Þjóðviljinn - 26.11.1956, Síða 9

Þjóðviljinn - 26.11.1956, Síða 9
Þriðjudagur 27. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — CÍ & $T~\ RITSTJÓRI: FRÍMANN HELGASON Frá þlngi Knattspyrnusambands íslanðs: Landslelklr víð Norðmenn og Daní að vori og e.t.v. Englendinga næsta haust Keppt við Ira í Reykjavík 1958 — leikimir við Belgi og Frakka fara Arsþing Kna'ttspyrnusambands íslands fór fram hér í Reykjavík um helgina. Voru fulltrúar marg- ir og komnir víða að eða frá 10 aðilum: Héraðssambandi Strandamanna, íþróttabandalagi Suðumesja, Knattspyrnuráði Akraness, Ungmennasambandi Kjalamesþings, íþróttabandalagi Hafnarfjarðar, íþróttabandalagi Keflavíkur, íþróttabandalagi Ak- ureyrar, íþróttabandalagi ísa- fjarðar, Knattspymuráði Reykja- víkur og íþróttabandalagi Vest- mannaeyja. Formaður sambandsins setti þingið og bauð fulltrúa og gesti velkomna, þeirra á meðal for- seta ÍSÍ Ben. G. Wáge, seni ávarpaði fundarmenn og þakk- aði gott samstarf. Hann lýsti einnig ánægju sinqi yfir þeim framförum sem hafa orðið í knattspyrnunni undanfarið. Síðan flutti formaður sam- bandsins skýrslu stjórnarinnar sem .var löng og allýtarleg. Var þar getið landsmóta, erlendra heimsókna og utanfara og Jnargs fleira í því sambandi. Randsleikir sem eru framundan í skýrslu sinni gat Björgvin þess að samið hefði verið um að á næsta sumri fari fram landsleikir hér heima við Norð- menn og Dani í tilefni af lo ára afmæli KSÍ. Því má bæta her víð að almennt mun það von knattspymumanna að hægt verði að iáta þá leiki fara fram á nýja leikvanginum í Laugardal. Þá gat Björgvin þess að samið hafi verið við Englendinga um að landsieikur fari fram næsta haust eða 1958 ef það hentar Okkur betur. Er með því verið að endurgjalda heimsókn Breta híngað á s.l. sumri. Einnig hefur verið samið við fra um að koma hingað 1958 og þreyta hér landsleik. Finn- um hefur verið boðið hingað 1959, en það er í athugun hjá þeim eins og er. Eins og áður hefur verið frá sagt á íslenzka landsliðið að keppa við Frakka og Belga í heimsmeistarakeppninni, þ. e. undankeppni undir úrslitin sem fara fram í Svíþjóð 1958. Er þetta tvöföld umferð, þannig að keppt er bæði heima og heiman. Samningar hafa staðið um leik- iná en samkomulag hefur ekki náðst um ákveðna daga og ber allmikið á milli, þar sem leik- tímabil Frakka og Belga er á öðrum tímum en okkar. Kvaðst formaðurinn ekki enn geta sagt neitt um hver yrði lausn þessa máls. Þá gat formaður þess að kom- ið hefði bréf frá Þýzkalandi þar sem óskað er eftir að kom- ast í landsleikjasamband við ísland, en þar sem þetta mál er alveg nýtt væri ekki gott að fullyrða um framvindu þess, en því bæri að fagna að þetta tilboð væri fram komið. 141 drengur tekur bronsmerkið og 6 silfur Samkvæmt, skýrslu unglinga- nefndar KSÍ hafði 141 dreng- ur tekið bronsmerki sambands- ins 1. okt. s.l. Skiptast þeir þann- ig niður á þessi félög^Fram 34, KR 31, Válur 24, Þróttur 17, Víkingur 9, Kári Akranesi 9, Óráðið hvenær fram Þór Akureyri 7, Knattspyrnufé- lag Akrangss 4, KA Akureyri 3 og Breiðablik Kópavogi 3. Eru það samtals 10 félög sem hafa eignazt bronsdrengi og er það of lítið miðað við þann fjölda félaga sem iðkar knattspyrnu. Sex drengir hafa náð silfur- merkinu: 4 úr KR, 1 úr Fram og 1 úr Kára á Akranesi. Urðu miklar umræður um skýrsluna og skýrslur nefnda, sem sambandsstjórn hefur sér til aðstoðar, og ekki sízt reikn- inga. Mörg mál voru borin fram til umræðu og ályktunar og verð- Framhald á 4. síðu. J. Owens setti „óopinberf OL-met Til leikanna i Melbourne hafa komið margir af hinum gömlu og góðu „stjörnum“ sem áður hafa komið til OL og þá sem keppendur. Frá því segir að einn þessara hafi verið Jesse Owens og að hann hafi að þessu sinni sett „óopinbert“ OL- met, en ekki í langstökki eða hlaupum að þessu sinni. f sögu OL er nafn Owens Jesse Owcns alveg sérstætt eftir að hann vann fjögur gullverðlaun 1936. Fékk hann mikið lof fyrir af- rek sín, en lof það sem hann fékk fyrir ræðu sem hann hélt á blaðamannafundi í Melbourne mun þó hafa verið meira og ætl- aði fagnaðarlátunum aldrei að linna. Blaðamannafundur þessi var haldinn með öllum fremstu í- þróttablaðamönnum heims er þar voru staddir. Ræða hans var bæði hrífandi og glettin. Hann talaði m. a. um leikina í Berlín og sagði: „Eg fór ekki til Berlínar til þess að taka í höndina á Hitler, ég fór þangað til þess að hlaupa og ég hljóp og það var dásam- legur tími. Það væri leitt ef það hefur ekki verið eins með Hitler. Eg þakka ólympíuleikun- um að ég er hér í dg,g, en hvar Ilitler er veit ég ekki.