Þjóðviljinn - 19.03.1958, Page 6

Þjóðviljinn - 19.03.1958, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 19. marz 1958 mómnuiN ÚtBefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar Masnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.). — Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. — Blaöamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýs- ingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla. auglýsingar, prent- smiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 25 ó mán. í Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsst. — Lausasöluverö kr. 1.50. Prentsmiðja Þjóðviijans. Sparifjáraukningiii 17rétt sú. er birt var fyrir skömmu um það að aukn- ing sparifjármyndunar, hafi verið 213,7 milij. kr. á 11 fyrstu mánuðum s.l. árs í stað 45,0 millj. á sama tíma árið áður, hefur vakið mjög mikla eftirtekt almennings. 'L''r hér um að ræða aukningu ^ á heildarsparifjárinnlögum, þ. e. innstæðuaukningu bæði í sparisjóðum og á hlaupareikn- ingum, og er skiptingin þannig: (talin í millj. kr.): Sparifé Hlaupar. Sgmt. 1957 122,4 91,3 213,7 1956 80,6 4- 35,6 45,0 Hækkun 41 8 126,9 168,7 Á þessu sést að heildaraukn- ingin s.l. ár er 168,7 millj. hærri en árið áður, miðað við fyrstu 11 mánuði. Þetta svar- ar til að vera rúmar 1000 kr. á hvert einasta mannsbarn í landinu eða meira en 5000 kr. á hverja fimm manna fjöl- skyidu að meðaltali. Enginn þarf að efast um það, að þessi mikla aukning stafar fyrst og fremst af því að fólk hefur öð’ast trú á það, að það væri einlægur vilji núverandi stjórn- ar að halda við verðgildi krón- unnar, svo sem unnt væri og hef- ur ennig kunna’ð að meta þær aðgerðir, sem hún hefur beitt sér fyrir til stöðvunar á hinni óheillavænlegu verðbólguþróun tveggja síðustu áratuga. A llir kannast við það mikla **■ umtal og hvatningar, sem sífellt hafa heyrzt frá allmörg- um stjórnmálamönnum um nauðsyn þess að almenningur leggi fyrir sparifé, en eyði ekki í hreinan óþarfa, því, sem ekki þarf á að halda í hvert sinn til nauðsynlegra hluta. Og víst er sú nauðsyn mikil. Það þarf engum að blandast hugur um það, hve mikiis virði það er fyrir allt athafnalíf í landinu, að sparifé safnist og verði drif- fjöður bæði í framleiðslu og fjárfestingum, sem lánsfé er gengur í gegn um atvinnulífið, eins og bióð í líkama lifandi veru. íJn þess hefur minna gætt hjá ■*-* þeim sömu stjórnmála- mönnum, a. m. k. mörgum hverjum sem mest hafa talað um nauðsyn sparnaðar, að jafn- framt sparnaði og myndun sparifjár verður að tryggja verðgildi þess, ef ekki á jafn- framt að fara fram mjög órétt- lát eignayfirfærzla frá þeim, sem sparifénu safna til hinna, sem fá það að láni annaðhvort til reksturs eða fjárfestingar. Og það er sú þróun í verð- Jagsmálum, sem hér heíur sífellt átt sér stað. Sú þróun hefur ölla fremur orðið til þess að skapa ótrú almennings á því, að leggja vinnu sína þann- ig fyrir og geyma hana í spari- sjóðsinnstæðum, og jafnframt orðið orsök óhemjulegrar ó- þarfa eyðslu á fjármunum, sem betur hefðu verið geymdir í atvinnulífinu sem starfandi aflvaki þess. að er því lítið samræmi milli orða og athafna þeirra stjórnmálamanna, sem sífellt hvetja almenning til að spara, og leggja