Þjóðviljinn - 25.01.1957, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Frá Alþingi í gær:
Daufur áhugi MorgunbSaðsritst jóranna
á störfum og afköstum Álþingis
Morgunblaðið' og' Vísir skrifa nú daglega um lítil af-
köst Alþingis. Fékkst í gær í báðum deildum heldur
spaugileg sönnun á raunverulegum áhuga ritstjóranna
fyrir því a'ö' málin gangi greitt.
um frá þvi í haust. Hefur
frumvarpið þegar hlotið af-
greiðslu neðri deildar.
Reis þá upp Sigurður Bjarna-
son, aukaritstjóri Morgunblaðs-
ins,og krafðist þess að málinu
yrði frestað. því hann vildi
heyra félagsmálaráðherra halda
framsögu um það, einnig í efri
deild!
Kom félagsmálaráðherra og
skýrði tilgang og tilefni bráða-
birgðalaganna í stuttri ræðu.
Hægði Sigurði þá svo, að hann
bað ekki um orðið, og fór mál-
ið umræðulaust til heilbrigðis-
og félagsmálanefndar og 2.
umræðu.
Með þessu móti virðast aðal-
ritstjóri og aukaritstjói'i Morg-
unblaðsins vilja tryggja sér
nægan tíma til að skrifa grein-
ar í blað sitt um starfsleysi og
verkefnaleysi Alþingisj
Utlit fyrir að landanir togara inn-
snlands fari vaxandi á næstunni
Sex af togurum Bæjarútgerðar Reykjavíkur
stunda nú veiðar fyrir innanlandsmarkað
Fisklandanir togara hér innanlands munu fara vax-
andi á næstunni og því góðar vonir um aö frystihúsum
og fiskvinnslustöövum berist nægilegt hráefni veröi gæft-
ír stöðugri og afli glæðist.
Sveiíarstjórnaþing Evrópu-
ráóslanda Iialdió í Strasbourg
Hinn 14. okt. 1955 samþykkti ráögjafaþing Evrópuráð's-
ins að kveðja saman fulltrúafund sveitarstjórnarmanna
frá öllum þeim löndum, sem a'öild eiga aö Evrópuráðinu.
nefndum þingsins, öðrum en
kola- og stálnefndinni.
Um öll þessi mál voru gerðar
ályktanir á þinginu og verða
þær birtar í nánari greinargerð,
sem sambandið mun síðar láta
blöðum og útvarpi í té.
Gunnar Thoroddsen flutti á
þinginu athyglisverða ræðu um
gildi alþjóðlegs samstarfs, og
var gerður góður rómur að
máli hans.
Þinginu stjórnaði með mikilli
röggsemi og lagni formaður
sveitarstjórnar- og héraðsmála-
nefndar Evrópuráðsins, Chbaxi'
Delmas, borgarstjóri í Borde-
aux í Frakklandi, og fór þingið
hið bezta fram og var hið
ánægjulegasta í alla staði.
(Frá Samb. ísl. sveitarfél.)
Fleiri skip munu ekki sigla
með fisk á brezkan markað í
þessum mánuði en heimiid er til
að selja þar 7 skipsfarma i fe-
brúar.
Til Austur-Þýzkalands er enn
heimilt að selja 350 tonn af ís-
fiski samkvæmt gildandi samn-
ingi um fisksölu þangað, en
markaður í Vestur-Þýzkalandi er
orðinn mjög stopull m.a. vegna
hækkunar á tolli sem nýlega er
kominn til framkvæmda.
Það eru því allar horfur á að
mikill hluti togaraflotans leggi
afla sinn upp hér heima á næst-
unni, í frystihúsin og fiskverk- ;
|
unarstöðvarnar sem mjög hefur
skort fisk til vinnslu og verkun-
ar undanfarið vegna þess að
bátaflotinn hefur lítið getað at-
hafnað sig vegna óhagstæðs veð-
urfars og þar af leiðandi afla-
leysis.
Þessar upplýsingar komu fram
á fundi útgerðarráðs Reykja-
víkur sem haldinn var í gær en
þar var m.a. lögð fram tillaga
Einars Ögmundssonar frá síð-
asta bæjarstjórnarfundi um að
stuðla að aukinni löndnn á tog-
arafiski til að bæta úr hráefna-
skorti frystihúsanna.
Togarar Bæjarútgerðar
Reykjavíkur stunda nú þessar
veiðar: Þorsteinn Ingólfsson og
Pétur Ilalldórsson veiða í salt
fyrir innanlandsmarkað, Skúli
Magnússon og Jón Þorláksson
veiða i ís fyrir frystihúsin, Ing-
ólfur Arnarson er á leið heim
frá Þýzkalandi með saltfarm og
fer á veiðar fyrir innanlands-
markað, Hallveig Fróðadóttir
kom heim í gær úr klössun í
Bretlandi og fer á veiðar í ís
fyrir innanlandsmarkað, Þorkell
Máni er á ísfiskveiðum og á
hann að sigla með afla sinn.
