Þjóðviljinn - 19.01.1958, Blaðsíða 3
Sunnudagiir 19. janúar 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
10.000.000,00 krona
Loftvarnanefndarhneykslið er eitthvert forðulegasta dæmi sem
fnndið verður um órciðiístjorri og ósvífni íhaldsins
Eitt stórfurðulegasta hneykslið í óreiðustjórn Reykja-
víkuríhaldsins er störf svonefndrar Loftvarnanefndar
Reykjavíkur. Nefnd þessi hefur haft til umráöa og sól-
undað nær tíu milljónum króna. Þar af hefur meira en
milljón farið í kaupgreiðslur til nefndarmanna sjálfra
og gæðinga þeirra, en nefndarmenn eru fíestir fastir
starfsmenn bæjarins sem á þennan hátt hafa drýgt
tekjur sínar á kostnað bæjarbúa, og miiljónafúlgur hafa
íarið til þess aö hjálpa íhaldsfyrirtækjum að losna við
óseljanlegar bii'gðir.
Nefnd þessi var stofnuð 1951,
«g var hún fyrst og fremst sett á
laggfimar í pólitísku áróðurs-
skyni. Kalda stríðið stóð þá sem
hæst — landið hafði verið her-
numið á nýjan leik fyrir nokkr-
um mánuðum — og talið var á-
ríðandi að reyna að koma inn
Aðeiös hálfdrætíingiu: í launiun
við lögreglustjóra — enda úr
hægri klíku Alþýðuflokksins
þeirri skoðun hjá almenningi að
búast mætti við árás á hverri
stúndu. ’
Nóg til af hræsninni
Neínd þessi hefur starfað af
fullkomnu siðleysi. Allar ráðstaf-
anir hennar og áætlanir eru mið-
aðar við styrjaldaraðgerðir sem
heyra fortíðinni til, og það þarf
núkla hræsni til þess að halda
því íram að þær kæmu að
nokkrum notum ef styrjöld yrði
háð með þeirri tækni sem nú
tíðkast. En það virðist alltaf
vera nóg til af hræsninni ef hún
er vel borguð. Og þótt milljón-
iraar séu fljótar að fara í súginn
hjá óreiðustjóminni í Reykjavík,
er varia hægt að finna nokkuð
sern er eins siðíaust og þessi
leikur að þeim málum sem alvar-
legust eru.
Bærinn stendur nú
einn að skrípaleiknum
Nefndin hefur haft til ráð-
stöfunar til síðustu áramóta kr
9.750.000.00 — nær tíu milljónir
króna. Af þeirri upphæð hefur
rikið gr^itt kr. 4.500.000 en bæj-
arsjóður Re.vkjavikur kr. 5.250.
000. Upphafíega greiddu riki og
bær kostnaðinn til helminga, en
eftir að núverandi stjóm var
mynduð neitaði hún að taka þátt
í skrípaleiknum og síðan hefur
bærinn borlð kostnaðinn einn og
virðist ætla að halda áfram að
gera það samkvæmt f járhags-
áætiun þessa árs — ef íhaldið
ræður áfram. Af heildarupphæð-
inni hafði nefndin sóað nær
hálfri áttundu milljón í byrjun
síðasta árs, og hún hefur áreið-
anlega haldið áfram að ausa
peningum í kríngum sig síðan —
að minnsta kosti liafa nefndar-
menn áreiðanlega hirt bitlingana
sína skilvíslega.
Keypt óseljanlegar
birgðir af íhalds-
fyrirtækjum
Nefndin hefur keypt ýmsa
þarflega hluti, t. d. hjúkrunar-
gögn, læknistæki, talstöðvar,
vatnsdælur. En þessa hluti sem
vel mætti nota í daglegn þjón-
ustu í Reykjavík — og oft hefur
vanhagað um — hefur nefndin
lokað inni í nokkrum bröggum
og ráðið sérstakan mann til þess
að gæta þeirra. Þar virðast þeir
eiga að vera innilokaðir þar til
þeir era ónýtir eða úreltir. En
meirihluti kostnaðarins hefur
farið í hreina sólundun og við-
skipti við ýmsa af gæðingum
ihaldsins. Þannig keypti nefndin
Ilefur íhaldsmet í sukki og þáði
fyrir hiuidruð þúsunda króna —
en er nú ráðinn sparnað&rsér-
fræðingT.u- íhaldsins!
