Þjóðviljinn - 12.03.1958, Page 6
6; — Þ'JÓÐV'ILJINN — MiÖvikudagur 12. marz 1958
IOÐVIUINN
ÚtKefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósfalistaflokkurinn. — Ritstjórar
Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.). — Préttaritstjóri: Jón
Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Guðmundur Vigfússon,
ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýs-
ingastjórí: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prent-
smiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (5 iínur). — Áskriftarverð kr. 25 á
mán. í Reykjavík og nágrenni: kr. 22 annarsst. — Lausasöluverð kr. 1.50.
Prentsmlðja Þjóðviljans.
Stöðvunarstefnan
T isti sá, er nýlega var opin-
berlega birtur um verð-
lækkanir þær, er orðið hafa á
ssokkrum nauðsynjavörutegund-
larn á s.l. ári, hefur vakið mjög
miklá athygl.i almennings. Fólk
e-r orðið svo vant þeim áróðri,
sem stjórnarandstaðan rekur
fcæði leynt og ijóst, þótt ósann-
ur sé, að verðlag hafi almennt
hækkað í stjórnartíð núver-
andi ríkisstjórnar, að ekkert
er undarlegt, þótt því komi
næsta kynlega fyrir sjón.r að
íjá allt í einu birtan lista yf-
:-r allmargar vörutegundir, sem
iannað er að hafi lækkað í
- erði á s.l. ári. Hér er upptalið
-,d. strásyknr sein lækkað hef-
ur um 19%, molasykur um
16%, kaff , brennt og malað
um 9%, kol um 14%, húsaolía
um 26% og sement um 8%,
A llir sjá að hér er um að
J *■ ræða nauðsynjavörur, sem
rn'ikið munar um í heimilis-
haldi alls almennings, einkum
l)ó þeirra sem erf.ðastar ástæð-
ur hafa, eins og hinna bam-
flestu fjölskyldna, þar sem til-
'öluiega mest fer af tekjunum
; slíkar brýnar lífsnauðsynjar.
ætti þó einn.'g nefna fleiri
- dæmi. En jafnframt er rétt
að spyrja, hvenær það hafi
komið fyrir um fjölmörg und-
anfarin ár að nokkrar lækkan-
ir hafi orðlð á nokkrum vörum,
hvað þá svo miklar, sem hér
um ræðir,
Thýsna hljótt hefur verið um
” þetta mál í blöðum stjóm-
árandstöðunnar, íhaldsins. Það
helzta sem þar hefur sézt er
nöldur um að brennivín og tó-
;>ák hafi lítið eitt hækkað, og
Dlyrðakeimd slagorð um komm-
ún'sta í því sambandi. Enda
- ita það allir, að hér er árang-
ur af þeirri stefnubreytingu,
iem upp var tekin fyrir kröf-
,ir Alþýðubandalagsins, með
-nyndun. núverandi ríkisstjórn-
ar.
TTugsum okkur að þessar vör-
ur og aðrar fle.ri slíkar
áefðu hækkað frá 8 — 26%
á nokkrum mánuðum. Hvemig
hefði þá sungið í blöðum stjóm-
arandstöðunnar? Hvaða rosa-
íyrirsagnir hefðu þá verið birt-
ar, og hvemig hefði þá verið
agt út af þe m fullyrðingum,
að stjórnin ætti sök á vaxandi
dýrtíð? Þetta getur hver og
einn gert sér í hugarlund. Það
eitt, að stjórnarandstöðublöðin
;óegja þunnu hljóði um fregn-
ír sem þessar, er í hverju iandi
myndu þykja með merkileg-
ustu fréttum úr he. mi efnahags-
málanna, segir sína sögu. Ekk-
■ert sýnir betur það, sem stjórn-
arandstaðan vill leyna, að sú
stefnubreyting, sem orðið hefur
er að tryggja hag almennings
með því að hefta skriðu verð-
bólgunnar,
Hér «r um að ræða nokkra
þætti þeirrar hliðar, er
snertir beina hagsmuni elnstak-
lingsins. En hin hliðin er ekki
síður mik.lsverð, sem að fram-
leiðslunni snýr og öllum rekstr-
arkostnaði hennar.
T-jnð hefur verið margsannað,
* a/ð rekstrarkostnaður fram-
leiðslunnar hefur ekki hækkað
á s.l. ári. Þar er einnig um að
ræða árangur, sem óþekktur
er í okkar atvjnnusögu nú um
nærfellt tvo áratugi. Með þessu
er í fyrsta sinn um jafnlangan
tíma stigið stórt skref í þá átt
að tryggja heilbrigðari gninfl-
völl þjóðarframleiðslunnar og
þar með þjóðarteknanna. Hitt
er svo jafn auðsk lið mál, að
eins og viðskilnaður íhalds-
stjórnarinnar var á efnahags-
málunum, þá hlýtur það að
taka nokkurn tíma að færa
þau í gott horf, ekki sízt þegar
jafnsterkur og ófyrirleitinn
andstöðuflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur.nn er, beitir öllum sín-
um kröftum til að hindra þá
stefnu.
