Þjóðviljinn - 29.10.1957, Page 3

Þjóðviljinn - 29.10.1957, Page 3
Þriðjudagur 29. oktcber 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Ræða Eðvarðs á Dagsbnmarfundinum Framhald af 1. síðu. störfum efnahagsmálanefndar verkalýðssamtakanna, sem síð- asta Alþýðusambandsþing kaus, en eftir að nefndin hafði kynnt sér allar aðstæður rækilega varð nefndin sammála um að halda fast við stöðvunarstefn- una og eflingu atvinnuveganna og leggja ekki til að samning- um yrði sagt upp að þessu sinni. Ensrin gengislækkun Eðvarð kvað mikið velta á því að hve iniklu leyti ráðstaf- anirnar er gerðar voru s.l. vet- ur myndu duga til þess .að skip- in gætu haldið óhindrað áfram um næstu áramót. Um það kvaðst hann ekkert vilja full- yrða. I fjárlagafrumvarpinu væri 70 millj. kr. bil, en hvorttveggja væri til, að áætlunin um tekj- Ur verði hækkuð, og að tekjurn- ar muni reynast meiri, og hitt að útgjöld verði aukin, í með- förum Alþingis. Það ætti líka að vera til í málinu að eitthvað af útgjöldum væri liægt að skera niður. í viðræðunum við efna- hagsmálanefndina kvað Eðv- arð ríkisstjómina, forsætis- ráðherra sem aðra, hafa mjög ítrekað þá yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar, að ekkert yrði gert í efnahagsmálunum án náins samráðs við verkalýðs- samtökin. Þetta svar felur í sér að gengisiækkun verður ekki framkvæmd, því það er stefna verkalýðssamtak- anna, samþykkt á síðasta Al- þýðiusambandsþin gi. Krafa urn erlent lán til íbúðabygginga Eðvarð kvað það hafa ver- ið kröfu efnahagsnefndarinn- ar að tekið yrði erlent Ián, ekki iægra en 50 millj. kr., til þess að fullgera íbúðarhús þan sem nú eru í smíðum og tU að byggja íbúðir til leigu. Húsnæðisvandræðjn verða ekki leyst með því einu, sagði Eðyarð, að aðstoða menn til að byggja, því fjöldi manna getur hvorki notað sér verkamanna- bústaðafyrirkomulagið né al- menna veðlánakerfið. Meðan húsnæðisleysið er eins og það er nú er engin von til þess að þetta fólk gett komizt í sæmi- legt húsnæði, nema hið opinbera byggi íbúðjr til leigu fyrir að- gengiiegt verð. Ríkisstjómin féllst ekki sem he'ld á þessa kröfu. 40 millj. til íbúða- bvumnga á næstu 3 mán. Því var borið við ;að ríkis- stjómin stæði nú í stórum fjár- frekum framkværndum sem er- lend lán þyrfti tiL eins og bygg- ingu sementsverkámiðju, Sogs- virkjuninni og rafveitufram- kvæmdum fyrip dreifbýlið. Ennfremur stæðu fjskveiðisjóð- ur og ræktunarsjóður í miklum framkvæmdum. Á meðan sé ekki 1 hægt að táka erlénd. lán. Aóeins ráðherrar Alþýðubandá- lagsins studdu kröt'u verkalýðs- • Siuutakanna um erient lán. Ríkisstjórnin hét því hins vegar að á næstu 3 mánuðum verði 40 millj. kr. hjá húsnæðis- málastjórn til lána í byggingar húsnæðis. Fyrirheit voru gefin s.l. vor um að 44 millj. kr. yrði varið á árinu í þessu skyni. Þegar hef- ur verið úthlutað 22 millj. 12 millj. áttu að fara í Búnaðar- bankann og eftír voru því ekki nema 10 millj. til útlána, ef ekki hefðu nú verið gerðar sér- stakar ráðstafanir. f stað 10 milljóna verða hví nú veittar 4.0 millj. til íbúðabygginga. Mikil mistök Það voru mikii mistök, sagðj Eðvarð, að taka ekki eriend lán til bvgginga. Það er vitað að gjaldeyrismálin eru ekki um of góð. Ef við eigum að taka alla okkar fjárfestingu af því sem víð vinnum inn á hverju ári, komumst við ekki langt. Er- ’ent lán hefði auk þess greitt fyrir tekjum ríkisjns af tollhá- um