Skautamót Islands
9.-—10. þ.m.
Meistaramót Isiands í skauta-
hlaupi verður háð á Akureyri
dagana 9.—10 næsta mánaðar.
Skautafélag Akureyrar mun sjá
um mótið.
Lík Alberts
Guðmundssonar
fannst í höfninni
i Grimsby
Togarinn Hallveig Fróðadótt-
ir kom frá Englandi í gær en
togarinn hafði verið í klössun
í Grimsby.
Hallveig flutti heim lík Al-
berts Guðmundssonar er var há-
seti á Bæjarútgerðartogaranum
Þorsteini Ingólfssyni en hvarf a£
skipinu er það var statt í Grims-
by í des. sl. Fannst Hk Alberts
heitins þar í höfninni fyrir
skömmu.
Slökkvlliðlð var kvatt ot 456 sinnum
á sl. ári, þar af narrað í 80 skipti
EldsvoSar voru alls 273 á árinu og mik
/ð f/ón eðo falsvert i 71 þeirra
Samkvæmt upplýsingum Slökkviliðsins í Reykjavík
var þaö kvatt út alls 456 sinnum á s.l. ári. í 183 skipti var
ekki um neinn eld aö ræöa, þar af var liöið gabbaö 80
sinnum, en 273 sinnum var eldur laus og oftast, í 72
skipti, vegna íkveikju. MikiÖ tjón hlauzt af 15 eldsvoðum,
þar af 7 í desember.
Þau tíðindi gerðust ein i
neðri deild Alþingis í gær, að
aðalritstjóri Morgunblaðsins,
Bjarni Benediktsson, kvaddi sér
hljóðs áður en gengið var til
dagskrár.
Var það efni máls hans að
biðja forseta að fresta meðferð
beggja þeirra mála, sem á dag-
skrá voru.
Fyrra málið var stjórnar-
frumvarpið um sölu og útflutn-
ing sjávarafurða, og var ætl-
unin að þar yrði einungis flutt
framsöguræða en umræðu síð-
an frestað til að gefa þing-
mönnum kost á að kynna sér
málið betur.
En Bjarni bað því ákafar,
og varð forseti, Einar Olgeirs-
son, við tilmælum hans og tók
málið af dagskrá.
Kjartan læknir tepptur
Hitt málið var breytingar á
'iögunum um atvinnuleysis-
tryggingar. Bað Bjarni innilega
■om að því yrði líka frestað,
enda þótt meðferð málsins hefði
verið frestað fyrir jól vegna
beiðni Sjálfstæðisflokksins. Nú
var sá hængur á, að í heilbrigð-
is- og félagsmálanefnd neðri
deildar væri enginn Sjálfstæðis-
maður viðlátinn nema Ragn-
hildur Helgadóttir, Kjartan
læknir hefði orðið veðurtepptur,
og ætti Sjálfstæðisflokkurinn
bágt með að gefa út nefndar-
álit fyrr en hann væri kom-
ipn.
Meirihluti nefndarinnar, Stein-
grímur Steinþórsson, Gunnar
Jóhannsson og Benedikt Grön-
dal höfðu skilað nefndaráliti og
lagt til að frumvarpið verði
samþykkt óbreytt.
Forseti, Einar Olgeirsson,
kvaðst verða við beiðni Bjarna,
í trausti þess að ekki hlytist
af óeðlilegar tafir á gangi mála.
Bókhaldsvélar og hunda-
hreinsun
í efri deild voru nokkur bók-
haldsmál sýslumanna á dagskrá
(Sýsluvegasjóður, Hundahald,
Fasteignaskattur) en efni
þeirra er að ýta innheimtu
gjalda frá sýslumönnum yfir á
sveitarstjórnir, og er veigamjk-
ið atriði í rökstuðningi þeirra
að dálkum þurfi að fækka í
bókhaldi sýslumanna svo þeir
geti fremur notfært sér hrað-
virkar bókhaldsvélar.
Kom margvíslegur fróðleikur
fram í ræðum Friðjóns Skarp-
héðinssonar um þessi mál, m.a.
að engir hundar séu í Grimsey
og Hrísey, og verði þó eyjar-
skeggjar að borga hundaskatt.
Enn fremur taldi sýslumaður-
inn að sveitarstjórnir ættu
hægra með að annast byggingu
og viðhald hundahreinsunar-
kofa en sýslumannsembættin.
Signrður heimtar
framsðguræðu
Þá kom að 1. umræðu frum-
varpsins um afnot íbúðarhúsa,
etaðfesting á bráðabirgðalögun-
Fulltrúafundur þessi kom
saman í fyrsta sinn i Stras-
bourg hinn 12. þ.m. og sóttu
hann 116 menn frá 13 Evrópu-
ráðslöndum.
