Þjóðviljinn - 03.01.1957, Page 5
Finuntudagur 3. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5,
Ný stjórn í Jopan stefnir að
nánciri samskipfum við Kína
Forsœtisráðherrann boSar s'iálfstæSa
utanrikisstefnu óháSa Bandarikjunum
f
Harðri valdabaráttu innan hins íhaldssama Demó-
krataflokks, meirihlutaflokksins á þingi Japans, er lokið
með sigri Tanzan Ishibashi, sem hefur myndað nýja
stjórn. !
Fjallgöngumenn í ógöngiun á
Mont Blanc síðan fyrir jól
Hafast við í flaki helikoptervélar
Þoka og þykkviðri hindruðu í gær að unnt væri að
reyna að bjarga fjallgöngumönnum, sem hírzt hafa á
hæsta tindi Evrópu síðan fyrir jól.
Talið er víst í Tokyo, að
stjórn Ishibashi muni marka
sjálfstæðari og einbeittari
stefnu út á við en nokkur önn-
ur stjórn, sem setið hefur að
völdum í Japan síðan heims-
styrjöldinni síðari lauk.
Nýir menn
Með sigri Ishibashis innan
Demókrataflokksins eru menn,
sem hingað til hafa lítil bein á-
hrif haft á stefnu Japans, teknir
við stjórnartaumunum. Þegar
Jshibashi birti ráðherralista sinn
kom í Ijós, að hann hafði gengið
fram hjá öllum nánustu sam-
starfsmönnum Hatojama, fráfar-
andi forsætisráðherra, sem lét
af embætti sökum vanheilsu.
Nýju ráðherrarnir eru flestir
lítt kunnir japönskum almenn-
ingi. Þeir hafa unnið bak við
tjöldin að því að ná völdum í
Demókrataflokknum.
Dæmdur fyrir stríðsglæpi
Utanríkisráðherrann í nýju
stjórninni, Nobusuke Kishi, var
verzlunarmálaráðherra um tíma
á stríðsárunum. Eftir ósigur Jap-
ans dæmdu sigurvegararnir hann
fyrir stríðsglæpi og sat hann í
fangelsi í þrjú ár. Talið er að
hann gangi næstur Ishibashi að
áhrifum í þeim armi Demókrata-
flokksins, sem nú hefur komizt
til valda.
Hinir ráðherrarnir hafa fæstir
áður gegnt ráðherraembættum.
Færeyskur prest-
or útvarpsstjóri
Presturinn Axel Torgard hef-
'iir verið skipaður útvarpsstjóri
á Færeyjum. Hann hefur und-
anfarið verið einn af þremur
þjónandi prestum í Þórshöfn.
títvarpsstöð tekur til starfa
á Færeyjum í febrúar og verð-
ur fyrst um sinn útvarpað tvo
klukkutíma dag hvern. Útvarps-
reksturinn verður á tilrauna-
stigi fyrstu fimm mánuðina, og
á meðan á séra Torgard að
sinna kalli sínu jafnframt út-
varpsstjórninni. Þegar farið
verður að útvarpa af fullum
krafti fær hann að helga út-
varpinu starfskrafta sína ó-
skipta.
Fyrsfi svarfi
flugmaSurinn
Fyrsti svertinginn hefur feng-
ið flugmannsstarf hjá banda-
rísku flugfélagi. Hann heitir
Perry Young og er ráðinn í
þjónustu lítils félags, sem held-
ur uppi ferðum milli New York
og New Jersey með helikopter-
vélum.
Stefnuyfirlýsing
Eftir fyrsta ráðuneytisfundinn,
sem haldinn var á sunnudaginn,
flutti Ishibashi yfirlýsingu um
stefnu stjórnar sinnar. Frétta-
mönnum í Tokyo ber saman um,
að yfirlýsingin hafi borið með
sér, að nýja stjórnin muni taka
upp sjálfstæða og þjóðernissinn-
aða utanríkisstefnu. Reynt verði
að koma hernaðarbandalaginu við
Bandaríkin á jafnréttisgrundvöll
og horfið frá þeirri venju jap-
anskra ríkisstjórna síðastliðinn
áratug að lá'ta að vilja Banda-
ríkjastjórnar í hverju óg einu.