vörum. Aukinn réttur verkamanna Þá hét ríkisstjómjn • löggjöf um aukin réttindi tímakaups- manna, þannig að tímakaups- menn er unnið hafa t.d. eitt ár scm fastráðnir væru, fái lág- marksuppsagnarfrest. Einnig að tryggja þeim lágmarksveikinda- daga. Þetta hefur í áratug verið baráttumál Dagsbrúnarmanna, en aldrei fengizt inn í samninga. Atvinnurekendur hafa verið ó- fáanlegir til að semja um þetta, en haft um það góð orð. Margir atvjnnurekendur hafa líka tekið þetta til greina í framkvæmd, en meirihlutinn ekki. Það er mjög vel farið þegar verkalýðssamtökunum tekst að hafa Þau áhrif á löggjafarvaldið að slík hagsmunamál verkalýðs- samtakanna eru lögfest. Skattlækkun á miðlungs- lág- tekium Rætt var um frekari lækkun á tekjuskatti af lægr:- og miðl- ungstekjum og breytt fyrirkomu- lag á innheimtu. Ríkisstjómin hét að halda áfram á þeirri braut, og er það samkomulags- atriði við verkalýðshreyfinguna. Vel var tekið undir að breyta innheimtufyrirkomulaginu. Hef- ur verkafólk mjög talað um að innheimta þurfj skatta af kaupi jfnóðum. þvi þegar skattar og útsvör falla á kaupið seint á ári vil’ oft verða lítið eftir til annarra nota. Það er talið að þetta muni hafa í för með sér állmikla rösk- un og vandasama lagasetningu, en þessi aðferð hefur verið not- um í Svíþjóð og s.l. ár í Noregi. Smíði stálbáta iunanlands Ríkisstjórnin hét því að flýta fyrir smíði fiskiskipa úr stáli hér innánlands. Það mun nú standa á tilboðym frá smiðjun- um hér, en von • á þéim á næst- unni. ■ t Ríkisstjórhin telur sig rejðú- búna að stuðla að slíkum smíð- um hér, en vill ekki skuldbinda sig fyrr en tilboð frá smiðjun- um liggja fyrir. Smíði fiskiskipa úr stáli hér innanlands er mjög þýðingar- mikil, og myndi m.a. hafa mik- il áhrjf á atvinnu manna hér bænum. Eindregið mótmælt frekari bækkun Verðlagsráð landbúnaðarins hefur talið að verðlag þurfi að vera allmiklu hærra en 6 manna nefndin gerði ráð fyrir, eða 1,8% hærra. Bændur telja sig aldrei hafa fengið heim til sín það verð sem samið var um, en hinsveg- ar hafi kostnaður aukjzt. Fulltrúar verkalýðssamtak- anna mótmæltu því eindregið að verð landbúnaðarvara yrði hækkað, en málið er enn óleyst. Getur það haft töluverð áhrif á verðlagið, hvort sem verðið verður hækkað, látið koma fram í. vísitölunni eða greitt niður. Brask- o£ skulda- kóngar kveina Eðvarð kvað enga þörf að ör- vænta um að stöðvunarleiðin sé ekki fær. Hinsvegar berjast mjög sterk öfl gegn henni. Það eru mennirnir sem græða á gengislækkun. Milliljðimir sem mest hafa æpt undan stöðvunar- aðgerðunum, því, að mega ekki leggja á vörumar að vild. Það eru brask- og skuldakóngamir og milliliðimir sem myndu græða á gengislækkun, — al- menn'ngur í landinu myndi tapa. Eðvarð kvaðst ekki hafa hitt þá verkamenn er í alvöru vildu segja upp samningum og leggja út í verkfallsbaráttu nú. Hins- vegar heyrðust raddir um að hafa samninga lausa. Ræddi hann nokkuð um það, og sýndi fram á að afleiðing þess yrði allt önnur en vekti fyrir þeim mönnum er til þess hvettu. Hér hefur verið sagt efnislega frá aðalatriðunum í ræðu Eð- varðs. Auk hans töluðu margir aðrir fundarmenn, o« mæltist sumum vel. Ber þar sérstaklega að nefna Árna Ágústsson, og verður nánar sagt frá ræðum þeirra síðar. Hér sjáið þið raimsókiiarstöð nr. 5 á heimskautaísnum. Sendinefnd f rá V OKS Framhald af 12. síðu. rússnesku lrefur einnig verið þýtt nokkuð eftir