Þjóðviljinn - 19.03.1958, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 19.03.1958, Blaðsíða 9
Okkur vantar meiri leikni og þjálfun og náum tæpast feti lengra fyrr en stærra húser risið — segir Valur Benediktsson eítir íerðina á HM í handknattleik íþróttasíðan hefur rabbað dá- lítið við Val Benediktsson um ýms atriði varðandi handknatt- leikinn, eins og honum kom hann fyrir sjónir hjá þeim lið- um sem hann sá á heimsmeist- arakeppninni. Valur mun elztur þeirra keppenda sem fóru til keppni á mótið, og heíur mikla reynslu sem handknattleiks- maður. Hann er sá eini sem var með í fyrsta landsleik ís- lands í handknattleik, af þeim sem nú fóru héðan til Austur- Þýzkalands. — Hvar stöndum við hvað leikni snertir? — Knattmeðferð hjá okkur er lakari en hjá þeim liðum sem ég sá, og er þar sérstak- lega áberandi munur þegar framkvæmp. skal eitthvað ' á mikilli hreyfingu; þá eru köstin og gripið öruggari hjá hinum erlendu liðum. Leikni margra einstaklinga var mikil og sér- staklega virtust Ungverjar leika í körfuknattleiksstíl og virtust sumir þeirra vera líka körfuknattleiksmenn. Tékkar voru leiknastir og virkari í leik sínum en hin lið- in sem við lékum við. Þeir liafa öruggara grip, leikur þeirra einkennist af öryggi fyrst og fremst og þótt þeir séu komnir inn á línu en eiga ekki gott með að skjóta senda þeir knöttinn heldur aftur til samherja en að 'skjóta í ó- vissu. Þeir nota vel breidd vallarins og jáðra lians, og var athyglisvert hve vel þeir notuðu örvhentan mann hægra megin á vellinum. Þeir nota nokkuð skrokkvindur, sérstak- lega maður að nafni Eret sem gérði það með góðum árangri. — Mikið knattrek? — Það var eingöngu notað ef leikmaður var kominn inn- fyrir frír og stefndi að marki, annars yfirleitt ekki. — Skutu þeir mikið? — Þau lið sem ég sá skutu ekki mikið, sennilega af örygg- isástæðum, vildu ekki eiga á hættu að missa knöttinn, og þó virtist manni að tækifæri væru að skjóta en þau voru ekki notuð. Ef það sást að maður skaut í ótíma og skotið misheppnaðist, fór hann útaf og nýr kom í staðinn. Mér virtist að okkar menn gerðu fremur of mikið að því að skjóta en of lítið og það var á kostnað leiksins og sam- leiksins í heild. Yfirleitt skjóta liðin ekki af löngu færi, og flest mörkin voru skoruð frá „línu“. Skotharka okkar manna var alveg á borð við skot annarra liða og skotöryggi ekki lakara ef um svipuð tækifæri var að ræða. — Mikill hraði í leikjunum? — Yfirleitt, mikill hraði er kjörorð liðanna. Þetta krefst mikillar þjálfunar og liðin voru, þau sem ég sá, í mjög góðri þjálfun. — Hvaða lið var bezt? .— Af þeim liðum sem ég sá voru Svíar beztir. Mér fannst sem leikur þeirra væri full- kominn, þar væri allt eins og það ætti að vera: Hraði, öruggt grip, nákvæmar sendjngar, leik- andi samleikur og virkur. Þeir eru framúrskarandi vel þjálf- aðir. Eg get vel skilið að Danir hafi ekki ráðið við Svia og þó áttu þeir ágætan síðari hálfleik við lið sem ég sá þá leika gégn. — Hvernig voru dómararnir? — Þeir eru ekki strangir, t. d. með vítköst. Það þurfti að vera mikið brot til þess að fá víti, og eiginlega aðeins í alveg opnum marktækifærum. Þeir eru óragir við að reka útaf ef haldið er þegar maður er kom- inn- innfyrir, og fyrir það misstum við eitt sinn mark- mar.n útaf, og fór þá