TT’.-tt er það ennþá, sem minna
hefur verið rætt um en
skyldi í sambandi við þessa
efnahagsmálastefnu. Það er að
glata ekki árangri hinnar miklu
baráttu sem háð hefur verlð
unt langan tíma, fyrir ýmsum
félagslegum réttindum og um-
bótum.
A llir vita um þýðingu þess
tryggingarkerfis, sem hér
hefur verið komið á. Sama
má segja um hvers konar sjóð-
myndanir, sem að því stefna,
að tryggja almannahag eða
standa undir framkvæmdum.
Þannig mætti auk hins almenna
trygg ngarkerfis, nefna lífeyris-
sjóði starfsfólks, atvinnuleys-
istryggingar, sjóðeignir hvers
konar félaga og síðast en ekki
sízt það húsnæðislánakerfi,
sem nú er ver.ð að byggja
upp fyrir atbeina núverandi
ríkisstjórnar, þar sem mynd-
ast eiga sívaxandi sjóðeignir
er með tímanum fullnægi fjár-
þörf í þessum efnum. ÖIl þessi
fjárhagslega tryggingarstarf-
semi er jafnóðum að engu
gerð ef sívaxandi verðbólga
fær að halda áfram. Öll hefui
hún fengizt fram með harðri
baráttu, sem oft hefur kostað
miklar fórnir. T. d. þurfti
margra vikna verkfall t.l þess
að fá framgengt kröfunnj um
atvd'nfíuley.sis'tryggingarnar.
Sama gildir um það spar.fé,
sem almenningur leggur
fyrir og ætíð er verið að hvetja
fóik til að auka sem mest. Sú
verðstöðvunarstefna, sem nú-
verandi rík.sstjórn hefur tekið
upp, og sýnt hefur sig bera
árangur, er eina stefnan sem
komið getur í veg fyrir að það
verði jafnóðum ,að engu gert,
ásamt hinu öðru, sem fyrr er
nefnt. Þess vegna er hamazt
gegn ríkisstjóminni af þeim
öflum, sem hafa verið á móti
þessum réttindum og vilja nota
óheppilega efnahagslega þróun
til að ná þeim aftur.
Kvœði og sögur
Jónasar Hallgrímssonar
Hátíðaútgáfa Máls og menningar
Jónas Hallgrímsson: Kvæði
og sögur. Með forspjalli eft-
ir Halldór Kiljan Laxness.
1 hundrað og fimmtíu ára
minningu skáldsins. Reykja-
vík Heimskringla MCMLVII
Loksins berst manni í hend-
ur útgáfa á ljóðum og sög-
um Jónasar Hallgrímssonar,
er verður við öllum kröfum
smekks og fegurðar. t raun-
inni hefur mann alla ævi
dreymt um að eignast Jónas
Hallgrímsson í þessum bún-
aði, vönduðum og yfirlætis
lausum. Bókin er prentuð á
handgerðan pappír, bundin í
alskinn, letur og allur frá-
gangur eins og bezt verður
á kosið. Þó vil ég strax taka
fram, að ég sakna vinar í
stað, þar sem er Gamanbréf
Jónasar um ferð drottningar-
innar á Englandi til Frakk-
lands. Að vísu er sú lystilega
frásögn í bréfsformi, en á
auðvitað heima í sögum hans.
Halldór Laxness hefur
skrifað forspjall aá útgáfunni.
Það er örstutt, aðeins hálf
fimmta blaðsíða, en dverga-
smíð. Mér er það enn í minni,
er okkur Hafnarstúdentum
barst Alþýðubókin eftir Hall-
dór Laxness veturinn 1929—
30. Við lásum hana upphátt
í Fríss Eldhúsi á Kaupmang-
aragötu. Ritgerð Halldórs þar
um Jónas Hallgrímsson, hinn
fyrsti lestur, hefur aldrei lið-
ið mér úr minni síðan. Snill-
ingshragðið á þessari ritgerð,
sem skrifuð er af kornungum
Islendingi vestur á Kyrra-
hafsströnd, hinn æskulegi
ferskleiki hefur ekki týnt
neinu af töfrum sínum þótt
síðan séu nærri liðin þrjátíu
ár. Eg sakna þessarar rit-
Atliugasessid
Hr. ritstjóri, góðfúslega
hirtið eftirfarandi í blaði yð-
ar;
I Mánudagshlaðinu 3. þ.m.
er birt sú frétt, ' að Brim-
nes h/f hafi flutt inn 11 bif-
reiðir frá Ameríku og gert til-
raun til að skjóta þeim undir
rangan tollflokk, en tollyfir-
völdin hafi stövað innflutn-
inginn.
Þetta er alrangt. — Brim-
nes h/f er mál þetta með
öllu óviðkomandi. Það hefur
ekki flutt inn greindar 11
bifreiðir, og á ekki í neinni
þrætu við tollyfirvöld út af
innflutningi sínum.
