Þjóðviljinn - 03.02.1957, Síða 4
4)
ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 3. febrúar 1957
íííí
SKÁKIN
Ritstjóri:
FREYSTEINN ÞORBERGSSON
Skákmeistarinn Guðmundur Arnlaugsson
3P
j
Það voru mörgum lesandan-
um leið umskipti, er Guðmund-
ur Amlaugsson lét af iöngu
og fórnfúsu starfi sem ritstjóri
þessa þáttar. Var þátturinn
meðan Guðmundur annaðist
hann einhver vinsælasti skák-
þáttur, sem sézt hefur í nokkru
blaði á íslandi. Þarf naumast
að taka fram, að ritstjómin
hélt í Guðmund svo lengi sem
hægt var. Maðurinn er hins-
vegar svo störfum hlaðinn, ég
nefni sem dæmi umfangsmikla
kennslu við menntaskólann og
háskólann, ásamt ritstörfu.m
o.fl., að svo fór að lokum, að
þættinum varð að fórna. En
sú er bót í móli fyrir skák-
unnendur, að þeir, eiga þess
kost að hlusta á Guðmund í
skákþætti útvarpsins öðru
hverju.
Guðmundur Arnlaugsson er
maður sem hlýtur virðingu og
vinsældir hvar sem hann legg-
ur hönd á plóginn. Fer og upp-
skeran eftir þvi. Valda því
mannkostir hans, ósærplægni,
mikil vinnuafköst, hagsýn
stjórnsemi o.fl. Skiptir þá ekki
máli hvort plægja skal mis-
frjóa hugarreiti unglinga í
mennta- eða háskóla, stýra liði
daufdumbra trémanna gegn
fræknum andstæðmgum á
Ðanmerkur- eða íslandsþingi,
eða á Ólympíumóti. Eða hvort
stjórna skal og skipa til sókn-
ar sundurleitum hópi skák-
manna, í taugaæsandi keppni
við berserki annarra þjóða.
Skiptir og engu, hvort vígvöll-
urinn heitir Reykjavík, Kaup-
mannahöfn, Munchen, Buenos
Aires, Helsingfors, Amster-
dam, Moskva eða hver veit
hvað,
Guðmundur hefur eiginlega
aldrei teflt neitt að ráði, enda
aðeins sinnt skák lítillega í
hjáverkum á stundum. Það
vekur því furðu að hann skuli
þegar hafa unnið ýmsa stór-
sigra heima og heiman, einnig
á þessum vettvangi svo sem
t.d. að sigra í hörðum flokki
meistara á Danmerkurmóti, á
þeim tíma sem Danir enn réðu
mestu á íslandi, sækja háan
vinningafjölda á Ólympíumóti
og verða taflkóngur fslands.
Þegar ég fer þess á leit við
Guðmund, að hann sýni mér
einhverjar af skákum sínum
og segi mér nokkur orð um
feril sinn, er það hvergi nærri
auðsótt mál, enda er maðurinn
fúsari og vanari að gefa föður-
leg ráð heldur en að tala um
sjálfan sig. Er það og vani
minn að leita til hans er góðra
ráða er þörf. Mér tekst þó að
lokum að fá hann til þess að
rifja upp gamlar minningar
frá Hafnarárum sínum. Þá er
bjöminn unninn.
„Hvenær lærðir þú að tefla
Guðmundur?"
„Það mun hafa verið þegar
ég var í 1. bekk menntaskólans
veturinn 1927 eða 1928“.
„Hvemig atvikaðist það?“
„Eg gætti bókasafns skól-
#uis og komst þá yfir bók sem
ég fór eitthvað að grúska í.
Það var víst innbundið skák-
tímarit, í uppnámi minnir mig.
Upp úr því fór ég að tefla.
Það var mikill skákáhugi í
menntaskólanum þá, einkum í
fyrsta bekk. Man ég að 1.
bekkingar gerðust svo djarf-
ir að skora á allan skólann í
keppni við 1. bekkinga. Þótti
þá mörgum að lítill færðist
mikið í fang. Mættu efribekk-
ingar illa til leiks og 1. bekk-
ur fór með sigur af hólmi“
„Varst þú með í þeirri
keppni?“
„Nei, við Baldur Möller þótt-
um þá ekki liðtækir, en feng-
um að vera varamenn".
„Og það þurfti ekki á vara-
mönnum að halda?“
„Nei“, segir Guðmundur
brosandi.
Guðmundur tefldi fyrst í
Taflíélaginu þegar hann var í
fjórða bekk og vann sig þá upp
í 1. flokk, sem þá var efsti
flokkur hérlendis.
Að afloknu stúdentsprófi
sigldi Guðmundur til náms í
Kaupmannahöfn og lauk þar
fyrrihlutaprófi í stærðfræði
1936.
Á þessum árum tefldi Guð-
mundur í Studentemas Skak-
förening, sem um það leyti
varð sterkasti skákklúbþur
Danmerkur. Vann hann sig upp
í meistaraflokk þegar 1934,
með því að Harald Enevoldsen
og hann urðu efstir í 1. fl. Har-
ald er bróðir Jens Enevoldsen,
sem enn á Norðurlandametið í
blindskák og telst bezti skák-
maður Dana fyrr og síðar, að
Bent Larsen undanskildum.