fé sitt inn á banka og sparisjóði, en engan áhuga sýna á að tryggja það, að komið sé í veg fyrir að þetta sama fólk verði rúið þeim afrakstri vinnu sinnar, sem það leggur fyrir á þennan hátt þjóðfélaginu til hagsbóta engu síður en sjálfu sér. jT’ngum blöðum er um það að ■“■^ fletta, að sú mikla aukning sparifjárins sem varð á s.l. ári er mest að þakka þeim ráð- stöfunum núverandi ríkis- stjómar til að hefta verðbólg- una, sem upp voru teknar þeg- ar hún settist að völdum. Þá var það í fyrsta sinn á fjölda mörgum árum að almenningur hefur fundið vilja stjórnar- valda til að tryggja það, að hann yrði ekki rúinn með ó- heppilegri verðlagsþróun þeim fjármunum, sem hann lagði þannig fyrir. ’llel er það einnig kunnugt, * hve hatrammar eru þær á- rásir sem íram hafa komið gegn þessum ráðstöfunum. Vcrðlagseftirlitið hefur verið út hrópað. Takmörkun á full- komnu álagningarfrelsi hefur verið talin stefna verzluninni í voða. Er þó kunnugra en frá þurfi 4ð skýra, að eitt af mestu meinum efnahagslífsins er það hve mikið af fjármagni þjóðar- innar er bundið í verzlun og annarri milliliðastarfsemi. Þá eru kunnar hinar hatrömmu ár- ásir stjómarandstöðunnar á þá slefnu að taka þá fjármuni<S>- sem þurft hefur að afla til stuðnings framleiðslunni með sköttum á lúxusvörur og hrein- ar óhófsvörur, í stað þess að leggja þá á hinar brýnni nauð- synjavörur allra. ÍJn það eru einmitt fyrrnefnd- ir þættir í stefnu þeirri, sem núverandi stjórn markaði, sem hafa skapað það traust al- mennings á stefnu hennar, er valdið hafa auknum vilja til að geyma fé sitt á þennan hátt. En einmitt það er ein af megin- stoðum þess, að hægt sé að undirbyggja nýja framleiðslu- aukningu, en hún er sú eina leið er orðið getur grundvöllur að bættum lífskjörum þjóðar- innar í framtíðinni. Stórum auðveldara hefði verið að framkvæma verðstöðv- unarstefnu stjórnarinnar, ef Hin bryna þörf sjávarútvegsins fyrir ifgerSarsfölvar á Grænlandi í Vísi þ. 6. febr. 1958 ritar mjög mætur maður, Þorkell Sigurðsson vélstjóri, sem er vel kunnugur á Grænlandsmiðum, mjög merka grein um veiðar við Grænland og þá brýnu nauðsyn útgerðarinnar og allra landsmanna að fiskifloti vor fái aðstöðu til veiða frá höfn- um á Grænlandi. Þótt engu sé í raun hægt við þessa grein að bæta, langar mig þó að taka undir það, sem þar er sagt. Það hlýtur hver heilvita mað- ur að sjá, að sjávaraútvegur vor er dauðadæmdur í sam- keppni við aðrar stórfiskiþjóð- ir, fáum vér ekki aðstöðu til útgerðar á Grænlandi, og það því heldur, sem augljóst er, að hin áður auðugu fiskimið við ísland eru nú hröðum skrefum að breytast í eyðimörk vegna ofveiði. Andævi fiskifræðinga gegn þeirri staðreynd, er aðeins heimskuhjal manna, er ekki hafa það að starfi að veiða fisk og eru því utangátta um þetta mál; og er ekki ljós sú stórbylt- ing í tækni og veiðiaðferðum, sem orðið hefur síðan um alda- mót. Það er og augljóslega al- ger ómöguleiki, að bátafloti vor geti með eina vertíð róna á 3-— 4 mánuðum ársins, þegar verst eru veður og myrk nótt, keppt við bátaflota Norðmanna og Færeyinga, sem fá með lítið auknum tilkostnaði 2—3 upp- gripavertíðir og hafa sín skip í arðbæru starfi allt árið, — eða við stórfiskiþjóðir með allavega