“ Owens sem enn hefur heims- metið í langstökki og á 100 m metið með öðrum, sagði að hann áliti að öll met væri hægt að bæta. „Fyrir mig er það alveg sama hvaða land á þann í- þróttamann sem metið á, sem er slegið, það þýðir framgang fyrir íþróttina.“ Owens er í Melbourne sem sérstakur fulltrúi Eisenhowers forseta. Hann sagði líka sögu sem var áhrifarík. Sá fyrsti sem óskaði honum til hamingju eftir met hans í langstökki í Berlín var aðalkeppinautur hans, Þjóðverj- inn Lutz Long, Hann og Long urðu upp frá þessu góðir vinir og skrifuðust á, en 1939 slitn aði sambandið. „Eg var í Hamborg 1949, og þá kom eitt sinn kona og dreng- ur í heimsókn til mín þar sem ég bjó. Eg sá strax að drengur- inn var sonur vinar míns. En drenginn hafði faðir hans aldrei fengið að sjá. Lutz féll í sókn Rommels í Afríku. í dag heldur vinasambandið áfram frá hin- um ólympísku leikjum, með því að ég skrifast á við þennan unga dreng.“ YihpSmir Efnarsson keppir í dag Á olympíúfeikjunum í Melbourne er nú lokið keppni í lyftingum og róðri og í dag lýkur keppni í nútíma fimmtarþraut. Auk þeirra íþrótta- greina sem áður hefur verið getið hér, er keppni hafin í siglingum og í dag hefst glímukeppnin. 1 frjálsum iþróttum verður í dag keppt til vtrslita í 200 metra hlaupi, þrístökki, kringlukasti og langstökki kvenna. Þá fara einnig fram undanrásir 80 metra grindahlaups kvenna og 110 m grindahlaups karla, svo og undankeppni í 3000 metra hindrunarhlaupi. Vilhjálmur Einarsson er nieðal keppenda í þrístökk- inu. Hilmar Þorbjörnsson komst hinsvcgar ekki í und- anúrslit 200 m hlaupsins og keppir því ekki í dag. Bréf til Önnu Framhald af 6. síðu. ásamt frægum rithöfundi og frú hans að finna frægan pró- fessor og frú hans, ,og var ekki talað um annað ,en háandlega hluti um kvöldið, og sagðar sögur af ‘ andlegum verum í andlegu ásigkomulagi, og af frásagnameisturunum þótti mér prófessorsfrúin skara fram úr. Og sem við sitjum þarna, og áttum ekki von á að máttarvöld alheimsins gæfu- okkur neinn sérstakan gaum, né vildu sýna okkur sérstaka virðingu, ger- ist það að lengst utan úr gráum órageimi vindur sér einn fljúg- andi diskur niður yfir borgina, nánar tiltekið húsið, sem .við sátum í, svo sem til að heilsa okkur, og fór með 3000 km hraða á klukkustund, og í háa- lofti, en tók feiknlega dýfu þráðbeint niður á við, og sáu hann allar ratsjár borgarinnar, og var þegar sendur af stað allur þrýstiioftsflugvélaflotinn, að elta þennan undarlega gest og handsama hann ef þess yrði auðið, en þá er flugvélarnar komu á vettvang, var diskurinn allur á bak og burt, og hafði stigið upp á við jafnhratt og hann dýfði sér. Það voru mikl- ar bollaleggingar um það í blöðunum næstu daga hvað þetta mundi hafa verið og urðu engir tveir menn ásáttir og gáf- ust síðan allir upp við að skýra þessa furðu. Ekki vissum við gestirnir neitt um þetta, þar sem við sát- um í slíku afbragðsyfirlæti, og efasamt að húsráðendurnir hafi vitað það. En þá er við kvödd- um og komum út á tröppurnar, horfði við okkur jarðstjarnan Mars glórauð eins og auglýsing og mátti nærri greina kringl- una, því hann var í slíkri jarð- nánd,- sem ekki hefur verið síðan árið 1877. Þá voru á hon- um margir skurðir, en nú geis- uðu þar sandstormar voðalegir. Ekki allskammt frá honum á Iofti þetta kvöld skein Júpíter logabjartur, og er hús þetta hús mikilla örlaga, þó að það láti ekki meira yfir sér en önnur hús. En þá er ég gekk heím til mín úr sporvagninum um nótt- ina og klukkan var að ganga eitt, en rithöfundurinn og kona hans fylgdu mér framhjá hús- um fátæklinganna, svo að ekk- ert kæmi fyrir mig, voru flug- vélarnar enn á sveimi að leita að hinum fljúgandi diski, en mér þótti sem Mars horfði til jarðarinnar vonaraugum og hryggðar, því hann er fátæk pláneta og einmanaleg í geimn- um. Ödýr telpuiiærföt TOLEDO Fischersund. TIL LI6GUB LEIÐIN ÞJÓÐVILJANN vantar unglinga eða roskið fólk til blaðburðar í eftii- töldum hverfum: Skjólin Hliðarvegur ÞJÖÐVIUINN, Skólavörðustíg 19 Sími 7500 »Knuva**ajt:

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.