Þjóðviljinn - 25.08.1957, Page 4

Þjóðviljinn - 25.08.1957, Page 4
%) -- í>JÓÐVILJINN — Sunnudagur 25. ágúst 1957 IMÓÐVIUINH Útgeíandl: SamelninBarflokkur aiþýðu — Sósíalistafiokkurinn. — Ritstjórar: Masnús Kjartansson (áb), Sigurður Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón EJarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Guðmundur Vigfússon. ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýs- ingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prent- smiðja: Skólavörðustíg 19. - Sími 17-500 (5 línur). - Áskriftarverð kr. 25 á mán. i Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsstaðar. — Lausasöluverð kr. 1.50. Prentsmiðja Þjóðviljans. iL__________________________J ( J'\ft má heyra furðulega J ^ óraunsætt tal um íslenzk efnahagsmál, ekki aðeins rnanna á milli, heldur hljóm- ar það einatt í ræðum ,.reyndra“ stjórnmálamanna og-,,ábyrgum“ stjórnmálablöð- tim. Þannig heyrir maður t.d. oft minnzt á útgerðina sem . foagga á þjóðinni, það er talað ! nm hversu mildar summur íhún gleypi af þjóðartekjun- itm, og stundum er svo að sjá ■ sem ýmsir ímyndi sér að lífs- Jtjör í landinu myndu batna stórum ef hætt væri að basla við að draga fisk úr sjó. Ekki þarf þó mikla umhugs- ! nn til þess að sjá að útgerð- ' 'ín er undirstaða efnahagslífs- ! ins, allar aðrar athafnir þjóð- arinnar eru háðar henni, án útgerðarinnar yrði lífið i land- inu ákaflega frumstætt. Og hvað sem öllu bókhaldi líður er staðreyndin sú að íslenzk 1 útgerð er einhver arðbærasti atvinnurekstur sem um getur £ víðri veröld; það sést m. a. ' é því hversu góð lífskjör ír-jóðarinnar eru þrátt fyrir á- : kaflega einhæfan atvinnu- rekstur og hversu lítill hluti frjóðarinnar starfar að fisk- \reiðum. f Hins vegar er fyrirkomulag og stjórn útgerðarinnar : Ihér á landi oft með býsna annarlegu móti. Segja má að töp útgerðarinnar séu „þjóð- aýtt,“ þar sem þjóðfélagið í Sieild borgar ö)l skakkaföll og Jeggur fram miklar fúlgur á sri hverju — af þeirri ein- földu ástæðu að það er lífs- nauðsyn að útgerð sé stunduð af fyllsta kappi, að öðrum kosti hrynur efnahagskerfi fjjóðarinnar í rúst. Einnig er fé það sem fest er í útgerð að mjög verulegu leyti sam- eign þjóðarinnar, fengið að láni. Hins vegar hafa einka- aðilar að miklu leyti útgerð- Erstjórnina með höndum, og þó einkanlega fiskiðnaðinn. þessu sambýli ríkisins og einstaklinga hefur hlotizt margháttuð spilling, ýmsir út- gerðarstjórar hafa misnotað Jþann trúnað sem þeim hefur verið sýndur; þeir hafa misk- 'unnarlaust dregið sér fé frá Vitgerðinni til óskyldra fram- kvæmda og lúxuslífernis, þar eern öll áhætta var tryggð af ríkinu og þjóðin greiddi skakkaföllin. Á þessu sviði ihefur verið og er þörf marg- iháttaðra umbóta, en enginn skvldi blanda saman gagn- rvni á rekst.ri útgerðarinnar og þjóðhagslegu gildi hennar- Asama hátt virðast margir vaða í villu og svíma um jþað hvernig gjaldeyris er afl- að; heildsalar bera fram endalausar kröfur um dollara og pund, eins og það sé eitt- hvað sem