Halldór Stef- ánsson, Jóhannes úr Kötlum, Þórberg Þórðarson o. fl. Sömu verkefni og vandamál Vikenti Zaitzev er yfirmaður haffræði og fiskirannsókna- stofnunarinnar í Moskva, en hún samræmir og hefur yfir- stjórn allra slikra rannsóknar- stöðva í landinu. Hann kvað sHkar rannsóknir mjög marg- brotnar í Sovétríkjunum vegna þess hve náttúra landsins og skilyrði væru ólík í hinum ýmsu hlutum ríkjanna. Fjöldi fiskategunda væri mjcg mikill, t.d. væru um 250 nytjafiska- tegundir í rússneskum vötnum. | Jafnframt þvi að rannsaka ’ lifnaðarhætti fiskanna, ferða-1 lög, hitastig, átu o.s.frv. værí annað meginverkefnið tækni- rannsóknir, þ.e. að finna nýj- ar veiðiaðferðir og veiðitæki. Á Atlanzhafi hafa Sovétrík- in samvinnu við Norðmenn, ís- lendinga og Dani um síldar- rannsóknir, og kvað prófessor Zaitzev fiskifræðinga þessara þjóða eiga þar við sömu vanda- mál og viðfangsefni að fást. Hann kvaðst því hlakka til að kynnast starfsbræðrum sínum hér og það stæði ekki á rúss- neskum fiskifræðingum til sam- vinnu við íslenzka. Bílstiórinn staðfestir fram- burð Markúsar bónda Rannsókn í brennumálinu á Svartagili hefur haldið á- fram og bílstjórinn m. a. yf- irheyrður. Framburður hans staðfestir framburð Markús- ' ar um illdeilur bræðranna. Deildu þeir og lenti saman út af greiðslu ökugjaldsins og þá fyrst kom Markús nið- ur, að þvi er bílstjórinn seg- ir. Bílstjórinn segir Markús hafa skipað þeim út og gert sig líklegan til að framfylgja þeirri skipun með því að beita gegn þeim stól. Hins- •vegar hafi Markús ekki ógn- að bræðrunum með hagla- byssu, eins og þeir báru við fyrstu yfirheyrzlu. Þegar bræðurnir réðust á Markús hugðist bílstjórinn stilla til fríðar en Reynir rak hann út og fór hann þá út í bíl. Þá hefur Þjóðviljinn fregnað að í brunarústun- um hafi gaseldavélin Iegið þannig að auðséð virtist að hún hefði verið sett á hlið- ina svo eldstæðin heindust að milliþilinu. Einnig hafa fundizt úti munir sem flutt- ir höfðu verið út úr húsinu. Þórður Bjömsson hélt yf- irheyrslum áfram í málinu í gær, en Þjóðviljanum tókst ekki að ná tali af honum að þeim loknum og-veit því ekki hvort nokkuð nýtt hef- ur kómið fram í þeim. • Heimskautsstöð nr. 5 Nikolaj Volk'iv var yfirmað- ur 5. rannsóknarstöðvar Sovét- ríkjanna á rekísnum við norð- urheimskautið. Stöð sú var á reki í ísnum frá því í apríl 1955 þar til í október 1956. Hún var staðsett á gömlum, geisistómm ísjaka er var 6 metra þykkur, en þegar leið- angursmenn hurfu brott var hann aðeins hundraðasti hluti af upphaflegri stærð og hafði sprungið á 8 stöðum . Leiðangursmenn rannsökuðu veðurfar, norðurljós, segul- magn, ísrekið, ísalögin, gerð íssins o.m.fl. Nú em tvær slík- ar stöðvar, nr. 6 og 7 á reki í isnum, og em rannsóknir þeirra þáttur í rannsóknury á hinu al- þjóðlega jarðeðlisfræðiári. Vistir og útbúnaður allur var fluttur flugleiðis til stöðvar- innar. Voru rafstöðvar, hús o. sl. flutt flugleiðis, en f*rá flugvellinum var það svo flutt til stöðvanna, sem voru nokk- uð dreifðar, með dráttarvélum og þyrilvængju. Þegar leiðang- ursmenn yfirgáfu stöðina fóru þeir með tæki sín én skildU eftir vistir og annan útbúnað — máski ræki matinn. og vodkabirgðirnar til Islands, — en ég er hálfhræddur um að þær fari frekar til Grænlands! .sagði hann. Þremenningarnir munu dvelj. ast hér á landi til 9, naæta mánaðar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.