Sakir fjarveru minnar úr
bænum hefir dregizt að leið-
rétta þessa röngu frétt Mánu-
dagsblaðsins.
Reykjavík 8. marz 1958.
Brimnes h/f,
lliliiiar Ágú.sts.son.
gerðar í hinni nýju útgáfu,
hún hefði gjarnan mátt vera
með forsnjallinu.
JÖNAS HALLGRÍMSSON
En um það tjáir eklri að
sakast. Hinu ber að fagna,
að við höfum eignazt Jónas
í svo glæsilegri útgáfu. Eg
get ekki skilið, að nokkijjr
unnandi ljóða hans — og þeir
eru margir — standist þá
freistingu að bæta þessari út-
gáfu við hinar fyrri. Það eyk-
ur mjög bóklegt gildi þessar-
ar útgáfu, að í henni eru 12
myndir ágætlega teknar, af
nokkrum kvæðum eða brot-
um úr kvæðum í eiginhand-
arriti Jónasar. Þessi sýnis-
horn frumritsins færa mann
nær skáldinu og samtíð þess.
Þótt þessi hók hafi komið
út á hundrað og fimmtíu ára
afmæli hans á liðnu ári, hef-
ur hennar lítt gætt í bóka-
verzlunum til þessa. Hún er
nú komin á markaðiðnn og
Mál og menning gat ekki
minnzt starfsemi sinnar á
annan hátt betri en að stofna
til þessarar fögru útgáfu á
ljóðum og sögum Jónasar
Hallgrímssonar.
Sverrir Kristjánsson
New York. — I tilefni af
degi Sameinuðu þjóðanna gáfu
SÞ í fyrsta skipti út litprent-
I aða auglýsingu með fánum
allra bandalagsþjóðanna, sem
eru 81 talsins, ásamt texta á
Esperanto. Áður hafa einstak-
ar stofnanir innan SÞ notað
Esperanto á svipaðan hátt,
svo sem UNESCO, Alþjóðlega
vinnumálastofnunin og fleiri.
London. — Nýlega er kom-
in út Sýnisbók enskra hók-
mennta í Esperantoþýðingu:
Er það fyrsta bindið í fyrir-
huguðu þriggja binda verki.
Þetta hindi skiptist að jöfnu
milli bundins og óbundins
máls og tekur yfir tímabilið
1000—1800. Ritstjóm verks-
ins hafa með höndum valdir
menn, Skotinn W. Auld og
Englendingurinn Reto Ross-
etti, sem báðir eru sérfræð-
ingar í bókmenntum. Enska
sýnisbókin bætist hér í hóp
sýnisbóka pólskra, spænskra,
húlgarskra, be’gískra, ung-
verakra, sænskra, tékkneskra
og svissneskra hókmennta,
sem áður hafa birzt á Esper-
anto.
Búdapest. — Eftir margra
ára þögn um Esperanto hef-
ur Kossuth-útvarpsstöðin aft-
ur fengið áhuga á alþjóða-
málinu. Var þaðan útvarpað
nýlega fyrirlestri á Esper-
anto um ungverska Esper-
antoskáldið K. Kalocsay.
Meistaraverk hans er þýðing
hans á Helvíti Dantes á Es-
peranto. Telja margir Dante-
fræðingar, sem til þekkja, að
sú þýðing sé ein sú hezta og
fullkomnasta sem gerð hefur
verið á þessu meistaraverki
heimsbókmenntanna.
París. — Daníel Bovet,
Nóbelsverðlaunahafi í læknis-
fræði, talar auk fronsku,
þýzku, ensku og ítölsku einn-
ig reiprennandi Bsperanto.
Faðir hans, próf. Pierre Bov-
et, sem á sínum tíma var for-
stöðumaður Rousseau-stofn-
unarinnar í Géneve, - notaði
einnig Esperanto í uppeldis-
starfi sínu, og hafði m.a.
frumkvæði að rannsókn um
aðferðir við að kenna Esper-
anto og um árangur af þeim.
Tokio. — Forstöðumenn rit-
safnsins ,.B:'m jarðar", sem
út er gefið í Japan, hafa til-
kynnt, að væntanleg séu fimm
ný bindi, sem fjalla um Asíu-
lönd, Austur- og Norður-Ev-
rópu, Vestur- og Suður-Ev-
rópu, Ameríku, Suðurhafseyj-
ar og Afríku, Er allt verkið
samið af börnum í viðkom-
andi löndum, og hafa þegar
hirzt 15 hindi (þar á meðal
eitt um Norðurlönd, og er ís-
land þar á meðal). Hefur sá
háttur verið á hafður, að út-
gáfan hefur aflað sér sam-
starfsmanna meðal viðkom-
andi þjóða, sem síðan hafa
safnað ritgerðum, teikningum
og ljósmyndum meðal hama.
Framhald á 10. síðu.