sem hér
eiga hlut að máli, vera um tvö
hundruð þúsund. Vekur máls-
meðferðin hér á landi því geysi-
athygli í öðrum löndum og hef-
ur ríkt mikil eftirvænting með-
al erlendra rétthafa út af úr-
slitunum, þar sem málarekst-
urinn hér gefur fordæmi um
réttindameðferðina erlendis.
Framhald á 4. síðu
Mál þetta var prófmál og
aðeins fá lög tekin sem dæmi.
Dómsorð hljóðar þannig:
„Stefndi, fjármálaráðherra f.
h. ríkissjóðs, greiði stefnanda
Jóni Leifs f.h. STEFs, vegna
Jacob Gade, Paul Burkhards og
erfingja Giacomo Puccini kr.
2.400,— með 6% ársvöxtum
frá 28. apríl 1955 til greiðslu-
dags og kr. 8000,— í máls-
kostnað innan 15 daga frá lög-
birtingu dóms þessa að við-
lagðri aðför að lögum.“
Málavextir eru þeir, að
Bandaríkjaher hefur allt síðan
1945 rekið útvarpsstöðvar í
Evrópulöndum án þess að
greiða höfundalaun og heldur
nú uppi 74 herstöðvum utan
landamæra sinna, reisir þar
venjulega útvarpsstöðvar, kvik-
myndahús og klúbba án þess
að greiða höfundagjald fyrir
flutning tónverka.
Átti Jón Leifs formaður
STEFs frumkvæði að raunhæf-
um aðgerðum í málinu og sendi
m.a. fyrir tveim árum Eisen-
hower forseta sem yfirmanni
hersins aðvörunarskeyti vegna
lögbrotanna og vaxandi álits-
hnekkis Bandaríkjanna út af
þeim. Margar viðræður áttu
sér stað milli fulltrúa Banda-
ríkjanna og höfundafélaga ým-
issa landa um greiðslur til tón-
skálda og rétthafa, en án ár-
angurs. Fólu höfundafélögin þá
íslenzka STEFI að hafa forystu
í þessu máli og að höfða próf-
mál það, sem nú er unnið, og
tók Sigurður Reynir Pétursson
hæstaréttarlögmaður, sem er
kjamanna á Kef lavíkur*
flsipelli dæmt greiðsluskylt STEFI
þJÓÐVlLIINN
Föstudagur 9. nóvember 1956 — 21. árgangur — 256. tölublað