Samband ísl. sveitarfélaga
var því beðið að hlutast til
um tilnefningu þriggja fulltrúa
frá íslandi til þess að sækja
fund þennan. Stjórn Sambands
ísl. sveitarfélaga tilnefndi einn
þessara fulltrúa, Jónas Guð-
mundsson fonnann sambands-
ins, Revkjavíkurbær annan,
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóra, en utanríkisráðherra,
sem málefni Evrópuráðsins
heyra undir, að því er til Is-
lands tekur, tilnefndi þriðja
manninn, Hálfdán Sveinsson
forseta bæjarstjórnarinnar á
Akranesi, og sóttu þeir allir
fundínn, sem stóð yfir dagana
12.—14. janúar.
Tilgangurinn með ráðstefnu
þessari, sem eftirleiðis mun
koma saman árlega, er sá, að
þingi og ráðherranefnd Evrópu-
ráðsins, veitist kostur á að
kynna sér afstöðu sveitarstjórn-
armanna til þeirra málefna,
sem sveitarfélögin aðallega
fjalla um i hinum ýmsu lönd-
um, og afla tillagna frá þeim,
um þau málefni sveitarfélaga,
sem á hvex'jum tima skipta
mestu máli í starfsemi Evrópu-
ráðsins og ráðherranefndarinn-
ar. Þá er það og tilgangur
þinga þessara. að efla sam-
starf sveitarstjórna og gefa
þeim mönnum, er með þau fara
í Evrópuráðslöndum, kost á að
kynnast nánar skoðunum og
viðhorfum hvers annars til
ýmsra mikilvægra sveitarstjórn-
armálefna, sem á dagskrá eru
hverju sinni.
Fyrir þennan fund komu
fjögur mál.
1. Lánaþörf sveitarfél. (Muni-
cipal credit).
2. Staðbundin viðfangsefni, er
leiða af opnun kola- og stál-
markaðsins og starfi kola-
og stálsamsteypu Evrópu.
3. Þáttur sveitarstjórna í bar-
áttunni fyrir samciningu,
framförum og endurskipu-
lagningu Evrópu.
4. Vernd og þróun sjálfsfor-
ræðis sveitarfélaga.
Fulltrúar Islands áttu sæti i
Kvaðningar í hverjum mán-
uði sl. árs voru frá 28 (marz)
til 59 (desember), oftast 36—44.
Mest var um brennukvaðningar
síðdegis kl. 15-—21 (167), en
fæstar voru þær að jafnaði
kl. 3—9 (56). í 341 skipti var
síðla nætur og á morgnana,
síminn notaður við kvaðningar,
en brunaboðar 115 sinnum.
Gabbað 80 sinmnn
Slökkviliðíð var kvatt út 183
sinnum án þess að um eld væri
að ræða, eins og áður er sagt.
Lék grunur á að eldur hefði
kviknað í 82 skipti, 80 sinnum
var slökkviliðið beinlínis gabb-
að, þ.e. nær einu sinni á hverj-
urn fjórum dögum, en 21 sinni
snertust leiðslur í brunaboðum
svo að þeir gáfu frá sér kvaðn-
ingarmerki.
Eldur oftast í ibúðar-
húsurn
í þau 273 skipti, sem í hafði
kviknað, var oftast eldur í ibúð-
arhúsum eða 114 sinnum, 30
sinnum koni upp eldur í úti-
húsum, 20 sinnum í bifreiðum,
21 sinni í verkstæðum, 11 sinn-
um í bröggum, 9 sinnum í skip-
um.
íkveikja algengasta or-
sök bruna
Ef litið er á upptök eldsvoð-
anna 1956 eru íkveikjurnar flest-
ar í skýrslu slökkviliðsins eða
72. Út frá olíukyndingartækjum
i kviknaði 39 sinnum, raflögnum
24 sinnum, rafmagnstækjum 22
sinnum, eldfærum og ljósatækj-
um 21 sinni, reykháfum og rör-
um 6 sinnum.
Mikið tjón í 15 skipti
— ekkert í 94
Ekki liggja fyrir tölur um hið
beina fjárhagslega tjón af völd-
um eldsvoðanna sl. ár en tjón
varð mikið í 15 skipti, þar af
7 sinnum í desember, þrisvar
sinnum í júlí, tvisvar í nóvem-
ber og einu sinni í hverjum
þessara mánaða: marz, apríl og
september. Tjón varð talsvert
í 56 eldsvoðum, lítið í 108 og
ekkert í 94.
Sýnir í Regnboga^ura
Sigurður Sigurðsson listmál-
ari sýnir næstu daga r.okkur
verka sinna, olíumálverk, vatns-
litamyndir og pastellmyndir, i
setustofu verzlunarinnar Regn-
bogans, Bankastræti 7. Mynd-
irnar eru allar til sölu.