verndaða, þar á meðal tollvemdaða, innanlandsmark- aði, nema við höfum stórum betri aðstöðu til veiðanna en þeir. En bátaflotanum ríður ekki aðeins á því að fá aðstöðu til veiða á Grænlandi. Og eins og Pétur Ottesen hefur bent á, finnst mér einnig að minna komi ekki til greina en fullt og óskorað atvinnufrelsi ís- lenzkra manna á Grænlandi. En forustumenn og starfsmenn bátaflotans þurfa bráðnauðsyn- lega að kynnast fiskimiðunum og fiskigöngunum þar og öllu, sem að sjómennsku og veiði- mennsku þar lýtur, einnig rek- ísnum og ströndinni, og hvern- samstarfsflokkar Alþýðubanda- lagsins hefðu verið fullkomlega einlægir og ábyrgir í því máli, og enn þá fremur, ef stjórnar- andstaðan hefði ekki reynzt svo óþjóðholl að bejta öllum sínum sterku áhrifum gegn henni. Það er hvorttveggja að Sjálfstæðisflokkurinn hefur beitt öllum sínum krafti gegn henni og hitt að nokkur hluti stjórnarflokkanna einkum Al- þýðuflokksins hefur stutt þar að af öllum mætti hka, hefur vitanlega valdið erfiðleikum, og spillt árangri nokkuð. Samt sem áður standa fastar þær staðreyndir, að aldrei um lang- an tíma haía verið gerðar jafn ákveðnar ráðstafanir til að skapa traustari grundvöll und- ir efnahagskerfi þjóðarinnar, . og árangurinn sýnir sig í því, viðhorfi almennings sem spari- innlögin bera vott um. ig þar til háttar. Á ströndinni eiga þeir fyrir höndum að velja sér hafnir eða staði undir út- gerðarstöðvar, ekki aðeins með tilliti til sjósóknar og fiskimið- anna, heldur verður við þær háfnir ,að vera hentugt athafna- svæði m. m., en þó fyrst og fremst nægilegt, varanlegt og gott vatn. En mér finnst að vita þurfi vissu sína um fleira þama. Saga er um færeyskan línuveiðara — sönn eða ósönn — sem fór til Nýfundnalands að sækja sér kolkrabba og fór með hann á Grænlandsmið og rótfiskaði. Ekki er efamál, að eftir miðj- an júlí þarf að vanda beituna við Grænland. En þarf þess fyrir þann tíma? Er ékki nægi- legt að beita hvítri beitu t. d. grálúðu- og karfakóðum eða hlýra — á linu sem lögð er niður i ca. 40 faðma þykkar kasir af glerhungruðum þorski í höllum grunnanna á fyrra helmingi árs? og ef endilega þarf að beita síld, er þá nauð- synlegt að hún sé fryst? Eg meina hvorttveggja þetta með tilliti til þess að fá fisk á hvern ö.ngul, því meira en einn fisk ur getur ekki fengizt á hvern öngul. Ómögulega þarf beitan þarna að vera stórt skorinn, því að venjulega er hver hungruð skepna því gráðugrí þess minna er fram reitt. Svona mætti halda áfram að spyrja. Það er t.d. ekki víst, að stóri hrognfiskur- inn sé állsstaðar fyrir hendi á sama tíma. Það hefur fengizt hrýghandi þorskur (líklega með fullþroskuðum hrognum) í vesturhöllum grunnanna við Grænland í marz. Inn að landi og inn í firði hafa komið göng- ur af nýhrygndum hafþorski í apríl, og frjógvuð þorska- hrogn hafa fundizt fljótandi á yfirborði sjávarins yfir Stóra- Lúðugrunni í maí, eflaust frá þorski, er hafði hrygnt í hall- inu. — Einasti islenzki vél- bátsformaðurinn, sem reynt mun hafa að stunda veiði sina af kunnáttu við Grænland er Valgarður Þorkelsson, er hann fór vestur með Rifsnes um ár- ið. Ekki brást honum það, að fá fisk á hvern öngul í vestur- halli Fyllugrunns en fiskurinn var smár, þ.e. stóri