ríkisstjórn og bank- ar framleiði eða geti útvegað að eigin geðþótta; það sé að- eins meinbægni eða eitthvað enn verra. ef viðskiptum er íbeint til landa utan Bretlands cg Bandaríkjanna. Hefur þessi @Maða enn einu sinni komið fram í Alþýðublaðinu og Morgunblaðinu seinustu daga. Það er þó lágmarkskrafa að heildsalar geri sér ljóst að vörurnar, sem eru fluttar inn, eru keyptar fyrir fiskinn sem við flytjum út, og hvei'gi er gjaldeyri að fá nema hjá kaupendunum. Því aðeins komumst við yfir dollara í Bandarikjunum að þarlendir menn kaupi af okkur fisk (þegar hinum annarlegu her- mangsdollurum sleppir), og því aðeins komumst við yfir pund í Bretlandi að við selj- um fisk þar í landi. Hins veg- ar eru Bandaríkjamenn og Bretar mjög tregir til að kaupa íslenzkar fiskafurðir, og í þeim löndum fáum við langlægst verð fyrir afurðir okkar, svo lágt verð að ef við ættum að hlíta því einu mundi stórlega þrengjast fyrir dyr- um þjóðarinnar og gjaldeyris- skorturinn verða algerlega ó- viðráðanlegur. Fram hjá þess- um einföldu staðreyndum verður auðvitað ekki komizt, hversu svo sem heildsalar kunna að óska þess að stað- reyndirnar væru á aðra lund. Núverandi stjórnarvölduin hefur tekizt að gera mjög hagstæða samninga um sölu á allri framleiðslu íslendinga, svo hagstæða og víðtæka að við höfum ekki undan að framleiða. Hins vegar þurfum við vaxandi magn af gjaldeyri á næstum árum, til þess að tryggja eðlilega og jákvæða þróun í landinu. Leiðin til þess er engin önnur en sú að auka framleiðsluna, veiða meiri fisk og selja meira. Til þess þurf- um við að eignast ný og góð framleiðslutæki á sjó og landi, og veltur á miklu að ákvarð- anir Alþingis og ríkisstjórnar í því efni séu framkvæmdar sem allra fyrst. Jafnframt þurfum við að tryggja út- flutningsframleiðsluna með því að endurheimta að nýju full yfirráð yfir fiskimiðun- um umhverfis landið. Þetta eru brýnustu viðfangsefni ís- lendinga í efnahagsmálum, og lausn þeirra þolir enga bið, enda hefur ríkisstjórnin heit- ið því að vinna ötullega að framkvæmd þeirra. >---- ------------- • ....— Sprengt í austri og vestri Bandarikjamenn reyndu í fyrradag 13. kjarnorkuvopn sitt í tilraunum þeim, er nú standa yfir í Nevadaeyðimörkinni. Hafa þeir þá alls reynt 58 kjarnorkuvopn. Sprengja þessi var látin falla úr loftbelg í % km hæð og tóku herflokkar og flugvélar þátt í tilranninni. Tilkynnt var í gær í Wash- ington að aftur hefði orðið vart á mælum kjarnorkjusprenginga í Síberíu í fyrradag. En Rússar hafa engai' tilraunir gert svo vitað sé, síðan í apríl s.I. Undirnefnd Sameinuðu þjóð- anna í afvopnunarmálum situr nú fundi í London, en lítt mið- ar í samkomulagsátt. v!ví SKÁKIIV Ritstjóri: FREYSTEINN ÞORBERGSSON Ein skák og stöðumynd Skákmenn okkar eru ný- komnir heim af Norðurlanda- þingi. Að þessu sinni reiða þeir ekki heim þungar klyfjar verðlauna, eins og oft áður á slíkum þingum, og segja má, að hróður íslenzkrar skáklist- ar hafi ekki hækkað verulega í þessari keppnisför. Á hinn bóginn er alls