óseljanleg og legin brekán fyrir
hvorki meira né minna en 800
þúsmid krónur af Álafossi —
og hefxu- vasntanlega talsverð
próvisjón af þeim viðskiptum
rutrnið til Sjálfstæðisflokksins.
Eimúg keypti nefndln 700 sjúkra
rúm sem eru lokuð inni í brögg-
um, og kodda- og nimfatnað,
sem ekki liafði gengið út hjá
einu ílialdsfyrirtæki í bænum
fyrir liálfa milljón, og björguðu
þau viðskipti fyrirtækinu sem
var að því komið að fara á liaus-
inn en losnaði þarna við ónýtar
birgðir á hámarksverði. Einnig
hefur nefndin. keypt Ioftvarnar-
flautur fyrir 288.000 kr. en
„sjálfar flauturnar liafa ekki ver-
ið settar upp, nema ein á turni
Landakotskirkju til reynslu",
eins og segir í skýrslu nefndar-
innar. Þá hefur hún keypt sér-
staka símamiðstöð, „sem hefur
ekki verið tengd enn“ eins og
nefndin segir. Enn hefur nefndin
látið steypa einhver ósköp af
„steinsteyptum bitum af sér-
stakri gerð, til þess að byrgja
með glugga“. En raunar er of
langt mál að telja upp hina
miklu liugkvæmni nefndarinnar
við að koma milljónunum í lóg.
Þar værl hægt að
grafa margar milljónir
Nefndin hugsar sér þó að þetta
sé aðeins byrjunin. Eitt helzta
áhugamál hennar er þetta:
„Nefndin liefur lengi haft auga-
stað á því að gert yrði loftvarn-
arbyrgi í Arnarhóli. Er þá haft
í huga að reisa einnar Iiæðar
byggiugu meðfram Kalkofnsvegi
á allt að helmingi túnflatarins
og tyrfa yfir hið steinsteypta
þak. lyfta túninu að þessu leyti
um eina hæð ef svo mætti segja“
Ekki hirðir nefndin um að nefna
hvað slíkt fyrirtæki myndi kosta
(hverju. máli skiptir það?) en
hún bætir vlð og auglýsir þar
með hræsni sina: „Þar fengist
mikið húsrými, sem væntanlega
(!) mætti nota sem loftvarnar-
hyrgi, en jafnfraint til margra
annarra nytsamlegra hluta, t. d.
til bifreiðageymslu, vörugeymslu,
sölubúða o. s. frv.“ Loftvama-
nefndin byggir sölubúðir fyrir
fé bæjarbúa!
Sólundarinn orðinn
coarnaðarsér-
fræðingur
Eins og áður er sagt hefur
nefnd þessi ekki verið spör á fé
við sjálfa sig. Eramkvæmdastjór-
inn hefur fengið rúmar 700.000
krónur síðan um mitt ár 1951
— yfir 100.000 kr. á ári, en af
því hefur hann greitt einhvern
óskilgreindan hluta í skrifstofu-
kostnað tíl annarra. Þessi vel-
launaði framkvæmdastjóri er
Hjálmar Blöndal, hinn nýráðni
spamarðarsérfræðingur Reykja-
víkurbæjar!! Jafnframt fram-
kvæmdastjórn loftvarnanefndar
hefur hann verið framkvæmda-
;.stjóri Heilsuverndarstöðvarinnar
: og eflaust ekki hirt lægri laun
þar. Og ekki er annað vitað en
harin sé nú í þessum störfum
öllum þremur. Þama er sem sé
maður sem er í náðinni hjá
íhaldinu í Reykjavík — enda
svili Sveins Benediktssonar.
Aukasporslur til
embættismanna
Nefndin sjálí hefur ekki held-
ur klipið við sig greiðslurnar.
