Þjóðviljinn - 26.11.1956, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 27. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3
tUnróma samþyhht Alþífðu samhan dsþin gs:
Fiskaflinn veröi unninn innanlands
Kemur ei til mála oð kaupa ótryggan Isfisks-
markaS fyrir tilslökun I landhelgismálinu
Alþýðusambandsþingiö samþykkti einróma. í fyrra-
dag eftirí'arandi:
„Tuttugasta og fimmta þing
Alþýðusambands íslands skor-
ar á Alþingi og rikisstjórn að
miða stefnu sína og fram-
kvæmdir í afurðasölumálun-
um við það meginsjónarmið
að fiskaflimi verði sem allra-
mest unninn hér innanlands,
þar eð slíkar ráðstafanir eru
grundvöllurinn undir atvinnu-
öryggi og góðri afkomu verka-
lýðsins, en munu jafnframt
bæta hag og rekstur sjávarút-
vegs og fiskvinnslustöðva og
tryggja þjóðinni vaxandi
gjaldeyristekjur. f samræmi
við þetta leggur þingið á-
herzlu á að dregið verði sem
mest úr útflutningi á óunnum
fiski á erlendan markað. ekki
Árshátíð Stúd-
entafélags
Reykjavíkur
Á föstudaginn heldur Stúd-
entafélag Reykjavíkur árshátíð
sína. Er það jafnframt 85 ára
afmælisfagnaður félagsins.
Hátíðin verður haldin í Sjálf-
stæðishúsinu og hefst með borð-
haldi kl. 18.30. Hinn nýkjörni
formaður félagsins, Sturla Frið-
riksson, erfðafræðingur, flytur
setningarræðuna, en aðalræðu
kvöldsins flytur Pétur Benedikts-
son, bankastjóri. Þá munu þeir
Guðmundur Jónsson og Kristinn
Hallsson skemmta með glunta-
söng, og Karl Guðmundsson flyt-
ur gamanþátt.
Að kvöldi 1. des. sér félagið
um útvarpsdagskrá. Vérður þar
útvarpað frá hófinu kvöldið áð-
ur. Þá mun Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, halda ræðu og fjór-
ir fyrrverandi formenn félags-
ins munu rifja upp endurminn-
ingar frá sinni stjórnartíð. Verða
það þeir Ari Arnalds, fyrrv.
bæjarfógeti, próf. Alexander Jó-
hannesson, Vilhjálmur Þ. Gísla-
son, útvarpsstjóri og Páll Ásg.
Tryggvason, lögfræðingur.
sízt þar sem fiskvinnslustöðv-
ar víðsvegar lun land skortir
tilfinnanlega hráefni og á
þeim stöðuin rikir þess vegna
atvinnuleysi. Þingið telur ekki
koma tlí mála að kaupá ó-
trygga markaði fyrir óunniiui
fisk við, því verði að slakað
sé á fyllstu kröfum í land-
helgis- og friðunarmálum ís-
leiidinga.
Sambandsþingið skorar á
Alþingi og ríkisstjórn að
standa fast á sögulegum rétti
íslands i landhelgismálinu og
telur yfirlýsingar þær, sem
gefnar voru i París í þessum
mánuði. varðandi fiskveiði-
takmörkin við Islandsstrendur
og a'thafnir erlendra fiski-
skipa i landhelgi vera mjög
varhugaverðar þar eð reglur
uin friðun veiðisvæða innan
endimarka landgrunnsins og
athafnir skipa i landhelgi eru
lögum samkvæmt algert inn-
anríkismál vort.
Þá skorar sambandsþingið
á ríkisstjórn og Alþingi að
afnema tafarlaust forréttindi
og einokunaraðstöðu einstakra
auðhringa til afurðasölu, en
veita leyfi til útflutnings þeim
aðilum sem bjóða hagkvæm-
asta sölusamninga.
Sambandsþingið felur mið-
stjórn A.S.Í. að fylgja þessuni
málum fast eftir við Alþingi
og ríkisstjórn“.
Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufj. gefur
spítalanum 25 nýtízku sjúkrarúm
Siglufirði í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
S.l. laugardag boð'aði stjórn Kvenfélags Sjúkrahúss
Siglufjarðar fréttamenn á fund sinn í sjúkrahúsinu.
Þar skýröi stjórnin frá því, að félagiö heföi afhent sjúkra-
húsinu aö gjöf 25 sjúkrarúm af nýjustu gerð. Kaupverð
rúmanna er um 56 þús. krónur.