ekki hægt að tala um neitt afleita frammistöðu, og taki maður tillit til beggja þeirra stað- reynda, að mót þetta var ó- venju sterkt og hins, að við tefldum ekki fram okkar allra sterkasta liði, er ástæðulaust að vera óánægður með út- komuna. Og verðlaunalausir komu íslendingar ekki heim. Þeir félagar, Eggert Gilfer, aldursforseti íslenzkra skák- rnanna, og Lárus Johnsen sáu fyrir því, en þeir skiptu með sér þriðju verðlaunum í öðr- um riðli meistaraflokks, svo sem kunnugt er. Ritstjóri þessa þáttar sneri sér til Lámsar og bað hann um skák til birtingar í næsta þætti, en Lárus lét lítið yfir skákum sínum og taldi þær naumast þess verðar að ganga á þrykk út í dagblöðunum. Ritstjórinn lét sér þó ekki segjast heldur sótti því fast- ar eftir sem hann kenndi meiri mótstöðu, og fór svo að lokum, að Láriis glúpnaði og lét skákskrifbók sína af hendi rakna. Það sem á eftir fer er árangur af grúski mínu í téðri bók, að viðbættum leið- beiningum Lárusar sjálfs um einstakar skýringar. Fyrst kemur skák Lárusar við Svíann Kerje, en Kerje þessi varð annar í þeim riðli meistarflokks, sem Lárus og Gilfer tefldu í, hálfum vinn- ingi ofar en þeir. ( SIKILEYJARVÖRN Hvítt: Lárus Jolinsen Svart: A. Kerje 1. e4 cö 2. Rf3 d6 3. c3 Þessi leikur er ekki i miklu áliti hjá skákfræðingum, enda velur Láms hann einkum til að forðast troðnar slóðir. 3. d4 er langalgengasti leikurinn, svo sem kunnugt er. 3. — Rf6 4. B<13 Einn frumlegur leikur leiðir af sér annan frumlegan. Þessi biskups leikur er liður í hinu sérstæða uppbyggingarkerfi Lárusar. 4. — Rc6 5. h3 g6 6. 0-0 Bg7 7. Be,2 0-0 8. d4 exd4 9. cxd4 Db6? Þessi drottningarleikur er ekki góður eins og brátt kemur í ljós. Bezti leikurinn var senni- lega 9. — d5. Lárus hefði þá átt allerfiða völ. Annað hvort varð hann að drepa á dð og 'hljóta við það einangrað peð á d4, sem gat reynzt honum erfiður baggi að dragast með til lengdar, eða leika 10. e5 og gefa svörtum færi á að leika Re4 og ná nokkuð fastri og traustri stöðu. T.d. 9. —- d5 10. e5, Re4 11. Rc3, Bf5 12. Rh4, Rxc3 13. bxc3, Bxc2 14. Dxc2, e6 og svartur á að visu heldur þrengra tafl en ætti þó að halda sínu 10. Rc3 e6 11. Hbl Rh5 12. Be3 Da5 Betra var að viðurkenna villu sína strax og leika drottning- unni heim til d8. 13. a3 Bd7 14. b4! Heim skal hún samt! 14. — Dxa3 dugir nú auðvitað ekki vegna 15. Rb5 Da6 (Da2, Bb3) 16. Rc7 o.s.frv. hann sér hilla undir möguleika á skemmtilegum tafllokum. 38. — Dxf2f 39. Kh2 Hg8 Nú hótar svartur máti á g2, sem má nú reyndar verjast á ýmsa vegu, en nú tekur Lár- us einföldustu leiðina og mát- ar sjálfur. 40. Rf7 skák og mát Óneitanlega snotur lokastaða. Skák Lárusar við Finnann O. Pastulioff, sigurvegara flokksins, var róleg framart. af, en er á leið tók hún á sig næsta dramatískan blæ. 14. — Ðd8 Eftir 31. leik Lárasar, sem 15. Dd2 Hc8 tefldi fram hvítu mönnunum, 16. Bb3 Re7 kom eftirfarandi staða frani: 17. Hb-cl f5 Kerje reynir sókn á kóngs- Pastuhoff væng eftir að hafa beðið skip- ABCD EFGH brot í sóknarviðleitni sinni á hægra fvlkingararmi. Lárus hefur þó byggt uop of trausta stöðu til þess að slík sókn sé líkleg til að bera árangtir. 