Þjóðviljinn - 01.03.1957, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 01.03.1957, Qupperneq 3
 Föstudagur 1. marz 1957 — ÞJÓÐVIUINN — (3 Ei íheridið réðl yrðu neytendur uð greiðcs 30 millj> kr. meira dri lyrir oliur og benzín Eina frambúSarlausnln aS þjóSnýta oliuflufninga og oliusölu Meðan Sjálfstæðisflokkurinn var í ríkisstjórn var hver einasta krafa olíufélaganna samþykkt umyrðalaust. Ef Sjálfstæöisflokkurinn hefði ekki oltiö út úr ríkisstjórn s.l. sumar væri verðlag á olíum og benzíni hækkað fyrir löngu, og neytendur greiddu olíufélögunum 30 millj,. kr. hærri upphæð á ári, en fram á það fóru olíufélögin og „sönnuðu“ nauösyn sína með útreikningum, sem studdir voru af málgögnum íhaldsins og ýmsum helztu leiötog- um þess. Vísir heldur því enn fram í gær áð Lúðvík Jósepsson hefði átt ,að sjá fyrir árás Breta og Frakka á Egyptaland! Hverjir sáu þessa áras fyrir? Ekki Norð- urlandaþjóðirnar sem neyddust til að hækka olíur og benzín langtum fyrr en íslendingar. Ekkí einu sinni Bretar o.g Frakk- ar sjálfir, því hvergi bafa efna- hagslegar afleiðingar af árásinni orðið stórfelldari! En Lúðvík Jósepsson átti að sjá þetta allt fyrir, segir heildsalablaðið Vís- ir; þetta er nú stjórnarandstaða sem segir sex! Glópska Ingólfs Jónssonar Blaðinu láist hins vegar að geta þess að Ingólfur Jónsson neyddist til að játa það á þingi að hann hefði átt kost á að gera samning um olíuflutninga til landsins til langs tíma fyrir að- eins 50—60 shillinga verð á tonn. Slíkir samningar hefðu verið mjög hagstæðir þjóðinni, einnig þótt ekki væri reiknað með neinni ofbeldisárás Breta og Frakka sem hækkaði allt verð- lag upp úr öllu valdi. En við- skiptamálaráðherra íhaldsins sveikst um að gera þessa samn- inga — og rökstuddi þá afstöðu með því að hann hefði verið hræddur um að Hamrafeliið gæti ekki staðizt samkeppnina! Olniflutningar íhaldsins dýrastir. Visir minnir einnig á að Þjóðviljinn hafi talað um að Hamrafellið, olíuskipið sem Bjöm Ólafsson er einn af hlut- höfunum í, myndi græða veru- legar upphæðir á farmgjöidum sínum. Á því er ekki nokkur vafi að gróðinn á skipinu er mikill, en samt sparar það þjóð- inni stórfé í samanburði við hin erlendu flutningaskip sem eru í þjónustu olíufélaga íhaldsins og taka 60 shillingum meira á tonn. Sú upphæð rennur öll til er- lendra auðfélaga, en Hamrafellið er þó í eigu íslendinga. Vísir veit það einnig blaða bezt að eigendur Hamrafellsins, þar á meðal Björn Ólafsson, heimtuðu að skipið fengi fullt heimsmark- aðsverð, 220 shillinga á tonn, fyrir flutninga sína, en Lúðvík Jósepsson neyddi þá til að skera kröfur sínar niður um nærri því þriðjung. Öhemjulegur dreifingar- kostnaður. Hitt er ekkert launungarmál að ef sósíalistar réðu einir myndi vera annar háttur á olíu- flutningum og olíusölu en nú er. Það er stefna sósíalista að olíu- flutningar og olíusala sé þjóð- nýtt. Með því móti myndi gróði auðmannanna renna til almenn- ingsþágu og öll dreifing verða einfaldari og ódýrari. Eins og nú er halda þrjú félög uppi þreföldu skrifstofubákni og þreföldu dreifingarkerfi. hvar sem komið er má sjá þrjá olíutanka standa hlið við hlið, og bílar þriggja fé- laga elta hver annan um landið þvert og endilangt allan ársins hring. Með þessu móti fara ó- trúlega háar upphæðir í súginn, auk gróðans sem Hallgrímur í Shell, mágur Thorsaranna, hirð- ir, Björn Ólafsson og aðrir olíu- heildsalar. Gróðinn stórskertur. En sósíalistar hafa ekki afl ennþá til