Viðskiptin ganga fyrir
Nýja ríkisstjórnin telur það
eitt brýnasta verkefni sitt að stór-
auka verzlun við Kína, hvort sem
Bandaríkjamönnum likar betur
eða verr. Hingað til hafa jap-
anskar stjórnir haft strangar
hömlur á viðskiptum við Kína að
ósk Bandaríkjamanna.
Ishibashi hefur látið svo um
mælt, að ekki sé á dagskrá sem
stendur að koma á stjórnmála-
sambandi við Kína, það sem nú
kalli að sé að auka verzlun og
önnur samskipti með Japönum og
Kínverjum.
Svar Eisenhowers
til Búlganíns
Eisenhower Bandaríkjaforseti
er sagður hafa svarað bréfi því
sem honum barst frá Búlganín,
forsætisráðherra Sovétrikjanna,
í síðasta mánuði, en í því voru
lagðar fram nýjar tillögur sov-
étstjómarinnar í afvopnunar-
málunum. Eisenhower er sagð-
ur hlynntur því að haldið verði
áfram að ræða þau mál innan
vébanda. SÞ, en hins vegar and-
vígur þeirri tillögu Búlgamns,
að stjómmáialeiðtogar stór-
veldanna komi saman á fund
til að f jalla um þau.
HernaðarútgjöM
að siiga Frakka
Fulltrúadeild franska þings-
ins hefur samþykkt fjárlaga-
frumvarp stjómarinnar fyrir
næsta ár og er það í fyrsta sinn
eftir stríð að frumvarpið er
samþykkt fyrir byrjun fjár-
hagsársins.
Gert er ráð fyrir um 4500
milljarða franka útgjöldum, en
þar af er tæpur fjórðungur,
eða 1000 milljarðar franka, til
hernaðar. Þó er þar ekki gert
ráð fyrir útgjöldum vegna setu
tæplega. hálfrar milljónar her-
manna í Alsír né þeim útgjöld-
um sem Frakkar hafa orðið
fyrir vegna styrjaldarævintýrs-
ins gegn Egyptum.
Keppa við Indverja
Þeir sem kunnugir eru nýju
váldhöfunum í Japan segja, að
meginmarkmið þeirra sé að ná
forustunni í hópi Asíuríkjanna
sunnan og austan Kína. Þessir
japönsku stjórnmálamenn ætl-
ast til þess að fá stuðning Banda-
ríkjamanna til að afla Japan sem
mestra viðskiptaítaka á þessurn
slóðúm. Að því fengnu eru þeir
vissir um áð pólitísk áhrif fylgi
á eftir. Telja þeir löðurmannlegt
verk fyrir jafn iðnþróað land og
Japan að ná forustunni fyrir
Asiuríkjunum úr höndum Ind-
verja, sem heita má að séu að
byrja að iðnvæðast.
Hjá föður Guy Desnoyers í
sveitaþorpinu Uruffe lauk bar-
áttunni milli kröfu kaþólsku
kirkjunnar um algert einlífi
prestrigðra manna og mann-
legs eðlis með ósköpum.
Faðir Desnoyers var fyrir-
myndarprestur, sístarfandi að
velferðarmálum sóknarbarna
sinna, og hlaut að launum ást
þeirra og virðingu, enda þótt
kenning hans væri ströng og
siðavönd.
Presturinn var ungur og átti
einkar auðvelt með að hæna að
sér unglingana í hjörð sinni.
Hann þjálfaði piltana í knatt-
spymu og fékk ungu stúlkurn-
ar til að hirða og fegra kirkj-
una.
Ein þeirra, Régine að nafni,
tók að sér að annast altarið og
prestsskrúðann. Þegar hún
hafði sinnt því starfi af mikilli
alúð um hríð urðu foreldrar
hennar þess vaiúr að hún var
Liðnir eru tólf dagar síðan
tveir stúdentar lögðu til upp-
göngu á Mont Blanc, Þegar
þeir skiluðu sér ekki á tilsett-
um tíma var gerður út björg-
unarleiðangur til að sækja þá.
Leiðangursmenn komust til
stúdentanna, sem komnir voru
í ógöngur pg svo máttfarnir að
ekki var viðlit að koma þeim
til byggða niður fjallið. Þá var
helikopterflugvél send af stað,
en hún laskaðist og gat ekki
hafið sig á loft með þá.