Var þegar búið að taka rúm-
in í notkun og virtust þau hin
Stofnaður sjóður til minning-
ar um Pólma Hannesson
Að sjóðsstofnuninni stgnda kennarar og eldri
og yngri nemendur Menntaskólans í Reykjavík
Samkennarar Pálma heitins Hannessonar og Nemenda-
samband Menntaskólans hafa ákveðið aö stofna sjóö til
minningar um hinn látna rektor.
Sjóður þessi verður í vörzlu
Menntaskólans og er ætlunin að
verja honum til þess að styrkja
og efla hugðarmál hins látna
rektors.
Settur rektor Menntaskólans,
Kristinn ÁiTnannsson, náttúru-
fræðikennari skólans, fulltr. Nem-
endasambandsins og fulltrúi ætt-
ingja munu bráðlega setja minn-
ingarsjóðnum stofnskrá, sem leit-
að verður staðfestingar á.
Aðaltekjustofn sjóðsinns verða
minningargjafir kennara og eldri
og yngri nemenda Menntaskól-
ans í Reykjavík og velunnara
Pálma heitins Hannessonar.
Prentuð hafa verið minningar-
spjöld, sem verða til sölu í Bóka-
verzlun Menningarsjóðs, Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar,
Bókaverzlun ísafoldar, Bókabúð
Braga Brynjólfssonar, skrifstofu
Menningarsjóðs og skrifstofu Há-
skólans. Sala minningarspjald-
anna hefst á morgun.
Fregnir um hernámssamninga
Framhald af 1. síðu.
lag um það“ sagði forsætisráð-
herra „að birta ekkert uni mál-
ið fyrr en fulltrúarnir væru
komnir vestur og skeytaskipti
liefðu farið frarn á milli íslenzku
og bandarísku stjórnanna. En
menn munu s.iá það þegar til-
kynningin kemur að þessar frétt-
ir eru í algeru ósamræmi við það
sem raunverulega hefur gerzt“.
Tvær tilkynningar
Norska fréttastofan NTB birti
í gær eftirfarandi eftir frétta-
ritara Reuters í Washington:
„Bandaríska
neytið tilkjmnti
utanríkisráðu-
á mánudag að
"\
Efþér
ferðist til
útlanda
þá munið að Ferðaskrifstofa
ríkisins útvegar hótel erlendis og
veitir hvers konar upplýsingar
varðandi ferðalög endurgjalds-
laust og skipuleggur ferðalög
yðar erlendis. Selur farseðla
með flugvélum, skipum og járrt-
brautum. Örugg fyrirgreiðsla,
engin aukagjöld.
FERÐASKBirSTOrfl BÍKISIKS
Bandaríkin og ísland hefðu gert
bráðabirgðasamning („tentativ
aftale“) um bandaríska herliðið
sem setu hefur á hinum hernað-
arlega mikilvæga Keflavíkurflug-
velli. Fulltrúinn vildi ekki skýra
frá neinum einstökum atriðum“.
Þjóðviljanum barst seint í gær-
kvöld eftirfarandi tilkynning frá
utanríkisráðuneytinu:
„Undanfarið liafa farið fram
í Reykjavík viðræður af hálfu
ríkisstjórna íslands og Banda-
ríkjanna um endurskoðun varn-
arsamningsins frá 1951. Komust
þær að sainkomulagi og liélt
sanininganefnd Bandarikjanna
vestur um haf síðast liðið Iaug-
ardagskvöld.
Er samkomulagið nú til at-
hugunar hjá ríkisstjórn Banda-
ríkjanna. Strax og endanlega
hefur verið gengið frá samkomu-
laginu verður tilkynnt um það
í báðum löndunum“.
Þjóðviljinn ræddi við Guð-
mund í. Guðmundsson, utanrík-
isráðherra, í gærkvöld, en hann
vildi engu bæta við tilkynningu
ráðuneytisins á þessu stigi máls-
ins, og ítrekaði að innan skamms
mætti vænta tilkynningar um
það samkomulag sem gert hefur
verið.
Kvöldvaka
Útsýnar
Ferðafélagið Útsýn heldur
kvöldvöku í kvöld kl. 9 í Sjálf-
stæðishúsinu. Þar verður ýmis-
legt til skemmtunar. Björn Svein-
bjömsson settur bæjarfógeti í
Hafnarfirði segir ferðasöguþátt.
