Þjóðviljinn - 19.01.1958, Blaðsíða 9
Sunnudagur 19. janxiar 1958 — ÞJÓÐVIUINN — <S
ÍÞRÓTTIR
trrsTJóiUi frimann helgasoH
„Skiforeningen” í Osló 75 ára
Var Skíðaféiag Reykjavíkur stoínað
á sama grundvelli?
Það kann að vera að ýmsum
finnist það varla í frásögur fær-
andi að skíðafélag í öðru landi
verði 75 ára, og undir venjuleg-
um kringumstæðum má vera að
svo sé, að það komi okkur frem-
ur lítið við og að það sé lítið
fréttnæmt. I-Ivað það félag snert-
ir, sem hér verður gert að um-
talsefni. má segja að það sé sér-
stætt, þó ekki væri 'nema fyrir
það að vera lahgfjölmennastá
skíðafélag Noregs og ciga engan
keppanda á skíðum.
t>að væri í annan stað ástæða
til að geta félags þessa ef það
reyndist svo að það hafi þau
áhrif alla ieið hingað út á ís-
land að hér var stofnað fyrsta
skíðáfélagið sem var brautryðj-
ancli skíðaíþróttarinnár á landi
hér, Skíðafélag Reykjavíkur, og
verður vikið svoiítið að því síð-
ar.
..Skiíorenmf>en“ elztu
skíðasamtiik Noregs
Félag þetta heitir fullu
nafni „Foreningen til Skiidrett-
ens fremme“ en í daglegu tali er
félagið nefnt „Skiforeningen" og
þá fer ekkert milli mála við
Iivað átt er. Fclagið er stofnað
4. janúar 1883, og er elztu sam-
tök um það að vinna að „fram-
gangi skíðaíþróttarinnar”.
í lögum félags i)essa segir að
„félagið sé opið öllum áhuga-
mönnu'm, og hefur það markmið
að vinna á allan hátt að út-
breiðslu skíðaíþróttarinnar, með-
al annars með því að sjá um
Holmenkollenmötið byggja og
starfrækja skíðaskála, laga til
stökkpalla, og göngubrautir, og
sjá um Skíðammjasafnið".
Skiforeningen cr aðili að
Skíðasambandi Noregs sem og
önnur skíðafélög þar, en það
einkennilega er að það á enga
skíðamenn sem það sendir á
kappmót og hefur aldrei átt. Það
hefur aldrei lagt vinnú- í það að
ala upp keppnisfólk, eigi að síð-
rir eru nú i dag um 35.000 fé-
lagar í því.
Allt frá upþhafi hefur það
verið aðalverkeíni og markmið
að vinna eins ötuilega að því að
koma sem flestum á skíði hvar
svo sem þeir stæðu hvað hæfni
snertir. Það hefur viijað fá unga
sem camla Oslobúa til. að hreyfa
sig á skíðum í hinu tæra útilofti
uni hæðir og dali Norðurmerkur
sem liggur skógivaxin að baki
borgarinnar.
Fyrir þetta hefur „Skiforen-
iiigen“ oft verið kallað „Vel-
ferðarfélagið" og norskur blaða-
maður hefur í sambandi við af-
mælið sagt að starfsemi þess hafi
sparað Osioborg margar milljón-
ir króna hvað snertir byggingu
sjúkrahúsa. Ilann segir að það
sé ekki hægt að ineta þá heil-
brigði og vellíðan, sem félagið
hafi gefið bæjarbúum.
Ryggir slriðaskála, stökk-
palla og gerir göngubrautir
Til þess að ná ttl fóiksins hef-
ur féiagið gert margar ráðstafan-
ir og iagt í því sambandi í
mikiar framkvæmdir og með
stækkun Osioborgar, vex verk-
sviðið stöðugt. Byggðir hafa verið
skíðaskálar víðsvegar um Norð-
urmörk, þar sem skiðafólkið fær
gistingu og aðra fyrirgreiðslu,
stökkpallar hafa verið reistir hér
L. H. Miiller
og þar og þegar snjóa tekur er
það hlutverk félagsins að ryðja
göngubrautir um þvera og endi-
langa Norðurmörk. Þessar braut-
ir feta Oslobúar svo góðviðris-
daga þegar skíðafæri er, svo
tugþúsundum skiptir, ungir sem
gamlir, og það jafnvel svo að
fjöldinn getur komizt upp í 70
þúsund þegar bezt lætur.