Formaður nefndarinnar, Sigur-
geir Sigurðsson iögreglustjóri og
fyrrverandi leiðtogi nazista-
flokksins, hefur hirt 66,000 kr.
fyrir störf sín í loftvarnarnefnd-
inni — og er hann þó einn af
hæstlaunuðu embættismönnum
ríkisins. Aðrir nefndarmenn eru
hálfdrættingar — ha/a fengið
33.000 kr. hver '— en þéir eru
Jón Sigurðsson - slökkviliðsstjóri,
Jón Sigurðsson borgarlæknir,
Válgeir Björnsson hafnarstjóri,
Jón Axel Pétursson framkvæmda
stjóri, Tómas Jónsson borgar-
lögmaður og Gunnlaugur
Briem póst- og símamálastjóri.
Allir þessir menn nema sá síðast-
taldi eru meðal fremstu embætt-
ismanna bæjarins, og allir í
hæstu launaflokkum, en þeir
fúlsa ekki við sporslunum held-
ur. Alls hafa kaupgreiðslur til
þessara manna numið 264.000 kr.
— rúmlega milljónarfjórðungi.
Geymslukostnaður á
áttunda bundrað
þúsunda
Eins og áður ei sagt hefur
nefndin dót sitt geymt í ramm-
lega læstum geymslum og er
sérstakur maður ráðinn til að
gæta þess. Kaup mannsins og
kostnaður við gæzlustörf hans.
ljós, hita, vátryggingar o. fl.
hafa numið á áttunda hundrað
þúsund króna. Þá hefur nefndin
greitt ýms önnur laun, m. a.
borgað Almenna byggingafélag-
inu nær 200.000 kr. fyrir áætlan-
ir um Arnarhól. Býsna mikill
hluti af milljónunum tíu sem
búið er að sólunda hefur þannig
runnið til nefndarmanna sjálfra
og starfsmanna þeirra og ýmissa
gæðinga, sem áttu óseljanlegar
vörur eða unnu einhverjar fár-
ánlegar áætlanir handa nefnd-
inni til að leika sér að.
Siðlaus ósvífni
Hefur fengið 66.000 kr. fyrir
að koma milljónum í lóg'.
ieggja fé til þessarar starfsemi,
og í bæjarstjórn Reykjavíkur
h&fa sósíalistar alltaf krafizt
þess að loftvarnarnefndin yrði
lögð niður og það sem nothæft
væri af birgðum hennar notað í
þágu bæjarbúa. En íhaldið hefur
staðið vörð um hagsmuni gæð-
inga sinna. Er þó þessi iðja ein-
hver hin siðlausasta sem hægt er
að ímynda sér. Vandamál striðs.
og íriðar eru alvarlegri en svo,
og aJleiðingar kjarnorkustríðs
hörmulegri en svo, að nokkruin
embaettismönnum eigi að hald-
ast það uppi að leika sér að því
að búa til „öryggiskerfi“ sem
vafamál er að gert hefði nokkurt
gagn í heimsstyrjöldiiuii fyrri,
livað þá nú. Að fela fjársóun til
fyrirtækja og bitlingamanna á
bak við slík viðfangsefni er svo
ófyrirleitin ósvífni að jafnvel
íhaldið ætti að blygðast sin fyr
ir hana.
Vísitalan 191 stig
Kaup'agsnefnd hefur reikn-
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar i Reykjavík hinn 1. janú-
ar s.l., og reyndist hún verá
191 stig.
Dönskunámskeið «• Erika
Sönderholms, byrjar aftur fyrir
þá, sem lengra eru kornnir,
þriðjudaginn 21. jan. kl. 8.15
e.h. í ÍI. kennslustofu háskól-
Eins og áður er sagt hefur
ríkið nú algerlega neitað að ans.
r---------—--------------------- ' "
Oreiða ihaldsins:
Fádæma bílakostnaður
Margt er skrýtið í reikningiun Reykjavíkurbæ.jar en
ýmsir kostnaðarliðir þar gefa glögga mynd af óhagsýni
og bruðli íhaldsins.
Reikningur ársins 1956, sem er sá síðasti
sem fyrir liagur endurskoðaður, ber meÓ
sér að veitt hafi verið framfærslulán á því
ári samtals að fjárhæð kr. 736.924.89.
En það sem vekur mesta furðu er að bif-
reiðakostnaðurinn einn við afgreiðslu þess-
ara lána nam hvorki meira né minna en kr.
44.140.00 eða liðlega 6% af hinni lánuðu
upphæð.
Hventia væri f járhag bankanna komið, ei
þeir færu á þennan hátt með vextina?