Sýndar verða litskuggamyndir
teknar í ferðum félagsins af
fögrum stöðum í Bretlandi,
Frakklandi, Belgíu, Hollandi,
Sviss, Austurríki, Þýzkalandi og
Danmörku. Síðan verður gaman-
þáttur, myndagetraun og loks
dansað til kl. 1. — Aðgangur er
öllum heimill.
þægilegustu. Einnig skýrði
stjórnin frá því, að félagið hefði
fest kaup á fimm útvarpsvið-
tækjum, sem afhent yrðu sjúkra-
húsinu mjög bráðlega. væri ver-
ið að koma upp loftnetum fyrir
tækin.
Kvenfélag Sjúkrahúss Siglu-
fjarðar er réttra þriggja ára,
stofnað 22. nóv. 1953, og vann
tfrú Bjarnveig Guðlaugsdóttir
mest að stofnun þess og var for-
maður þess fyrstu árin. Núver-
andi stjóm félagsins skipa frú
Hildur Svavarsdóttir formaður,
frú Kristín Þorsteinsdóttir gjald-
keri og Ragnheiður Sæmundsson
ritari. Félagið hefur aðallega afl-
að fjár með basarhöldum, hluta-
veltum og heillaskeytasölu. Það
á nú i sjóði um 50 þús. krónur.
Ragnar Jóhannesson bæjarfull-
trúi þakkaði fyrir hönd bæjar-
stjórnar félaginu fyrir gjöf þess
og störf í þágu heilbrigðismála í
bænum. Settur bæjarstjóri, Þ.
Ragnar Jónasson, sem einnig er
gjaldkeri og umsjónarmaður
sjúkrahússins, þakkaði félaginu
höfðinglegar gjafir. Fór hann
nokkrum orðum um starfsemi
sjúkrahússins, hin erfiðu starf-
skilyrði sem þar væru vegna
þrengsla og plássleysis fyrir
ýmsa nauðsynlega starfsemi og
þjónustu. Taldi hann brýna þörf
á því, að sem fyrst yrði hafizt
handa um byggingu nýs sjúkra-
húsá hér í bænum.
Sósíalistar í
Reykjavík
vinsamlega komlð í skrif-
stofu Sósíalistafélagsins i
Tjarnargötu 20 og greiðið
féiagsgjöld ykkar.
Hvers er sökin?
Á hverju hausti lilaðast að
barnafólki erfiðleikar og ann-
ir vegna ungu kynslóðarinn-
ar, sem sækir skólana.
Maður, sem þurfti nýlegr
að búa dreng til náms í gagn-
fræðaskóla hér í bænum,
komst í kynni við enn eina
hlið erfiðleika, sem samfara
er námsdvöl í skóla, erfiðleika
sem ég hélt sannast að segja
að væru ekki til staðar hér.
Drenginn vantaði kennslubók
í ensku eftir Boga Ólafsson
en sú bók er nú ófáanleg.
Bókaverzlun Eymundsson í
Austurstræti er sögð hafa
einkasölu á bókum þessum
en líklegt er að einhver und-
irmanna menntamálaráðherra
eigi að sjá um að bókin sé til
handa þeim sem náms síns
vegna verða að nota hana.
Afgreiðslumenn í nefndri
bókaverzlun létu í það skína
að bókarinnar væri ekki að
vænta á næstunni.
Hér er um vanrækslu ein-
hvers í menntamálaráðuneyt-
inu að ræða eða svo skilst
mér. Ef svo er ekki: Hvers
er þá sökin?.
ó. Þ.
Warwick Braithwaite
e
Tónleikar Sinfón
íuhljómsveitar-
innar í
Sinfóníuhljómsveit íslands efn-
ir til tónleika í Austurbæjarbíói
í kvöld kl. 9. Á efnisskránni eru
þessi verk: Forleikurinn Knnival
í París eftir Berlioz, Ballettsvíta
eftir Glurk, marz eftir Elgar og
loks sinfónía nr. 2 eftir Sibelius.
Stjórnandi hljómsveitarinnar
er Warwick Braithwaite og eru
þetta síðustu tónleikarnir, sem
hann stjómar hér; hann fer ut-
an nú í vikunni. Warwick : tiórn-
aði flutningi óperunnar Ii Trov-
atore sjö sinnum, í síðasta skipt-
ið í fyrradag. Var óperrn þá
flutt í Austurbæjarbiói fyrir
troðfullu húsi skólanemenda.