Þjóðviljinn - 22.11.1957, Blaðsíða 12
Lög um skógrækt á íslandi 50 ára
Plöntuf ramleiðslan þarf a
Fullreynt að rœhtun nytjushóga á íslandi er
ehhi hara nauðsyn heldur framhvœmanleg
Skógræktarfélögin íslenzku eru hálfrar aldar gömul 1
dag. Á þeim tæpum 60 árum síðan farið' var aS rækta
hér tré hefur reynslan sýnt aS hægt er aS rækta hér
nytjaskóg með ágætum árangri, — og nú eru barrtré
farin að vaxa sjálfsáin á íslandi.
Takmarkið er að koma plöntuframleiðslunni upp í 2
millj. á ári, en til þess skortir meiri fjárframlög.
andi nm framtíð hinna íslenzku
birkiskóga, og þeir geta þess
í Ferðabókinni, að vilji menn
reyna að. rækta skóga verði að
fá skógfróða útlendinga til að
koma því verki áleiðis.
Út er komin lítil bók: Lög
um skórækt 50 ára, eftir Há-
kon Bjarnason skógræktar-
stjóra. Þar er saga skógræktar-
innar rakin allýtarlega. Um
forsögu hennar segir þar svo:
Frá fyrri tímum.
Um tvö hundruð og fimmtíu
ár hefur beztu mönnum þjóðar-
innar verið ljóst, að viðar- og
timburskortur var eitt af því,
sem stóð hinu íslenzka þjóðfé-
iagi hvað mest fyrir þrifum.
Mun óhætt að fullyrða, að næst
matarskortinum mun timbur-
skorturinn hafa verið þungbær-
astur á liðnum tímum.
Árið 1699 hvatti Páll lög-
maður Vídalín til skógræktar,
og mun hann sá fyrsti, að því
er við bezt vitum, sem hefur
skfifað um þessi mál.
Magnússon landfógeti
Við trjárækt í Viðey um
miðja 18 öld og ritaði um nauð-
syn skógræktar, og séra Björn
Halldórsson gerði einnig til-
raunir með að sá trjáfræi.
Skuli Ieit afar raunsæjum aug-
um á skógrækt, en þess var
samt engin von að hún gæti
tekizt hjá honum úti í Viðey,
þvi að til þess skorti fyrst og
fremst plöntur af norðlægum
slóðum auk þekkingar á lifnað-
arháttum trjánna, en tilraun
hans lauk með því, að búfé
tortímdi þvi, er lengst lifði.
Þeir Eggert Ólafsson og
Bjarni Pálsson voru mjög ugg-
Árið 1755 gaf stjórnin út til-
skipun um betri meðferð birki-
skóga og skógaleifa. Mun sú
tilskipun hafa verið af hvötum
Magnúsar amtmanns Gíslason-
ar, en allt er óvíst um, hvort
hún hefur orðið að nokkru
gagni. Einstöku menn fengu þó
fræ og plöntur eins og til dæm-
is Magnús Ketilsson sýslumað-
ur í Dalasýslu, og hann hafði
meira að segja nokkra heppni
með sér í tilraunum sínum.
Þóttist hann þess fullviss að
hér mætti rækta bæði greni og
HðmflúmN
Föstudagur 22. nóvember 1957 — 22. árgangur — 264. tölublað.
Húsróðandi
handsamaði
þjófinn
f fyrrinótt var framið inn-
brot I íbúðarhusið Fornhaga
22, en húsráðandi handsamaði
annan þjófinn og átti í rysk-
ingum við hann unz lögreglan
kom á vettvang.