Að meðtaldri áhöfn vélarinn-
ar eru nú 11 menn sem láta
fyrirberast á fjallinu. Stúdent-
arnir eru í flugvélarflakinu en
björgunarmennirnir í sæluhúsi
kona ekki einsömul. Þótt þeir
gengju á hana fékkst hún ekki
til að láta uppi faðerni barns-
ins sem hún gekk með.
Svo bar það við kvöld nokk-
urt, þegar Régine var komin á
steypinn, að faðir Desnoyers
kom æðandi heim til foreldra
hennar afskræmdur á svip og
skýrði þeim frá því að hann
hefði fundið lík dóttur þeirra
á afskekktri götu. Stúlkan hafði
verið skotin í gegn um höfuðið,
gerð á henni kviðrista, þung-
inn rifinn út og stunginn mörg-
um hnifstungum.
Grunsemdir lögreglunnar
beindust strax að prestinum, og
áður en dagur rann játaði hann
að stúlkan hefði verið ástmey
sin og hann hefði ráðið henni
bana.
,,Ég veitti Régine syndaaf-
lausn áður en ég drap hana“,
sagði faðir Desnoyers sér til
málsbóta.
þar skammt frá. 1 gær bárust
fregnir af því að óðum drægi
af stúdentunum. Óttast menn
að þeir verði króknaðir áður
en veður batnar svo að annarri
helikoptervél verði fært til
þeirra.
Björgunarráðstafanir hafa
til þessa kostað á tólftu millj.
króna.
Nasser tek sig
lausan allra mála
Útvarpið í Kairó hefur skýrt
frá því að Nasser Egyptalands-
forseti hafi lýst samninginn við
Breta um herstöð þejrra við
Súezskurð úr gildi fallinn.
Samningurinn, sem gerður var
1954, veitti Bretum rétt til :\ð
halda herstöðinni við i sjö ár
og flytja þangað herafla efi
eitthvert arabaríki yrði fyrir
árás annars ríkis en ísracls.
Segir Nasser, að Bretar hafi
ónýtt samninginn með árás sinni
á Egyptaland.
Talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins segir, að brezka
stjórnin viðurkenni ekki að Eg-
yptar hafi rétt til að fella sarnn-
inginn úr gildi.
SkiptasÉ á vis-
Stjórnir rannsóknarleiðangra
Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna, sem dvelja á Suður«
skautslandinu, hafa gert með
sér samkomulag um að skipt-
ast á vísindamönnum. Yfirmað-
ur bandarísku veðurrannsóktt-
anna er lagður af stað til
dvalar í Mirní, aðalstöðvum
sovézka leiðangursins. Bráðlega
er von á sovézkum veðurfræð-
ingi til Litlu Ameríku.
GórilBa fœSisf
í dýrogarði :
Fyrsti górilluungi sem fæðisti
af ófrjálsum foreldrum kom í
þennan heim í dýragarðinum i
Columbus í Ohiofylki í Banda-
ríkjunum tveim dögum fyrir
jól. Unginn er pasturslítill, en
dýraverðirnir gera sér þó vons
um að hann lifi. Hingað tiJJ
hafa dýrafræðingar talið úti-
lokað að ófrjálsar górillur ykjui
kyn sitt.
Hernaðarblakkir
aðeins iií ills
Júgóslavneska fréttaslofan.
Jugopress birti í gær viðtal við
Popovic, utanrikisráðherra Júgó-
slaviu. Segir hann að atburðir
þess árs sem nú er nýliðið liafij
sýnt að valdstefnan og hernað-
arbandalög stórveldanna getl
ekki orðið nema til ills.
Desjxoyers sóknar-
prestur á moi'S-
staðnum, þar sem
hann var aS fx-önsk-
um slð látlmi rifja
upp glæpiiin í viður-
vist rannsóknardóm-
arans. Litla myndin
er af Régine Fays,
barnsmóður lians og
fóniarlambi. — Mál
presfsins hefur rifj-
að upp, að hann lét
setja systur sína á
geðveikráhæli eftir
að hún hafði eign-
azt tvö böm utan
hjónabands.
Sóknarpreslur myrðir
frillu sína þungaða
Á næstunni kemur sóknarprestur fyrir rétt í héraöinu
Meurthe-et-Moselle í Frakklandi sakaður um að hafa
framiö hryllilegt morö.