18. Bg5 Kli8 19. Hf-el f4 í viðleitni sinni til að skapa viðsjár á kóngsvæng leikur Kerje nú af sér peði. 20. Re2! Hið framsækna peð er nú dauðadæmt. 20. — e5 dugir nefnilega ekki vegna 21. dxe5 dxe5 22. Hxe8, Bxc8 23. Dxd8 og síðan fellur riddarinn á e7. Og ef 20. — Hxcl 21. Hxcl e5 kemur 22. dxe5. dxe5 23. Hdl og manni. enn tapar svartur 20. — h6 21. Hxc8 Bxc8 22. Bxf4 Só 23. Bh2 Rg6 24. IIcl De7 25. e5 dxeö 26. 27. dxe5 Dd6 NDf7 27. De3 var nákvæmari leik- ur, þar sem liann mundi svipta svartan öllum möguleikum til frekara mótspils á kóngs- væng. 27. — Rh4! Kerje neytir allra bragða í hinum övæntingarkenndu sóknartilraunum sínum. Ólán- ið er, hve biskupar hans eru illa virkir til sóknar. 28. Re-d4 Auðvitað ekki 28. Rxh4, þar sem svartur dræpi fyrst á f2 með skák og tæki síðan ridd- arann. 28. — Rf4 29. Bxf4 Dxf4 30. Hc3 g4 31. hxg4 Dxg4 32. Rxh4 Dxli4 33. Rf3 Þar með hafa sóknartilraunir Svíans runnið út í sandinn og taflið er raunverulega tapað, þar sem hann á bæði peði minna og lið hans stendur ver að vígi. 33. — I)g4 34. IIc4 Dg6 35. Bc2 Dh5 Eða 35. — Df7 36. Dd3, Dg8 37. Rh4 og vinnur auðveld- lega. 36. Dd3 Df5 Eini varnarleikurinn, en nú fellur maður fyrir borð. 37. Dc3 Bxea Örvænting. 38. Rxe5 Mörgum hefði þótt einlægara. að drepa með drottningu á e5 með skák, þvinga fram drottn- ingakaup og eiga síðan -heilan mann yfir. En Lárus telur sjaldan eftir sér erfiðið, ef Pastuhoff lék nú 31. —Hc3, sem er snotur leikur. Lárus má nú ekki leika 32. Rxc3 vegna Re3|' og svartur mátar eða vinnur drottninguna. En hann á sterkt svar, sem hrind- ir sókninni gjörsamlega: 32. Rf4! Svartur á nú ekki annars úr- kosta en slcipta upp riddur- unum. 32. — Rxf4f 33. Dxf4 Nú hótar Lárus Db8f Kh7;, Hhlf o.s.frv. Og þar sem svarti hrókurinn er í dauðan- um á c3 og biskupinn á d4 einnig, er ekki nema ein vörn við áðumeSndri hótun: 33. — c5 34. Dh4 Hótar á d8. 34. — Hc8 35. Hlil Dh6 Og nú skiþti Lárus upp- drottningum, vann peð á h6, en skákinni lauk með jafn- tefli, þar sem peðið nægði ekki til vinnings. En nú skulum við aftur renna augunum yfir stöðu- mjuidina. Við nána athugun kemur nefnilega í ljós, að Pastuhoff átti mun sterkari leik en Hc3, leik sem hefði þvingað Láras til skyndilegr- ar uþpgjafar. Allur galdurinn var sá að ýta hróknum einum reit lengra eftir e-línunni, leika Hc2!! Nú er hvítur gjörsamlega varnarlaus. 32. Dxc2 strandar á Rf4!f og nú verður hvítur að drepa riddarann til að forðast mát á h-línunm, en þá missir hann drottninguna. Leiki hvítur 32. Del kemur Dxd3, og riddarinn fellur ó- bættur. Og að endingu mundi 32. Rf4 hafa í för með sér manns- tap: 32. — Hxd2 33. Rxg6, fxg6 o.s.frv. Finninn fann á sér, að eitt- ■hvað bjó í stöðunni, en fatað- ist sýn í villugjörnmn myrk- viði leikflettunnar. Og Lárus slapp með skrekkinn! Svcinn Krislinsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.