Þjóðviljinn - 19.01.1957, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 19. janiiar 1957
Frú Halldórq Pétursdóttir
Um útburð á pósti — Almenningsbókasöfn — Fólkl
ber skylda til að fara vel með bækurnar
EINHVERNTÍMA rétt fyrir
Fædd 1. apríl 1877 —
I dag verður jarðsett að
Stóru Borg í Grímsnesi frú
Halldóra Pétursdóttir, fyrr-
um húsfreyja að Brjánsstöð-
um. Hún var búin að búa við
langa vanheilsu, pg nú síðast
Halldóra Pétursdóttir
tsrael er
einmana
Fulltrúar Bandaríkjanna og
Bretlands á þingi SÞ skýrðu
frá því i gær, að þeir myndu
greiða atkvæði tillögu 25 Asíu-
og Afríkjuríkja um að átelja
ísrael fyrir að hafa ekki flutt
her sinn af öllu egypzku landi
og krefjast þess að brottflutn-
ingnum verði lokið ekki síð-
ar en á þriðjudaginn. Brezki
fulltrúinn sagði, að Bretland
hefði aldrei lagt blessun sína
yfir árás Israels á Egyptaland
og teldi óhæfu að ísraelsstjórn
reyndi að gera sér mat úr
henni.
Sendiherra ísraels í London
sagði fulltrúa brezka utanríkis-
ráðuneytisins í gær, að Israel
myndi aldrei líða að Egyptar
fengju aítur aðstöðu til að
hefta siglingar um Aquabaflóa
til hafnarinnar Elath í Israel.
Dáin 12. janúar 1957
við miklar þjáningar. Það var
ekki ætlunin að rifja upp
æviferil þesarar tápmiklu
dugnaðarkonu, en í sem fæst-
. um orðum var hún til síðustu
stundar að vinna gagn sín-
um nánustu, öllu sínu sam-
ferðafólki og þar með þjóð
sinni og ættjörð, án þess að
til launa væri ætlazt. Eg
hygg að ekki sé hægt að inna
af höndum óeigingjarnara
starf en Halldóra hefur gjört
á sinni starfsríku ævi.
Við blessum þig lífs og
liðna. Megi þjóðin eignast
marga þína líka.
K. S.
Vill fó sœnsk
kjarnorku-
vopn
Svíar verða færir um að
smíða kjarnorkusprengjur
hjálparlaust 1963 eða 1964,
sagði Hugo Larsson, fyrirmað-
ur rannsóknarstofnunar sænsku
herstjórnarinnar, í fyrirlestri
í gær. Þá yrði nóg af kjarna-
kleyfu efni frá kjamorkuraf-
stöðvum til umráða. Larsson
kvað ekki ]törf á að taka end-
anlega ákvörðun um smiði
kjarnorkuvopna fyrr en 1960.
Sjálfur kvaðst hann telja
kjarnorkusprengjur ódýr og
hagkvæm vopn, sem sjálfsagt
væri fyrir Svía að smíða.
Kjarnakleyfa efnið myndi kosta
eina til fimm milljónir króna,
eftir því hvernig ráforka væri
verðlögð, en sjálf smíði
sprengjunnar væri ódýrari en
ein sprengjuflugvél.
íhaldsflokkurinn brezki myndi
tapa þingkosningum, ef þær
yrðu haldnar nú. Þetta er niður-
staða skoðanakönnunar sem
brezka borgarablaðið News
Chronicle hefur gert.
ival er álagning-
in, Björn?
Björn Ólafsson sokkaheildsali
birti fyrir nokkrum dögum
sundurliðaðan útreikning á
væntanlegu verði á sokkum. Var
útreikningurinn hinn fróðlegasti
að öðru leyti en því að fyrir aft-
an liðinn „álagning“ var eyða!
Vakti Þjóðviljinn athygli á þessu
daginn eftir og spurðist fyrir um
það hversu mikil álagning
Björns hefði verið.
En svo bregður við að eftir
þessa fyrirspurn hefur Vísir
ekki sagt eitt einasta orð um
verðið á kvensokkum og þaðan
af síður um álagninguna. í stað-
inn talar hann í gær um vænt-
anlegt verðlag á fiðri' og hálf-
dún! En það fer eins og fyrr
— álagningin er ekki höfð með.
