Þjóðviljinn - 22.09.1957, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 22. september 1957
Námskeið
til undirbúningsprófs til löggildingar endurskoð-
enda verötir haldiö viö Háskóla íslands.
Skilyrði til þátttöku eru þau, aö hlutaöeigandi
hafi lokið gagnfræði- eöa verzlunarskólaprófi
eða hafi hliöstæöa menntun, sé 21 árs gamall og
hafi unnið að endurskoðunarstörfum undii
stjórn löggilts endurskoðanda eitt ár.
Umsóknir ásamt skilríkjum sendist formanni
prófnefndar Birni E. Árnasyni, Hafnarstræti 5,
fyrir 26. þ. m.
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda
Laugave
Ksrlmenmðskér
svartir-----
og brúnir
— — með leður- og
gúmmísólum.
íslenzkir og tékkneskir
Stórt úrval.
i C u 'O ci Ph 1 «+H a xo u 'u 4-> m
<> a a >> 'O
0 4-> 1 cö ^bí) cn cd § u cn u •«—i A5 U > m xo <D i úrval q 4-> Cð «+H O m «+H XO 0+ i tí
Einnig ö i—< c Þ 'Ö bD O <V 'm 1 s £ ■ÉS sólum. breytt 1 s 'C bí) s o c u C *CD >
I
"Ö
C
O
cfi
Skóverzlun Péturs Andréssonar
Framnesv
Málan
innan- og utanhúss
Guðbjörn
Ingvarsson
málari. Sími 10-4-10
Framhald af 9. síðu.
Ummæli forseta Islands
Framhald af 1. síðu.
síðustu aldamót. Um það var
honum ljúft að tala, og vissi
meir en ég um Akureyri um
aldamótin. Þá var hann prins
og hét Karl, og engan ór-
aði fyrir því, að hann yrði
konungur. En þær spurnir, sem
ég hefi haft af honum sem sjó-
liða koma heim við viðkynningu
síðar; Hann var háreistur og
höfðinglegur. Og þegar honum
var hoðið konungdæmi í Nor-
egi vildi hann ekki þiggja það,
nema þjóðaratkvæði kæmi til.
Það mun hafa verið erfitt að
taka við konungdæmi í Noregi í
hann tíð, þegar forseta- og kon-
jngssinnar deildu. Það voru sex
uldir síðan að Noregur hafði
itt innlendan konung, og ýms
veður í lofti. En sífellt óx veg-
ur hins unga konungs, uns
iiann varð að lokum í síðustu
styrjöld þjóðartákn. Hann varð
tákn og oddviti þeirra afla,
^em vildu varðveita norræna
erfð. Hann var oft í lífshættu
ig tregur fór liann úr landi,
þó þar bæri nauðsyn til um
endurheimtingu Noregs. Við
eigum hér heima mynd eftir
rófessor Revold frá því þegar
Hákon konungur stígur á land
eftir útlegðina, með Gerhard-
sen og Ólaf krónprins til beggja
handa. Það var eins mesta há-
tíðarstund í Norðurlandasögu
síðari tíma.
Norðmenn voru heilli öld á
undan okkur í .allri endurreist.
Þegar til stjórnskipulags kom,
þá völdu Norðmenn konung-
dæmi Haralds hárfagra og Ól-
afs helga. Hákon konungur VII.
i hefur sannað, að Norðmenn
gerðu rétt, í því. Frá söguöld til
I vorra tíma eru nöfnin Hákon,
! Ólafur og Haraldur farsælust.
Hákon konungur var þeim
viðfangsefnum vaxinn, sem
honum mættu á langri og erf-
iðri æfi. Hann var teinréttur á
fæti og allri framkomu, glað-
lyndur og skemmtinn. Ég undri-
aðist fyrir tveim árum minni
og létta lund þessa aldraða
konungs.
Við varðveitum í okkar minn-
ingu mynd hins vitra og góða
konungs, Hákonar sjöunda og
óskum hinum nýja konungi
Ólafi allra heilla.“
Forseta Islands barst í gær-
morgun svohljóðandi símskeyti
frá Ólafi V. Noregskonungi:
I djúpri sorg tilkynni ég yður
að minn ástkærí faðir, Hans
Hátign Hákon Konungur sjö-
undi, andaðist í morgun.
Ólafur R.
Forseti Islands hefur seut
Ólafi Noregskonungi svohljóð-
andi símskeyti:
Hans hátign Ólafur V. Kon-
ungur Noregs, Oslo. .
1 tilefni af andláti Hans Há-
tignar Hákonar Konungs Sjö-
unda föður Yðar sendi ég Yðar
Hátign innilegar samúðarkveðj-
ur mínar og íslenzku þjóðar-
innar. Með einlægum óskum um
bjarta og hamingjuríka fram-
tíð fyrir Konung Noregs og
Þjóð.