einn leikmanna, Ragnar Jónsson, í markið. Við vissum það ekki aS- það mátti .setja varamark- manninn inn en leikmaður úti mátti fara útaf. En Ragnar varði allt og okkar menn bættu við markatöluna. Annars eru dómarar svipaðir og hér, nema eins bg fyrr seg- ir með vítaköstin. Þeir eni líka nokkuð strangari með skrefin en við hér. — Telur þú að þið hafið lært mikið á ferðinni? — Ég tel að við höf-um lært margt af ferðinni, en við kom- umst ekki feti lengra nema að fá stærra hús til að æfa í og keppa. Skipulag leiksins verður allt annað í stóru húsi. Við getum þó æft leikni ef það er tekið réttum tökum, og út- hald getum við einnig æft og það verðum við að æfa meðan við höfum ekki yfir að ráða stærra húsi, og með meiri æf- ingu og meiri leikni hefðum við komizt lengra í keppnínni í þessari ferð. Boginn á gólfi Hálogalands er heldur ekki á réttum stað og villir það þegar á stærra gólf er komið. Ég vil að lokum geta þess að ég horfði á æfingu hjá Sví- um og er mér það minnisstæð- ur atburður. Áður en sjálf æfingin byrjaði léku menn sér við að kasta knetti á milli sin. | Síðan hófst sjálf æfingin á hlaupum, síðan var leikfimi og voru það mjög svipaðar æfing- ar og Benedikt Jakobsson lét okkur æfa áður en við fórum í þetta ferðalag. 1 öllu þessu var hóflegur hraði og vel unnið, allir samtaka. Það var sýni- legt að þarna var agi sem allir- virtu og vildu hafa, en þar skortir okkur mikið. Þe-ir sem skoruðu mörkin: Af þeim 108 mörkum sem liðið. setti í ferðinni skoruðu 4 menn 94! Eru.það þeir Gunn- laugur Hjálmarsson 30, Birgir Björnsson 26, Ragnar Jónsson 24 og Einar Sigurðsson 14 mörk. Er þetta í sjálfu sér nokkuð athyglisvert, vjrðist vera of mikill munur á þessum og næstu mönnum. Aðrir sem skoruðu í ferðinni voru: Sverr- ir og Reynir Ólafsson 3 hvor, Valur Benediktsson 2 og Karl Jóhannsson, Hermann, Berg- þór, Karl Benediktsson, Hörð- ur Jónsson og Þórir Þorsteins- son 1 hver. í landsleikjunum í ferðinni skoraði Birgir 20 mörk, Gunn- Iaugur 16, Ragnar 12 og Ein- ar 10. Dani skoraði flest mörk í képpninni Til gaman fyrir lesendur verða nefndir nokkrir þeirra sem skoruðu flest mörk í keppninni. Sá sem skoraði lapgflest mörk var Daninn Mogens Olsen og í annað sætið kemur Tékkinn Eret sem okkar menn fengu svolítið að kenna á. Aðeins einn maður kemur méð í þessa skrá.frá liði sem ekki komst nema í forkeppnina, en það er Austurríkismaðurinn Steffelbauers. Hann skoraði 23 mörk. Taflan lítur annars svona út: Mogens Olsen Danmörk 46, Eret Tékkóslóvakía 34, Som Þa$ var Siglufjörður ea ekks ílafs- örðisr sem vann skíðalandsgðnguna í samræmi við þau. Stjórn SKÍ hefur nú tilkynnt ÍBS bréflega, að búið væri að leið- rétta útreikninginn, og mun opinberrar tilkynningar um úr- slitin vera að vænta næstu daga. — Orslitin munu hafa orðið þau, að Siglufjörður hafi náð efsta sæti, Ólafsf jörður öðru og Þingeyingar þriðja. Þann 16. janúar í vetur af- henti stjórn Skíðafélagsins hér verðlaunabikara sem Litlabúðin hafði gefið til þess að veita viðurkenningu elzta og yngsta þátttakandanum í keppninni. Sá elzti reyndist vera Friðleif- ur Jóhannesson fyrrv. fiski- matsmaður, 84 ára, en sá yngsti Árni Þórðarson þriggja ára. Hélt Friðleifur ræðu við þetta tækifæri, þakkaði fyrir hönd þeirra verðlaunahafanna auðsýndan heiður