Og nú er bezt að senda fyrir-
spurnina til Björns: Hvað hefur
álagningin verið mikil á kven-
sokkum, fiðri Pg hálfdún?
rw\» r £ £ *
J jon ar oiviori
Framhald af 1. síciu.
gerði þó mikinn usla. Brimið
reif grjót úr fjörunni og færði
langt á land upp. Götur spilltust
og hafnarmannvirki urðu fyrir
stórskemmdum. Tvo beitinga-
skúra, sem stóðu á stólpum við
hliðina á bryggjunni, tók hafrót-
ið og kastaði þeim upp á bryggj-
una.
Vesturför Títós
Von er á Tító Júgóslavíufor-
seta i opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna seinnipart april-
mánaðar, segir fréttaritari
Reuters í Washington eftir
bandarískum embættismönnum.
Hann verður gestur Eisenhow-
ers í Hvíta húsinu fyrst í stað,
en fer svo i hálfs mánaðar
ferðalag um Bandaríkin.
jólin var viðtal í útvarpinu
(mig minnir í þættinum Um
helgina) við starfsmenr. á póst-
húsinu í Reykjavík Lét einn
starfsmaðurinn m.a. svo um
mælt, að bréf, sem kæmist. i
póstkassa að morgni, kæmist
til viðtakanda síðdegis sama
dag, svo fremi sem nafn og
heimilisfang væri rétt. (Þetta
er vitanlega ekki orðrétt haft
eftir, en ummælin voru á
þessa leið). Nú veit ég ekki,
hvort útburður á pósti í Kópa-
vogi lýtur sömu reglum og í
Reykjavík, en þriðjudaginn 15.
þ.m. barst mér í hendur bréf,
stimplað í Reykjavík hinn 11.
þ.m. sem var föstudagur. Það
bréf hefur sem sé ekki komizt
samdægurs til skila, þótt nafn
og heimilisfang viðtakanda
væru í stakasta lagi, enda er
vafalaust erfiðara að koma
jafnreglubundnum póstútburði
á í Kópavogi og í Reykjavík.
★
BÓKABÉUS skrifar: „Heiðraði
bæjarpóstur! Mig langar til
að minnast litillega á almenn-
ingsbókasöfn við þig, ef þú
hefðir rúm fyrir léttvægt rabb
í dálkum þínum. Sem flestum
mun kunnugt lána söfn þessi
út bækur til fólks gegn á-
kveðnu gjaldi, og er því gjaldi
mjög í hóf stillt. miðað við
annað verðlag. í kaupstöðum
hygg ég, að lánþegi fái að hafa
bókina í 10 daga, en dragist'
lengur, að hann skili henni,
verður hann að borga „sekt“,
og minnir mig að ,,sektin“ hafi
til skamms tíma numið 5 aur-
um á dag. Þetta eru sem sð
engir afarkostir Nú hef ég
heyrt, að mjög rnikil brögð séú
að því, að bækur. sem fengn-
ar eru að láni í bókasöfnuni
hreinlega glatist eða þá þeim
sé skilað eftir dúk og disk
meira og minna skemmdum.
Ef þetta er rétt, þá tel ég það
mjög illa farið. Bækur almenn-
ingsbókasafna eru í rauninni
almenningseign, og fólki, sem
fær þær að láni, ber skylda
til að fara vel með þær, og
halda þeim ekki hjá sér lengut
en nauðsynlegt er, því að
söfnin eiga ekki mörg eintök
af sömu bókinni og oft bíða
margir eftir því að ná í vin-
sæla bók, sem er í útláni. Fólk
verður að hafa í huga að bæk-
ur eru dýrar, og þótt segja
megi, að þeir lánþegar, sem
skemma bækur safnanna eða
glata þeim, verði að borga
þær, þá hygg ég að oft gangi
erfiðlega að innheimta slíkt.
Það fer varla milli mála, að
almenningsbókasöfn eru nauð-
synleg til þess að svala lestr-
ar- og fróðleiksfíkn íólks, og
þess vegna finnst mér, að ,all-
ir ættu að gera sér að skyldu
að misnota ekki rétt sinn til
að fá bækur úr þeim að láni“.
★
PÓSTURINN ER lítið inni í
þessum málum. En þar sem al-
menningsbókasöfn eru tví-
mælalaust menningarmál, sem
almenning varðar, væri mjög
fróðlegt, ef einhver, sem vel
er að sér um þessi mál, gerði
hér grein fyrir rekstri slíkra
safna.
HAPPDRÆTTIHÁSKðLA ISLANDS
Dregið verður á mánudag kl. 1
f Sölumiðar eru á þrotum Hæstu vinningar hálf milljón
Viuningar í ár eru 10.000 Engir vinningar lægri en
samtals 13.440.000 kr. 1000 krónur /