fiskurinn var búinn að hrygna og farinn burtu. Á leiðinni heim fylgdist Valgarður með sigi fisksins í lestinni. Er hann var kominn suður í Danas- grunn lagði hann lóðir sín- ar aftur og fékk nú þann roknastóra þorsk, sem Græn- land varð svo frægt fyrir á ár- unum eftir 1923. í fyrstu var lifrin ekki hirl því þeim sýndisl hún svo ritjuleg. En svo skip- aði Valgarður að hirða lifrina. Þegar til Reykjavíkur kom, reyndist lifrin svo auðug af vítamínum að hún borgaði olí- una í túrinn. Togaraskipstjórar eru nú orðnir nokkuð kunnugir tog- miðunum við Grænland. Marg- ar ríkar ástæður eru fyrir því að íslenzku linubátarnir byrji strax kynni sín af línumiðun- um við Grænland. í fyrsta lagi rekur það fast- ar á eftir öflun útgerðarstöðva, að línuveiðar séu hafnar við Grænland og skipin vanti þar aðstöðu en hitt, að þau liggi hér heima í höfnum og beri því við, að aðstöðu vanti á Grænlandi. Það má vel vera, að sjósókn héðan á linubátum undir 100 tonna stærð vestur fyrir Græn- land, muni ekki geta svarað kostnaði. En bátá um og yf- ir 100 lestir með rúmgóðum lestum virðist mér að ætti að geta svarað kostnaði að senda vestur fyrir Grænland héðan á fyrra helmingi árs, ef þeir geta haft með sér nægar birgð- ir af olíu, salti, vatni og öðru, er í túrinn þarf. En að því mér sé kunnugt opnar Færey- ingahöfn ekki fyrr en 1. maí og fyrir þann tíma er mér ó- kunnugt um að hægt sé að fá nokkurn hlut til útgerðar keyptan á Grænlandi. Það fer varla hjá því, að nokkur ísingarhætta sé á fyrstu mánuðum ársins við Grænland og veðrin eru yfir- leitt verst þá, þar sem hér, þótt dagur sé þar lengri þá en hér. Þar á móti er svo lít- III ís við suðvestanvert Græn- land á fyrstu mánuðum árs- ins, að það virðist sennilegt að í janúar, febrúar og jafn- vel fram í marz gætu línubát- ar tckið afla sinn í grennd við Hvarf eða úti af Eystribyggð. Ekki trúi ég á að þeim mundi takast það í apríl, og í maí verða þeir áreiðanlega að sækja aflann lengra norður. Undan- farið (eða allt síðan 1952) hafa brezkir trollarar stundað veiðar „allan veturinn“ í grennd við Hvarf, þ.e. ef ís neyddi þá ekki til að leita lengra norður. í vetur barst frétt um að ,,RöðulI“ hefði selt 4216 kítti fyrir 13653 sterlings- pund og fengið aflann á minna en viku við Grænland. Ekki var sagt hvar þar, en mig grún- ar að það hafi verið í grennd við Hvarf. Þegar vaxandi sævarkuldi í Pólstraumnum hrekur fiskinn ofan í volga Golfstraumssjóinn fyrir neðan 100 faðma dýpi, er fiskurinn í góðum holdum og bragðgóður líkt og FaxafJóa- fiskur. Mim hann haldast í þeim Iioldum fyrstu mánuðina. En á djúpmiðunum og í höll- um grunnanna vantar æti handa öllu því ógrýnni af fiski sem þarna er saman rekið og stendur þarna innikróað eins og í rétt eða nátthaga. Að neð- an og vestan er það afgirt af hyldýpi úthafsins, en að of- an og austan af hinum ca. 0°C heita eða enn kaldari Póls- straumssæ. Megrast fiskurinn því meir sem nær líður sumri. Nú í vetur eða vor, þegar fiskur' tekur að tregðast á lín- una, finnst mér að stórir bát- ar yfir 100 tonn og meft rúm- góftar lestir ættu að færa sig yfir á miðin vift Vestur-Græn- Iand. Þeir þurfa fyrst og fremst Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.