Lögreglunni var gert aðvart
um klukkan hálf þrjú í fyrri-
nótt og er hún kom að húsinu
sást hvar fáklæddur maður
átti í stympingum við annan
fullklæddan. Sá fyrrnefndi var
húsráðandi, Jón Haukur Guð-
jónsson, sem kvaðst hafa far-
ið fram úr, er hann heyrði
grunsamlegt þrusk, og hlaupið
síðan á eftir manni, sem skot-
izt hefði út úr húsinu. Náði
hann manninum og átti í rysk-
ingum við hann, er lögreglu-
menn komu á vettvang, sem
fyrr segir.
Við nánari leit í húsinu fann
lögreglan annan mann, sem
hafði falið sig í geymslu á
efstu hæð. í fórum þjófanna,
sem báðir eru Ungverjar,
fundust sultukrukkur, peysa og
bjórflaska, en annað ekki.
Á laugardaginn komu til
Kaíró fyrstu hlutar kjarnorku-
ofns, sem Egyptar fá frá Sov-
étríkjunum og byggður verður
af sovézkum verkfræðingum.
Námskeið í hagfræði
Leiðbeinendur verða Brynjólfur Bjarnason
og Haraldur Jóhannsson
Um næstu mánaðamót hefst á vegum fræðslunefnd-
ar Sósíalistaflokksins og Æskulýðsfylkingarinnar nám-
skeið í póMtískri hagfræði.
Verður kennt eitt kvöld í viku, og verða leiðbeinend-
ur Brynjólfur Bjarnason og Haraldur Jóhannsson.
Þeir sem hafa hug á að taka þátt í námskeiði þessu
eru beðnir að gefa sig fram í skrifstofum Sósíalistafé-
lags Reykjavíkur eða Æskulýðsfylldngarinnar, Tjarn-
argötu 20.
•>
•>
«>
*
•••••••••••i
»••••••••••••••••••••••••••••••••
Samsýning í Sýningarsalnum á
abstraktmálverkum
í dag verður opnuö sýning á verkum tveggja lista-
manna í Sýningarsalnum og eru eingöngu sýndar
abstrakt myndir. Þaö eru Guörún Svava Guömundsdóttir
og Jón B. Jónasson, sem aö sýningunni standa. Verður
hún opin til 1. desember.
Rauögreni á Hallormsstað
Guðrún Svava Guðmunds-
dóltir, er fædd 1910 í Reykjavík,
hefur málað um árabil en lítið
sýnt opinberlega. Hún stundaði
nám í Myndlistarskólanum í
Reykjavík hjá Þorvaldi Skúla-
syni og Herði Ágústssyni auk
þess hefur hún farið í náms-
ferð til Parísar. Árið 1955 tók
Sovézka lónið opnar Egyptum
fjárhirzlur Bandaríkjanna
Ákvöröun Egyptalandsstjórnar að taka stórlán í Sovét- stjórnar hafa fengið loforð um
ríkjunum hefur orðiö til þess aö opna Egyptum fjár-
hirzlur Bandaríkjanna, sem höfðu veriö þeim lokaðar á
annaö ár.
iBandaríkjastjórn setti fjár-
málabann á Egyptaland í fyrra-
sumar, eftir að egypzka stjórn-
in þjóðnýtti Súezskurðinn.
Innstæður látnar lausar.
Bandaríkjastjórn lét ekki við
það sitja, að svipta Egypta
efnahagsaðstoð, heldur lagði
hún einnig hald á ailar inn-
stæður Egypta í Baftdaríkjun-
um, 40 milljónir dollara.
M'IR
Kvikmyndasýning í kvöld að
Þingholtsstræti 27 í Mírsalnum
kl. 21.00.
Sýndar verða þessar kvik-
myndir:
Moskva og íbúar hennar1.
Litmynd með dönskum texta.
Við erum frá Sormovu.
Litmynd með rússnesku tali.
Sormova er verksmiðjuhverfi í
bílaframleiðsluborginni Gorkíj,
við Volgu. í Sormovo iifði sögu-
hetja Gorkis, sem hann í „Móð-
urinni" kallar Pjotr Zalsuov,
haþu hét Pavel Vlasov, Var
smíður í Sormovo og einn af
skipuleggjendum hinnar frægu
1. maí-kröfugöngu 1902.