Það var skemmtileg tilviljun,
er þeir Harald og Guðmundur
hittust 22 árum síðár sem borð-
félagar í Moskvu og vom þá
fyrirliðar fyrir sitt Ólympíu-
liðið hvor, annar fyrir Dan-
mörku hinn fyrir ísland.
Skömmu áður en Guðmund-
ur hélt til fslands 1936, tefldi
hann tveggja skáka einvígi við
Christian Poulsen, sem það ár
var valinn til þess að tefla fyr-
ir Danmörku í Múnchen og
tefldi einnig í Moskvu í fyrra.
Guðmundur sjgraði með IV2
gegn %.
Guðmundur hóf kennslu við
Menntaskólann á Akureyri
1936 og kenndi þar til
þess er hann hóf seinnihluta-
nám í Kaupmannahöfn á út-
mánuðum 1939.
Skömmu eftir að Guðmundur
var kominn noiður 1936, barst
honum bréf frá Danmörku, þar
sem þess var farið á leit, að
hann tefldi fyrir Danmörku á
Ólympíuskákmótinu í Múnch-
en. Ekki hafði Guðmundur
svarað bréfinu, er það fréttist
að íslendingar hyggðu til þátt-
töku á sama móti og Guð-
mundur væri meðal útvaldra
þátttakenda fyrir ísland!
Sú varð og raunin, að Guð-
mundur tefldi fyrir. ísland og
hlaut ásamt öðrum ungum
manni, Árna Snævarr, hæst
vinningshlutfall íslendinganna.
Sljákkaði þá nokkuð í þeim
röddum sem talið höfðu, að
þeir Snæv.arr og Guðmundur
væru of ungir og óreyndir til
slíkrar farar, en um val þeirra
höfðu staðið harðar blaðadeii-
ur.
Árið 1939 var Guðmundur
elmiig með hinni sigursælu
sveit, sem sótti konungsbikar-
inn til Buenos Aires. Hlaut
Guðmundur þar 75 af hundraði,
sem er mjög glæsileg frammi-
staða, þótt hún hyrfi að vísU
í skuggann hjá hinni einstæðu
sigurröð Jóns Guðmundssonar,
sem vann ellefu síðustu skák-
irnar.
Guðmundur lauk embættis-
prófi í stærðfræði og hliðar-
greinum hennar, eðlisfræði,
efnafræði og stjörnufræði, í
janúar 1942.
Skömmu áður en hann fór
til Buenos Aires, hafði hann
lítt æfður og nýkominn frá
Akureyri unnið í meistaraflokki
á skákþingi Danmerkur, með
þátttöku svo sterkra skák-
manna sem Wiggo Clausen og
Haírtvig Nilssen, svo einhverj-
ir séu nefndir. Hafði hann því
þátttökurétt í landsliði Dana.
Þessi réttindi notfærði Guð-
mundur sér aðeins tvisvar, eða
árin 1941 og 1943, í bæði skipt-
in með ágætum árangri.
Er Guðmundur hafði lokið
Framhald á 9. síðu.
Guömundur Arnlaugsson við skákborðið:
VERZLUNIN HELMA,
ÞÓRSGÖTU14
afgreiðir barnafatapakka næstu daga
FAGMANNESKJA VELUR BARNAFÖTIN
Verð sem hér segir:
2 baraateppi .... á kr. 42.00 pr. stk. kr. 84.00
6 bleyjur - — 9.00 — — — 54.00
6 bleyjur - — 7.35 — — — 44.10
4 naflabindi .... - — 3.00 — — — 12.00
4 skyrtur - — 10.95 — — — 43.80
2 ullarbolir .... - . — 13.00 — — — 26.00
4 treyjur - —- 23.35 — — — 93.40
6 buxur - • — 10.95 — — 65.70
2 sokkabuxur .. - . —- 17.95 — — — 35.90
4 handklæði .... • — 20.75 — — — 83.00
1 baðhandklæði
stærð 1x1 m .. - — 46.50 — — — 46.50
2 þvottapokar .. - — 5.00 — — — 10.00
1 barnasápa .... - — 4.00 — — — 4.00
1 púðurbaukur
Johnson .... - — 16.50 — — — 16.50
1 kremtúba .... - — 14.65 — — — 14.65
1 bómullarpakki
Johnson steril - — 3.25 — — — 3.25.
1 kippa
öryggisnælur - — 2.00 — — — 2.00
1 m. plastdúkur - — 17.00 — — — 17.00'
kr. 655.80
10% afsláttur, ef tekinn er heill pakki. kr. 65.58
kr. 590.28
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
VERZLUNIN HELMA,
Þórsgötu 14 — Súni 1877
fltsölunni 1
verSur lokiS eftir rtokkra I
daga I
Nýtt úrval aí töskum j
Sama lága veröiö.
NotiÖ síöasta tækifæriö.
TÖSKUBCÐIN
LAUGAVEG 21
Dregið á þriðjudag í 2. flokki