Þar má einnig finna upplýstar
brautir, sem nota má á kvöldum
eftir vinnu.
Félagið á Holmenkollen
stiikkbrauíina
Það er þetta félag' sem annast
og sér um Holmenkollenmótið
og hafa skíðamenn héðan tekið
þátt í því móti. Hátoppur .móts
þessa er Holmenkolignstökkin, en
sú fræga stökkbraut er eign fé-
lagsins, og' í þeirri byggingu, sem
er sjálfup stökkpailprinn, é'r
komið fyrir Skíðaminjasafninu.
Hagnaðurinn af móti þessu x'enn-
ur að nokkru cil íélagsins en
mestur . hluti þess fer til Skíða-
| sambands No-regs.
Framkvæmd móts þessa er
miklð verk og það er dálítið
táknrænt um hinn almenna á-
huga manna í félagi þessu að
þx-átt fyrir það að engan eigi
það keppanda i mótinu, að þá
iíður það aldrei af því að það
vanti áhugasama starfsmenn til
þess að gera það sem gera þarf;
er það meira en mörg keppnis-
félög geta sagt.
Eitt af því sem félagið vinnur
markvisst að er stofnun skíða-
skóla fyrir böm hingað og þang-
að í Norðurmörk. Enx skólar
þessir vinsælir og rnikið sóítir.
Er þeim komið fyrir þar sem
bezt hentar og þar læra börn
og unglingar að beita skíðunum,
og áhuginn þar með vakinn til
frekari athafna á skíðunum.
Hið vakandi auga
Skiforeningen gerir sem það
getur til þess að fylgjast með
því hvort áhugi og skíðaiðkun
er vaxandi eða minnkandi. Sem
dæmi um það má geta um atvik
sem skýrir nokknð starfsemi
þéss og viðbrögð.
Fyi-ir nokkrum árum var því
haldið fram í dagblöðum Oslö-
borgar að skiðaferðir um Norð'-
unrnöx'k væru greinilega minnk-
andi, og þótti það ill frétt. Var
því sérstaklega haldið fram að
það væri unga fóikið sem gengi
minna en áður. Skiforeningen
lét málið ekki aðgerðarlaust
fram hjá sér fara, það vildi
reyna að rannsaka málið og
komast að því rétta, ef þess væri
nokkur kostur. Það var mál sem
það varðaði. Þá var það sem fé-
lagið kom af stað ‘alningu þeirra
sem fóru á skíði frá tveim aðal-
stöðvum sem flytja flest fólk á
skíði til þeirra staða sem um var
rætt, og fleíri ráðstafanir- voru
gerðar. Rannsóknin leiddi í ljós,
að það var síður en svo minnk-
andí ferðir á skíði, heldur var
um vöxt að ræða, meðal þeirra
yngri. Hins vegar lcom í ljós að
fólk á aldrinum 20 til 30 ára
fór ekki eins mikið á skíði og
áður, Og þegar voru gerðar á-
ætlanlr sem miðuðu að því að
fá fólk þetta með á skiði líka.
Þetta dæmi sýnir hvei'já þýðingu
félagið hefur fyri.r skíðaáhugann
í Osló, og mönnum ber saman
um það að áhrif frá félaginu
hafa borizt um ailan Noreg.
Þess má líka geta að félagið
hcldur nákvæma skrá yfir notk-
un skíðaskála þeirra sem félag-
ið á.
í -sainbandi við þetta 75 ára
afmæli fóiágsins var mikið um
dýrðir, og við það tækifæri af-
henti Osloborg félaginu 10 þús-
und norskra króna, og fór sú
visðulega athöfn ásamt ræðum
Framhald á 11. síðu
Til stuðningsmanna H-listans
í Kópavogi
Það eru eindregin tilmæli til allra
stuðningsmanna H-listans að þeir hafi
samband við skrifstofur listans á
Digranesvegi 43, sími 10112, opiö
kl, 10—10; og á Borgarholtsbraut 30,
sími 10 0 27, opið ld. 4—10 e. h.