þess að tryggja þjóð- nýtingu olíusölunnar. Hinsvegar hafa ráðherrar Alþýðubandalags- ins nóð þeim árangri að skerða gróða olíufélaganna að miklum mun. Þau voru látin bera hinar erlendu verðhækkanir bótalaust mánuðum saman, og hefur það sparað hverjum þeim manni sem notar belnzín og olíur mörg hundruð króna. Þó var álagn- ing olíufélaganna skorin niður að miklum mun er verðlagið var loks hækkað fyrir nokkrum dög- um. Forráðamenn olíufélaganna, sem eru meðal helztu leiðtoga Sjálfstæðisflokksins, héldu því fram að félögin yrðu óhjákvæmi- lega að fá miklum mun hærra verð, eða sem svarar 30 milljón- um króna meira á ári. Ef Sjálf- stæðismenn hefðu verið 1 ríkis- stjórn hefði sú krafa verið sam- þykkt umyrðalaust eins' og alltaf á undanförnum árum. Ef Sjáif- stæðisflokkurirnn .. hefði ráðið hefði verð á olíu og benzíni ver- ið hækkað fyrir mörgum mánuð- um, og neytendur yrðu að greiða olíufélögunum 30 milij. kr. hærri upphæð á einu ár en nú er. Brrniatryggingar Eru eigur yðar nægilega hátt brunatryggðar? Ef ekkl, þá talið við oss sem fyrst. VÁTRYGGINGASKRIFSTOFA SIGFttSAR SIGHVATSSONAR h.f. Lækjargötu 2A, Reykjavík — Símar 3171 og 83931 steinþiN Fjölbreytt úrval af TROLOFUN ARHRIN GIR STEINHRINGUM 18 og 14 karata. — Póstsendum — Sósíalistar í Reykjavík vinsamlega komið í skril- stofu Sósíalistafélagsins i Tjarnargötu 20 og greiðiB félagsgjöld ykkar. Vataajökull fyrsta íslenzka fluta- iugaskipið sfiin keiur í Hellissandi. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Það má til tíðinda teljast í hinni fornu Rifshöfn á Snœfellsnesi, sem nú er aftur aö risa til fo.ms vegs, að Vatnajökull kom hingað fyrir nokkru til aö taka frystan fisk. Hann er fyrsta stóra íslenzka flutningaskipiö er hingað kemur, en áður hafði raunar komiö inn í Rifs- höfn sœnskt flutningaskip. Þaö er líka í fyrsta sinni aö frystur fiskur er tekinn í Rifshöfn til útflutnings. KabareÉtsýningar að hefjast Laugardaginn 9. marz n.k. hefjast í Austurbæjarbíói kabarettsýningar á vegum sjómannadagsins. Fjölleikamennirnir eru úr sýn- ingarflokki er nefnist á íslenzku Enskar og hollenzkar KÁPUR teknar iram í dag. MARKAÐURINN HAFNARSTRÆTI 5. Undur veraldar. Eru þeir af eft- irtöldum þjóðernum: Austurrík- ismenn, Þjóðverjar, Frakkar, Skotar, Englendingar, Belgíu- menn, Suður-Afríkumenn o« loks einn Indíáni. Einn kallast „handalausi mað- urinn“, leikur hann á píanó með tánum, rakar skegg — og svo er hann sögð fyrirmyndar skytta. Annar kallast „beinlausi mað- urinn“, vegna þess að hann get- ur undið upp á sig eins og tuskubrúðu. Þriðji kallast „Sterkasti maður í heimi“, en er þó ekki nema 169 sm en kvað draga fullsetinn strætisvagn með tönnunum. Fjórði kallast jafn- vægiskóngurinn, hann hefur lært línudans í Bandaríkjunum. Þá er Indíáninn og er hánn sagður „listaskytta og fakír“. Svo eru flugfimleikamenn er nefnast „Frampólími". Loks er svo stjórnandi fyrirtækisins, Crossjni, er stundum hefur ver- ið nefndur „arftaki töframanns- ins Houdinis11. ............................“! TILKYNNING FRA VERZLUNARSPARISJÓÐNUM Aígreiðslutími sparisjóðsins verður írá og með deginum í dag, sem hér segir: Alla virka daga kl. 10-12.30, 14-16 og 18-19 Laugardaga kl. 10-12.30. Athygli viðskiptavina vorra skal vakin á því að í afgreiðslutímanum kl. 18-19 verður einungis um sparisjóðs- og hlaupareikningsviðskipti að ræða. VERZLUNARSPARISJÓÐURINN Hafnarstræti 1 — Sími 7448

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.