í gær var skýrt frá því 'í
Washington, að bandarísk
stjórnarvöld hefðu nú látið
lausan fjórðung innstæðnanna,
og gefið var í skyn að afgang-
inum yrði sleppt smátt og
smátt. Einnig hefur verið
skýrt frá því að Bandaríkja-
stjórn hafi greitt Egyptum
600.000 dollara, sem er banda-
rísk aðstoð við ræktunarfram-
kvæmdir í Egyptalandi.
Breytt um stefnu.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins í Washington sagði í gær,
að þótt bsndaríska utanríkis-
ráðuneytið héldi því fram að
þessar ráðstafanir hefðu enga
sérstaka þýðingu, væri hér um
að ræða gerbreytingu á fjár-
málastefnu Bandaríkjanna
gagnvart Egyptalandi.
Fréttaritarinn kvað það at-
hyglisvert, að þessi stefnu-
breyting skyldi gerð samtímis
því að fulltrúar Egyptalands-
Dregst á langinn
Tíðinda er ekki að vænta af
stjórnarkreppunni finnsku fyrr
en í næstu viku, vegna þess ,að
dr. Sari, foringi Finnska þjóð-
flokksins, sem falið hefur verið
að reyna að mynda stjórn, er
staddur erlendis og kemur í
fyrsta lagi hejm í dag.
stórlán í Moskva.
700 milljónir rúblna.
Egypzka fréttastofan hefur
skýrt frá því, að Amer, land-
vamaráðherra Egyptalands,
sem dvalið hefur í Moskva
undanfarið, hafi fengið þar lof-
orð um 700 milljón rúblna lán,
sem varið verður til að standa
straum af framkvæmd veru-
legs hluta af fimm ára iðnvæð-
ingaráætlun ríkisstjórnar
Nassers. Lánið er veitt til tólf
ára og vextir eru 2]Á%.
Guðrún Svava þátt í sýningu
Félags ísl. myndlistarmanna.
Jón B. Jónasson er fæddur
1910 í Reykjavík, stundaði
myndlistamám hér á landi m. a.
í Myndlistarskólanum í Reykja-
vík. Jón hefur átt sæt.i í stjórn
Myndlistarákcflans í mörg ár
og hefur unnið mikið að mynd-
listarmálum. Hann hefur kynnt
sér myndiist víða erlendis, tekið
þátt í sýningum hér heima og
erlendis. Síðastbðið vor sýndi
Jón nokkrar myndir í Sýningar-
sal Regnbogans í Bankastræti.
Sýníngin er opin daglega frá
kl. 10—12 og 2—22, á sunnu-
dögum frá kl. 2—22.
Vænzt tilkynning-
ar um alþjóðamál
Fréttaritari AFP í Moskva
segist hafa góðar heimildjr fyrir
því, að í dag verði birt tilkynn-
ing urn alþjóðamál, sem sam-
þykkt hafi verið á fundi foringja
yfir 50 kommúnistafiokka eftir
byltingarafmælið. Síðar verði
birt sérstakt friðarávarp til þjóða
heimsins.
Sósíalistar
R e y k j a v í k
Stjórn Sósíalistafélags Reykjavíkur vill
hér með eindregið hvetja alla meðlimi
félagsins til að leggja sig alla fram við
sölu happdrættismiða Þjóðviljans.
Sérstaklega vill stjórnin hvetja
þá til að skila peningum jaín-
óðum íyrir selda miða.
Þeir félagar, sem enn hafa ekki tekið
miða til sölu eða vantar viðbótarmiða,
eru beðnir að snúa sér til skrifstofu fé-
lagsins.
Félagar, til starfa fyrir happ-
drætti Þjóðviljans.
Stjórn Sósíalistafélags Reykjavíkur.