Eflið kosningasjóðinn, takið söfnunar-
gögn. — Tíikynmð um þá sem geta
lánað bíia á kjördag.
Frá Skattstofu
Allir þeir, sem fcsngið hafa send eyðublöð undir
launauppgjöf eða hluthafaskrár, eru áminntir um að
gera skil nú þegar.
Áríðandi er, að fá öll eyðublöðin til baka, hvort
sem eitthvað er út að fylla eða ekki.
Skattstjórinn í Eeykjavík.
Sjómannafélag Reykiavíknr
Aðalf undur
Sjómannafélags Iteykjavíkur verður haldinn sunnu-
daginn 19. jan. 1958 I Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu og hefst kl. 13.30. (kl. 1.30 e.li.)
FUNDAREFNI:
1. Félagsmál,
2. Venjuleg aðalfundarstörf,
3. Önnur mál.
Fundurinn er aðeins fyrir félagsmenn er sýni
skírteini við innganginn.|
Stjórnin.
Skáldapáttur
, r r rrr r Ritstjóri: Sveínbjörn Beintemsson.
Menn segja að heimurinn
fari versnandi. Þessu til sonn-
unar bera menn það fram
m.a. að minna sé ort en áður
var og færri hafi gaman af
hundnu máli. Það kann að
vera eitthvað satt í þessu,
enda margt sem tekur hugann
frá hljóðlátri ljóðagerð eða
vísnaskemmtun. En ef að er
gáð þá munu finnast ótrú-
lega margir sem fást eitthvað
við yrkingar, eða hafa a.m.k.
gaman af að heyra kveðskap.
Ég býst við að áhugi fyrir
löngum kvæðum sé minnkandi
enda gefur fólk sér síður tóm
til að sitja við ljóðalestur.
Rökkursetan var drjúgur
þáttur í menntun íslendinga
fyrr á öldum, og gaf tækifæri
til náms og íhugunar, eftir
því sem efni stóðu til.
1 þeirri eirðarleysu sem ein-
kennir nútímann er lítið við-
nám til að nema ljóð eða
ræða um þau, enda er ljóða-
gerðin heldur rótlaus á þess-
uni tímum. Skólarnir mættu
halda við ljóðagerðinni og
skáldmenntinni meira en gért
er enda bein skylda við menn-
ingu þjóðarinnar að svo sé
gert. Unglingar á skólaaldri
hafa margir hverjir gaman af
vísum, þótt fæstir gefi sig
að skáldskap að nokkru ráði,
enda öðru að sinna við nám-
ið.
Ef eitthvað er gert til að
auka kynningu ungs fclks af
ljóðlist og öðrum skáldskap
þá er það viðleitni til gagns
og ekki til einskis unnið.
Á mörgum heimilum er
aldrei minnzt einu orði á
skáldskap né höfð ýfir vísa
við nokkurt tækifæri. Ef
börnin kynnast ekki vísum
þegar þau eru næmust fyrir
öllu slíku þá er hætt við að
þau fái aldrei áhuga fyrir
þeim.
Það má vera að vísur hafi
ekki mikið hagnýtt gildi á
veraldar mælistiku, en þær
vinna samt gegn ýmsu því
sem sækir á hugann og leiðir
til ills ef ekki er á móti
spornað. Það er ekki svo lít-
ið af vizku í þessum gömlu
stökum sem fólk var alltaf
að raula ef ekki var öðru að
sinna í huganum. Og þessar
einföldu hæversku vísur
komnar af fjöllum ofan eða
fundnar á sjávarströnd, þær
leiddu og seiddu bamið af
villigötunni á veginn.
Þegar birtan dagsins dvín
dimma sezt á bekki
farðu að kvelkja móðir mín
mér svo leiðist ekld.
Uufagosinn liggur frosinn
úti:
lionum tosa ætla ég inn
upp á mosasvæfilinn.