og óskaði skíðaíþróttinni, forgöngumönn- um hennar og iðkendum góðs farnaðar í framtíðinni. Or bréfi frá Siglufirði:' Margir útvarpshlustendur minnast þess, að fyrsta vetrar- dag í haust voru birt í út- varpinu úrslit skíðalandsgöng- unnar, sem fram fór í fyrra- vetur. Var þar frá því skýrt að Ólafsfjörður hefði orðið hæstur með þátttöftuhlutfall, ; Þingeyingar í öðru sæti og Siglfirðingar í þriðja. I desemberbyrjun í vetur kom íþróttafulltrúi ríkisins, sem annaðist útreikning þátt- tökunnar i umboði Skíðasam- bands Islands, hingað til Siglu- fjarðar. Bar þetta mál þá á góma milli hans og forgöngu- manna landsgöngunnar hér. Upplýstist þá, að þau úrslit, sem birt voru í haust, voru ekki rétt. Þegar þetta vai-ð kunnugt, skrifaði stjórn iþróttabanda- lags Siglufjarðar stjóm SKÍ og óskaði eftir þvi, að rétt úr- slit yrðu birt og verðlaun veitt Miðvikudagur 19. marz 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9 % ÍÞRÖTTIR trrSTJÖRJ, FRlUANH HELCÁSO0 V- , , ... . ---------- Frá æfingu þýzka handknattleiksliðsins, sem keppti á keimsmeistaramótinu í Austur-Þýzkalandi. A mynd- imu sést vestur-þýzki þjálfarinn Werner Vick, ásamt leikmönnunum Pauls, Mundt, Vollmer, Tiedemann, Kretzschmar og Herzog. Ungv. 33, Kjell Jönsson Sví- þjóð 23, Rune Áhrling Svíþjóð 23, Steffelbauer Austurríki 23, Theilmann Danmörk 23, Kámp- endahl Svíþjóð 22, Stefanovic Júgóslavía 22, Hirch Þýzkal. 22, Schwenker Þýzkal. 20, Mayrehzak Þýzkalandi 20, Mads Þýzkalandi 19, Fraezak Póllandi 19, Suskl Póllandi' 18, Fekete Ungv. 18, Narvestad Noregi 18. Áðrir skoruðu færri. Það er líka oft sem menn hafa gaman af að athuga hve vítaköst eru vel notuð í leikj- um, og hér fer á eftir skrá um það hjá þeim löndum sem kom- ast lengra en í forkeppnina. Svíar eru þeir einu sem skora úr öllum 20 vítakcstunum. — Svona lítur þetta út: V. m. Svíþjóð 20 20 Danmörk 20 17 Noregur 20 17 Þýzkaland 18 13 Pólland 17 13 Júgóslavía 15 11 Ungverjaland 15 13 Tékkóslóvakía 14 12 r Islandsmótið í körfuknattleik Íslandsmótið í körfuknattleik hélt áfram s.l. mánudagskvöld og voru háðir 2 leikir í 'm.fl. og fóru leikar svo að A-lið KFR sigraði ÍR 45:41 ög B- lið KFR sigraði KR með 43:28. KFIÍ-A;Iíí 45:41 (21:22) Þessi leikur var mjög fjör- ugur og tvísýnn frá byrjun. iR-ingar byrjuðu með því að ná nokkrra stiga forskoti, en KFR sótti á og liafði nær jafn- að í hálfleik. I seinni hálf- lei'k hófst áfram mjög tvísýn barátta. Um miðjan hálfleik tóku ÍR-ingar smásprett og komust yfir 35:29 en þá tóku KFR-ingar góðan endasprett og náðu að jafna í 41:41 ca. 2 mín. fyrir leikslok og tókst síðan að tryggja sér sigurinn með 2 góðum körfum. KFR náði sinum langbezta leik í mótinu til þessa, endaþótt það veikti liðið, að Matthías var forfallaður. Þeir náðu léttum samleik, völdunin tókst vel og skotin voru í fyrsta sinn mjög góð. Liðið var jafngott, en einkum veitti maður Þóri at- hygli, sem skoraði 15 st. og sum mjög fallega. Stighæstur var Guðm. (16 st.). Geir og Gunnar sýndu virkan samleik. ÍR-liðið sýndi góðan leik að vanda, en tókst illa að skapa Framhald á 10. siðu. Geymsluhúsnæði óskast Viljum taka á leigu gott geymsluhúsnæði (mætti vera skemma), fyrir pappír. Upplýsingai á skrifstofuiuii. Þióoviuinn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.