Ásgeir Ásgeirsson
Forseti Islands.
Voryrkjur
Framhald af 7. síðu.
hugsjón verkalýðshreyfingarinn-
ar, hugsjón sósíalismans um nýj-
an og betri heim, um nýtt þjóð-
félag réttlætis, manngöfgi og
bræðralags Tryggðin við þá hug-
sjón, enda þótt henni fylgdi löng-
um „hlutskipti útigangsins," er
aðal Jóns Rafnssonar og þeirra
félaga hans er brugðu stórum
svip á þá stormatíma íslenzkrar
verkalýðshreyfingar sem bók
hans fjallar um, og mun endast
orðstír þeirra til lífs með alþýðu
og alþjóð á íslandi.
S. G.
T3
Ö
Nýtt hefti af
Heilbrigðu lífi
Heilbrigt líf, 2. og 3. hefti þ.á.
af tímariti Rauða kross íslands,
er komið út. — Dr. Sigurður
Sigurðsson yfirlæknir ritar þar
Um Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur, Valtýr Albertsson læknir
Um offitu, Magnús H. Ágústs-
son læknir Um meðferð ung-
barna. Þá er grein sem nefnist
Alþjóðlegur baráttudagur, helg-
aður almenningsheill, þættir úr
sögu læknisfræðinnar, þættirnir
Á erlendum og innlendum vett-
vangi, grein um tennurnar og
loks er birt ársskýrsla Rauða
kross Islands árið 1953—’54.
Margar myndir eru í ritinu.
Ritstjórar Heilbrigðs lífs eru
læknarnir Bjarni Konráðsson
og Arinbjörn Kolbeinsson.
Optíma
tþróttir
Skipstjóri...
Framhald af 12. síðu.
frá Gesthúsum. Árið 1924, þá
25 ára gamall, varð hann tog-
araskipstjóri og hefur verið
það óslitið til þessa dags, fyrst
á togaranum Ver frá Hafnar-
firði, því næst á b/v Tryggva
gamla og síðan 1946 á b/v
Hvalfelli. Alla sína skipstjórn-
artíð hefur Snæbjörn verið í
röð fremstu togaraskipstjóra
og tíðum aflakóngur á togveið-
um og síldveiðum. Hefur hjá
honum farið saman dugnaður
og umhyggja fyrir skipverjum
sínum svo að til fyrirmyndar
er. Viðurkenningin, sem fyrst
og fremst er heiðursskjal, mun
verða afhent skipstjóranum, er
hann kemur næst úr veiðiför.
Fulham
Middlesbro
Stoke
Lincoln
Barnsley
Swansea
7 3 4 0 16-9
7 3 3 1 16-9
7 4 12 16-10
7 3 3 1 13-11
7 3 2 2 14-11
7 3 2 2 16-14
10
9
9
9 |
8 |
8
Skrifstofuritvélar
Ferðaritvélar
Garðair Glslason h.í.
Reykjavík
Áfbæjarsafn
Framhald af 12. síöu.
við Árbæ og niður aftur til
bæjarins, einstefnuakstur.
Safnið verður opið fram eftir
hausti meðan veður leyfir fyrst
um sinn daglega kl. 3-5 á virk-
um dögum og kl. 2-7 á sunnu
dögum.
Norðurlanda-
meisturunum var
synjað um f jár-
styrk
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
flutti Stefán O. Magnússon til-
lögu um að veita Taflfélagi
Hreyfils 3000 . króna styrk
vegna skákfarar til Norður-
landa, en eins og kunnugt er
tóku Hreyfilsbílstjórar þátt í
skákmeistaramóti sporvagna-
stjóra á Norðurlöndum og sigr-
uðu með miklum glæsibrag. Til-
laga Stefáns „fékk ekki nægan
stuðning", fjórir greiddu henni
atkvæði, en aðrir bæjarfulltrú-
ar sátu hjá.
Til
liggur leiðin
Mikið úrval af skólatöskum fyrir höm og unglinga.
Verð frá kr. 82.50.
Reiknihefti kr. 1.45, 1.50, 1.75, 2.00, 3.60.
Stílabækur tvístrikaðar kr. 1.30.
Stílabækur gleiðstrikaðar kr. 2.00
Stílabækur kr. 2.00, 3.00, 3.90, 4.40, 6.10.
Blýantar frá kr. 0.50.
Ennfremur blýantsyddarar, reglustikur, blek,
pennastengur og pennar og m.fl.
Bókabúð Máis og menniagir — Skólavörðnstíg 21 — Sími 15055