Þjóðviljinn - 03.05.1957, Qupperneq 5
Föstudagur 3. mai 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Hlþiéðlegur leiðuugur hyggst
ráðcs gátur GrænlcEndsj öhuls
Paul-Émile Victor kannar i sumar v/S
annan mann leiSina upp á)ökulinn
í síöustu viku kom frönsk tveggja hreyfia flutninga-
flugvél frá París á Keflavíkurflugvöll. í vélinni var eimi
lielikopter og tveir vísindamenn á leið til Græniands.
Ánnar farþeginn var einhver
frægasti heimskautakönnuður,
sem nú er uppi, Frakkinn Paul-
Émile Victor. Honum samferða
var danski skriðjöklafræðing-
urinn Börge Fristrup.
Leifca að beztu bílalfeiðinni
Erindi þeirra félaga til Græn-
lands er að nota sumarmánuð-
ina til að undirbúa mesta vís-
indaleiðangur, sem farinn hef-
ur verið til að kanna hina
miklu jökulbreiðu, sem hylur
mestan hluta landsins. Leiðang-
urinn hefst að. ári og snjóbíl-
ar verða notaðir til að flytja
menn og útbúuað upp á ís-
breiðuna.
Helikopterinn, sem flutninga-
flugvélin hafði meðferðis, verð-
ur farartæki þeirra Victors og
Frístrups í sumar á ferðum
þeirra um Grænland. Erindi
þeirra er að finna sem hentug-
asta leið upp á jökulinn fyrir
beltabíla leiðangursmanna, svo
að ferðin upp jökulröndina og
upp á hábunguna geti gengið
sem tafaminnst þegar þar að
kemur.
Talið er að Victor hallist að
því að bezt sé að ráða til upp-
göngu á jökulinn nálægt höfn-
inni Quervain á vesturströnd-
inni, en þar lét hann flytja
þungaflutning leiðangurs síns
árið 1948.
Frá Keflavík flaug vél Vict-
ors og Fristrups til Syðra
Straumfjarðar, þaðan sem þeir
leggja upp í könnunarleiðangur
sinn.
Fimmtfu visindamenn
frá fimm löndum
Leiðangurinn til Grænlands
á að standa í ár. Hann hefst
næsta vor og lýkur vorið 1959.
Foringi leiðangursmanna verð-
ur Victor, en í för með hon-
um verða fimm tugir vísinda-
manna frá fimm löndum: Dan-
mörku, Sviss, Frakklandi, V-
Þýzkalandi og Austurríki. Eins
og nærri má geta þarf svo
stór hópur ekki neinn smáræð-
is forða • til vetursetu inni á
ísauðninni. Auk fæðis og elds-
neytis þarf svo auðvitað að
flytja ódæmin öll af vísinda-
tækjum upp á jökulinn, heill
floti beltabíla verður til afnota
í rannsóknarferðum um jökul-
breiðuna. Loks verður í far-
angri leiðangursins töluvert af
byggingarefni, sem á að fara í
vistarveru, sem grafin verður
niður í klakann. Þar á fámenn-
ur hópur vísindamanna að
hafast við nokkrum mánuðum
lengur en þorri leiðangurs-
manna.
Rannsóknarsvæði leiðangurs-
ins mun ná yfir fimm breiddar-
gráður frá norðri til suðurs. Á
hinn veginn nær það frá skrið-
jökulsjaðrinum hjá Diskoflóa
að jökulröndiimi í Norðaustur-
Grænlandi.
Þykktin á íshellumn
Erindi þessa mikla leiðang-
urs er að fá ábyggileg svör við
ýmsum óleystum ráðgátum
Grænlandsjökuls. Til dæmis
þeirri, hversu þykk íshellan er.
Gizkað hefur verið á að hún
sé tveir til þrír kílómetrar á
þykkt, eða álíka þykk og á
suðurskautslandinu. Nú er ætl-
unin að mæla þykktina á jökl-
inum rækilega með bergmáls-
mælingum.
Jafnframt vænta menn þess
að verða áskynja, hvort ísinn
hylur úfna fjallgarða með
hvössum tindum, eða hvort
undir honum er víðáttumikil
háslétta. Ennfremur er þess
vænzt að endanlegt svar fáist
nú við gamalli spurningu: Er
Grænland samfellt landflæmi,
eða er það í raun og veru eyja-
Franski heimskautakönnuðuriim Faul-Émile Victor.
klasi, sem jökullinn tengir
saman?
Isbúskapur
Ekki er það síður merkilegt
rannsóknarefni, hvernig Græn-
landsjökli búnast, hvort hann
eykst eða þverrar. Reynt verð-
ur að finna hlutfallið milli úr-
komumagns ánnars vegar og
bráðnunar og uppgufunar íss-
ins hins vegar með nákvæm-
um mælingum. Þetta er sér-
grein Danans Fristrups. Hald
manna er, að Grænlandsjökull
fari þverrandi,- en það skiptir
miklu að fá nákvæma vitneskju
um tekjur og útgjöld ísbreið-
unnar, þvi að breytingar á
henni hafa mikil áhrif á hita-
stigið i sjónum um norðanvert
Atlanzhaf og veðurfar á sömu
slóðum.
Lítill, franskur leiðangur er
sem stendur að störfum á
Grænlandsjökli. Fjórir menn
hafa haft vetursetu á ísbreið-
unni mitt á milli Upernavíkur
og Scoresbysunds. Fyrir þeim
er Jean Dumont, gamall sam-
starfsmaður Victors. Þeim og
brigðum þeirra var varpað nið-
ur í fallhlífum á jökulinn í ág*
úst í fyrra.
Fer Maemill-
an til MasUra?
Fréttastofa Reuters hefur
það eftir stjórnmálamönnuni í
London að Macmillan forsætis-
ráðherra hafi borið undir Win-
ston gamla Ohurchill, hvort
ráðlegt sé að bann haidi á
næstunni til Moskva í opinbera
heimsókn. ChurchiU bauð for-
sætisráðherranum til miðdegis-
verðar á sveitasetri sínu Chart-
well í Kent í síðustu viku.
FLUGFÉLAG ÍSLAIMDS
HEFUR VALIÐ
FYRIR YÐUR
í dag tekur Flugfélag íslanas í notkun nýjar Viscount
flugvélar og markar meö því tímamct í sögu farþega-
flugs íslendinga. Það er dásamlegur víöburöur aö fljúga
I Viscount — hraöi og aukin þægindi. Fjórir Rolls-
Royce þrýstihreyflar útiloka næstum allan hávaða og
titring. Gluggarnir eru stærri en á nokkurri annarri far-
þegaflugvél, enda njóta farþegarnir útsýnisins hvar,
sem setiö cr í vélinni.
l'WXERS
FJÓRIR ROLLS-ROYCE DART ÞRYSTIHREYFLAR
Fyrsta farþegaílugvélin í heiminum, sem knúin er þrýstihreyflum
VICKERS-ARMSTRONGS (AIRCRAFT) LIMITED, WEYBRIDGE,
SURREY, ENGLAND